Vísir - 01.10.1976, Blaðsíða 28

Vísir - 01.10.1976, Blaðsíða 28
! VISIR Föstudagur 1. október 1976 Fjórir yfir ó rauðu — en fó að greiða sektina ó gamla verðinu Fjórir ökumenn voru kæröir i gær tyrir að aka yfir á rauðu Ijósi fyrir framan slökkvistöð- ina við Reykjanesbraut. Keflvíkingar undrast meðferð móla kynferðisafbrotamanns: Tekinn í áttunda sinn fyrir að leita á börn „Ég var rétt I þessu að heyra um þessa kæru, og veit því ekk- ert um málið, eða hvað gert verður við manninn ef sannaö þykir aö hann hafi verið þarna að verki” sagði Guömundur Kristjánsson. fulitrúi bæjar- fógetaembættisins i Keflavlk, er Vísir hringdi í hann I morgun til að spyrjast fyrir um hvað gera ætti við mann, sem að undan- förnu hefur verið kærður hvað eftir annað fyrir kynferðisleg afbrot gagnvart smábörnum. Þarna er um að ræða liðlega tvitugan mann, sem undanfarin ár hefur hvað eftir annað verið kærður fyrir kynferðisbrot eða dónalega framkomu við stúlkur á aldrinum 5 til 10 ára. 1 fyrra var hann handtekinn og það mál afgreitt með dóm- sátt, en áður hafði hann verið kærður fyrir samskonar brot. 1 vor var hann aftur kærður, og er það mál nú I höndum rikissak- sóknara. Fyrir nokkrum dögum barst enn ein kæra á manninn, en eftir yfirheyrslu var honum sleppt. I morgun var hann svo enn einu sinni kærður fyrir kynferðislegt afbrot og er hann nú i vörslu lögreglunnar i Keflavik. Ibúar Keflavikur undrast að maðurinn skuli fá að ganga laus, og að ekkert skuli vera gert til að koma honum i geð- rannsókn eða hafa hann I haldi. Mun hann hafa verið kærður sjö eða átta sinnum á undan- förnum árum, en sleppt fljót- lega aftur eftir yfirheyrslur. Hefur hann i flestum tilfellum viðurkennt brot sitt, en borið við minnisleysi vegna ölvunar. — klp — Gefin var út tilkynning um eld, og þaut slökkviliðið þar með af stað. Um leið og merki er gef- ið fyrir bilana að aka af stað, kviknar rautt ljós á umferðar- vitum báðu megin við slökkvi- stöðina, og ber þá tökutækjum sem þar eru á ferð að nema staðar og biöa þar til slökkvilið- ið er komið fram hjá. í gær voru það fjórir ökumenn sem ekki gegndu þessu og óku i gegn þrátt fyrir blikkandi ljós og sírenuvæl slökkvibilanna. Númerin náðust á þessum fjór- um bilum og þau send lögregl- unni. ökumenn þeirra geta búist við að fá rukkun einhvern næstu daga fyrir þetta umferðarbrot, en sleppa sjálfsagt með að greiða sektina „á gamla verð- inu” þvi að „nýja verðið” — fimmtán þúsund króna sekt fyr- ir aö aka yfir á rauðu tekur ekki gildi fyrr en i dag. — klp — Harður árekstur á Akureyri Einn maður var fluttur á sjúkrahús á Akureyri i gær- kvöldi eftir harðan árekstur sem varð á Tryggvabraut. Þar var þrem bilum ekið I röð i sömu áttina. ökumaður fremsta bilsins þurfti að taka beygju, en um leið ákvað öku- maður aftasta bilsins að fara fram úr. Vissi hann ekki að bilarnir voru tveir, sem voru fyrir framan hann fyrr en um seinan. Varð þarna hörku- árekstur og skemmdust báðir bilarnir, auk þess sem einn maður var fluttur slasaður á sjúkrahús. -kip Vandinn ekki leystur með löggjöfinni einni saman" — segir Guðrún Erlendsdóttir formaður Jafnréttisráðs // Við gerum okkur Ijóst að vandinn verður ekki leystur með löggjöf einni saman. Hins vegar von- umst við til að umræða um lögin og kynning á þeim breyti smám saman hugs- unarhætti fólks varðandi stöðu konunnar í þjóð- félaginu'/ sagði Guðrún Erlendsdóftir formaður Jafnréttisráðs á blaða- mannafundi í gær. Sl. vor voru samþykkt á Al- þingi lög um jafnrétti karla og kvenna og jafnframt sett á stofn sérstakt Jafnréttisráð sem annast skal framkvæmd laganna. Verkefni ráðsins er mjög fjölþætt, þar sem þvi er ætlað að stuðla að jafnrétti, ekki eingöngu I launa- og atvinnumálum, heldur og á öðrum sviðum, s.s. i mennta- og skólamálum. Jafnréttisráð er skipað 5 mönn- um og hóf það störf um miðjan júli. Framkvæmdarstjóri hefur verið ráðin Bergþóra Sigmunds- dóttir þjóðfélagsfræðingur. Launamál. A fundinum kom fram að reynslan hefði sýnt að megin- verkefni ráðsins verður i sam- bandi við launamisrétti. Nú þegar hafa 8 mál komið til kasta ráðsins og að þeim eiga hlut svo til ein- göngu konur. Aðeins einn karl hefur hingað til leitað til ráðsins. Jafnréttisráð leggur áherslu á að við undirbúning kjarasamn- inga verði flokkun starfa i launa- stiga endurmetin. Fræðsla og auglýsingar. Jafnréttisráð mun hafa eftirlit með þvi að konur og karlar hafi sömu möguleika til menntunar, og kennslubækur og tæki verði þannig úr garði gerð, að kynjum sé ekki mismunað. Einnig mun ráðið fylgjast með þvi að i skólum verði veitt fræðsla um jafnrétti kvenna og karla. í jafnréttislögunum segir að starf sem auglýst sé laust til um- sóknar skuli standa opið jafnt konum sem körlum og hefur Jafnréttisráð tekið upp eftirlit með auglýsingum og verður þvi fylgt fast eftir að störf sem séu ekki kyngreind i þeim. Kannanir. Á vegum Jafnréttisráðs fara nú fram rannsóknir á viðhorfi fólks til útivinnu kvenna, svo og rann- sókn á auglýsingum i dagblöðum. Rannsóknir þessar hófust hjá Jafnlaunaráði, en Jafnréttisráð hefur nú tekið við störfum þess. Guðrún Erlendsdóttir kvaðst vonast til að Jafnréttisráð geti orðið sameiningaraðili fyrir þá sem starfa að jafnréttismálum. Sagði hún að Jafnréttisráð vænti þess að almenningur snúi sér til þess með ábendingar og tillögur um það sem betur mætti fara. RIS YLRÆKTARVER Á NORÐURLANDI? Norðlendingar hafa hug á að reisa ylrækt- arver. Koma til greina tveir staðir: Akureyri, eftir að hitaveita kemst þar i gagnið og Hvera- vellir i Reykjahverfi, en þar eru nú rekin stærstu gróðurhús á Norðurlandi. „Ég tók þátt i viðræöum I vetur fyrir hönd aöila hér og siðan höfum við átt þess kost að fá upplýsingar af frekari viðræðum rikisins og Reykjavikurborgar við hollend- inga um hugsanlega byggingu ylræktarvers hér á landi”, sagði Valur Arnþórsson, kaupfélags- stjóri og forseti bæjarstjórnar á Akureyri, við Visi i morgun. Ef af þvi yrði aö norðlending- ar reistu ylræktarver yrði þaö sjálfstætt fyrirtæki. Valur Arnþórsson sagði að búast mætti við þvi að það skýrðist á næstunni hvort Garð- yrkjufélagið I Reykjahverfi sem rekur gróðurhúsin þar vill hefja framkvæmdir eða biða og sjá hvernig ganga muni með ylræktarver fyrir sunnan. Af framkvæmdum á Akureyri yrði alla vega ekki fyrr en eftir tvö til þrjú ár, þegar hitaveita væri komin I gagniö. — EKG Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Hjálmar Torfason gullsmiöur kemur að útstillingarkassa sinum svona. Hann hefur fengiö þrjár eða fjórar sllkar heimsóknir áður. Ljósm: Loftur Sœkja enn í gluggana... Gull og myndavélar heilluðu Gull og myndavélar heilluðu einhverja blræfna sem voru á ferðinni i nótt. Brotnar voru rúður á tveimur stöðum i borg- inni, — I útstillingarkassa Hjálmars Torfasonar gullsmiðs við Laugaveg 26 og glugga i versluninni Gevafoto i Austur- stræti. Niu gull- og silfurhringir voru teknir úr útstillingakassanum. Erfitt var að brjóta rúðuna og náðu þjófarnir ekki meira. Gull- hringur getur kostað um 20 þús- und krónur og jafnvel meira. Kassinn hefur þrisvar eða fjór- um sinnum orðið fyrir barðinu á þjófum áður. Vaktmaður i Búnaðarbankan- um i Austurstræti varð var við tvo menn sem hlupu i burtu frá Gevafoto um klukkan sex I morgun. Náðu þeir að taka tvær myndavélar af gerðinni Olympus OM 1 og OM 2 með linsum. Myndavélarnar kosta um 240 þúsund krónur. Þjófun- um tekst þó ekki auðveldlega að selja vélarnar, þvi Helgi Helga- son verslunarstjóri i Gevafoto kvaðst hafa númerið á þeim. Helgi kvað þetta I fjórða sinn á þessu ári sem þjófar gera vart við sig i versluninni. Þjófa- varnarkerfi er þó til staðar. Þeir sem stálu myndavélun- um hafa liklega skorið sig, þvi blóðdropa mátti sjá fyrir utan verslunina. — EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.