Vísir - 16.10.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 16.10.1976, Blaðsíða 4
Þaö er engu likara en Margret Thatcher, leiötogi breska Ihalds- flokksins, sé aö reyna aö skyggnast fram á veginn til þess aö sjá, hvaðframtiöin ber i skauti sér fyrir flokk hennar og bresku þjóöina. Raunveruleg ástæöa þessara tilburöa voru þó skær ljós sjón- varpsmyndatökumanna á flokksþingi ihaldsmanna á dögunum i Brighton. 0 Pundið fellur en verslunin blómgast Fátt er svo meö öllu illt, aö ekki fylgi eitthvað gott, og þótt gengi steriingspundsins hafi aldrei fyrr veriö svo lágt, sem nú, þá hefur þaö haft örvandi áhrif á verslun breta. Eins og þessi mynd ber með sér af ferðamönnum I „Kaupfélaginu” á Oxfordstræti, eins og islenskir ferðalangar i London eru farnir aö kalla versl- un „Marks and Spencer”. Úttroðnar innkaupatöskur og plastpokar tala sinu máli um áhrifin. Þessi mynd frá höfuðborg Libanons, Beirút, lýsir betur en nokkur orö, hvernig borgarastyrjöldin hefur farið meö þennan miödepil feröastraumsins fyrir botni Miöjaröarhafsins. Þetta var eitt sinn fjölfarn- asta verslunargatan i Beirút, kölluö „Púlsinn i Beirút”. Umferö fótgangandi var slik, aö þaö var ekki viðlit að reyna aö koma vélknúnu farartæki þarna um yfir hádaginn. — En þær bera þaö ekki meö sér núna, rústirnar. * * • ".„.luAfcMÍ Hatrið fylgir friðarkonunum Konurnar, sem f ara fyrir friö- arkrossferöinni á N-lrlandi, hafa sætt sig viö tilhugsunina um, aö dauðinn fylgi þeim nú hvert fótmál. Þær hafa búiö sig undir þaö, og meira aö segja sagt fyrir um, hvernig jaröar- förin skuli fara fram. „Veröum viö að deyja fyrir málstaöinn, þá það,” segir hin 33 ára Betty Williams. „En viö viljum ekki að reynt verði að gera dýrlinga úr okkur. Einföld jarðarförl kyrrþey, takk fyrir.” Þær hafa þegar sætt árás tryllts skrils, sem klóraði, beit, sparkaði og hálfæröi þær með hatursöskrum. Þar voru á ferð- inni kaþólskar kynsystur þeirra, sem lita á friðarhreyf- inguna sem undirlægjuhátt við breska herinn og þvi föður- landssvik. Ofsinn i upphlaupi skrilsins fyrir viku kom þeim Betty Willi- ams og stöllu hennar Mairead Corrigan á óvart. Þessar niu vikur, sem krossferð þeirra hefurstaðið, hafa þær vandlega sneytt hjá þvi, að láta draga sig i ákveöinn stjórnmáladilk. Boð- skapur þeirra gengur einfald- lega út á, að allir aðilar beiti sér fyrir þvi að stöðva likamsmeið- ingarnar og blóösúthellingarn- ar. Þessi fróma ósk hefur komið öfgasinnum á báða bóga til þess að froðufella. Leiðtogar Irska lýðveldishersins hafa fengið á friðarhreyfingunni sérstakt hat- ur. Þeir lita á markmiö hennar sem beina árás á skæruhernaö þeirra gegn breskri stjórn Norður-irlands. Einkanlega varð þeim upp- sigað viö för þeirra Williams og Coi'rigans til Bandarikjanna, þar sem konurnar hvöttu bandarikjamenn til þess að hætta f járframlögum, sem stoiiurnar Betty Williams (t.v.) og Mairead Corrigan viö bifreiö þeirra sem skrill réöíst á og eyöilagöi. Þær halda á grjóthnullungum, sem varpaö var aö bifreiöinni, meöan þær sjálfar voru á útifundi skammt frá og sættu likamsmeiöingum trylitra kynsystra sinna. kynnu að verða notuð til vopna- kaupa. Eftir þá heimsókn beið póli- tiski armur IRA, Sinn Fein- flokkurinn, ekki boðanna, held- ur hóf þegar i stað ófrægingar- herferð og hefur ekki linnt rógn- um siðan. Þær stöllur hafa þó ekki látið hugfallast, heldur halda þær á- fram baráttu sinni. — Betty Williams, sem er fjögurra barna móðir, fékk innblásturinn að friðarherferðinni, þegar hún hafði oröið áhorfandi að dauða þriggja barna, sem urðu fyrir bifreið IRA-hryðjuverkamanna á flótta undan öryggis- gæslumönnum. Mairead Corrigan, 23 ára barnlaus hús- móðir, var frænka barnanna. Hún lagði einkaritarastarf sitt á hiiluna til þess að geta helgað sig friðarhreyfingunni. Eitt enn ergir irska lýðveldis- herinn alveg sérstaklega. Það er sú staðreynd, að báðar kon- urnar eru kaþólskar. Um nokk- urra ára bil hefur Corrigan unn- ið að félagsstörfum á vegum kaþólskra safnaða. Gagnrýnendur hennar halda þvi fram, að hún gangi með „Jóhönnu af örk”-komplex. „Hún sér sýnir oftar en hún snæðir sunnudagsmat,” hnuss- aði einn stjórnmálamanna kaþólskra á dögunum. Eins og vænta mátti i þessu samfélagi trúarofstækis og hat- urs lita öfgasinnaðir mótmæl- endur friðarhreyfinguna horn- auga. Ctifundir hennar hafa laðað að sér þúsundir mótmæl- endakvenna sem i fyrsta skipti siðan menn muna eftir sér hafa tekið hönd i hönd við kaþólska nágranna sina og sungið með þeim sálma. — Einn öfgahópur mótmælenda hefur hótað þvi að gera áhlaup á slika útifundi, ef þeir verða haldnir i' þeirra borg- arhlutum. Séra Ian Paisley, þessi kirkj- unnar þjónn, sem er einhver blóðþyrstasti talsmaður rót- tækra mótmælenda, hefur skop- ast aðfriðarhreyfingunniog lýst hana gagnslausa. — „Það er að- eins ein leið til að brjóta IRA á bak aftur, og hún er hernaðar- leg,” segir hann. Friðarkonurnar eiga sér bækistöð i óhreinum skrifstof- um á annarri hæð i gömlu húsi nærri miðborg Belfast. Aðstoð- arfólk, aðdáendur og viðtalend- ur renna þar upp og niður stig- ann liðlangan daginn. Sim- hringingum er svaraö með kveðjunni: „Halló! Friðarfólkið hér”. En jafnvel þeir, sem óska þessari hreyfingu alls góðs, eru fullir efasemda um að hún muni endast. Slik friðarsamt*k hafa áður verið stofnuð, en hafa allar verið brotnar á bak aftur, nán- ast um leið og þær fóru af stað. Ekkert þeirra hlaut eins mikla athygli, eða entist eins lengi og þessi. Tilráðunautar konunum til að stýra framhjá pólitiskum skerj- um, er blaðamaður að nafni Ciaran McKeown, sem lét af starfi sinu við eitt dagblaða i Dublin til þess að vera friðar- hreyfingunni innan handar. Eitt dæmið um það, hversu vandratað er á milli hinna póli- tisku fylkinga, sýndi sig i eftir- málum skrilsárásarinnar á þær stöllur. Konurnar, sem réðust á þær, höfðu komið saman til mótmælafundar, sem beindist gegn breska hernum, eftir að þrettán ára piltur hafði orðið fyrir gúmmibyssukúlu i uppþoti og beðið bana af. Hatur þeirra beindist gegn Betty og Mairead, sem voru taldar útsendarar breska hers- ins og svikarar við málstaö hryðjuverkamanna IRA. — Daginn eftir gáfu friðarkonurn- ar út yfirlýsingu, þar sem þær fordæmdu ofbeldisverk breskra hermanna jafn hart og blóðsút- hellingar öfgasamtakanna. Þetta æsti til andstöðu mót- mælendakonur, sem stutt höfðu friöarhreyfinguna. McKeown blaöamaður varð að koma til skjalanna og semja fyrir friöarkonurnar nýja yfir- lýsingu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.