Vísir - 26.11.1976, Blaðsíða 19

Vísir - 26.11.1976, Blaðsíða 19
vism Fimmtudagur 25. BÍLAVAL auglýsir Höfum til sölu m.a. Volvo 144 De Luxe Árgerð 1974 4ra dyra. tJtvarp m. kas. Vetrard. Skipti möguleg. Mazda 929 4ra dyra árgerð 1975. Litið ekinn. Mercury Galanty árgerð 1967 8 cyl. sjálfsk. Pow- erst. og bremsur. Ekinn 20 þús. km. á vél. BIll i sérflokki. Skipti möguleg. Dodge Coronet 4ra dyra 6 cyl. beinskiptur árg. 1968. Ford Mustang árg. '71 8 cyl. sjáifskiptur. tJtvarp, vetrardekk. Skipti á ödýrari bil möguleg. Ford Pinto St. árg. '73 tJtvarp m. kas. Ný dekk. Skipti á ódýrari bil. BÍLASKIPTI Cortina 1300 árg. 1972. Vill skipta á Evrópubfl á ca. 1300- 1600 þúsund. Ford Torino 2ja dyra með öllu árg. ’71. Vill skipa á Mazda 929 eða Toyota árg. '1974 1975 eða 1976. Stað- greiðsla á milli. Austin Mini árg. '1973. Vill skipta á bil á ca. 1 miilj. Staðgreiðsla á milli. M. Benz 250 Automatic með topplúgu árg. ’1970.1nnfluttur 1974. Vill skipta á Volvo helst St. árg 1974 eða 1975. Madza 818 1973. Vill skipta á Mazda 929 coupé árg. 1975 eða 1976 Staðgreiðsla á milli. BÍLAVAL - Laugavegi 90-92 Símar 19092—19168 Við hliðina á Stjörnubíói. Sjónvarp klukkan 22.05: STORFRÆG MYND Það er stórfræg mynd i sjón- varpinu i kvöld. Margir munu eflaust kannast við hana, en hún var sýnd I Nýja Biói fyrir all- mörgum árum. Myndin þykir mjög áhrifa- mikil og vel leikin, en Olivia de Hvilland sem leikur aðalhlut- verkið, fékk útnefningu til óskarsverðlauna fyrir leik sinn i myndinni. Hún leikur unga konu, Virginiu Cunningham, sem dvelst á geðsjúkrahúsi. Hún man ekkert frá fyrri tið og þekkir ekki einu sinni eigin- mann sinn lengur. Myndin ger- ist eiginlega öll á sjúkrahúsinu, og sagt er frá þvi þegar reynt er að grafast fyrir um veikindi hennar. Mary Jane Ward er höfundur sögunnar sem myndin er gerð eftir, en hún er bandarisk frá árinu 1949. Leikstjóri er hinn rússnesk- bandariski Anatole Litvak, sem einkum fékkst við gerð sálfræði- legra mynda. 1 hinum aðalhlut- verkunum eru Mark Stevens og Leo Genn. —GA Olivia de HaviIIand á geðveikrahælinu. Sjónvarp klukkan 20.40: Ríkisútvarpið tekið rœkilega fyrir í kvold Kastljós i dag f jallar um þrjár spurningar i sambandi við rikis- útvarpið. Sú fyrsta er um litasjónvarp: Strax eða ekki strax? Önnur er um Stereo útvarp: Strax eða ekki strax? og sú þriðja er um það hvort hér ætti að vera Rikis- útvarp eða einkarekstur. Um litasjónvarpsmálið ræða þeir Pétur Guðfinnsson, framkvæmdastjóri og Páll Pétursson þingmaður. beir hafa báðir látið sig þetta mál miklu varða, enda sjálfsagt hluti af þeirra atvinnu. Þeir Ólafur Ragnar Grimsson lektor og Þorsteinn Pálsson rit- stjóri skiptast siöan á skoðunum um hvort hér eigi að leyfa frjáls an útvarpsrekstur. Ómar Ragnarsson, sem er umsjónarmaður Kastljóss og ólafur Ragnar Grimsson og Reynir Hugason, munu siðan pétur Guðfinnsson koma báðir fjalla um stereo-útvarp. —GA mikið við sögu i kastljósi i dag. Útvarp í fyrramólið: Sitt sýnist hverium Dagskráin á laugardags- morgnum hefur tekið all nokkr- um breytingum, eftir að Óska- lög sjúkiinga voru færð fram um einn dag. Mönnum sýnist sitt hverjum um ágæti þessarar breytingar og þó nokkuð hefur borið á óánægju meö hana. Ýmsar ástæður hafa verið nefndar, þótt flestir hafi minnst á að bæði þeir sem senda kveðjurnar og þeir sem þær eiga að fá, eigi i miklum erfið- leikum með að heyra þær. Sjúk-; lingar séu oft og iðulega i alls-' konar aðgerðum og myndatök- um á föstudagsmorgnum, og þá eru einnig allflestir landsmenn i vinnu. Fátt hefur hinsvegar heyrst um af hverju þessi breyting hafi verið gerð. Virðist svo sem bara hafi veriö að breyta einhverju, til að lifga upp á lifið og tilver- una! 1 fyrramálið, á þeim tlma sem óskalögin voru eru tveir þættir, Barnatimi I umsjá Hauks As- gústssonar og Hildu Torfadótt- ur, og Lif og Lög, rabb og tón- listarþáttur i umsjá Guðmundar Jónsssonar. —tia Bragi Árnason Leiðinleg mistök áttu sér stað hér á siöunni i fyrradag. Með grein um erindi Braga Árnason- ar birtist mynd af Finni Birgis- Finnur Birgisson. syni, en hún var einnig annars- staðar i blaðinu. Við biðjumst velvirðingar á þessum mistök- um. Föstudagur 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Löggan, sem hló” eftir Maj Sjövall og Per Wahlöö Ólafur Jónsson les þýðingu sina (4). 15.00 Miðdegistónleikar. Mic- hael Ponti leikur á pianó Konsertfantasiu op. 20 eftir Sigismund Thalberg. Jacqueline Eymar, Gunter Kehr, Werner Neuhaus, Erich Sichermann og Bernhard Brauholz leika Kvintett i c-moll fyrir pianó og strengi op. 115 eftir Gabriel Fauré. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn 17.30 Ctvarpssaga barnanna: „óli frá Skuld” eftir Stefán Jónsson Gisli Halldórsson leikari les (15). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Þingjsá Umsjón: Kári Jónasson. 20.00 Frá tónleikum Sinfóniu- hljómsveitar tslands i Bústaðakirkju i september. Siðari hlut. Stjórnandi: Per Brevig. a. „Providbami dominum” eftir De Lassus. b. Sónata Octavitoni eftir Gabrieli. c. Serenaða op 7 eftir Strauss. d. „The Exorcism” eftir Walter Ross. 20.30 Myndlistarþáttur i umsjá Hrafnhildar Schram. 21.00 Dietrich Fischer- Dieskau syngur lög eftir Johann Friedrich Reichardt, Karl Friedrich Zelter og Onnu Mariu von Sachsen-Weimar ■ 21.30 Otvarpssagan: „Nýjar raddir, nýir staðir” eftir Truman Capote Atli Magnússon les þýðingu sina (10). 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Ljóðaþáttur Njörður P. Njarðvik sér um þáttinn. 22.40 Afangar Tónlisarþáttur sem Asmundur Jónsson og Guöni Rúnar Agnarsson stjórna. 23.30 Fréttir. Dagskrálok. Föstuaagur 26. nóvember 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Kastljós. Þáttur um inn- lend málefni. Umsjónar- maöur ómar Ragnarsson. 21.40 Brúöu-leikararnir (The Muppet Show) Nýr flokkur skemmtiþátta, þar sem leikbrúðuflokkur Jim Hen- sons heldur uppi fjörinu. Gestur i fyrsta þætti ér söngvarinn og leikarinn Joel Grey. Þýöandi Þrándur Thoroddsen. 22.05 Ormagryfjan. (The Snake Pit) Bandarisk bió- mynd frá árinu 1949, byggð á skáldsögu eftir Mary Jane Ward. Leikstjóri Anatole Litvak. Aðalhlutverk Olivia de Havilland, Mark Stevpns og Leo Genn. Myndin gerist að mestu á geðsjúkrahúsi þar sem Virginia Cunning- ham dvelst, en hún man ekkert frá fyrri tið og þekkir ekki lengur eiginmann sinn. Þýðandi Heba Júliusdóttir. 23.50 Dagskrárlok.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.