Vísir - 21.11.1976, Qupperneq 13
Samantekt: Árni Þórarinsson Seinni hluti
Samkvæmisgestur fleygir sériít um glugga á efstu hæö skýjakljúfs-
ins sem er miöpunktur jólamyndar Austurbæjarbiós, „The
Towering Inferno.”
John Cazale og AI Pacino leika sérkennilega bankaræningja I .,,Dog
Day Afternoon.”
lönabíó
3*3-11-82
JÓLAMYND Tónabiós veröur
aö öllu forfallalausu upphafiö aö
hinni makalausu endurreisn
Bleika pardusins, „The Return
of the Pink Panther” eöa
„Bleiki pardusinn snýr aftur”,
sem notið hefur gifurlegra vin-
sælda viöa um lönd, og hafa
fleiri myndir veriö gerðar i
framhaldi af velgengni þess-
arar. Þaö er Peter Sellers sem
eins og áður, leikur hrakfalla-
bálkinn og rannsóknarlögreglu-
manninn Clousót, en leikstjóri
er Blake Edwards. Af öörum
myndum Tónabiós sem væntan-
legar eru má nefna:
Tv^er nýjustu James Bond-
myndirnar, — „Live and Let
Die” og „The Man with the
Golden Gun” (leikstj. Guy
Hamilton) með Roger Moore i
aðalhlutverkinu.
„Love and Death”, nýjasta
og að margra dómi besta mynd
Warren Oates og Isela Vega I „Bring Me the Head of Alfredo
Garcia.”
grinistans bandariska Woddy
Allen, þar sem hann skopstælir
meistara eins og Bergman og
Tolstoi.
„Þúsund og ein nótt’ i lit-
gáfu Pier Paolo Pasolinisáluga.
„Bring Me the Head of
Alfredo Garcia” eftir 8am
Peckinpahmeð Warren Oates,
— allblóðug ofbeldisstúdia.
„Rollerball”, hörkuleg
framtiðarsýn, leikstýrt af
Norman Jewison með James
Caan i aöalhlutverki.
„Juggernaut”, hressileg
hasarmynd, með Richard
Harris og Omar Sharif.leikstýrt
af þeim ágæta paródista
Richard Lester.
„Shout at the Devil” er
einnig hasarmynd með Lee
Marvin og Roger Moore.stjórn-
aö af Peter Hunt.
„Death Race 2000”, er vin-
sæl kvikmynd vestanhafs meö
miklum kappaksturssenum,
gerist áriö 2000 i fasistisku þjóð
félagi sem einu si'nni var
Bandarikin. Leikstjóri er Paul
Bartel. Myndin hefur hlotið
misjafna dóma.
önnur mynd um mikinn
eltingaleik á bilum, sem nýtur
klassiskra vinsælda hjá töffur-
um i hópi biógesta, er „Gone in
60 Seconds”. Höfundur er II.B.
Halicki. Some Like it Hot, hin
ágæta gamanmynd Billy
Wilders verður endursýnd, en i
aðalhlutverkum eru Marlyn
þvi hvort hún fær náð fyrir aug-
um siðferðiseftirlitsins. Aðrar
myndir sem Tónabió er með i
takinu til lengri tima eru t.d.
Oscarsverðlaunamyndin ,,0ne
Flew Over the Cuckoo’s Nest”
Roger Moore Iham i „The Man With theGolden Gun”.
Monroe, Jack Lemmon og Tony
Curtis.
„Fists og Fury”, karate-
mynd með Bruce Lee.
Þá má geta þess að Tónabió
hefur keypt þá frægu „djörfu”
mynd „The Story of O”, sem er
afkvæmi sömu manna og
„Eammanuelle”, en nú veltur á
eða „Gaukshreiðrið” stjórnaö
af Milos Forman, meö Jack
Nicholsson, „Buffalo Bill and
the Indians”, stjórnað af Robert
Alyman, með Paul Newman og
„ApocalypseNow”, hin glænýja
mynd Fracis Ford Coppola um
Vietnam með Marlon Brando i
aðalhlutverki.
-13-84
AUSTURBÆJARBIÓ er ný-
búið að gera samning um nýjar
kvikmyndir, og eins og fram
hefur komið i frétt i Visi er
þeirra á meðal sú fræga Water-
gatemynd, „All the President’s
Men” með Robert Redford og
Dustin Hoffman i hlutverkum
blaðamannanna Bob Woodward
og Carl Bernstein, en leikstjóri
er Alan Pakula, sem m.a. hefur
gerttværúrvalsmyndir sem hér
hafa verið sýndar, „Kute”
og „The Parallax View”. Þessi
mynd, sem byggð er á sam-
nefndri bók þeirra Woodwards
og Bernsteins, veröur tekin til
sýninga eftir áramót. Jólamynd
Austurbæjarbiós verður hins
vegar „The Towering Inferno”,
sem talin er hvaö best hamfara-
myndanna svokölluðu, og er
leikstýrt af John Guillermin,
sem nú stjórnar endurmyndun
„King Kong’M aðalhlutverkum
eru Steve McQueen og Paul
Newman. Af öðrum myndum
Austurbæjarbiós má nefna:
Oscarsverðlaunamyndina
„Alice doesn’t Live here Any-
more" með Ellen Burstyn og
Kris Kristofferson, en leikstjóri
er Martin Scorsese (Mean
Streets, Taxi Driver.)
„The Prisoner of Second
Avenue” er gerð af Melvin
Frankog er meö Jack Lemmon
og Anne Bancroft i aðal-
hlutverkum.
„Lisztomania” er glæný,
geggjuð mynd eftir þann mis-
tæka snilling Ken Russell
(Women in Love, Djöflarnir,
The Music Lovers) og sýnir tón-
skáldið Franz Liszt i nýju ljósi.
Titilhlutverkiö leikur popp-
söngvarinn Roger Daltrey
(Tommy).
„Seven Beauties” eftir hinn
nýja meistara italskrar kvik-
myndagerðar, Linu Wertmuller
með Giancarlo Giannini og
Fernando Rey i aðalhlut-
verkum. Margir telja þetta
bestu mynd Wertmullers til
þessa.
„The Outlaw Josey Wales”
er nýjasta mynd hins vaxandi
leikstjóra Clint Eastwood. Þetta
er vestri með Eastwood sjálfum
i aðalhlutverki.
„Dog Day Afternoon”, gerð
af Sidney Lumet, með A1 Pacino
i aðalhlutverki er ein best sótta
myndin viða um lönd um þessar
mundir.
Loks má geta „Operation
Daybreak” um morð kunns
nasistaforingja, Reinhard
Heydrichs, (leikstj. Lewis Gil-
bert, aðalhl. Timothy Bottoms),
glænýja mynd um hljómsveit-
ina Led Zeppelin, gamansaman
vestra „The Great Scout and
Cathouse Thursday” (leikstj.
Don Taylor.aöalhl. Lee Marvin,
Oliver Reed), „Drum”, fram-
haldiö af „Mandingo” með
Warren Oates og Ken Norton,’
itölsku sakamálamyndina
„Verdict” með Sophiu Loren og
Jean Gabin, ;,The Drowning
Pool”, byggð á einni hinna
ágætu leynilögreglusagna Ross
Macdonalds,meðPaulNewman i
hlutverki einkaspæjarans Lew
Archersem i myndunum nefnist
Lew Harper, og nýja „Nobody-
mynd” meö Terence Hill.
í SÍÐASTA Helgarblaði var greint frá nokkrum
þeirra kvikmynda sem fjögur bióanna á Reykja-
vikursvæðinu, — Stjörnubió, Nýja bió, Hafnarbió
og Laugarásbió — munu bjóða biógestum upp á
næstu mánuðina. i þessari síðari grein segjum
við svo frá góðgætinu sem Háskólabió, Tónabió
og Austurbæjarbió munu sýna á næstunni.
Borgarbió á Akureyri mun væntanlega einnig
frumsýna nýjar myndir og verður frá þvi skýrt i
Visi þegar þar að kemur. —AÞ
HASKOLÁBIO
simi 27110 -«■
Peter Sellers mun væntan-
lega fara á kostum 1 „Soft Beds —
Hard Battles”, sem sýnd verður
fyrir jól.
„ACES High” er stríösmynd
úr fyrri heimsstyr jöldinni,
leikstýrð af Jack Gold, og meö
Malcolm McDowell, Christopher
Plummer og fleiri úrvals-
leikurum.
„The Tenant” er nýjasta
snilldarverk hrollvekjumeist-
arans Romans Polanskis, sem
einnig leikur aðalhlutverkið.
Þessi mynd hefur fengið afar
góða dóma.
„Mahogany” er vinsæl mynd
með Diana Ross, söngkonu og
leikkonu, — ein best sótta myndin
vestanhafs á árinu.
„Nickelodeon” eftir Peter
Bogdanovic er svo ný aö ekki er
farið að frumsýna hana erlendis
enn, en Háskólabíó er búið aö
kaupa hana. Hún fjallar um
bernsku bandariskrar kvik-
myndagerðar i Hollywood.
Og þá fáum við ekki sist að
sjá kvikmyndina eftir sögu þýska
nóbelshöfundarins, „Ærumissi
Katrinar Blum”, sem lesin var i
útvarp á liönum vetri, og byggð
er á sannsögulegum atburðum.
Að öðrum myndum Háskóla-
biós má nefna „Marathon Man”
með Laurence Olivier og Dustin
Hoffman, ,,,Russian Roullette”
„The Voyage of the Damned” og
„Lipstick”, gerð af Lamont
Johnson, og fjallar um nauðgun
og afleiðingar hennar fyrir þá
konu sem fyrir henni verður.
Aðalhlutverk leikur Margaux
Hemúigway.
HASKÖLABIÓ er að vanda með
röð af hnýsilegum myndum og
likur benda til að jólamyndin I ár
verði „Bugsy Malone”, ein
umtalaðasta kvikmynd ársins.
„Bugsy Malone” er „gangster-
mynd” alveg af sérstöku sauða-
húsi, þvi öll hlutverkin eru leikin
af krökkum, og i stað blóös flýtur
rjóminn. Myndin segir frá
átökum glæpaforingja, og er sögð
i senn afar sérstæð og bráð-
skemmtileg. Leikstjórinn er
breskur, Alan Parker, en meðal
leikenda er t.d. Jodie Foster.sem
islenskir sjónvarpsáhorfendur
þekkja sem Addie Prey i Malcolm McDowell, Christopher Plummer og Peter Firth I „Aces
þættinum „Paper Moon”. Af High.”
öðrum væntanlegum myndum
Háskólabiós má nefna:
„Black Sunday”, gerð af
John Frankenheimermeð Rogert
Shaw og Bruce Dern. Þetta er
glæný mynd og er forvitnilegt að
sjá hvort Frankenheimer er þar i
jafngóðu formi og i „French
Connection II”.
„Greifinn af Monte Christo”i
nýrri útgáfu meö Richard
Chamberlain i aðalhlutverki.
,,A Bridge Too Far” er ný
stórmynd, gerð af Richard Atten-
borough og byggð á bók eftir
Cornelius Ryan. Meðal leikenda
eru Dirk Bogarde, James Caan,
Sean Connery, Gene Hackman,
Michael Caine og margir fleiri.
Siðasta mynd meistara
Lucino Visconti „Violence and
Passion” með Burt Lancaster. Skerst í odda meö glæponunum I „Bugsy Maione.
VISIR ' Sunnudagur 21. nóvember 1976
w w
HVAÐ BJOÐA BIOIN UPP A I VETUR?