Vísir - 11.03.1976, Blaðsíða 3
VISIR Fimmtudagur
I. marz 1976
3
LANDBURÐUR
Á
VESTFJÖRÐUM
Mjög góður afli hefur verið hjá
vestfirsku skuttogurunum undan-
farið. Eftir helgina komu nokkrir
togaranna inn og voru með mjög
góðan afla eftir aðeins viku veiði-
ferð.
Dagrún var með 170 tonn, Páll
Pálsson 130, Július Geirmundsson
130 Guðbjartur 160 og Bessi 140.
Afli linubáta á Vestfjörðum
hefur einnig verið mjög góður.
Steinbitur er genginn á miðin og
er nú aðaluppistaðan i afla bát-
anna.
Loðna er nú brædd af kappi i
Bolungarvik. Undanfarið hefur
verið tekið á móti eins og þróar-
rými hefur frekast leyft. Einnig
hefur nokkuð verið fryst af loðnu.
—EKG
Samkomulag milli íslands
og Noregs:
Hómarksafli ó
þorski ókveðinn
af íslendingum
45 norskir línubátar,
allt að 125 fetum að
stærð, skulu hafa leyfi til
að veiða hér við land, á
svæði milli 12 og 200 sjó-
milna, utan við grunn-
linur islands.
Þetta felst meðal annars i sam-
komulagi sem rikisstjórnir ís-
lands og Noregs hafa gert sin á
ntilli. Gildistimi samkomulagsins
er frá 15. febrúar til 1. desember.
bá segir i samkomulaginu að i
sérstökum tilvikum geti einnig
verið um að ræða sérstök leyfi til
annarra skipa. Ennfremur að
samkomulagið byggist á þvi að
ekki fleiri en 30 linuskip stundi
veiðar samtimis.
Það verður i valdi islenskra
stjórnvalda að ákveða hámarks-
afla þar á meðal þorskafla.
Samkomulaginu má rifta með 6
mánaða íyrirvara. Ekki haggar
það i neinu sjónarmiðum
samningsaðila varðandi mörk
lögsögu milli landa þeirra.
-EKG
Dyttað að netum í nepjunni...
i allri umræðunni um
loönuna gleymist stund-
um að loðnuveiðar eru
ekki einu veiðarnar sem
stundaðar eru hér við
land.
Skipverjana á netabátnum
Askeli frá Grindavik hittum við
fyrir nokkrum dögum, þar sem
þeir voru að vinna að netum.
Skipstjórinn Sverrir Trausta-
son sagði okkur að vegna bræl-
unnar hefðu þeir ekki farið á sjó
og notuðu þvi timann til að dytta
að netunum.
Sverrir sagði að þeir á Askeli
væru nýlega byrjaðir á netum
og þvi væri ekki gott að segja
fyrir um hvernig vertiðin yröi.
Hann sagði hins vegar að þrátt
fyrir að allt snerist nú um loðnu
hjá stærri bátunum, hefði sér
gengið vel að manna i vetur
Sama væri þó ekki hægt að
segja hjá öllum. Ýmsirbátar
hefðu ekki fengið nægan mann-
skap.
EKG/Ljósmynd Jim
Kúrekastíg-
vélunum stolið
Nemandi i Tónskóla Sigur-
svcins i Hellusundi 7 varð ekkert
yfir sig hrifinn þegar hann komst
að þvi að kúrckastigvél sem hann
átti voru horfin úr forstofunni.
Einhver hefur falhð i freistni
fyrir skónum og hreinlega tekið
þá. Hvort eigandi stigvélanna fór
heim á sokkaleistur.um eða hvað,
vitum við ekki alveg. Það er von-
andi að hann fái skóna sina sem
fyrst — þvi að þeir kosta engan
smá-skilding. —EA
Almenningi boðin inn-
sýn í nútíma myndlist
„Tilgangurinn með þessum
námskeiðum er að kynna al-
menningi nútima myndlist. Hér
er um algjöra grunnfræðslu að
ræða, en meiningin er að fólk fái
þarna nokkra yfirsýn yfir mynd-
list á tuttugustu öld" sagði ólafur
Kvartan, iistfræðingur, i viðtali
við Visi.
Það er Listasafn Islands sem
gengst fyrir þeirri nýbreytni i
mars, aprfl og mai að halda nám-
skeið fyrir almenning um mynd-
list á 20. öld. Kennt verður i
námshópum, tiu manns i hverj-
um. og er áætlað að hver hópur
komi saman alls átta sinnum eitt
kvöld i viku. Leiðbeinandi verður
Ólafur Kvaran.
„I lögum safnsins eru ákvæði
um aö gangast fyrir fræðslu um
listfræðileg efni — og þessi nám-
skeið eru tilraun i þá átt. Við
munum reyna að halda svona
starfsemi áfram og taka þá e.t.v.
fyrir islenska myndlist.
Þá eru einnig fyrirhugaðir hjá
okkur þrir fyrirlestrar i mars
april og mai um islenska mynd-
list og myndlistarmenn — og
áhugi er á að koma á mánaðar-
legum fyrirlestrum um listfræði-
leg efni.
bátttaka i námskeiðunum sýn-
ist ætla að verða góð. bað er þeg-
ar fuljskráð i tvo hópa. Nám-
skeiðineru ókeypis og öllum opin,
en væntanlegir þátttakendur
þurfa að tilkynna sig til Lista-
safnsins fyrir 15. mars” sagði
Ólafur Kvaran.
Fiðlu-
konsert
frum-
fluttur
Guöný Guðmundsdóttir kon-
sertmeistari leikur einleik viö
frumllu'ning fiölukonserts eftir
Stravinsky á 12. reglulegu tón-
leikum Sinfóniuhljómsveitar is-
lands.
Þeir tónleikar verða i Háskóla-
biói i kvöld klukkan 20.30. Stjórn-
andi er Karsten Andersen aðal-
hljómsveitarstjóri.
önnur verk á efnisskránni eru
Bacchus og Ariadue eftir Roussel
og Sinfónia nr. 6 eftir Tsjai-
kovsky.
—EKG
V-ISLENSKUR HOPUR
KEMUR í SUMAR
Engin ferð héðan
vegna breytinga í
flugmálum hér
„Það liefur verið töluvert spurt
um feröir vestur um haf, svipaðar
þeim sem farnar voru i fyrra, og
þaö er áhugi á að halda þeirri
starfsemi áfram.
Ein slik var fyrirhuguö i sumar,
meö islenskri vél, sem tæki þá
farþega aö vestan til baka, en
vegna þeirra breytingasem orðiö
hafa á flugmálum hér getur þaö
ekki oröið” sagöi séra Ólafur
Skúlason hjá Þjóðræknisfélaginu
i viötali viö Visi.
Vestur-islenska blaðið, Lög-
berg-Heimskringla, greinir frá
þvi að búið sé að festa Air Canada
leiguflugvél til hópferðar til ís-
lands i sumar. Segir þar að mikill
áhugi sé þar vestra á slikri ferð.
Aðspurður sagði Ólafur að ekki
væri unnt að koma islenskum
hópi með þessari vél vestur um
haf, þar sem vélin flygi áfram til
Skotlands og tæki farþega þar,
„Við höfum ekki ennþá fengið
neina beiðni frá félaginu vestra
um fyrirgreiðslu og vitum ekki
nákvæmlega hvenær hópurinn
kemur. Eins og málin horfa nú er
ekki útlit fyrir neina hópferð héð-
an á komandi sumri” sagði Ólaf-
ur Skúlason.
—EB
Bókamarkaóurinn
í HÚSI IÐNADARINS VID
INGÓLFSSTRÆTI