Vísir - 25.11.1976, Blaðsíða 5
m_
VISIR Fimmtudafíur 25. nóvcmber 1976
iPétursson
¦¦
Standa heimilis-
laus í brunagaddi
eftir jarðskjálfta
I þreifandi snjóbyl
voru björgunarsveitir i
alla nótt að leita að
hugsanlegum eftirlif-
endum mikils jarð-
skjálfta, sem varð i
austurhluta Tyrklands
i gær — Það er talið, að
um 3.000 manns hafi
farist i honum.
Jarðskjálftakippurinn mæld-
ist 7,6 stig á Ricterskvarða og
fundu menn til hans á 500 km.
bili, en þó mest i bænum
Kuradiye, þar sem bjuggu 6000
manns. Nær öll hus bæjarins
lögðust í rúst, og kviða menn þvi
að allt að helmingur bæjarbúa
hafi farist.
Mikill landskjálfti varð i
austurhluta Tyrklands i fyrra,
en sá mældist 6,8 stig á Richter-
kvarða og kostaði _sá 2.350
mannslif, auk þess sem á f jórða
þúsund manna slösuðust. Sá
jarðskjálfti kom harðast niður á
bænum Lice, sem er töluvert
vestan við Kuradiye.
Jarðskjálftar hafa veitt
tyrkjum þungar bilssifjar
gegnum árin. Þeir verstu, sem
þar hafa komið i manna minn-
um, voru kippirnir íniklu 1939,
þegar 25 þúsundir létu lifið.
• Kippurinn i gær fannst alla
leið til Armeniu.
Þegar björgunarsveitir hers
og borgara hröðuðu sér á slys-
staðinn i gær fór að snjóa, en
frostið var ellefu gráður. Var
það ekki til þess að bæta ur
fyrir þvi fólki, sem skyndilega
var svipt heimilum sinum og
stóð úti slyppt.
Arið 1976 er orðið eitt mesta
jarðskjálftaár sögunnar. Menn
vita ekki með vissu, hve margir
hafa faristi jarðskjálftum á ár-
inu, þar sem yfirvöld í Kina
hafa aldrei upplýst, hve mikið
tjónvarðijarðskjálftunumþar i
sumar. Ferðamenn i Kina hafa
giskáðá.áo ekkifærrien 100.000
hafi farist þar. — Jarðskjálfti,
sem varð i Guatemala i f ebrúar
siðasta vetur, varð23 þúsundum
manna að bana.
Línudans
Hinn 71 árs gamli linudansari,
Kark Wallenda, er ekki á þvi að
draga sig neitt I hlé, þótt aldur-
inn færist yfir hann. Hér sést
hann sýna á 350 feta langri linu
yfir Turnbrúnni á Tames.
95% SÆTANYTING CONCORDE
Concordeþotan, sem
flýgur hraðar en hljóöiö,
hefur vakið hylli flugfar-
þega, eftir því sem British
Airways og Air France
skýra frá.
Hinsvegar á vélin enn erfitt
uppdráttar, meðan enn er ólokið
málaþrasi vegna kvartana undan
hávaða frá henni. Er framtíð
hennar á Atlantshafsflugleiðum
þvi óráðin.
Concorde hefur flutt yfir 20 þús-
und farþega yfir Atlantshafið síð-
an 24. mai, en þá var hún sett i
farþegaflug i tilraunarskyni á
leiðinni milli Frakklands, Bret-
lands og Washington.
British Airways segir, að það
hafi verið 94% sætanýting hjá
þeim. Air France hrósar sér af
81% sætanýtingu, og flutti 10,751
farþega á móti 9,380 farþegum
BA, enda hafði franska flugfélag-
ið fleiri ferðir til Washington en
það breska á fyrstu vikunum.
Bæði flugfélögin segja of
snemmt að gera sér grein fyrir
þvi, hvort hagnaður sé af þessu
flugi, þétt farmiðasalan hafi farið
upp fyrir þau 65%, sem upphaf-
lega var ætlað að þyrfti til þess að
standa á sléttu.
/ olíuleysinu
Vegna verkfalls oliubflstjóra i
Kaupmannahöfn er nú bensln-
pg oliuskorturi,nn farinn að
sverfa að mörgum. Hús eru þar
ollukynt, en meðan hér er
þfðviðri er spáð 10 stiga frosti i
Kaupmannahöfn, svo að marg-
ur verður að orna sér, eins og
þessi eldri herramaður, undir
teppum og við kertaljós.
Varar við aðskilnaði
Pierre Trudeau, for-
sætisráðherra Canada,
sagði þjóö sinni i gær að
vakna til umhugsunar um
þá „grimmilegu spurn-
ingu"/ hvort landið geti
verið áfram sameinað eft-
ir sigur aðskilnaðarsinna í
kosningunum meðal hinna
frönskumælandi ibúa i
Quebec í síðustú viku.
Hvatti hann alla kanadamenn
til að stuðla að sameinuðu
Kanadariki, sem „grundvallast á
gagnkvæmri virðingu og...
náungakærleik".
1 sjónvarpsræðu i gærkvöldi,
sagði Trudeau kanadamönnum,
að ekki yrði lengur slegið á frest
vandamálunum um einingu
þjóðarinnar vegna næstu kyn-
slóðar.
„Þessi vandi er raunveruleg-
ur...hann steðjar að NÚNA og
krefst tafarlausra úrræða," sagði
forsætisráðherrann og bætti við
siðar: „Ég trúi þvi að Kanada
geti ekki, og megi ekki styðjast
við hervald. Landið verður þvi
aðeins sameinað áfram, að
borgarar þess vilji búa i samfé-
lagi saman."
Hann áréttaði skyldur sínar við
sameinað Kanada og minnti
frönskumælandi aðskilnaðarsinn-
ana á, að menn gætu verið tengdir
böndum, sem ristu dýpra en blóð-
bönd.
Þetta er fyrsta meiriháttar
ræðan, sem Trudeau forsætisráð-
herra flytur eftir úrslit kosning-
anna i Quebec, þar sem flokkur
hans, frjálslyndi flokkurinn galt
mikið afhroð.
Trudeau sagði, að Rene Leves-
que, leiðtogi aðskilnaðarsinna,
hinn nýi forsætisráðherra Que-
bec, hefði ekki umboð til þess að
skilja Quebec að frá sambands-
stjórn Kanada.
Eitt af kosningaloforðum að-
skilnaðarsinna var að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu i Quebec
um sjálfstæðismálið innan
tveggja ára.
JOAN BAEZ TIL N-IRLANDS
Sú vinsæla þjóðlagasöngkona, friðarsinninn Joan Baez, hefur
ákveðið að láta baráttu friðarkvenna á N-lrlandi til sln taka. Hún
hefur boðað að hún muni koma fram og syngja i Belfast á næstunni
og taka þátt I kröfugöngu friðarhreyfingarinnar. Sagðist húu vona,
að hennar framlag megi verða að liði.