Vísir - 01.10.1976, Blaðsíða 5

Vísir - 01.10.1976, Blaðsíða 5
VÍSIR Föstudagur 1. október 1976 Ford annara um mannorð sitt en kosn- ingarnar Ford forseti rauf loks f gær þögn sína um aðdrótt- anir, þar sem gefið er í skyn, að hann hafi látið fulltrúa stórf yrirtækja umbuna sér með rausnar- legum boðum á rándýra golfvelli. Hann kvaddi blaöamenn á sinn fund i Hvita húsiö i gær, og fullyrti við þá, að rannsókn ætti eftir aö hreinsa mannorö hans. — Hann sagði þaö afar mikilvægt, að þessi mál fengjust á hreint hiö allra fyrsta. 1 fréttum hefur komið fram, aö Watergatesaksóknarinn, Charles Ruff, hafi til athugunar kærur um, aö Ford hafi misnotað sjóöi sjómannasamtaka i eigin þágu, þegar hann var fulltrúa- deilarþingmaöur. Forsetinn sagöi fréttamönnum I gær, aö sér þætti þaö mikilvæg- ara aö hreinsa mannorö sitt af þessum aödróttunum, heldur en hitt hvaða áhrif þetta mál heföi á kosningabaráttuna. Jimmy Carter, keppinautur Fords um forsetaembættiö, lét eftir sér hafa i gær, þegar fréttist frá blaðamannafundi forsetans, að Ford hefði gert rétt i þvi aö færa máliö i tal við fréttamenn. Kvaðst hann fyrir sitt leyti treysta oröum Fords sjálfs, þegar hann segöist saklaus af misferli. /#Ég kann ekki við svipinn á því!' Sextán fórust í námasiysi Sextán menn létu lifið i gærkvöldi i sprengingu, sem varð niðri i kolanámu i Metz i Frakklandi, meðan þeir voru að ráða niðurlögum elds, sem kviknað hafði i nám- unni. Voru þeir staddir 1,036 metrum undir yfirborði jarðar, þegar óhappið varð. Þetta er versta sprenging, sem orðið hefur i námunni i sautján ár. Arið 1959 fórust 27 námamenn i gassprengingu, sem varö i henni. t gær voru liðin tiu ár (nákvæmlega upp á dag) frá slysi i þessum námum, þar sem þrir námamenn létu lifið. Eldur braust út niöri í nám- unni i gærdag, og voru um 30 menn sendir niður til aö slökkva hann. Unnu þeir i tveim flokkum. Sprenging varð, og báðu þeir um liösauka, en tveim stundum siðarvarö seinni sprengingin, sem varö sextán mönnum aö fjörtjóni. Það er talið, að sprengingin, hafi myndast af blöndun kola- ryks og metan-gass. Dœmdur fyrir dráp á landamœravörðum 31 árs gamall itali var i gær dæmdur i lifstiðar- fangelsi fyrir morð á tveim svissneskum landamæravörðum og einum austurrikis- manni. Carlo Gritti er talinn foringi bófa, sem rændu 220.000 frönkum úr banka i St.Gallen í Sviss fyrir tveimur og hálfu ári. Hann var einnig fundinn sekur um þjófnaö, árásir og hótanir. Hann játaði á sig hlutdeild i bankaráninu, en bar af sér morö- in. Mikill viðbúnaöur var viö rétt- arhöldin. Stóðu um 100 lögreglu- menn, margir vopnaðir vélbyss- um, yörö um dómhúsið. Skœruliðar og vinstri menn á undanhaldi Skæruliðar palestinu- araba hafa verið hraktir úr vigjum sinum i fjöll- unum austur af Beirút i sókn sýrlenska hersins, sem hófst á þriðjudag- inn og lauk i gær, þegar sýrlendingar höfðu náð þessum stöðum á sitt vald. Utvarpsstöö þeirra skýröi frá þvi, aö skæruliöar og vinstrimenn heföu látið undan siga, en kannaöist ekki viö, að þeir heföu veriö sigraöir á þessum slóöum, þarsem kristnir menn voru i yfir- gnæfandi meirihluta fyrir borgarastyrjöldina. Sigrar hægrimanna i Libanon að undanförnu — meö aöstoö sýr- lendinga — þykja ekki liklegir til aö ýta undir áhuga þeirra á samningum viö vinstrimenn, sem þeir telja sig oröiö hafa I fullu tré viö. Bankaræningjarnir (fjórir saman) höföu lent i klúöri við landamæri Sviss og Italiu, þegar þeir voru á leiö suöur yfir eftir bankarániö. Landamæraverö- irnir ætluöu aö stöðva þá, en mættu þá skothrið. Eiturmengun Vísindamenn Italíu ráðgera skjót viðbrögð til að hreinsa landssvæði, sem mengaðist af arsenik-eitrinu eftir sprengingu í bensínefna- verksmiðju. Þetta er annaö meiriháttar mengunaróhappiö á tæpum þrem mánuðum, þar sem eitur- efni leka frá verksmiöjum og stofna lifi ibúa heilla héraða og þorpa i háska. Anic-verksmiöjan, sem er i eigu rikisins, stendur miösvæöis milli Monte St. Angelo og Manfredonia, en þessir bæir standa viö Adríahaf. — tbúar á hættusvæöunum voru látnir flytja burt strax á sunnudag og mánudag eftir spr-nginguna. 1 júli varð svipaö óhapp i efnaverksmiðju i bænum Svesó (skammt frá Milanó) og varð þá aö flytja 700 ibúa burt, þegar andrúmsloftiö mengaöist eitri. Yfirvöld bollaleggja aö úöa héraðiö meö kalsium kloridi, sem mundi eyöa áhrifum arseniksins, og vonast eftir rigningum sem mundu sjá fyrir afganginum. Ef þaö eru ekki jarðskjálftar, sem neyöa fólk til að yfirgefa heimili sin á ttaliu, þá eru það eiturgufur frá efnaverksmiðjum sem menga andrúnsloftið. Þessar konur eru á fiótta undan ósköpunum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.