Vísir - 05.05.1976, Síða 3
vism Miðvikudagur 5. mai 1976
3
LÍFIÐ UM BORÐ í FREIGÁTU:
Mestur hluti mannskaps-
ins hefur það verkefni
e'rtt að lesa, spila og sofa
Frá Óla Tynes um borð i HMS
Ghurka.
Það gengur töluvert meira á
er menn eru kallaðir til „orr-
ustustöðva” á freigátu en á
varðskipi. Það er mjög eðlilegt
reyndar þvi freigátan er mun
stærra skip og flóknara og með
margfalt fleiri menn i áhöfn. A
Ghurka er 280 manna áhöfn en
fæstir þeirra hafa nokkuð aö
gera þegar þeir eru kallaðir út á
Islandsmiðum. Þá þarf ekki að
manna vopnabúnað og önnur
mannfrek áhöld.
Margir aðstoðarmenn.
A freigátu eins og varðskipi
stjórnar skipherrann auðvitað
öllum aðgerðum úr brúnni en
hann hefur fjölmarga aðstoðar-
menn. 1 brúnni með honum eru
fyrsti stýrimaður, vakthafandi
yfirmaður og aðstoðarvakthaf-
andi yfirmaður. Þá er þar
undirforingi, sem annast fjar-
skipti og aðstoðarmenn hans,
einn eða tveir. Tveir „útkiks-
menn” eru á sitt hvorum brúar-
væng og loks aöstoðarmaður
bátsmanns. í striðsherberginu
svonefnda eru svo einn foringi
og nokkrir aðstoðarmenn hans.
Þar eru ratsjár, byssu-, eld-
flauga- og djúpsprengjumiöun-
artæki og annað tilheyrandi.
1 návigi viö varðskip er það
einkum hlutverk striðsherberg-
isins að merkja stöðu skipanna
og nálægra skipa inn á kort og
láta skipherrann vita ef freigát-
an nálgast eitthvert þeirra.
Niðri i þessu striðsherbergi er
skipherrann með nokkrum for-
ingjum sinum ef bardagi er
milli skipa eöa ef verið er að
reyna að granda kafbáti. 1 ná-
vigi eins og það tiðkast hérna er
hann hins vegar i brúnni.
Hann hefur hljóðnema eða
talstöðvar á báðum brúar-
vængjum og þegar varðskipin
eru mjög nálægt, þá fer hann út
á þann brúarvæng, sem að
varðskipinu snýr, og stjórnar
skipinu þaðan.
Stýriö er niðri.
Niðri i skipinu er svo stýr-
ishúsið. Það er gluggalaust og
stýrimennirnir fá sínar skipanir
i gegnum innanhússima. Þeir
taka við skipunum um stefnu-
og hraðabreytingar og verða
alltaf að endurtaka allt, sem
þeim er sagt til þess að vist sé
að enginn misskilningur veröi.
Niðri i vélarúminu er svo yfir-
vélstjórinn og hans mannskapur
og þeir framkvæma skipanir
um hraðabreytingar.
Gangar fullir af
sofandi mönnum.
Ghurka er skipt i mörg vatns-
þétt skilrúm og þegar viðureign
við varðskip er fyrirsjáanleg er
þeim öllum lokað. „Skemmdar-
varnarsveitir” eru viðs vegar
um skipið og þær eru i síma-
sambandi við varnarmiðstöð,
sem eru aftur i sambandi við
brúna. Mestur hluti mann-
skapsins er þó verkefnalaus og
honum er skipað á ýmsa staði I
skipinu, þar sem hættan er
minnst ef það fengi á sig gat.
Það eru hafðir eins margir og
unnt er fyrir ofan yfirborð
sjávar og þvi eru allir gangar á
efri hæðum skipsins fullir af
undirmönnum, sem sitja og
lesa, spila á spil eöa liggja og
sofa. Enginn fær að vera uppi á
dekki sem ekki á þangað erindi
samkvæmt skipunum yfir-
manna.
Vopnabúnaðurinn
mannfrekur
1 alvörustriði væru verkefnin
auðvitað fleiri, þvi það þarf
töluverðan fjölda tii að manna
vopnabúnaö skipsins og stjórn- .
tæki hans.
Ghurka er vopnuð tveimur 4,5
tommu fallbyssum, tveim 20
mm hraðskotafallbyssum á
hvorum brúarvæng, tveim eld-
flaugaskotpöllum fyrir Seacat-
loftvarnaeldflaugar og þri-
hleyptri djúpsprengjuvörpu.
Auk þess er um borð Wasp-
þyrla, sem getur borið eldflaug-
ar til árása á skip og tundur-
skeyti til að beita gegn kafbát-
um.
Til að manna allan þennan
búnað þarf stóra áhöfn, sem er
að miklu leyti verkefnalaus i á-
tökum eins og þeim, sem eiga
sér stað viö tsland.
//Leiknum" lýst
jafnóðum
Sem fyrr segir má enginn
;vera uppi við nema fá skipun
um aö vinna þar eitthvert verk.
|Til þess að leyfa mannskapnum
|að fylgjast með þvi, sem er að.
gerast, er þvi útvarpað jafnóð-
um frá kallkerfi skipsins. Þegar
mesta hættan er liöin hjá er
mönnum lika stundum leyft að
koma upp i hópum til þess að
skoöa andstæöinginn.
Allir meö
björgunarvesti
Það er strangur agi um borð
og öllum skipunum og reglum
veröur aö hlýða umyrðalaust.
Ein af skipunum er á þá leið að
allir gripa björgunarvesti sin,
þegar þeir eru kallaðir til or-
ustu og láta þau ekki frá sér fyrr
en að henni lokinni. Með
björgunarvestinu fylgir léttur,
þéttpakkaður gúmmigalli, sem
menn eiga að klæöast ef svo illa
færi að skipiö sykki. Enginn á
reyndar von á þvi að svo illa
fari en enginn skilur samt við
sig björgunarvestið þegar
hringt er út. _öt/VS
Þær brettu upp skálmunum, en hefur kannski ekki fundist nógu
hlýtt til þess að fara úr meiru en sokkunum. Þær gátu þó farið I
fólabað og hafa kannski náð sér i smálit á fæturna i sólskininu I
gær. Loftur tók myndina i Laugardalnum.
Róðamenn skilningslitlir
á málefni vangefinna
— segir Styrktarfélag vangefinna
„Baráttuna um meginmái
vangefinna þarf að herða á
komandi ári og ýta þarf við yfir-
völdum, rikisstjórn, Alþingi,
bæjar- og sveitarfélögum, mun
harkalegar en gert hefur verið á
undanförnum árum.”
Um þetta voru fundarmenn á
aðalfundi Styrktarfélags van-
gefinna á einu máli. Stjórn fé-
lagsins hefur hvað mest barist
fyrir á sl. ári áframhaldandi til-
verurétti Styrktarsjóðs vangef-
inna, sem hefur. staðið undir
byggingarkostnaði við flest
heimili vangefinna.
Þá hefur mikið verið barist
fyrir þvi að vangefnir fái þá
tannlæknaþjónustu sem aðrir
njóta lögim samkvæmt. Er
mjög brýnt að úrlausn fáist, en
árangur af þessu starfi er ekki
þesslegur að von sé til að þau
mál komist i höfn á næstu mán-
uðum.
Þá hefur stjórnin unnið ötul-
lega að þvi að sett verði á heild-
arlöggjöf fyrir alla þjónustu og
menntun vangefinna, þvi sýni-
legt er að vangefnir fá ekki sin'
réttindi fyrr en henni verður
komið á.
Fundarmenn lýstu óánægju
sinni með hve illa gengur að fá
réttindum vangefinna fram-
fylgt, hver vöntun væri á heim-
ilum, þjónustu og ráðgjöf þeim
til handa og hve skilningur hins
opinbera væri litill fyrir að
koma þessum málum öllum i
betra horf.
—EB
Stal jeppa — skildi hann eftir á hliðinni
Bil var stolið i Hveragerði i
nótt. Fannst hann stuttu siðar á
hliðinni við bæ i ölfusi.
Billinn, sem er Land Rover
jeppi, var litið skemmdur þar
sem hann fannst, en það var um
klukkustund eftir að tilkynnt var
um stuldinn.
Sá sem þarna var að verki
reyndist ölvaður. Hann var á
leiðinni til Selfoss með bil sem
hann hafði fengið far með, þegar
lögreglan á Selfossi gómaði hann.
— EA
HEFUR EINHVER
SÉÐ BIFREIÐINA?
Moskvits-bifreið var stolið frá
Þverbrekku 4 i Kópavogi i nótt.
Tilkynnt var um stuldinn klukkan
8imorgun. Bifreiðun er rauömeð
svartan topp og toppgrind. Núm-
erhennar erY-1873. Þeir sem ein-
hverjar upplýsingar kynnu að
geta gefiö eru beðnir að snúa sér
til lögreglunnar i Kópavogi. — EA !
Nú er það
hártísku-
sýning
Fólk ætti aö verða öllu
fróðara um sumartisku-
sýningu i Sigtúni.
Undanfarin ár hefur Sam-
bandið sýnt nýjustu tiskuna i
þessum efnum og á þessari
sýningu koma 60—80 módel
fram svo það ætti að vera nóg
að sjá. Sýndar verða hár-
greiðslur og klippingar dömu
og herra.
Karon samtökin sýna
nýjasta sumarfatnaðinn á
þessari sýningu sem hefst
klukkan þrjú á sunnudaginn
og er miðasala við inn-
ganginn. —EA
HVER HEFUR SÉÐ HJÓLIÐ?
Vélhjóli, af gerðinni Suzuki,
var stolið frá Holtagerði 12 á
laugardagskvöld. Hjólið er
rautt og numer þess er Y-202.
Þeir sem einhverjar upplýsing-
ar kynnu ab géta gefið eru beðn-
ir að hringja i 41454 eða hafa
samband við rannsóknarlög-
regluna.
— EA
HIMPEX
NAGLABYSSUR
MEÐ HLJÖÐDEYFI
tt IMPEX
SKOTNAGLAR
Umboðsmenn vorir
úti á iandi eru:
VESTMANNAEYJAR:
Vélsmiðjan Magni.
EGILSSTAÐIR:
Varahlutaverslun
Gunnars Gunnarssonar.
AKUREYRI:
Atlabúöin.
AKRANES:
Gler og málning h.f.
ki:ist.ia\ s. hi:i.i;aso\
Dugguvogi 2 Reykjavik simiöJlll Poslhoif 1046