Vísir - 05.05.1976, Page 21
vism Miðvikudagur 5. mai 1976
21
í grein þessari segir
frá málaferlum er risu
vegna tannútdráttar og
var mál þetta rekið
fyrir dönskum dóm-
stólum, sbr. dóm
Hæstaréttar Danmerk-
ur frá 8. jan 1975.
Málavextir
Stefnandi málsins, Jörgen
Poulsen, 22 ára, stundaði i árs-
lok 1971, nám við lýðháskólann i
Hadsten. Stefnandi hafði um
nokkurtskeið þjáðstaf slæmum
tannverk, og sneri sér þvi þ. 2.
des. 1971 til Jensen tannlæknis,
sem starfar i Hadsten. Tann-
læknirinn komstað þeirri niður-
stöðu að stefnandi þjáðist af
slæmum tannholdssjúkdómi og
væri þvi nauðsynlegt að draga
úr honum allar tennurnar (29).
Þar sem hann þjáðist einnig af
of háum blóðþrýstingi yrði þessi
aðgerð að fara fram á sjúkra-
húsi.
Stefnandi fór nú til læknisins
B. Quist i Hadsten og þ. 3. des.
1971skrifaöi sá læknir innleggs-
beiðni til sjúkrahússins i
Randers (centralsygehuset) og
sagði þar m.a. að skv. ráðlegg-
ingum tannlæknis ætti að draga
úr sjúklingnum allar tennur.
Skömmu siðar fór stefnandi
aftur til Jensen tannlæknis og
varð niðurstaða þess fundar sú
að ekki væri nauðsynlegt að
draga úr stefnanda, fyrst um
sinn, fleiri en sex tennur en hin-
ar tuttugu og þrjár skyldi reynt
að varðveita með aðferðum
læknisvi'sindanna. Af þessu til-
efni skrifaði tannlæknirinn til-
kynningu til sjúkrahússins i
Randers en gleymdi hins vegar
að koma henni til réttra aðila.
19. janúar 1972 var skv. áður-
sögðu framkvæmd aðgerð á
stefnanda i fyrmefndu sjúkra-
húsi og úr munni lians dregnar
tuttugu og niu tennur.
Stefnandi útskrifaðist af
sjúkrahúsinu 25. jan. og fékk
siðan gerfitennur á kostnað
stefndu. Gjöfin var þeim ann-
mörkum háð, að tennurnar
skröltu.
Stefnandihöfðaði nú mál gegn
Arósarhreppi (eiganda sjúkra-
hússins) og gegn Tryggingarfé-
lagi Sveitarfélaga og krafðist
fjárbóta vegna þjáninga og ó-
þæginda. Var stefnufjárhæðin
d. kr. 16.750,00 auk vaxta. Skv.
framburði stefnanda kom það
til tals milli hans og Egknud yf-
irlæknis á sjúkrahúsinu i
Randers að á innleggsbeiðninni
stæði að draga ætti úr stefnanda
allar tennurnar. Stefnandi sagði
það ekki rétt heldur ætti aðeins
að draga úr sér sex tennur og
væri von á tilkynningu frá tann-
lækni sinum þess efnis.
t framburði sinum viður-
kenndi yfirlæknirinn að hafa
rætt nokkur orð við stefnanda, á
stofugangi, skömmu eftir að
hann kom á sjúkrahúsið. I þvi
samtali hafi komið fram að að-
eins ætti að taka nokkrar til-
teknar tennur úr munni stefn-
anda, þrátt fyrir önnur tilmæli á
innleggsbeiðninni. Stefnandi
kvaðsthafa komið sömu upplýs-
ingum á framfæri við fleiri
sjúkrahúslækna og einnig hefði
hann aðspuröur tekið það sér- '
staklega fram við einahjúkrun-
arkonuna, skömmu fyrir svæf-
ingu, að aðeins ætti að draga úr
sér sex tennur. Ekki könnuðust
aðrir en yfirlæknirinn við, að
hafa fengið slikar upplýsingar.
I framburði þeirra lækna sem
framkvæmdu aðgerðinaá stefn-
anda kom fram, að skoðun á
tannsjúkdómi stefnanda fór
fram, eftir að sjúklingurinn
hafði verið svæfður. Slik aðgerð
sé eingöngu reist á læknisfræði-
legu mati þeirra lækna, sem að-
gerðina framkvæmi, nema um
sé að ræða sérstakt fyrirfram-
gert samkomulag við sjúkling
og einssé tillit tekið til óska sem
fram komi i innleggsbeiöni.
Þegar tennur
eru dregnar úr
fyrir mistök
Þóröur Gunnarsson
iögfrædingur
skrif ar:
----- V
)
Niðurstaða þeirrar skoðunar
sem fram hafi farið á stefnanda
hafi verið sú, að æskilegast væri
læknisfræðilega séð, að draga
úr stefnanda allar tennur og
hafi það álit verið i saniræmi við
innleggsbeiðnina.
Það skal sérstaklega tekið
fram að nefndur yfirlæknir tók
engan þátt i læknisaðgerðinni.
vegna óþæginda, sem hann
hefði hvort sem er orðið að þola.
Niðurstaða héraðs-
dóms
t dómi Vestari-Landsréttar
segir m.a. að skv. upplýsingum
málsins hafi stefnandi samið
um það við Jensen tannlækni að
aðgerðin skyldi takmörkuð við
sex nánar tilgreindar tennur.
Þvi sé ekki mótmælt að stefn-
andi hafi gert Egknud yfirlækni
þetta ljóst. Með hliðsjón af þvi
hafi stefnanda verið rétt aö
álita að aðgerðin yrði ekki um-
fangsmeiri nema með ótviræðu
• Stefnandi hafði um nokkurt skeið þjóðst af tannverk
• Talið var nauðsynlegt að draga 6 tennur úr stefnanda
• Hann fékk gervitennur eftir að 29 tennur höfðu verið
dregnar úr honum • Sjúkrahúslœknirinn sagði að beðið
hefði verið um að draga allar tennurnar úr
samþykki sinu. Af þvi leiði að
hin umfangsmikla aðgerð, hafi
veriðóréttmæt og bakað stefndu
bótaskyldu. Hæfilegar bætur
séu danskar kr. 8.000,00. Þá er
þaö sérstaklega tekið fram að
þótt óvist hafi verið hvort kom-
istyrði hjáalgerum tannútdrætt-
innan fárra ára, útiloki það ekki
bætur fyrir þjáningar, en rétt sé
að hafa það i huga við mat bóta-
fjárhæðarinnar.
Dómur Hæstaréttar
Danmerkur
Fyrir hæstarétt var lögð álits-
gerð læknaráðs en þar sagöi
m.a: Aðgerðin veröur að teljast
i samræmi við læknisfræðileg
sjónarmið en getur ekki talist
nauðsynleg... Mögulegt var að
komast hjá algerum tannút-
drætti. Þá segir ennfremur i
álitsgerðinni að hefði alger
tannútdráttur ekki farið fram,
hefði frekari læknismeðferö
orðiö umfangsmikil og
kostnaðarsöm, án nokkurrar
tryggingar fyrir þvi að frekari
tannútdrætti yrði forðaö. Þessi
siðari læknismeöferð gæti
þannig hæglega haft i för með
sér ekki minni þjáningar og
óþægindi en alger tannútdráttur
hefði haft. — 1 dómi hæstaréttar
segír. Grundvöllur þeirra að-
gerða sem framkvæma átti á
stefnanda, var innleggsbeiöni,
samin af lækninum Quist, dags.
3. des. 1971. Skv. þeirri beiðni
átti að draga allar tennur úr
munni stefnanda. Stefnanda var
kunnugt um efni þessarar
beiðni.
Egknud yfirlæknir hefur hins
vegar viðurkennt aö stefnandi
hafi tjáð honum þá ósk sina að
aðeins yrðu dregnar úr munni
sér sex tilgreinar tennur og telja
verður það mistök af hálfu yfir-
læknisins að koma þeirri vit-
neskju ekki tU þeirra lækna,
sem aðgerðina framkvæmdu.
Af þeirri ástæðu veröur að álita
að aðgerðin hafi verið ólögmæt
og bakaö stefndu bótaábyrgö.
Með hliðsjón afþvi, aö hefði að-
gerðin aðeins náð til sex tanna,
hefði stefnandi orðið að ganga i
gegnum langvarandi læknis-
meðferð, er ekki talin ástæöa til
að dæma honum bætur vegna
þjáninga. Hins vegar á hann
rétt á bótum vegna óþæginda.
Með hliðsjón af álitsgerð lækna-
ráðs og þvi að stefndu hafa þeg-
ar greitt gervitennur fyrir
stefnanda þykja bætur hæfilega
ákveðnar d.kr. 4.000,00.
Þórður Gunnarsson.
Málsástæður
Bótakrafa stefnanda var rök^
studd á þann veg að jafnvel þótt
aðgerðin sem slik hafi stuðst við
læknisfræðilegt mat og verið
framkvæmdá fullnægjandi hátt
hafi hún verið gerð gegn vilja
stefnanda og eindreginni ósk
hans þess efnis að aðeins yrðu
dregnar úr munni sér sex tenn-
ur. Af þvi leiði að aðgerðin hafi
verið ólögmæt og leitt til bóta-
skyldu fyrir stefndu. Aðgerðin
hafi valdiö sér þjáningum um-
f-am það, sem umfangsminni
læknisaðgerð hefði gert, og
jafnframt varanlegum óþæg-
indum vegna notkunar falskra
tanna.
Sýknukrafa stefndu var reist
á þeim sjónarmiðum að aðgerð-
in hafi verið framkvæmd i sam-
ræmi við innleggsbeiðnina og
það hljóti að vera á áhættu sjúk-
lingsins sjálfs ef innleggsbeiön-
in sé ekki i samræmi við óskir
hans. Sé svo ekki veröi sjúkling-
urinn að koma athugasemdum
sinum á framfæri á skýran og ó-
tviræðan hátt, við rétta aðila.
Slikt hafi stefnandi ekki gert
þrátt fyrir lauslegt samtal sitt
við Egknud yfirlækni. Þá sé
ennfremur ljóst að stefnandi
hafi ekki getað haldið hinum
tönnunum, nema um mjög
skamman tima, og stefnandi sé
þvi betur settur eftir aðgerðina
en áöur og geti ekki krafist bé'a
SUMARBÚÐIR ÚLFLJÓTSVATNI I
INNRITUN
SUMARIÐ 1976
Stúlkur 7-11 úra: Piltar 7-11 úra:
Námskeið 1: 15. júní — 22. júní 15. júní — 22. júní
Námskeið la: 22. júni — 28. júní 22. júní — 28. júní
Námskeið 2: 2. júlí — 9. júlí 2. júlí — 9. júlí
Námskeið 2a: 9. júlí — 16. júlí 9. júlí — 16. júlí
Námskeið 2b: 16. júlí — 23. júlí 16. júlí — 23. júlí
Námskeið 3: 4. ágúst — 11. ágúst 4. ágúst — 11. ágúst
Námskeið 3b: 11. ágúst — 18. ágúst 11. ágúst — 18. ágúst
Námskeið 3c: 18. ágúst — 25. áqúst 18. ágúst — 25. ágúst
I
| Útilífsnúmskeið, drengir og stúlkur 11-14 úra:
i
Námskeið 2: 2. júlí — 9. júlí
Námskeið 2b: 9. júlí — 16. júlí
Námskeið 2c: 16. júlí — 23. júlí
Systkinaafslóttur
Innritun fer fram á skrifstofu BANDALAGS ÍSLENSKRA SKÁTA
Blönduhlíö 35/ R. alla virka daga milli kl. 14 og 16. Upplýsingar í
sima 23190 — 15484.