Vísir - 11.03.1976, Side 8
8
Fimmtudagur 11. marz 1976 vism
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson
Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson
Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guð'mundsson
Fréttastjóri erl. frétta: Guðmundur Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiðsia: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Sfðumúla 14. simi 86611. 7 linur
Áskriftargjaid 800 kr. á mánuði innanlands.
í lausasögu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Breytingar á
stjórnsýslunni
Nýlega setti einn af forvigismönnum land-
búnaðarins fram hugmyndir um grundvallarbreyt-
ingu á skipulagi yfirstjórnar landbúnaðarmálanna.
Þessar byltingakenndu hugmyndir gera ráð fyrir
aukinni miðstýringu og beinni yfirstjórn bænda-
samtakanna á fjölmörgum stofnunum, sem tengdar
eru landbúnaðarstarfseminni.
Ýmislegt i þessum hugmyndum kann að vera
nýtilegt, en annað ekki. Þar eru m.a. settar fram
tillögur um, að Búnaðarfélagið fái yfirráð Búnaðar-
bankans. Þessi hugmynd vekur athygli á nauðsyn
endurskipulagningar bankakerfisins i landinu.
Bankakerfið hér á landi hefur að verulegu leyti
verið byggt upp á grundvelli atvinnugreina. Starf-
semi flestra bankanna hefur þannig verið við það
miðuð að þjóna fyrst og fremst einni ákveðinni at-
vinnugrein. I einkabönkunum hafa viðkomandi
hagsmunasamtök eðli máls samkvæmt tögl og
hagldir i bankastjórnunum, en bankaráð rikisbank-
anna eru kosin af Alþingi.
Vitaskuld er það f jarri lagi, að hagsmunasamtök-
in eigi að fá yfirráð yfir rikisbönkunum. Þvert á
móti er brýn þörf á að stefna i gagnstæða átt við
endurskipulagningu bankakerfisins. Það á að draga
úr þvi að bankar séu byggðir upp fyrst og fremst i
þvi skyni að þjóna einni atvinnugrein.
í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt við það að hafa
margar bankastofnanir. Hvort þær eru einni fleiri
eða færri skiptir ekki höfuðmáli. Miklu þýðingar-
meira er að breyta kerfinu i grundvallaratriðum
þannig að þessar stofnanir séu ekki um of bundnar
af ákveðnum atvinnugreinum.
Áhættan i lánastarfseminni er eðlilega afar mis-
munandi, eftir þvi hvaða atvinnuvegur á i hlut. Það
myndi horfa til bóta, ef unnt væri að dreifa þessari
lánafyrirgreiðslu meir en nú er. Við setningu nýrra
bankalaga þarf að huga að þessu atriði.
—iViwmmv
Umsjón: ólafur Hauksson
CIA OG KGB
í MEXÍKÓ
Bandaríska leyni-
þjónustan CIA rekur um-
fangsmiklar njósnir \
grannríkinu Mexikó. Til-
gangurinn er aðallega sá
að fylgjast með njósna-
starfsemi rússa þar, sem
hefur eins og vænta má
náin tengsl við sömu
starfsemi innan
Bandaríkjanna.
Mexikó er handhægur staður
fyrir rússa til að safna saman
upplýsingum sem berast frá
Bandarikjunum. Landamæri
rikjanna eru löng (3200 km) og
þeirra er ekki sérstaklega vel
gætt. CIA getur fengið ýmsar
upplýsingar um njósnir rússa i
Bandarikjunum, með þvi að
fylgjast náið með ferðum
sovéskra sendiráðsstarfsmanna
i Mexikó, hlera samtöl þeirra,
og sjá hverja þeir hitta. En
þetta er umfangsmikið verk.
Hjá sendiráði rússa i Mexikó
eru ekki nema um 25 diplómat-
ar, en 300 starfsmenn.
Þrátt fyrir þennan mikla
fjölda er talið að CIA hafi enr,
fleiri starfsmenn i Mexikó —
með það aðalviðfangsefni að
fylgjast með rússunum á nóttu
sem degi.
Fylgjast með fleirum
CIA fylgist þó ekki aðeins með
rússum, heldur einnig sendiráð-
um og sendiráðsmönnum Kúbu,
og annarra kommúnistarikja.
Angi af starfseminni fylgist svo
með ýmsum vinstrihópum i
landinu.
Gagn rússa af verunni i Mexi-
kó er að geta þar numið fjar-
skipasendingar i suöurhluta
Bandarikjanna. Mexikó er
einnig talið viðkomustaður
njósnara á leið inn og út úr
Bandarikjunum.
Njósnari segir frá
Fyrrum njósnari CIA, Philip
Agee, upplýsti mikið um starf-
Rússar nota aðstöðuna í Mexikó
mikið til að hluta á fjarskipti.
semi CIA i Mexikó i bók sem
hann skrifaði um 12 ára timabil
sitt sem njósnari leyniþjónust-
unnar.
Agee starfaði i Mexikó á ár-
unum 1968 og 69. Hann segir að
þá hafi CIA haft 50 njósnara i
fullu starfi i landinu, og jafn-
marga mexikana starfandi við
upplýsingaöflun.
Agee segir að fyrrverandi for-
seti landsins Luis Echeverria og
núverandi forseti, Gustavo Diaz
Ordaz, hafi haft náið samband
við leyniþjónustuna, a.m.k.
fram að þvi að þeir urðu forset-
ar.
Mexikóstjórn útvegar að-
stöðu
Að sögn Agee útvegar rikis-
stjórn Mexikó CIA aðstöðu, til
að hafa náið eftirlit með öllum
ferðum rússanna, og til að hlera
sima þeirra og annarra
kommúniskra sendiráða.
begar Agee sagði frá þessu,
vakti það mikið umtal i
mexikönskum fjölmiðlum, og
gagnrýni á rikisstjórnina. Mexi-
kanar eru mjög viðkvæmir þeg-
ar samskiptin við Bandarikin
ber á góma, og vilja ekki hafa
þau of náin.
Aðgerðum rússa í Mið-
Ameríku stýrt f rá Mexíkó
Talið er að rússar noti aðstöð-
una i Mexikó ekki aðeins til að
njósna um Bandarikin. Frá
sendiráðinu i Mexikó er njósn-
um og öðrum aðgerðum i Mið-
Ameriku stýrt. Rússar hafa að-
eins eitt sendiráð i Mið-
Ameriku, i Costa Rica.
Kúbumenn hafa að sjálfsögðu
meiri áhuga en rússar á njósn-
um og aðgerðum i Mið-Ameriku
sem gætu steypt hægrisinnuðum
rikisstjórnum af stóli. En þeir
hafa varast að notfæra sér að-
stöðuna i Mexikó of mikið, til að
mógða ekki stjórnina. Stað-
reyndin er sú að mexikanar eru
nánustu bandamenn Kúbu i
Ameriku. Aðgerðum Kúbu i
Mið-Ameriku er stýrt beint frá
Havana.
KGB hefur áhuga á
vinstrihópum í Mexíkó
Sagt er að leyniþjónusta
rússa KGB, hafi meiriáhuga nú
á að njósna um Bandarikin úr
hreiðri sinu i Mexikó, heldur en
að styðja öfgafulla vinstrihópa
til baráttu þar i landi.
Brennt barn forðast nefnilega
eldinn. 1 mars árið 1971 komst
upp (liklega fyrir tilstilli banda-
rikjamanna) að 25 mexikanskir
stúdentar við háskóla i Moskvu
hefðu hlotið herþjálfun i höfuð-
borg Norður-Kóreu.
Uppljóstrunin olli reiði og tor-
tryggni i garð rússa, um 50
mexikanar voru handteknir, og
fimm sovéskir diplómatar rekn-
ir úr landi.
Talið er að hinir litlu vinstri-
sinnuðu hópar öfgamanna og
skæurliða, sem vilja blóðuga
byltingu, hafi litil tengsl við
rússa. Aðeins hinn eini löglegi
og tiltölulega friðsæli komm-
únistaflokkur i Mexikó nýtur
einhvers stuðnings frá rússum.
Breytingar á bankakerf inu
í stjórnsýslukerfinu eru ýmsar brotalamir, sem
full þörf er á að færa i betra horf. Fyrsta verkefnið á
þvi sviði er uppstokkun Framkvæmdastofnunar
rikisins.
Flokkspólitisk yfirstjórn þeirrar stofnunar er
ekki i samræmi við þær grundvallarhugmyndir,
sem okkar stjórnsýsla er að öðru leyti reist á. Póli-
tiskir eftirlitsmenn stjórnarflokka á hverjum tima
fara þar með æðstu völd.
Gagnrýnin á Framkvæmdastofnunina beinist
ekki gegn þeim mönnum, sem gegna eftirlits-
mannahlutverkinu fyrir stjórnarflokkana. Henni er
beint gegn kerfinu, sem er gamall arfur frá hafta-
timabilinu, þegar lögmál flokksræðisins var alls-
ráðandi.
Forystuflokkur núverandi rikisstjórnar hefur
mótað mjög skýra stefnu i þessu máli, þar sem
kveðið er skýrt á um að hverfa eigi frá kerfi póli-
tiskra eftirlitsmanna. Lengi hefur verið von á frum-
varpi frá rikisstjórninni um breytingar á skipulagi
stofnunarinnar, en á þvi bólar ekki enn.
Að sjálfsögðu kunna að vera eðlilegar skýringar á
þvi, að ekki skuli hafa náðst samstaða um að bera
slikt frumvarp fram i nafni rikisstjórnarinnar. En
athyglisvert er að þingmenn hafa ekki sýnt málinu
mikinn áhuga eftir umræðurnar siðastliðið haust.
Nóg gekk á þá, en nú þegja menn þunnu hljóði.
„Halló, CIA i Mexíkó hérna! Nú njósnum við um rússneska njósnarann sem er að tala við rússneska
njósnarann sem þið voruð að njósna um i Washington i siðustu viku! ”