Vísir - 26.11.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 26.11.1976, Blaðsíða 3
VISIR Föstudagur 26. nóvember 1976 3 Síldveiðin gjaldeyrisaflandi og atvinnuskapandi: 17. þúsund tonn milljarðar af síld — í gjaldeyrir tveir Arangursrikri síldarvertiö lauk á miönætti i nótt og færöi hún okkur heim bæöi gjaldeyri og mikla atvinnu til sjós og iands. Bæöi rekneta og nótabátar voru á sild i haust. Reknetabát- arnir byrjuðu um miðjan októ- ber og máttu þeir veiöa ótak- markaöþartil á miðnætti inótt. Fimmtiu og einum báti var hins vegar leyft að stunda nótaveiö- ar og var þeim úthlutaður ákveðinn kvóti. Til þess að fá sildveiðileyfi urðu bátarnir að uppfylla ákveðin skilyrði. Þar á meðal að hafa verið á loðnu i sumar og ennfremur að hafa stundað veiðar á norðursjávar- sild i sumar. Nótabátarnir veiddu á þessari vertið 10 þúsund og þrjúhundruð tonn. Það voru allir nótabát- arnir nema einn sem notuðu sér kvótann. Það var Sigurður RE. Núna er verið að byggja yfir hann. Slikt er timafrekt og til þess að hann kæmist á loðnuna vildu eigendur hans ekki setja hann á sild og missa e.t.v. af loðnuvertíðini. Reknetaveiðin gekk sömu- leiðis ágætlega. Heidarveiöin mun hafa verið á milli sex og sjö þúsund tonn. Mest síldtil Hornafjarðar Sá staöur sem tók á móti lang- mestu af sildinni á þessari ver- tið var Kaupfélag austur skaft- efllinga á Höfn i Hornafiröi. Samkvæmt upplýsingum frá Hermanni Hanssyni kaup- félagsstjóra bárust um það bil 4.300 tonn á land á vertiðinni. Þar af var saltaö i 23 til 24 þúsund tunnur 800 til 900 tonn voru fryst i beitu og til út- flutnings. „Frystingin hefur gengið ágætlega fyrir sig”, sagði Hermann. „Afkastagetan er alltaf minni en við frystingu bol- fisks, en við höfum fryst upp i 600 tunnur á dag. Hermann sagði aö þegar svo mikið hefði verið fyrst hefði ein- göngu verið unnin sild i frysti- húsinu á Höfn. Enda væri það þannig að nær allir bátarnir á staðnum væru á sild. Þeir hefðu lika aflað mjög vel og þrátt fyrir að útgerðarkostnaður væri mik- ill sagði hann að þeir hefðu ekki haft það eins gott á öðrum veið- um. Steinunn SH mun hafa orðið aflahæst reknetabáta með um það bil 500 tonn. Aætla má að aflaverðmæti á þeim þremur og hálfum mánuði sem hún var á sild hafi verið um 30 milljónir og samkvæmt upplýsingum sem Visir fékk hjá Ltú, væri þá skiptaverðmæti um 1,2 milljón- ir. Flökuðu til að hressa landann Hjá Fiskiöjunni i Vestmanna- eyjum var gerö tilraun með þaö siðustu dagana að flaka sild. „Þetta hefur gengið ágætlega, við byrjuðum á mánudag”, sagði Hjörtur Hermannsson verkstjóri i Fiskvinnslunni i samtali við Visi. Hjörtur sagði að búið væri að flaka um það bil úr 250 tunnum. „Það er ætlunin að láta landann boröa þetta og vita hvort hann hressist ekki”, sagði Hjörtur og kvaöst búast við að markaöur væri fyrir um það bil 25 til 30 tonn af svona sild herlendis. Hann sagði að tekið hefði ver- iðaf þeirri sild sem annars hefði verið söltuð. Þetta væri gert til þess að undirbúa fyrir næstu vertiö, nauðsynlegt væri að byrja einhvern tima. Tveir milljarðar í gjald- eyri Fyrir gjaldeyrissoltna islend- ínga er sildveiðin mikil búbót. Eins og Visir hefur skýrt frá áð- ur er útflutningsverðmæti sild- arinnar álitið rúmir tveir millj- arðar króna, eða tvö þúsund milljónir. Verðmæti sildarinnar upp úr sjó er hins vegar rúmur einn milljarður. Sild barst nú á vertiðinni meira að segja norður i Möller þessa mynd af söltuninni þar i haust. —EKG sildarbæinn gamla, Siglufjörð og tók Kristján ASI eignast stefnuskrá Þá fyrstu eftir aðskilnaðinn við Alþýðuflokkinn Mjólkurbúðamálið: KAUPMENN STANDA EKKI VIÐ LOFARÐIN „Það eru mörg stórmál sem verða tekin fyrir” sagði Björn Jónsson forseti ASl er Visir spurði hann hvaða mál yrðu tekin fyrir á þingi Alþýðusambands ts- lands er hefst á mánudag. „Fjallað verður um ástandið I kjaramálunum og tillögu að stefnuskrá. Þetta er i fyrsta skipti sem það hefur verið reynt að setja saman stefnuskrá, siðan að tengslin milli ASÍ og Alþýðu- flokksins rofnuöu.” Björn Jónsson sagði að i þeim drögum að kjaramálaályktun sem send heföu verið út til félag- anna væri kveðið á um að þeir sem lægst hefðu launin hefðu for- gang til kjarabóta. Hann sagði hins vegar að nánari útfærsla og umræöur um ályktunina yrðu á þinginu sjálfu. Björn kvaðst engu vilja spá um hvort þetta yrði átakaþing. Reynslan yröi að skera úr um það. Hann sagði að auk þess að stefnuskrá yrði lögð fram yrði þetta þing að þvf leyti fráburgðið fyrri þingum að það væri haldið á 60 ára afmælisári ASl. Þannig yröi það nokkurs konar afmælis- þing, þar sem þau timamót myndu setja nokkurn svip á það. Meðal annars nefndi Björn að á sunnudaginn yrði sett upp sögu- sýning í tilefni afmælisins sem yrði minnsta kosti opin þingdag- ana. ÞaO kom fram á félagsfundi hjá ASB, — afgreiöslustúlkum Ibrauð og mjókurbúðum, — sem haldinn var i fyrrakvöld, að kaupmenn hafa ekki staðið við gefin loforö um að stúikur úr mjólkurbúðun- um myndu ganga fyrir meö at- vinnu, er þeir tækju yfir mjókur- búðirnar. .Kaupmenn hafa þegar tekið við rekstri nokkurra mjólkurbúða i Reykjavfk, eða sett upp mjólkur- sölu í sinum búðum, og I mörgum tilfellum hafa þeir komið sér und- an því að ráða stúlkur, sem hafa starfaö I mjólkurbúðunum. Hafa þeirm.a.sagt þeimer þær hafa spurst fyrir um vinnu, að þeir ætli ekki aö bæta viö starfs- fólki, en siðan ráðið ungar stúlk- ur, sem þeir þurfa ekki að greiða nema lægstu laun, I starfið. 1 nokkrum tilfellum hafa stúlkurnar fengiö að heyra það hjá kaupmönnunum, að þær væru orðnar of gamlar, og væru þar að auki I allt of háum launaflokki, og ódýrara fyrir þá að ráöa ungar stúlkur, sem séu ab koma út á vinnumarkaðinn. Ekkier vitað hvað verður gert I þessu máli, en á fundinum hjá ASB kom það skýrt fram aö stúlkurnar telji að þarna sé verið aö fremja brot á þvi samkomu- lagi sem kaupmenn og Mjólkur- samsalan hafi gert á sinum tima varöandi starfsstúlkur mjólkur- búðanna. —klp— -EKG jyiAÐUR ARSINS Kosningaseðlarnir halda áfram að tinast inn, þótt þeir byrji sjáifsagt ekki að koma fyrir alvöru fyrr en eftir helgi, þegar pósturinn fer að koma með þá. Við viljum minna menn á að senda „sinn mann” sem alira fyrst, svo við getum byrjað að birta tölur og fá spennu i leikinn. Og munið að þeir sem tilnefna réttan mann, geta verið svo heppnir að fá jólagjöf i staðinn. Það verður dregið þegar kosningu lýkur. MAÐUR ARSINS 197«. Að mínu mati er maður ársins 1976: Astæöa eða starfssvið: Sendandi: Heimili: . Sendist\ isi, Siöumúla 14, Reykjavik

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.