Vísir - 01.10.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 01.10.1976, Blaðsíða 4
Hjálpin bœrist NATO of seint NATO-æfingarnar miklu, sem nýlega fóru fram I Noröur-Atlantshafi og í Noregi, þóttu ljósta upp um vanmátt Bandarikjanna til aö koma herliöi og hjálpargögnum til Evrópu, ef kæmi til strlös milli austurs og vesturs. Varnarsérfræöingar bæöi I Noregi og I aöalstöövum NATO I Brussel voru á einu máli um, aö flotaæf- ingarnar sem kallaöar voru „Samvinna ’76”, heföu veriö til þess geröar aö sýna sovétmönnum fram á pólitlskan vilja bandamanna til aö koma norömönnum til aöstoöar, ef sovétmenn geröu þar innrás. Noregur þykir vera veikasti hlekkurinn I varnarkeöju NATO. Um leiö var tilgangurinn sá, aö sýna vestrænum skattgreiöendum fram á hæfni flota, flughers og landhers NATO. 1 þessum strlösleik tóku þátt rúmlega 80.000 menn, 275 herskip og 900 flugvélar, enda eru þetta ein- hverjar umsvifamestu æfingar, sem fram hafa fariö í 27 ára sögu varnarbandalagsins. Þeim lauk I síö- ustu viku eftir aö 7.500 bandarískir, breskir og hollenskir landgönguliöar höföu „ráöist á land I Miö-Nor- egi og gjörsigraö þykjustu-hernámsliöiö”. Vel má vera, aö æfingin hafi sannfært rússa um, aö Bandarlkin myndu ekki bregöast varnarsamn- ingnum viö norömenn. Naumast hefur þeim þó þótt mikiö til um þetta sýnishorn á þvl, hvernig banda- rlkjamönnum mundi ganga aökoma liösauka hiö snarasta til Noregs. Hernaöarsérfræöingarnir benda á, aö æfingin fari fram viö allt ööruvísi aöstæöur, heldur en væru á stríöstímum. Ef til styrjaldar kæmi milli austurs og Vesturs má gera ráö fyrir, aö hinn mikli floti sovétmanna (180-190kafbátar og lOOherskip, sem njóta stuönings fleiri hundruö flugvéla) heföi sprengt I Ioft upp all- an innrásarflotann sem stefnt var til Noregs, löngu áöur en aö hann kæmi þar upp aö ströndum. Einn af flotaforingjum Bandarlkjanna lét eftir sér hafa, aö þaö mundi taka þriggja til sex mánaöa ákafar sjóorustur, áöur en NATO mundi drottna á Atlantshafinu og geta komiö liösauka og hergögnum til Evrópu frá Bandarikjunum og Kanada. Fyrr á þessu ári lýsti Donald Rumsfeld, varnarmálaráöherra Bandarlkjanna þvf yfir, aö sovéski flot- inn gæti ógnaö siglingum bandamanna alvarlega á skipaleiöum N-Atlantshafsins. — Eru hernaöarsér- fræöingarflestir þeirrar skoöunar, aö þaö væri algerlega óraunhæft aö halda, aö bandarlkjamenn gætu komiö strax til hjálpár á meginlandinu, ef til styrjaldar kæmi. NATO hefur nú viöurkennt þetta I verki sem staöreynd, og fariö þess á leit viö Bandaríkin, Bretland og Kanada aö þau reyni aö stytta tlmann, sem þaö mundi taka þau aö koma hjálp yfir á meginland Evrópu. Þessi þrjú rlki gegna þvi hlutverki I varnarsamtökum Vestur-Evrópu, aö vera uppspretta varaliös og hjálpargagna, sem komi til liös viö heri evrópurlkja, meöan hinir slöarnefndu eiga aö tefja fyrir sókn austantjaldsherjanna vestur á bóginn. Einn aöalvandinn er sá, aö bandamenn skortir flutningatæki, flugvélar og skip, til aö koma herliöi og hergögnum til víglinunnar I Evrópu. Meöan á æfingunum stóö á dögunum þurftu vlkingasveitir breta aö taka á leigu farþegaferjur norömanna til aö koma hermönnum á áfangastaöi. Bárp þeir sig þá undan þvl, aö sllk skip væru óhæf til flutninga á þungavopnum, og væru auk þess óvopnuö og óvarin fyrir hugsanlegum árásum óvinanna. Alexander Haig, yfirhershöföingi herja NATO, heldur þvf fram, aö NATO veröi aö efla flug- og land- her sinn I Evrópu, ef menn ætli aö treysta þvl, aö varnarkeöjan geti haldiö aftur af herjum Varsjár- bandalagsins. Sameiginlega herráöiö vinnur stööugt aö þvl aö bæta skipulag og yfirstjórn herja bandalagsríkjanna og um leiö aö því, aö fullkomna viövörunarkerfi og samvinnu leyniþjónustu NATO-landanna. Jafnframt er stefnt aö þvl, aö fullkomna þau hergögn, sem til staöar eru IEvrópu, og auka birgöir, þvi aö Yom Kippur-strlöiö 1973 sýndi mönnum fram á, aö strlöstækni nýrri tlma bruölar meir meö skotfæri og brynvagna, en gert var t.d. Islöariheimsstyrjöldinni. Þeir I Saudi Arabfu hafa ákveö- iö aö hlú betur aö Iþróttafólki sinu og skapa þvi aöstööu, sem um leið gæti gert þeim kleyft aö halda óiympiuleika I Ryadh ef verkast vildi. Breskir arkitekt- ar hafa veriö fengnir til aö teikna iþróttahöll, sem rúmaö gæti 80.000 áhorfendur, en hér á myndinni fyrir ofan sést likan af þessu mannvirki, eins og arki- tektarnir hugsa sér þaö. íþróttahöll Ólga á Spáni Þúsundir verkamanna í iðngreinum Madrid eru boðaðir til verkfalls í dag til að mótmæla uppgangi hægrisinnaðra öfgahópa sem vinstrimenn telja, að njóti verndar lögregl- unnar. Vinstrimenn standa aö verk- fallsboöuninni, sem er I tilefni af þvl, aö ungur stúdent var skotinn til bana I kröfugöngu á mánudag- inn. Sjónarvottar segja, aö bana- menn hans hafi hrópaö: „Lengi lifi Kristur konungur!” öfgasamtök hægrimanna sem kalla sig skæruliöa Krists konungs eru talin standa á bak viö árásir, sem geröar hafa veriö á mótmælagöngur stjórn- arandstæöinga á undanförnum mánuöum. — Enginn þessara of- stækismanna hefur þurft aö svara til saka fyrir meintar árásir þeirra. Verkfalliö mun I dag taka til byggingarverkamanna, en unniö veröur hjá opinberum fyrir- tækjum eins og bönkum og skólum. — Boöaö hefur veriö til mótmælaaögeröa I miöborg Madrid og minningarathafnar I tilefni dauöa hins 21 árs gamla stúdents. Borgaryfirvöld hafa varaö viö þvi, aö lögreglan muni þegar I staö binda enda á hvers konar óeiröir. — Beitti lögreglan kylfum og reyksprengjum I gær til aö dreifa mótmælahópum I háskóla- hverfinu. Fékk stuðning flokksbrœðranna Denis Healy fjármálaráöherra, sem hér sést á myndinni koma frá þvi aö sækja um 3,5 millj. dollara lán til Alþjóöabankans, fékk á þingi Verkamannaflokksins I Blackpool taliö flokksbræöur sina á sitt band. Þykja þeir Callaghan forsætisráðherra standa styrkari eftir þingiö. ••

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.