Vísir - 25.11.1976, Side 5
Standa heimilis-
laus í brunagaddi
eftir jarðskjálfta
95% SÆTANÝTING CONCORDE
Vegna verkfalls ollubílstjóra I
Kaupmannahöfn er nú bensln-
og olluskorturinn farinn aö
sverfa aö mörgum. Hús eru þar
ollukynt, en meöan hér er
þlöviöri er spáö 10 stiga frosti i
Kaupmannahöfn, svo aö marg-
ur veröur aö orna sér, eins og
þessi eldri herramaöur, undir
teppum og viö kertaljós.
Varar við aðskilnaði
Pierre Trudeau, for-
sætisráðherra Canada,
sagði þjóð sinni í gær að
vakna til umhugsunar um
þá „grimmilegu spurn-
ingu", hvort landið geti
veriðáfram sameinað eft-
ir sigur aðskilnaðarsinna í
kosningunum meðal hinna
frönskumælandi ibúa i
Quebec í síðustu viku.
Hvatti hann alla kanadamenn
til að stuðla að sameinuðu
Kanadariki, sem „grundvallast á
gagnkvæmri virðingu og...
náungakærleik”.
í sjónvarpsræðu i gærkvöldi,
sagði Trudeau kanadamönnum,
að ekki yrði lengur slegið á frest
vandamálunum um einingu
þjóðarinnar vegna næstu kyn-
slóðar.
„Þessi vandi er raunveruleg-
ur...hann steðjar að NÚNA og
krefst tafarlausra úrræða,” sagði
forsætisráðherrann og bætti við
siðar: ,,Ég trúi þvi að Kanada
geti ekki, og megi ekki styðjast
við hervald. Landið verður þvi
aðeins sameinað áfram, að
borgarar þess vilji búa i samfé-
lagi saman.”
Hann áréttaði skyldur sinar við
sameinað Kanada og minnti
frönskumælandi aðskilnaðarsinn-
ana á, að menn gætu verið tengdir
böndum, sem ristu dýpra en blóð-
bönd.
Þetta er fyrsta meiriháttar
ræðan, sem Trudeau forsætisráð-
herra flytur eftir úrslit kosning-
anna i Quebec, þar sem flokkur
hans, frjálslyndi flokkurinn galt
mikið afhroð.
Trudeau sagði, að Rene Leves-
que, leiðtogi aðskilnaðarsinna,
hinn nýi forsætisráðherra Que-
bec, hefði ekki umboð til þess að
skilja Quebec að frá sambands-
stjórn Kanada.
Eitt af kosningaloforðum að-
skilnaðarsinna var að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu i Quebec
um sjálfstæðismálið innan
tveggja ára.
manns. Nær öll hús bæjarins
lögðust i rúst, og kviða menn þvi
að allt að helmingur bæjarbúa
lipfi f o rjqt
Mikill Íandskjálfti varð i
austurhluta Tyrklands i fyrra,
en sá mældist 6,8 stig á Richter-
kvarða og kostaði sá 2.350
mannslif, auk þess sem á f jórða
þúsund manna slösuðust. Sá
jarðskjálfti kom harðast niður á
bænum Lice, sem er töluvert
vestan við Kuradiye.
Jarðskjálftar hafa veitt
tyrkjum þungar bússifjar
gegnum árin. Þeir verstu, sem
þar hafa komið i manna minn-
um, voru kippirnir miklu 1939,
þegar 25 þúsundir létu lifið.
Kippurinn i gær fannst alla
leið til Armeniu.
Concordeþotan, sem
flýgur hraðar en hljóðið,
hefur vakið hylli flugfar-
þega, eftir því sem British
Airways og Air France
skýra frá.
Hinsvegar á vélin enn erfitt
uppdráttar, meðan enn er ólokið
málaþrasi vegna kvartana undan
hávaða frá henni. Er framtið
hennar á Atlantshafsflugleiðum
þvi óráðin.
Concorde hefur flutt yfir 20 þús-
und farþega yfir Atlantshafið sið-
an 24. mai, en þá var hún sett i
/ olíuleysinu
farþegaflug i tilraunarskyni á
leiðinni milli Frakklands, Bret-
lands og Washington.
British Airways segir, að það
hafi verið 94% sætanýting hjá
þeim. Air France hrósar sér af
81% sætanýtingu, og flutti 10,751
farþega á móti 9,380 farþegum
BA, enda hafði franska flugfélag-
ið fleiri ferðir til Washington en
það breska á fyrstu vikunum.
Bæði flugfélögin segja of
snemmt að gera sér grein fyrir
þvi, hvort hagnaður sé af þessu
flugi, þétt farmiðasalan hafi farið
upp fyrir þau 65%, sem upphaf-
lega var ætlað að þyrfti til þess að
standa á sléttu.
í þreifandi snjóbyl
voru björgunarsveitir i
alla nótt að leita að
hugsanlegum eftirlif-
endum mikils jarð-
skjálfta, sem varð i
austurhluta Tyrklands
i gær— Það er talið, að
um 3.000 manns hafi
farist i honum.
Jarðskjálftakippurinn mæld-
ist 7,6 stig á Ricterskvarða og
fundu menn til hans á 500 km.
bili, en þó mest i bænum
Kuradiye, þar sem bjuggu 6000
JOAN BAEZ TIL N-IRLANDS
Sú vinsæla þjóölagasöngkona, friöarsinninn Joan Baez, hefur
ákveðið aö láta baráttu friðarkvenna á N-trlandi til sln taka. Hún
hefur boöaö aö hún muni koma fram og syngja I Belfast á næstunni
og taka þátt I kröfugöngu friöarhreyfingarinnar. Sagöist hún vona,
aö hennar framlag megi veröa aö liöi.
Þegar björgunarsveitir hers
og borgara hröðuðu sér á slys-
staðinn i gær fór að snjóa, en
frostið var ellefu gráður. Var
það ekki til þess að bæta úr
fyrir þvi fólki, sem skyndilega
var svipt heimilum sinum og
stóð úti slyppt.
Arið 1976 er orðið eitt mesta
jarðskjálftaár sögunnar. Menn
vitaekkimeð vissu, hve margir
hafa faristí jarðskjálftum á ár-
inu, þar sem yfirvöld I Kina
hafa aldrei upplýst, hve mikið
tjón varð i jarðskjálftunum þar i
sumar. Ferðamenn i Kina hafa
giskaðá,að ekkifærrien 100.000
hafi farist þar. — Jarðskjálfti,
sem varð i Guatemala i febrúar
siðasta vetur, varð 23 þúsundum
manna að bana.
1 "~r..............
Línudans
Hinn 71 árs gamli linudansari,
Kark Wallenda, er ekki á þvl að
draga sig neitt I hlé, þótt aldur-
inn færist yfir hann. Hér sést
hann sýna á 350 feta langri llnu
yfir Turnbrúnni á Tames.