Vísir - 01.10.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 01.10.1976, Blaðsíða 3
VISIB Föstudagur 1. október 1976 3 , i ■ Fersksfldin hér á landi VERÐHÆKKUN UM ALLT AÐ 150 PRÓSENTUM Verðmœti síldar upp úr sjó getur orðið þúsund milljónir á þessari vertíð Lágmarksverö á síld til sölt- unar, skiptaverö, hefur hækkaö gffurlega mikiö frá þvi á vertiö- inni í fyrra. Meö þvi aö bera saman veröflokka 1 fyrra og núna kemur i ljós aö hækkunin nemur á milli 90 til 150 prósent. Við siöustu verðákvöröun á sild sem var 25. september slöastliðinn var stærðarflokkun breytt þannig aö flokkarnir eru nú þrir. 1 haust og á seinna verðtimabilinu I fyrra voru þeir hins vegar tveir. Sild sem veiddist á fyrra verötimabilinu siöasta ár og var styttri en 32 sentimetrar var seld til söltunar á 14 krónur kiló- ið. A fyrra verötimabilinu i ár er verðsildar f sama stæröarflokki 35 krónur. Hækkunin er þvi um 150 prósent. Verö sildar af lengdinni 32 til 34 sentimetrar var 30 krónur og 50 aurar á fyrra verötimabilinu i fyrra. Veröið á sild sem var 32 sentimetrar og lengri var á fyrra verötimabilinu 58 krónur eða 90 prósent hærri. Þess skal getiö til skýringar aö lltið veiö- ist af sild sem er lengri en 34 sentimetrar. Ofan á þetta verð greiöa saltendur 10 prósent I Stofnfjár- sjóö. Þá má áætla aö greitt sé I formi útflutningsgjalda sem svarar 8 til 10 krónur á hvert ferskslldarkiló og rennur sú upphæð aö mestu til fiskiskip- anna. Eins og Visir skýröi frá hafa sildarbátarnir ekki þurft aö veiöa mikiö til aö hlutur skip- verja og útgeröar yröi góöur. Má minna á dæmi sem nefnt var i blaðinu um skip sem á einum sólarhring aflaði fyrir á niundu milljón króna þannig aö háseta- hluturvará þriöja hundruö þús. Heimilt er að veiða 10.500 tonn i herpinót og er það um þriöj- ungi meira en leyft var I fyrra. Reknetaveiöar eru hins vegar leyfðar án takmörkunar. Sam- kvæmt þessu er ekki ótrúlegt aö aflaverömæti upp úr sjó geti oröið um þúsund milljónir króna. —EKG Ráðningu for- stöðumanns frestað A fundi I Æskulýðsráði i gær var tekin sú ákvöröun aö ekki skyldi ráða nýjan forstööumann fyrr en 1. desember næstkomandi. Taldi fundurinn ráðlegt aö tilrauna- starfsemin yröi undir umsjá Ómars Einarssonar sem veriö hefur forstöðumaður Tónabæjar. ENGIN NÚLL OG EKKERT HAPPDRÆTTI t rúmlega 40 ár hefur kvennadeild slysavarnafélagsins i Reykja- vík haldiö hlutaveltu árlega til ágóöa fyrir slysavarnastarfiö I landinu. Þessar hlutaveltur eru orðnar afar vinsæiar hjá bæjarbú- um, enda kappkosta félagskonur við að hafa þær myndarlegar og góðar. Þaö er geysimikið starf, sem liggur á bak viö svona stórar hluta- veltur, og hafa félagskonur sýnt frábæran dugnað viö þetta starf, nú eins og endranær. Þá hafa allir þeir, sem leitaö hefur verið til, sýnt sérstakan velviija og áhuga, meö þvi aö gefa félagskonum alla þá muni, sem á hlutaveltunni eru, e‘n þar eru margir góöir og eigulegir munir. Hlutaveltan veröur haldinn n.k. sunnudag 3. okt. I Iönaöarmanna- húsinu viö Hallveigarstig og hefst klukkan 2 e.h. Númeriö kostar kr. 100.00 og seldir veröa bögglar á 50.00. Sýnikennsla í hauststörfum Skógræktarféiag Hafnarf jarðar gengst fyrir sýnikennslu I haust- störfum um og eftir helgina. Er það framhald sýnikennslu frá þvi I vor. Kennslan fer fram I græöireit félagsins við Hvaleyrarvatn, og veröur þar einnig unniö sjálf- boðaliðsstarf. Jón Magnússon mun leiöbeina I þau þrjú skipti sem sýnikennslan fer fram, en það er laugardaginn 2. október frá kl. 13.30-16.00, mánudaginn 4. október frá kl. 17.00 til 19.00 og þriðjudaginn 5. október á sama tima. Ollum er heimil þátttaka. OPNUÐUM í DAG! AÐRA BLÓMA- OG GJAFAVÖRUVERZLUN í BANKASTRÆT111 f TILEFNI DAGSINS BJÓÐUM VIÐ 10% AFSLÁTT AF ÖLLUM VÖRUM í BÁÐUM VERZLUNUM OKKAR í HAFNARSTRÆTI OG BANKASTRÆTI 9 «>____ IHOMLAMXHH HAFNARSTRÆTI 3 OG BANKASTRÆT111 SÍMAR 12717 OG 23317

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.