Vísir - 05.05.1976, Blaðsíða 6
Miðvikudagur 5. mai 1976 VISIR
Guðmundur Pétursson
Reagan bakaði Ford
Carter óstöðvandi
kosningastjóri Fords kennir demókrötum um að hafa greitt atkvœði með Reagan í
forkosningunum í Indíana, þar sem Reagan fékk 51 prósent atkvœða, en Ford 49
Ronald Reagan sigr-
aði Ford forseta i for-
kosningunum i Indiana
i gær með 51 prósenti
atkvæða, meðan Ford
fékk49. En þótt munur-
inn sé litill, þá er hann
ákaflega mikilvægur,
og eykur stórlega
möguleika Reagans á
Ford beið alvarlegan ósigur fyr-
ir Reagan i Indiana.
að hljóta útnefningu
Repúblika naf lokks ins
sem forsetaefni hans.
Fyrir aöeins nokkrum vikum
var Ford talinn sigurinn vis i
forkosningunum i Indiana.
Rikiö telst meö hinum frjáls-
lyndari Norðurrikjum, og
Ihaldsmaöurinn Reagan var
ekkitalinnmundufalla ikramið
þar.
Ford forseti var ekki búinn að
tjá sig um ósigurinn i morgun,
en kosningastjóri hans haföi
skýringu á reiðum höndum.
Hann sagði að fjöldi demó-
krata hefði tekið þátt i þessum
kosningum, og flestir greitt
Reagan atkvæði
Ronald Reagan vann svo yfir-
gnæfandi sigur yfir Ford i
forkosningunum i Alabama og
Georgia.
Þar hirti Reagan alla kjör-
mennina, og Ford fékk engan.
Þessir sigrar eru þó ekki jafn-
mikilvægir og sá i Indiana, þvi
ibúar þessara rikja eru ihalds-
samir i skoðunum, og Reagan
fellur þvi vel I kramið þar.
Carter enn
óstöðvandi
Forkosningar voru einnig hjá
demókrötum. Jimmy Carter
hélt þar áfram óstöðvandi
sigurgöngu sinni
Hann fékk meirihluta
atkvæða i Indiana og Georgia.
Carter var fyrrum rikisstjóri i
Georgia.
I forkosningunum i Alabama
var fremur mjótt á mununum
milli Carter og George Wallace,
en Carter fékk þó meirihluta
■atkvæða þar. Forkosningar
voru einnig i Washington D.C.,
höfuðborg. Bandarikjanna, en
þær skipta litlu máli.
Carter hefur nú fengið um 500
kjörmenn af þeim 1505 sem
hann þarf til að hljóta
útnefningu á flokksþingi demó-
krata siðar I sumar.
Reagan hefur fleiri
fasta kjörmenn
Ronald Reagan hefur nú fleiri
kjörmenn en Ford. Reagan
hefur 344, en Ford 315. 300 kjör-
menn hafa verið valdir að auki,
en afstaða þeirra er ekki
ákveðin. Þó er vitað að flestir
þeirra hallast að Ford.
Reagan á þó mikla mögu-
leika, þvi flest þeirra 17 rikja
sem eftir er að kjósa i, eru talin
íhaldssöm, og þvi Reagan i hag.
Stuðningsmenn Reagan voru
að vonum hressir yfir sigri hans
i Indiana. Þeir vilduskýra hann
þannig að málf lutningur
i Reagan félli kjóseridum vel i
geð, og þeir kysu hann vegna
málefnanna.
Ford
Hjálparkokkar
samt bjartsýnir
Ein hjálparkokka Ford
forseta sagði i nótt að ósigur i
Indiana væri i raun ekki svo
þýðingarmikill. Það mundi ekki
þýða að Ford væri i hættu,
heldur mundi hann eiga eftir að
sigra I þeim forkosningum sem
e f t i r e r u .
Kosningastjóri Ford sagði að
liklega hefði kosningabaráttan
af þeirra hálfu ekki verið nógu
hörð.
Reagan og hans menn bjugg-
ustviðósigri i Indiana, og lögðu
þvi nótt við dag við áróðurinn.
Reagan gerði sér sérstaklega
far um að ráðast á utanríkis-
stefnu forsetans.
Wallace segist
styðja Carter
Vonir George Wallace um að
hljóta útnefningu Demókrata-
flokksins eru nú nær að engu
orðnar. Hann hefur þó i hyggju
að berjast áfram um sinn.
Aðspurður eftir úrslitin i nótt
sagðist hann styðja af heilum
hug hvern þann frambjóðanda
demókrata sem útnefningu
hlyti, einnig Jimmy Carter.
Ef Carter hlýtur útnefningu,
sem allar horfur eru á, verður
hann skæður keppinautur fram-
bjóðanda repúblikana. Banda-
rikjamenn hafa ekki gleymt
Watergate hneykslinu, sem
forseti úr Repúblikanaflokknum
átti hlutdeild að.
Venjan hefur verið sú, að ef
frambjóðandi repúblikana á að
ná kjöri, verður hann að njóta
stuðnings viss hluta Suðurrikj-
anna. Þótt Reagan hafi hann að
vissu leyti, þá hefur Carter mun
sterkari aðstöðu þar.
Wallace er næstum úr leik.
Hann segist styðja Carter ef
hann hljóti útnefningu.
Bretar
senda póst
rússa
Bresk póstyfirvöld
viðurkenndu I gær að
hafa notað ferðir sov-
éskra skipa til að koma
pósti til Mombasa i
Kenya.
Póststjórnin neitaöi hins vegar
aö hafa gert samning við rússa
um reglulega póstflutninga.
Dagblaðiö D' ily Express hefur
haldiö þvi fram að póststjórnin
hafi gert samninga við sovéskt
flutningafyrirtæki um ódýra
flutninga, til að minnka gifurlegt
tap póstsins.
Talsmaður póststjórnarinna^
sagði aö meginhluti póstsins færi
með breskum skipum, en ef ana-
að væri heppilegra væri þaö not-
að.
Bresk sendinefnd er á förum til
Moskvu til að kvarta vegna
undirboða sovéskra skipafyrir-
tækja á flutningum. Þetta hefur
komið niður á breskum skipa-
flutningafy rirtækjum.
Palestínuskœruliðar
ganga
Bardagar hjöðnuðu i Beirút,
höfuðborg Libanon, eftir að sveit-
ir palestinuskæruliða tóku sér
milfl
stöðu i gær á milli hinna striðandi
fylkinga hægri og vinstri manna
sem börðust þá við höfnina.
Palestinuskæruliðarnir, sem
hafa aðsetur i Sýrlandi, gerðu
þetta til að koma á vopnahléi, en
hafnarsvæðið er nú mjög illa út-
litandi eftir stöðuga skothrið og
sprengingar i nokkrar vikur.
Hægri menn hafa ráðið hafnar-
svæðinu að mestu, en vinstri
menn hafa sótt stift. Hafnarsvæð-
ið er siðasta stóra vigi hægri-
manna sem liggur að sjó.