Vísir - 11.03.1976, Blaðsíða 2
2
Hvað finnst þér
skemmtilegast i út-
varpsdagskránni?
Eirikur Haraldsson, átta ára: —
Mér finnst það skemmtilegast
þegar tónlist er i útvarþinu. Eins
og til dæmis lög unga fólksins á
þriðjudagskvöldum og óskalög
sjúklinga og sjómanna.
Óiöf Björnsdóttir, vinnur i banka:
— Mér finnst skemmtilegast þeg-
ar tónlist er flutt i útvarpinu.
Annars finnst mér tönlistin vera
homreka i útvarpinuog oft á tíð-
um er gengið inn á tima tónlistar-
innar. Sérstaklega á þetta við um
harmónikutónlist.
Hallgrimur Stefánsson, skrif-
stofumaður: — bessu á ég bágt
með aðsvara, þar sem ég hlusta
ekki mjög mikið á útvarp. Þó
hlusta ég á fréttirnar ef ég get og
likar það vel.
Kristján Bjarnason, verkamað-
ur: — Ég reyni eins og ég get að
hlusta á lesturinn á ævisögu
Theodórs Friðrikssonar. Reyndar
hlusta ég á framhaldssögur eins
og ég get. Þó leiðist mér Laxness
hann les svo leiðinlega.
Edna Björnsdóttir í atvinnuleit:
— Það er yfirleitt ekkert sem er
ofsalega gott. Það vantar algjör-
lega betra efni fyrir ungt fólk,
efni sem það getur sétið yfir og
hlustað á af athygli.
Guðmundur Sigurðsson, raf-
virkjanemi: — Kristnihald undir
Jökli og lestur Halldórs Laxness á
þvi hefur veriö með þvi besta i út-
varpsdagskránni i vetur. Enn-
fremur þættir Páls Heiðars
„Kúrsinn”, mjög vandaðir og
góðir.
Miðvikudagur 10. marz 1976
VISIR
„Við höfum lært heilmikið sjáif
af þvi að undirbúa þessa kynningu
og vitum núna nógu mikið til þess
að vera ráðin í þvi að byrja ekki að
reykja.
Það er ótrúlegt að nokkur heii-
vita maður byrji á sliku eftir að
hafa kynnt sér rækilega skaðsemi
reykinganna.”
Þetta var samdóma álit krakk-
anna i tólf ára bekk i Breiðholts-
skóla, sem stóðu i gær að kynningu
fyrir ellefu ára bekki skólans er
þau nefndu „Baráttan gegn reyk-
ingum”.
Krakkarnir undirbjuggu dag-
skrána sjálf i samvinnu við
kennarana og Krabbameinsfélag
Reykjavikur, en einnig fluttu þar
stutt ávörp Þorvarður örnólfsson
framkvæmdastjóri Krabbameins-
félagsins og Guðmundur Gislason
sundkappi.
Við fengum þau Arna Arnþórs-
son, Ara Gunnarsson, Ragnheiði
Guðjohnsen og Jóhann Vilhjálms-
son sem öll eru i 6. bekk H til að
segja okkur frá undirbúningnum.
Ein taugahrúga!
„1 fyrstunni kom Þorvarður
hingað til okkar og talaði bæði við
okkur og kennarana, en siðan var
okkur skipt niður i hópa með
ákveðin verkefni.
Við fengum bæklinga og bækur,
fórum i heimsókn i Krabbameins-
félagið og fengum ýmsar upp-
lýsingar þar.
Úr þessu unnum við siðan,
ákváðum hver ætti að tala um
hvaða efni, teiknuðum spjöld, og
skýringar og linurit á glærur. Sumt
var gert i hópvinnu i skólanum en
sumt unnum við sjálf heima.”
Að þessum undirbúningi unnu
allir krakkarnir i bekknum, en niu
þeirra sáu um kynninguna sjálfa.
Aður höfðu hóparnir kynnt sin
verkefni hvor fyrir öðrum innan
bekkjarins.
Reyndust krakkarnir allir vera
hinir mestu skörungar i ræðustól og
var ekki á þeim nokkurn bilbug að
sjá, þótt þau segðust reyndar hafa
verið „ein taugahrúga.”
Þau Arni, Ragnheiður, Jóhann og Ari eru hér með sýnishorn af spjöidunum sem þau teiknuðu. Má
þar m.a. sjá sigarettur bera kistu reykingamannsins til grafar.
Þá er það spurningin um
árangurinn?
„Mér fannst kynningin takast vel
og krakkarnir hlutuðu alla vega á
Salurinn var þéttskipaður ungum áheyrendum, sem fyigdust okkur. Þetta er lika skemmtileg til-
með dagskránni af athygli — en gáfu þó ljósmyndaranum horn , breyting frá þvi að hlusta a ta á
kennarana, sagði Arni.
öll voru þau sammála um að það
hafi verið bæði fróðlegt og
skemmtilegt að vinna að og taka
þátt i kynningunni.
Það er ekki vafamál að með
þessari fyrstu kynningu barnanna i
Breiðholtsskólanum hefur tekist að
fækka reykingarmönnum fram-
tiðarinnar um einhver prósent.
Fjórar aðrar eru i undirbúningi i
skólanum, þar sem hinir tólf ára
bekkirnir tala yfir hinum yngri.
Að sögn Þorvarðar örnólfssonar
eru svipaðar kynningar fyrir-
hugaðar eða i undirbúningi i fimm
öðrum barnaskólum borgarinnar.
Kvaðst hann mjög ánægður með
frammistöðu krakkanna i gær og
sagðist vonast til að i framtiðinni
yrði svipaðri starfsemi komið á i
Arni Arnþórsson fræðir skólasystk i ’•/. sin um skaðleg efni f Gagnfræðaskólunum.
tóbaki og tóbaksreyk. Myndiröðinn. — EB
Skemmtilegra
en að hlusta
á kennarana
„Ekki einhlítt streð"
„Það er nóg að gera þessa
dagana. Þegar allt er I lagi
vinnum við um það bil 4000 tonn
á sólarhring”, sagði Agnar Guð-
mundsson vaktformaður I
loðnuverksmiðju Fiskimjöls og
Lýsis hf i Greinavík þegar við
hittum hann að máii fyrir
nokkru.
„Við vinnum hérna um 20
manns á tviskiptum vöktum, 12
klukkustundir i senn.
Þetta er alls ekki einhlitt streð
á meðan á loðnuvertiðinni
stendur. Ef vel gengur og allt er
i lagi er þetta mjög þægilegt og
felst aðallega i eftirliti með vél-
um. Ef eitthvað kemur upp á —
bilanir eða slikt er þetta með þvi
erfiðara sem þekkist.
Þessa mánuði sem loðnuver-
tiðin stendur yfir er auðvitað
mest um að vera. Annars urðum
við stopp eins og aðrir vegna
verkfallsins og það var dýrt
stopp”.
— EKG/Ljósmyndir JIM
Mjölið sem unnið er I ioðnuverksmiðjunum er sekkjað og geymt á
brettum i stórum mjölgeymslum áður en það er flutt til útlanda.
UPPHAFIÐ. Loðnunni sturtað I „snigil” sem flytur hana I verk-
smiðjuna þarsem unniner úr lienni dýrmæt vara.