Vísir - 09.04.1976, Blaðsíða 15

Vísir - 09.04.1976, Blaðsíða 15
15 vism Föstudagur 9. april 1976. Spáin gildir fyrir laugardaginn 10. april. Hrúturinn 21. mars—20. april: Þú þarft að bæta úr gömlum mis- tökum i dag. Forðastu allan róg- burð og trúðu ekki kjaftasögum. Þetta ætti að geta orðið róman- tiskt kvöld, ef þú heldur rétt á spilunum. Nautið 21. apríl—21. mai: Flýttu þér ekki of mikið i dag, aktu varlea. Gættu að hvar þú stigur til jarðar, þér gæti orðið hált á svellinu. M Tviburarnir 22. mai—21. júni: Þetta verður skemmtilegur dag- ur og mjög vel fallinn til ásta. Hættu ekki við ólokið verk og hlauptu ekki úr einu i annað. Krabbinn 21. júní—23. júlí: Vandaðu meira til klæðaburðar þins i dag og hefðaðu þér vel. Hneykslaðu ekki fólk með þvi að vera of hreinskilin(n). HL Ljóniö 24. júlí—23. ágúst: Láttu smærri vandamál ekki hafa áhrif á allt lif þitt i dag. Fjöl- skyldan krefst mikils af tima þin- um. Skemmtu þér vel i kvöld. Meyjan 24. ágúst—23. sept.: Astvinur þinn krefst mikils af þér i dag, sérstaklega viðvikjandi veraldlegum hlutum. Settu við- sjárverða hluti þar sem börn ná ekki til. Vogin 24. sept.—23. okt.: Láttu alla njóta sannmælis og hrósaðu þeim sem eru hróss verð- ir. Sælla er að gefa en að þiggja. Kvöldið verður varasamt, gættu þess að brenna þig ekki. Drckinil 24. okt —22. nóv.: Þér verður ögrað i dag. Þú eykur menntun þina á sviði mannlegra samskipta. Vertu ekki of hvass- yrt(ur) og launaðu illt með góðu. Bogmaöurinn 23. nóv.—21. dcs.: Þér hættir til að vera of ihalds- samur/söm i dag. Þú kemst að leyndarmáli og skalt þegja i lengstu lög yfir þessari vitneskju þinni, þér verður launað að verð- leikum siðar. Steingcitin 22. des.—20. jan.; Þú ert með alhressasta móti i dag og ferð i ferðalag eða jafnvel á skiði eða aðrar vetrariþróttir. Flýttu þér hægt, æfingin skapar meistarann. 23 Vatnsbcrinn 21. jan.—10. fclir.: Littu i eigin barm áður en þú gagnrýnir aðra. Það er langt sið- an þú hefur heimsótt vin eða ætt- ingja þinn á sjúkrahús. Lagfærðu það sem miður fer i fari þinu. Fiskarnir _________ 20. febr.—20. mars: I’aktu mikið tillit til tilfinninga innarra, forðastu allar dylgjur sem gætu sært þær. Þú hittir ein- tivern sem er mjög frakkur. gættu þess að lenda ekki i deilum við hann.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.