Vísir - 25.11.1976, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 25. nóvember 1976
VÍSIR
VISIR -Fimmtudagur 25. nóvember 197«
Umsjón: Björn Blöndal og Gylfi Kristjánsson
Muhamed Ali
virðist vera
áttum
„Það er ekkert öruggt aö ég komi i hring-
inn á ný", sagði Muhammed Ali i viötali viö
BBC í gærkvöldi. Eins og skýrt var frá fyrir
nokkrum dögum hafoi Ali ákveðið aö berjast
við George Foreman þegar hann hefði „hitað
sig upp" með þvi að lemja niður svo sem eins
og tvo hnefaleikara fyrst, en nú virðist sem
eitthvert hik sé komið á kappann. t viðtalinu
við BBC i gærvöldi sagði Ali meðal annars:
„Hnefaleikarnir eru dauðir án min. Fore-
man getur ekki gert neitt án min. Hann getur
ekki grætt neina peninga ef ég er ekki með í
spilinu. Ég er hinsvegar ekki ákveðinn hvort
ég berst við hann eða nokkurn annan. Það
getur verið að ég ákveði það á morgun, en ég
lofa ykkur þvi aö ég á eftir að koma á óvart."
•
Boroughmuir
skell
í 2. umferð
Boroughmuir Barrs frá Skotlandi, sem
unnu UMFN i fyrstu umferð Evrópukeppni
bikarmeistara i körfuknattleik, fengu heldur
betur skell í 2. umferðinni.
Þá léku þeir viðspænska liðið Juventud
Badalona og spánverjarnir reyndust algjörir
ofjarlar þeirra.
Fyrri leikurinn var leikinn i Edinborg, og
þá sigruðu spánverjarnir með 111 stigum
gegn i;t;. Siðari leikurinn var háður i Bada-
lona i gærkvöldi — og aftur sigruðu spán-
verjarnir, nú með 126 stigum gegn 64.
Samanlagður sigur Badalona i leikjunum er
þvi 237 stig gegn 130 stigum Boroughmuir
Barrs.
•
Bandaríkjamenn
skora ávallt
flest stigin
Fjöldi leikja var leikinn i Evrópukeppni
bikarhafa i körfuknattleik i gærkvöldi, og
urðu helstu úrslit þessi:
Villeurbanne frá Frakklandi sigraði ABC
Trend frá Austurriki 96:74 og 179:166 saman-
lagt. Besiktas, Tyrklandi vann Steaua,
Rúmeniu 84:66, en Steaua vann samanlagt
143:141. — Cantu frá ítaliu sigraði Högsbo,
Sviþjóð með 107:85 og 208:180 samanlagt. —
Slavia fra Tékkóslóvakiu sigraði Ysboerke
95:49 og 178:145 samanlagt. —
Það vekur athygli þegar skoðað er hverjir
skora flest stig i ieikjunum að þar eru leik-
menn með bandarisk nöfn ávallt i efstu sæt-
unum, og það sýnir enn að það þýðir litið
fyrir lið að taka þátt i þessari keppni án þess
að hafa sterka bandariska leikmenn innan-
borðs.
##
##
Drottningar
í sundinu
hœtta keppni
Eins og menn muna, höfðu a-þýsku sund-
konurnar mikla yfirburði á ólympíuleikun-
um i Montreal i sumar, og unnu þar allar
greinarnar sem keppt var í nema eina.
Frægust þessara a-þýsku sundkvenna var
án efa hin 18 ára Kornelia Ender sem vann
þrenn gullverðlaun og ein silfurverðlaun.
Kornelia Ender hefur nú ákveðið aö hætta
keppni og snúa sér að aðaláhugamáli sinu
þessa dagana — aö verða barnalæknir. — En
hún er ekki sú eina úr hópnum sem nú leggur
sundbolinn á hilluna.
Hannelora Anke sem sigraði I 100 metra
bringusundi iMontreal er einnig hætt, Corne-
lia Durr, evrópumeistari i 800 metra skrið-
sundi, Gabriel Kother sem á heimsmetið 1200
metra flugsundi og Heidi Ramolw-Becker
sem er fyrrum evrópumeistari, hafa allar
einnig ákveðið að hætta keppni.
Loks sigur
Celtic á
Rangers!
Celtic vann langþráðan sigur
á erkióvininum — Rangers I
skosku úrvalsdeildinni I knatt-
spyrnu I gærkvöidi. Það eru ár
og dagar siðan Celtic hefur
tekist að sigra Rangers og
sigurinn var enn sætari þar sem
leikurinn fór fram á heimavelli
Rangers, Ibrox. Jóhannes Eða-
valdsson var varamaður með
Ceitic, sem var skipað sömu
leikmönnum og sigraði Hearts i
Edinborg um siðustu helgi.
Sigurmark Celtic skoraði Joe
Graig i fyrri halfleik.
Aberdeen hefur nú forust-
una i úrvalsdeildinhi. Liðið
sigraði Ayr i gærkvöldi og hefur
nú 17 stig ef tir 12 leiki — Dundee
Uniteder með sama stigafjölda,
en lakara markahlutfall. Celtic
er svo i þriðja sætinu með 15
stig, en hefur leikið einum leik
minna en Aberdeen og Dundee
Utd. I fjórða og fimmta sæti
koma svo Rangers og
Motherwell, bæði með 13 stig.
Nokkuð var um leiki I Eng-
landi i gærkvöldi og urðu úrslit
þeirra þessi:
1. deild
Newcastle — Everton
Bikarkeppnin
Bradford —Walsall
Colchester — Cambridge
4:1
0:2
2:0
Ensk-skoska keppnin
Orient —ParticThistle 3:2
(Orient sigraði samanlegt 4:2)
Skoska úrvalsdeildin
Aberdeen — Ayr 1:0
Hibernian —Motherwell 0:2
Rangers —Celtic 0:1
Gray hef ur
skorað flest
mörkin í
1. deild
Markahæstu leikmenn I Eng-
landi eru:
Andy Gray, Aston Villa 16
Bob Latchford, Everton 10
Kenny Burns, Birmingham 10
MickFerguson.Coventry 10
PaulMariner.Ipswich 9
StuartPerson.Man. Utd. 9
2. deild
DerekHales.Charlton 18
SteveTaylor, Bolton 14
TonyEvans.Cardiff 13
SteveFinnieston.Chelsea 13
Mike Walsh, Blackpool 11
Bill Rafferty, Carlisle 10
Newcastle er nu komið i
þriðja sætið i 1. deild eftir sigur-
inn gegn Everton. Liverpool
hefur forystuna með 23 stig, en
siðan koma Ipswich og New-
castle með 20 stig. Liverpool og
Newcastle hafa leikið 15 leiki,
en Ipswich,
—BÐ
Keppa um
sœti í
Belgíu
Unglingalandsliðin i Evrópu 16-
18 ára eru nú hvert af öðru að
tryggja sér rétt til að taka þátt i
úrslitakeppni Evrópukeppninnar
sem fram fer i Belgiu næsta sum-
Eins og kunnugt er komst is-
lenska unglingalandsliðið i úr-
slitakeppnina eftir áð hafa slegið
norðmenn út i forkeppninni með
2:1 samanlagt.
Sfðustu úrslit i forkeppninni
semviðhöfum haft fréttiraf voru
i leik Hollands og Sviss. Leikurinn
fór fram i Hollandi og sigruðu
heimamenn með 1:0. Þetta var
fyrri leikur liðanna.
gk-
.Iiíii Karlsson úr Val er Ilandsliðshópnum sem hefur verið valinn til að
leika gegn liði Iþróttafréttamanna á laugardaginn. Jón hefur átt mjög
góða leiki með Val að undanförnu, en vegna atvinnu sinnar er óvlst
hvort hann getur leikið alla leiki landsliðsins f desember.
Ljósmynd Einar.
Cerwinski stjórnar
sínum fyrsta leik
Janusz Cherwinski og lands-
liðsnefnd hafa nú valið þrettán
leikmenn til að leika gegn liði
iþróttafréttamanna á laugar-
daginn. Landsliðið hefur æft mjög
vel að undanförnu og verður
forvitnilegt að sjá hvað liðið hefur
lært undir stjórn Cherwinskis.
Áður en leikur landsliðsins og
pressunnar hefst ínunu iþrótta-
fréttamenn ..sem állt vita"
þreyta kapp við dómara — og
verður örugglega ekkert gefið
eftir i þeim leik, þvl að þar gefst
dómurunum kostur á að ná sér
niðri á fréttamönnunum eftir þá
slæmu „kritfk" sem þeir hafa
fengiö að undanförnu. Auk þess er
ráðgertað hafa einhver skemmti-
atriði I hálfleik.
Landsliðið verður skipað
eftirtöldum leikmönnum:
Ólafur Benediktsson Val
Gunnar Einarsson Haukum
Jón Karlsson, Val
Bjarni Guðmundsson, Val
Þorbjörn Guðmundsson, Val
Geir Hallsteinsson, FH
Viðar Simonarson, FH
Þórarinn Ragnarsson, FH
Viggó Sigurðsson, Vikingi
Björgvin Björgvinsson, Vikingi
Þorbergur Aðalsteinss., Vikingi
Ólafur Einarsson, Vikingi
Ágúst Svavarsson, 1R
Leikið verður I Laugardalshöll-
inni og hefst leikurinn kl. 15:00.
Pressuliðið hefur þegar verið
valið — og verður það væntanlega
tilkynnt á morgun.
Þjálfarinn
tók pokann
Júgóslavinn Blasko Markovic
sem þjálfaðhefur knattspyrnulið-
ið Nice i Frakklandi, sagði stöðu
sinni lausri um helgina. Nice
byrjaði keppnina i 1. deild mjög
vel og hafði forystuna lengi vel,
en að undanförnu hefur ekkert
gengið — og um helgina tapaði
liðið á heimavelli fyrir Nantes
1:2. Eftir leikinn bauluðu áhorf-
endurnir á Markovic sem sá sitt
óvænna og tók pokann sinn.-BB
Ég vildi óska að
Jimmy og Alla hefði
komið betur saman,
okkurleið svo veí
. Æ! Æ!
(eí þetta er þittsiðasta orð
þá... Hvað var þetta? j
Juventus stef nir
á sigur í UEFA!
— Flest stóru liðin sem eftir eru í UEFA keppninni
_____________unnu fyrri leiki sjng_____________
Leikmenn a-þýska liðsins
Magdeburg voru heldur betur I
ham i gærkvöldi þegar þeir léku
við Videoton frá Ungverjalandi I
UEFA keppninni i fyrri leik lið-
anna i 16 liða úrslitunum.
Fimm sinnum sendu leikmenn
Magdeburg boltann I mark ung-
verjanna sem gátu aldrei svarað
fyrir sig.
Markhæsti leikmaðurinn i
deildarkeppninni í A-Þýskal. —
skoraði fyrsta mark leiksins á 8.
minútu eftir að varnarmaður
Videoton hafði runnið til i hálk-
unni inni i vitateignum. Siðan
kom hvert markið af fætur öðru
og ungverjarnir áttu aldrei neinn
möguleika.
Barcelona átti ekki I
vandræðum með sænska liðið
Vaexjöe þótt leikið væri i Sviþjóð.
Manuel Clares skoraði fyrsta
mark Barcelona rétt fyrir hálf-
leik, og eftir það tóku Barcelona-
leikmennirnir öll völd á vellinum,
með Cruyff sem besta manh.
Johan Neeskens skoraði strax i
siðari hálfleik og Clares bætti
þriðja markinu við stuttu siðar.
Miklar lfkur eru á þvi að QPR
hafi tryggt sig i 8 liða úrslitin.
QPR fékk Köln frá V-Þýska-
landi i heimsókn á Loftus Road i
gærkvöldi, og þjóðverjarnir
máttu halda heim með 0:3 ósigur
á bakinu.
Irski landsliðsmaðurinn, Don
Givens. skoraði fyrsta mark
leiksins og einni minútu siðar
bætti Dave Webb öðru markinu
við. Stan Bowles átti svo slðasta
orðið er hann skoraði gott mark
fyrir QPR. Tveir þjóðverjanna
voru bókaðir fyrir gróf brot gegn
Bowles.landsliðsmennirnir Flohe
og Cullmann.
Juventus, liðið sem margir
álita sigurstranglegast i UEFA
keppninni og hefur m.a. slegið
bæði Manchesterliðin út, vann
góðan sigur á heimavelli gegn
soveska liðinu Dohetzk. Þeir
skoruðu 3 mörk á fyrstu 35 min.
leiksins, fyrst Bettaga, og siðan
Tardelli og Boninsegna.
Hollenska liðið Feyenoord vann
nokkuð óvæntan útisigur á Spáni
gegn Espanola, sem er i öðru sæti
i spænsku deildarkeppninni.
Eina mark leiksins var skorað i
fyrri hálfleik.Það var varnar-
maður Espanol, Filipe, sem
skoraði i eigið mark.
Spænska liðinu Athletico Bilbao
gekk hins vegar betur i leik sinum
gegn Milan frá Italiu, og sigraði
með 4:1.
Italirnir héldu jöfnu i hálfleik
1:1, en i siðari hálfleik toku spán-
verjarnir völdin og gerðu út um
leikinn.
Molenbeek frá Belgiu fékk v-
þýska liðið Schalke 041 heimsókn.
Chalke 04 átti alveg jafnmikið i
leiknum; en 4 minútum fyrir
leikslok skoraði þó Lafont fyrir
Molenbeek. Flestir veðja þó á að
Schalke vinni þennan mun upp er
liðin mætast i Þýskalandi.
Griska liðið AEK Athena
sigraði Red Star frá Júgóslaviu
með 2:0 i Aþenu, og var sá sigur
verðskuldaður.
Siðari leikirnir verða leiknir 8.
desember. Sk-.
Tekst þeim að
stöðva Jimmy?
— Mjög sterkt pressulið mœtir
landsliðinu í körfu í kvöld
Landsliðið i körfuknattleik
sem leikur sinn fyrsta leik
undur stjórn Vladan Markovitc
gegn liði iþróttafréttaritara I
kvöld, þarf sennilega að sýna
allar sinar bestu hliðar ef það
ætlar sér sigur I leiknum.
„Pressuliðið" er nefnilega
mjög sterkt, og þar eru margir
af okkar reyndustu körfubolta-
ni öi\ nu in. Menn eins og Kol-
beinn Pálsson KR, Þorsteinn
Hallgrimsson iR, Agnar
Friðriksson 1R, Gunnar
Gunnarsson, Haukum og Bjarni
Jóhannesson, KR. Auk þess
leikur svo Jimmy Rogers með
liðinu, og mun örugglega
reynast landsliðsmönn um
okkar erfiður i kvöld sem
endranær.
Sem kunnugt er á landsliðið
fyrir höndum tvo leiki við norð-
menn hér i næstu viku, og er
þessi leikur i kvöld eini ópinberi
leikur liðsins fyrir þá leiki.
1 hálfleik i kvöld fer' fram
vitakastkeppni á milii iþrótta-
fréttamanna, en þeir ku kunna
þá list mjög vel eins og flest
ánnað i iþróttum. Leikurinn
milli landsliðsins og „press-
unnar" hefst kl. 20.30 i iþrótta-
hiisi Hagaskólans.
Bandarlski blökkumaðurinn Jimmy Rogers er einn þeirra er skipa
„pressuliðið" i körfuknattleik sem mætir landsliðinu I Hagaskólanum I
kvöld. Margir þrautreyndir leikmenn leika með „pressunni" svo að
biiastmá viðmjög jöfnum leik. — Ljósmynd Einar.
Tröllabingó
Tróllabingó KR-inga verður í kvöld, 25. nóvember, í Sigtúni.
Húsið opnað kl. 20.00.
Forsola á aðgöngumiðum verður í KR-húsinu við Frostaskjól.
Heildarverðmœti vinninga kr. 700.000, þar á meðal 5 utanlandsferðir.
KR-Tröllin