Vísir - 25.11.1976, Blaðsíða 3
VISIR
Fimmtudagur 25. nóvember 1976
Ekkert
spurst til
Gunnars
Ekkert hefur enn spurst til
Gunnars Elissonar, sem hvarf
i Vestur-Þýskalandi fyrir
rúmum fimm vikum. Þýska
lögreglan hefur haldið uppi
leit þar i landi og Interpol, al-
þjóðalögreglan fengið málio
til mcöferöar, en án árangurs
enn sem komið er. —ÓT.
Ölafur vill samstöðu
um kjördœmabreytinqu
„Ég vil vinna aö viötækri
samstööu um breytingar á kjiir-
dæmaskipaninni," sagði Ólafur
Jóhannesson á kvöldverðar-
fundi ungra sjálfstæðismanna
s.I. þriðjudag. Ráðherrann
sagði, að Framsóknarflokkur-
inn hefði enn ekki tekið endan-
lega afstöðu til þeirra tillagna
sem fram hafa komið um
breytta kjördæmaskipan.
Dómsmálaráðherra sagðist
vilja vinna að sem víðtækustu
samstarfi milli flokka i þessum
efnum. Framsóknarflokkurinn
hefði yfirleitt verið i andstööu
við fyrri kjördæmabreytingar
og hann vildi ekki fyrir sitt leyti
eiga fr'umkvæði að þvi að koma
öðrum flokkum i þá aðstöðu.
A fundinum kom einnig fram
hjá ráðherra að hann telur eng-
ar likur benda til annars en rík-
isstjórnin sitji út kjörtimabilið.
Hann sagði ákveðið, að Fram-
sóknarflokkurinn myndi ekki
beita sér fyrir stjórnarslitum að
óbreyttum aðstæðum og sam-
starfsráðherrum sinum úr
Sjálfstæðisflokknum gæti hann
ekki borið annað en gott orð.
Mánuður
til jóla
Það er eitthvað pinulitið jóla-
legt við þessa mynd sem hann
Jens tók, þótt jörð sé auð og
jólaljósin i miðborginni ekki
komin upp. Kannski er skýring-
in sú að I gær var réttur mánuð-
ur til jóla.
Um mánaðamótin má svo bú-
ast við að Reykjavik fari að fá á
sig reglulegan jóiablæ með
skrautlegum útstillingum i
verslunum og þar fram eftir
götunum.
— ÓT
Litsjónvarps-
málið sent
til saksóknara
Rannsókn litsjónvarpssmygls-
ins er nú lokið i sakadómi og
hefur málið verið sent saksókn-
ara til ákvörðunar.
Eins og menn rekur minni til
er hér um að ræða smygl á 29
listjónvarpstækjum sem flutt
voru inn i landið i febrúar.
Margir sátu i gæsluvarðhaldi
um tima vegna rannsóknar
málsins og nokkrum starfs-
mönnum Eimskips var sagt upp
störfum vegna þátttöku I smygl-
inu.
Vegna anna hjá embætti rfk-
issaksóknara verður vafalaust
nokkur bið á að tekin verði á-
kvörðun um framhald þessa
smyglmáls.
— SG
Röntgentœknar
buðu aðstoð á
slysavarðstofunni
,,Flest sem þarna kemur
fram er ekki svaravert", sagði
Þórunn Guðmundsdóttir i stjórn
röntgentæknafélagsins, þegar
Visir bar undir hana frétt sem
birtist I blaðinu i gær.
Þar er haft eftir Magnúsi Ósk-
arssyni vinnumálastjóra
borgarinnar um uppsagnir
röntgentækna, „að atlögunni sé
beint að slysavarðstofunni", og
að „þar sé höggið látið falla og
þar valda þeir óþægindum".
„Það sem Magnús segir
þarna er tóm vitleysa", segir
Þórunn. „Aður en við lögðum
niður störf tókum við fram, að
við værum reiðubúin að veita
aðstoð á slysavarðstofuhni i
neyðartilfellum, ef fram á það
yrði farið. Þá kom einnig fram
að ekki yrði um neitt launa-
vandamál að ræða, þvi við buð-
umst'til að þiggja laqn eftir
þeim samningum sem við nú er-
um á".
„Hitt er svo annað að enginn
hefur farið fram á það við okkur
að við veittum þessa aðstoð",
sagði Þórunn.
—GA
Einn í gœsluvarðhaldi
Einn maður situr nú f gæslu- dag samkvæmt upplýsingum
varðhaldi vegna rannsóknar- sem Vísir fékk i gær. Aðrar nýj-
iimar á ffkniefnamálinu mikla. ar fregnir var þá ekki að fá af
Var einum manni sleppt í fyrra- þessu máii. —EA
II
II
Maður ársins
lagður af stað
Það hefur strax verið tekið vel i þá hugmynd okkar að kjósa mann árs-
ins og strax i gær, á fyrsta degi, fóru miðarnir að skila sér inn til okkar.
Menn komu með þá hingað upp á ritstjórn, eða i afgreiðsluna að Hverfis-
götu 44.
En það er óþarfi að vera að leggja á sig langferðir til að koma atkvæða-
seðlinum til skila. Það má alveg eins og ekki siður, skella honum i póst,
skrifa utan á „Maður ársins" og senda á ritstjórnina, Siðumúla 14.
Kjörstað verður lokað 15. desember næstkomandi og seðillinn birtur
daglega amk. fyrstu tvær vikurnar. Við munum svo öðru hverju skýra
frá þvi hvernig gengur og birta nöfn þeirra sem hæstir eru orðnir að at-
kvæðatölu.
rS<"
MAÐUR ÁRSINS 1976.
Að minu mati er maður ársins 1976:
Astæða eða starfssvið:
Sendandi:
Heimili: .
Sendist Visi, Siðumúla 14, Reykjavik'