Vísir - 05.05.1976, Side 14
14
Miðvikudagur S. mai 1976^^181X1
Marabel Morgan segist
kunna aðferðirnar.
Fegurðar-
drottningin
fyrrverandi
hefur róð
undir rifi
hverju:
KENNIR
KONUM
KLÆKINA
Marabel Morg-
an, fyrrum feg-
urðardrottning i
því stóra landi,
Bandarikjunum,
ráðieggur kyn-
systrum sinum að
„draga fram kven-
eölið” til aö fá
ýmsu framgengt á
auðveldan hátt.
En ekki er vist að
aðferðirnar sem
Morgan þessi ráð-
leggur séu jafn-
réttindafólki að
skapi.
Það er helst
innan marka
hjónabandsins sem
frúin hefur ráð
undir rifi hverju.
Enda er hún búin
að vera gift all-
lengi og er nú 38
ára gömul.
Hún hefur haldið
námskeið fyrir
konur, og kennt
þeim aö vera
„raunverulegar
konur”. Þá reynslu
sem hún hafði af
námskeiðahaldinu,
og svo að sjálf-
sögðu úr eigin
hjónabandi, nýtti
hún sér sem efni i
bók. „The Total
Woman”, sem
hrátt þýtt útleggst
,,h i n a 1 g j ö r a
kona”, heitir
bókin, og hefur
þegar selst i
Bandarikjunum i
tæpum þremur
milljónum eintaka.
Hver eru svo
hollráð fegurðar-
drottningarinnar
fyrrverandi?
Hún ráðleggur
konum að halda
skoðunum sinum
ekki á lofti, i mesta
lagi að hafa þær
fyrir sjálfar sig.
Konur verða að
viðurkenna að
eiginmenn þeirra
séu ofjarlar þeirra.
Þær verða að
aðlaga sig þessu,
og umfram allt
ekki reyna að
breyta eigin-
mönnum sinum.
Um eiginmenn
segir Morgan að
þeir þarfnist þess
að finna aö þeir séu
elskaðir, virtir og
teknir eins og þeir
eru.
Ef þetta fer allt
saman, segir
Morgan, verða
engin vandræöi i
hjónabandinu.
Hún ráðleggur
öllum konum sem
vinna heima
gera lista
sem
heimilin
lista verði
að gera
tima
ilma
og s’
frúin
ilmand
á
sinum
kemur hei
vinnunni. K
ekki aðeins a
vel til höfð, heirnir
verður allt á
heimilinu að vera i
röð og reglu.
E f e i g i n -
maðurinn biður
konuna um að
gera eitthvað, þá
ráðleggur Morgan
henni að setja það
efst á listann, og
framkvæmda það
sem allra fyrst.
Sjálf nefnir
Morgan dæmi úr
eigin hjónabandi
um árangur þess-
ara ráða.
Hún segist lengi
hafa beðið eigin-
manninn um að fá
að láta mála
stofuna. Það var
ekki fyrr en hún
hætti að biðja og
fór að iifa eftir
áðurnefndum
reglum, að hún
fékk ekki aðeins
stofuna málaða,
heldur einnig borö-
stofuna.
Marabel Morgan
undirstrikar að lík-
ami konunnar eigi
að
vald-
a r 1 -
Hún
ýmsa
s og t.d.
eða nýja upp-
vottavél, segir hin
visa kona.
Grœddu mest
á Ókindinni
„Jaws” (Ókindin) var sú
kvikmynd sem mest græddist á
i Bandarikjunum i fyrra. Fram-
leiöendurnir fengu fyrir hana
102 miiljónir dollar (19 millj-
aröa króna). Það er næstum
helmingi meira en fékkst fyrir
næstu mynd á listanum, „The
Towering Inferno” (sem má
kalla Himinhátt helviti) þótt
flestir tengi þann stað nú viö
þveröfuga átt).
En svona var listinn yfir þær
10 myndir sem mest græddist á:
1. Jaws: 19 milljarðar.
2. The Towering Inverno: 10
milljarðar.
3. Benji (mynd um hund): 5,5
milljarðar.
4. Young Frankenstein: 5,4
milljarðar.
5. Godfather II. 5,2 milljarðar.
6. Shampoo: 4 milljarðar.
7. Funny Lady: 3,4 milljarðar.
8. Morð i Austurlandalestinni:
3,2 milljarðar.
9. Return of the Pink Panther: 3
milljarðar.
10. Tommy: 2.9 milljaröar.
Átjón óra Akureyror-
mœr valin Ijósmynda-
fyrirsœta ÚTSÝNAR
Ljósmyndafyrirsæta
Útsýnar var valin á
útsýnarkvöldi á sunnu-
dag. Hildur Gisladóttir,
18 ára akureyrarmær,
var valin. Hildur er
nemandi i Menntaskól-
anum á Akureyri.
Um 30 stúlkur hafa
komið fram á
útsýnarkvöldum í vetur
og voru 10 úr þeim hópi
valdar til að keppa um
titilinn.
Ur þessum 10 stúlkna hópi var
Hildur siðan valin svo og stúlkur
til að skipa annað og þriðja sæti.
Annað sæti hlaut Guðfinna
Gisladóttir og þriðja sæti Elisa-
bet Rósmundsdóttir.
Allar stúlkurnar 10 fá ferða-
verðlaun hjá Útsýn. Hildur mun
koma fram i auglýsingum og
ferðabæklingum ferðaskrif-
stofunnar.
~m-------->■
Ljósmyndafyrirsæta
Útsýnar, Hildur Gisladóttir,
Ingólfur Guðbrandsson, for-
stjóri feröaskrifstofunnar,
og Elisabet Rósmundsdóttir
sem hreppti þriðja sæti,
þegar úrslitin voru kynnt á
Útsýnarkvöldinu á sunnu-
dag. — Ljósm.: LA
MILLJÓNIR fylgjast
með brúðkaupi þeirra
Kóngar gifta sig ekki á hverj-
um degi. Þegar slikt gerist,
vilja flestir fá að sjá. Sjónvarps-
stöðvar i Evrópu ætla flestallar
að hafa beina útsendingu frá
brúðkaupi Karls, sviakóngs og
Silviu Sommerlath hinnar
þýsku. Reiknað er með að nokk-
ur hundruð milljónir manna
fyigist með athöfninni.
Brúðkaupið fer fram 19. júni,
og mun athöfnin taka þrjá
klukkutima. Fyrst verða hjóna-
efnin gefin saman I Storkirken i
Stokkhólmi og siðan munu þau
aka á gamaldags hátt um
götur höfuðborgarinnar i hest-
vagni.
Búist er við miklum mann-
fjölda meðfram götunum sem
Karl og Silvia aka eftir. Ahug-
inn ermeira að segja svo mikill,
að fólk sem býr við þær götur
hefur fengið tilboð um að leigja
út „stúkusætin”.
Sjónvarpið i Sviþjóð hefur
mikinn viðbúnað vegna brúð-
kaupsins. Engin áhætta er tek-
in. Hvorki meira né minna en 19
upptökuvélar verða i kirkjunni
og meðfram akstursleiðinni.
„Generalprufa” verður hald-
in fyrir sjónvarpið og frétta-
menn tveimur dögum fyrir
brúðkaupið. Þar verður farið
nákvæmlega i gegn um allan
gang brúðkaupsins.
Stokkhólmur verður prýddur
gulum og bláum veifum og fán-
um á brúðkaupsdaginn. En þar
mun einnig bera mikið á rauð-
um fánum. Ástæðan er sú að
sama dag og brúðkaupið fer
fram er landsþing jafnaðar-
mannaflokksins haldið i höfuð-
borginni. Flokkurinn er stærsti
stjórnmálaflokkur Sviþjóðar og
þykir sjálfsagt að hann fái einn-
ig að flagga.
Sjónvarpsáhorfendur um alla Evrópu (nema á isiandi, auðvitað) fá aö fylgjast með beinni útsendingu
frá brúðkaupi þeirra Karls Gústafs og Silvlu Sommerlath.