Vísir - 16.10.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 16.10.1976, Blaðsíða 3
Laugardagur 16. október 1976 3 Hélt uppboð ó sinni „Min fyrsta sýning var þegar ég hélt listaverkauppboö i gamla Guttó áriö 1918. Þaö mun hafa veriö fyrsta listaverkauppboöiö sem haldiö var hér á landi og seldi ég allar myndirnar á þrem- ur dögum,” sagöi Magnús Á. Arnason f samtali viö Visi. Magnús opnar i dag sýningu á verkum sinum í austursal Kjarv- alsstaða. Siðast sýndi hann hér á landi áriö 1969, en auk sýninga hér hefur hann tekiö þátt í sýning- um í Danmörku, Mexikó og Kali- forniu. A sýningunni eru 77 málverk, auk nokkurra kaffi- og blek- teikninga og höggmynda. Nýlega stofnaði Magnús minn- ingarsjóð um konu sina Barböru Arnason listakonu ásamt syni sinum Vifli Magnússyni arkitekt. Sjóöurinn var stofnaöur af þvi fé sem kom inn af yfirlitssýningu á verkum Barböru fyrr á þessu ári. Sjóðnum er ætlaö aö styrkja einn listamann árlega til utanfar- ar og veröur úthlutað úr sjóðnum i fyrsta sinn snemma á næsta ári. — SJ fyrstu sýningu Magnús A. Árnason viö „Mansöng”. Verkiö er gert úr móbergi. Ljósm. Loftur. Erling Blöndal Bengtsson leikur fyrlr Kammermúsíkklúbbinn Kammermúsikklúbburinn i Reykjavik, hefur starfsár sitt 1976-1977 meö þvi aö prófessor Erling Blöndal Bengtsson flytur allar sex svitur J.S. Bach fyrir einleiksseiló á tvennum tónleik- um i Bústaöakirkju, á morgun, sunnudaginn 17. október og þriöjudaginn 19. október. í frétt frá Kammermúsik- klúbbnum, segir, aö þaö sé klúbhfélögum mikiö lán aö eiga þess kost aö heyra svo mikinn listamann sem prófessor Erling Biöndal Bengtsson flytja svo merk verk, en þetta verður I þriöja sinn sem hann flytur kiúbbnum þessi tónverk. Hvert skipti færi félögunum víötækari mynd af tónverkunum og tónlistarmanninum Erling Biöndal Bengtsson, sem var aö- eins rúmiega 4 ára gamall, er hann kom fyrst fram á tónleik- um i Kaupmannahöfn. Starfsemi Kammermúsik- klúbbsins hófst i febrúar 1957 og á klúhburinn þvi 20 ára afmæli á næsta ári. t þvi tilefni eru ráögeröir afmælistónleikar snemma á næsta ári, en ekki hefur endaniega veriö gengið frá efni þeirra. A 4. og 5. tónleikum starfsárs- ins veröur haldið áfram heildar flutningi strengjakvartetta Beethoven og flytur þá Sinnhof- er kvartettinn frá Þýskalandi sex Strengjakvartetta Beethov- en. Þeim heildarflutningi mun svo ljúka haustið 1977. Félagar i Kammermúsik- klúbbnum eru um 200, en fyrir- hugað er aö auka þá tölu nokk- uö. Þeir sem vilja gerast félagar cru beðnir aö koma fyrir tón- leikana I Bústaöakirkju til innritunar. Sýningu Ragnheiðar lýkur ú múnudag Sýningu Ragnheiðar Jónsdóttur, sem hefur staðið yfir í Norræna húsinu, lýkur á mánudag. Á sýningu Ragnheiðar eru 43 grafíkmyndir. Sýningin er opin frá klukkan 2 til 10 siðdegis. Einar Hákonarson myndlistargagnrýnandi blaðsins fjallar um sýningu Ragnheiðar Jónsdóttur í dag. Rafmagnslaust ó Akureyri í gœr Rafmagnslaust varö á Akur- eyri laust fyrir hádegi í gær, og varekki kominn straumur á i öll- um bænum fyrr en eftir tvo tima. Samkvæmt upplýsingum Raf- veitu Akureyrar var orsök bilunarinnar sú, að háspennu- jarðstrengur við Þingvallastræti slitnaöi, og ennfremur bilaöi lina á Oddeyri. Rafmagnið var komiö á á Brekkunni eftir um þaö bil 40 minútur, en sem fyrr segir ekki fyrr en eftir tvo tima á Eyrinni. Voru mörg fyrirtæki þar þvi stopp um hriö, m.a. Niðursuðuverk- smiöjur K. Jónsson og Co. —AH, Akureyri BELTEK Stereo segulband, 8 rúsa í bíla Allir tala um verðhœkkanir en við bjóðum stórkostlega verðlœkkun Venjulegt verð 26.200.- okkar verð 10.900.- Takmarkað upplag INGVAR HELGASON Vonorlondi v/Sogavog — Simor 84510 og I4S1I URVAL POTTABLOMA Burknar í hundraðatali Handunnið íslenskt keramik fró Vatnsberanum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.