Vísir


Vísir - 05.05.1976, Qupperneq 7

Vísir - 05.05.1976, Qupperneq 7
VISIR Miðvikudagur 5. mai 1976 Ólafur Hauksson Hattersley Hattersley glímir við tímann Roy Hattersley aðstoðar- utanrikisráðherra breta virð- isl vera sérfræðingur þeirra i að meðhöndla þrætuepli — með misjöfnum árangri þó. Hann var sendur til Brussel fyrir skömmu til að svara gagnrýni annarra EBE-landa á Bretland fyrir að vilja ekki samhæfa' tima sinn tima þeirra. Fulltrúar EBE-landanna sögðu að það væri bretum að kenna að ferðamenn i Evrópu verða sifellt að vera að stilla klukku sina þegar farið er úr einu landi i annað, Málið getur orðið flókið þegar yfirferðin er hröð. Hattersley tjáði fundi utan- rikisráðherra EBE-landanna i gær að Bretland gæti ekki falliðfrá ákvöröun sinni um að hafa sumartima til loka októ- ber. Hin EBE-löndin vilja láta honum ljúka um miðjan októ- ber. Skiptingarnar að vori og hausti valda mestu heilabrot- unum i sambandi við timann. Hertar öryggis- ráðstafanir áþjóðhátíð- ardeginum ísraelsmenn halda upp á 28 ára afmæli sjálfstæðis sins i dag við þær mestu öryggisráð- stafanir sem gerðar hafa verið i sögu rikis- ins. Það er af sem áður var, að megináherslan var lögð á að gæta landamæranna sem snúa að fjandsamlegum arabarikjum. Nú eru lögreglumenn og hermenn dreifðir um borgir og bæi, og fjöldi þeirra á hernumdu svæðunum hefur verið aukinn. Þessar öryggisráðstafanir koma i kjölfar spreningarinnar sem varð i Jerúsalem á mánudag, og þeirrar ókyrrðar sem verið hefur á hinum hernumda hluta vesturbakka Jórdanárinnar. Vilja Nixon ogBrandt sem vitni við Baader- Meinhof réttarhöldin Verjendur Baader- Meinhof hópsins fóru fram á þaö viö réttarhöldin í gær aö Richard Nixon, Willy Brandt og ýmsir háttsettir bandarískir og þýskir embættismenn yröu kallaöir fyrir réttinn til að bera vitni. Réttarhöldin standa yfir fjórum félögum Baader-Meinhof hópsins, þeim Andreas Baader, Ulrike Meinhof, Gudrun Ensslin og Jan Carl Raspe. Þau eru ákærð fyrir morð, bankarán og sprengjuárás- ir, þar af nokkrar á bandariskar herstöðvar i Þýskalandi. Lögfræðingur Ensslin fór fram á að Nixon fyrrum forseti Banda- rikjanna, Melvin Laird fyrrum varnarmálaráðherra og fleiri mættu til að bera vitni. Lög- fræðingurinn sagði að þessir menn ættu að segja til um hvort árásirnar á herstöðvarnar i Þýskalandi hafi ekki átt einhvern þátt i að bandarikjamenn hættu hernaðaraðgerðum sinum i Viet- nam. Lögfræðingur Andreas Baader sagði að það yrði að fást úr þvi skorið hvort aðgerðirnar gegn bandarisku herstöðvunum hafi ekki verið réttlætanlegar, vegna þess að þeim hafi verið beitt til að stöðva Vietnamstriðið. Hann sagði að þeir sem kallaðir yrðu fyrir ættu að geta sagt hvort Vietnamstriðið hafi ekki verið brot á alþjóðalögum. Lögfræðingur Ulrike Meinhof sagði að kalla ætti fyrir Wiliy Brandt fyrrum kanslara V- Þýskalands, og Helmut Schmidt, sem þá var varnarmálaráðherra, en er nú kanslari. Lögfræðingúr- inn sagði að kanna ætti hvort þessir menn væru ekki ábyrgir fyrir að leyfa bandarikjamönnum að stjórna Vietnamstriðinu frá þýskri grund. Lögfræðingurinn tjáði sig ekki nánar um hvað hann ætti við. Sænskur hermaður við friðargæslu á Kýpur. NORDURLÖNDIN VIUA GÆSLUSKULD GRBDDA Norðurlöndin fjögur, Noregur, Sviþjóð, Danmörk og Finnland ætla ekkert að gefa eftir reikning til Sameinuðu þjóðanna fyrir friðargæslu. Þessar fjórar norðurlanda- þjóðir hafa útvegað hermenn til friðargæslu viða um heim á vegum Sameinuðu þjóðanna, en hafa ekki fengið greitt nema að hluta. Sameinuðu þjóðirnar skulda löndunum samtals 300 milljónir dollara (55 milljarða króna). Varnarmálaráðherrar land- anna héldu með sér fund i Kristiansand i Noregi i gær, og urðu þar ásáttir um að ganga eftir greiðslu skuldarinnar. Baader-Meinhof hópurinn rændi stjórnniálamanninum Peter Lor- enz og var gerð mikil leit, m.a. i bilum. Lorenz var skilað nokkru siðar heilum á húfi. S-Afríka skerifir mamréttindi Suður-afrikustjórn vill auka völd sín yfir frelsi einstaklinga og félagasamtaka. í þvi skyni hyggst hún leggja fram lagafrum- varp á þingi, sem kem- ur til með að skerða mannréttindi. Voru þau þó ekki of mikil fyrir. I frumvarpinu eru dómsmála- ráöherranum gefin völd til að gera útlæg samtök sem hann telur ógna öryggi landsins. Ráðherrann á einnig að geta bannað útgáfu prentaðs máls sem hefur skoðanir eða upplýs- ingar að geyma sem gætu ógnað friði og öryggi. Þá mun vera gert ráð fyrir þvi i frumvarpinu að lögreglan geti handtekið menn og haldið i fangelsi i viku án dómsúrskurð- ar, ef þeir hafa tekið þátt i að- gerðum sem setja öryggi lands- ins úr skorðum. ísrael vann ítalfu ísraelska bridgesveitin vann þá kölsku i gær i sjöttu umferð heimsmeistarakeppninnar, sem haldin cr í Monte Carlo. israels- mennirnir unnu 17-3. Bandarikjamenn hafa hins veg- ar forystuna með 72 punktum. Liklegt þykir að israelska bridgesveitin eigi eftir að ógna þeirri itölsku svo alvarlega, að nær samfelldri sigurgöngu ital- anna i 20 ár verði hnekkt. 1 kvennaflokknum eru bretar og bandarikjamenn taldir sterk- astir. Bandarisku konurnar unnu þær bresku i gær meö 86-46. Breska stjómin sigr- aði á heimamiðum Rikisstjóru breska Verka- mannaflokksins vann meiri- háttar sigur i baráttunni við verðbólguna, þegar samkomu- lag náðist i gær við leiðtoga' launþegasamtaka um takmark- anir á laun ahækkunum . Gengið var frá samningunum á tiu tima fundi ráðherra og verkalýðsleiðtoga. Talið er að þettasamkomulag muni styrk ja stöðu sterlingspundsins á gjald- eyrismörkuðum nú þegar. Ekki hefur verið upplýst um samkomulagið i smáatriðum. En talið er að heildarkauphækk- anir nemi um fjórum prósent- um, og ýmsar skattaivilnanir verði veittar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.