Vísir - 26.11.1976, Blaðsíða 24

Vísir - 26.11.1976, Blaðsíða 24
VISIB Föstudagur 26. nóvember 1976 Allir loðnubátarnir með fullfermi: ,Getur ekki betra verið' ,,Það getur ekki betra verið en að allir fylli sig” sagði Andrés Finnbogason hjá Loðnunefnd við Visi i morgun, en nú eru aliir þeir átta bátar sem voru á miðunum úti af Vestfjörðum i nótt á leið í land með fullfermi. Alls eru það um þrjú þúsund tonn. Bátarnir átta eru: Pétur Jónasson með 550 tonn, Hrafn 400og Asberg 380. Þeir fóru til Siglufjarðar. Eldborg fór með 530 tonn til Hafnarfjarðar, Ár- sæll Sigurðsson 180 á Faxa- flóahafnir, Bjarni Ölafsson með 150 tonn til Akraness og Helga II með 360 tonn og Svan- ur 320 til Reykjavikur. Enn er þróarrými fullt i Bolungarvik, þangað sem stvst er að sigla meðaflann. —EKG Bíldudalur: Sveitar- stjórinn rak frystihúsið í umboði Byggðasjóðs — Tók aðeins við fyrirmœlum frá sjóðnum, segir hann ,,Ég tók við beinum fyrir- mælum frá Byggðasjóði en ekki sjálfstæðar ákvarðanir varðandi reksturinn”, sagði Theódór Bjarnason sveitar- stjóri á Bildudal i samtali við Visi i morgun. En hann hafði prókúruumboð fyrir frystihús- ið á staðnum þegar Byggða- sjóður var rekstraraöili þess sumarið 1975. Theódór sagði að Byggða- sjóður hefði .viljað meta það meira að halda uppi atvinnu en að stoppa rekstur frysti- hússins. Eyjólfur Þorkelsson fram- kvæmdastjóri á Bildudal segir að tap á rekstri frystihússins á þessum sumarmánuðum hafi enn ekki verið gefið uþp. en hins vegar sé þvi fleygt manna á meðal á Bildudal að það hafi verið á milli 10 og 14 milljónir. „Það var aðhald i rekstrin- um eins og aðstæður framast leyfðu”, sagði Theódór Bjarnason sveitarstjóri. „Hins vegr voru aðstæður bæði þröngar og erfiðar. Hann sagði að Hafrún, 200 tonna báturinn sem bilddæling ar keyptu myndi væntanlega komast á veiðar eftir helgi. Frystihúsið á Bildudal er til- búið að taka á móti fiski, að öðru leyti þvi að ógreiddar skuldir hvila á fyrirtækinu er valda þvi að ekki er hægt aö hefja vinnslu. Skuldirnar, sagði Theódór, að stöfuðu allar frá þeim tima þegar unnið var að uppbygg- ingu frystihússins- Helmingur skuldanna er vinnulaun. Framkvæmdastjóra Byggða- sjóðs var falið að útvega fjár- magn til að greiða skuldirnar, en það hefur ekki f engist af þvi niðurstaða, aö sögn Theódórs. — EKG ÆVARANDI SKOMM ef við semjum við EBE um grœnlenska landhelgi — segir Pétur Guðjónsson „Ég sé ekki að Efnahags- sett hvernig hún ráðstafi sinum við viðurkenndum nú rétt þeirra gerðina með alvarlí bandalagið hafi rétt til að bjóða auðlindum. Grænlendingar lita til að fara eins með Grænland.” með góðum hgnaði. „Ég sé ekki að Efnahags- bandalagið hafi rétt til að bjóða okkur eitt eða neitt við Græn- land i skiptum fyrir veiðirétt- indi i okkar fiskveiðilögsögu. Allavega yrði það okkur til ævarandi skammar ef við tækj- um sliku tilboði”, sagði Pétur Guðjónsson. formaður Félags áhugamanna um sjávarútvegs- mál. við Visi i tilefni af samningaviðræðunum sem nú fara fram hér i Reykjavik. „Danska rikisstjórnin er ekki búin að gefa EBE umboð til að framselja auðlindir Grænlands. Það stendur nú yfir deila um þetta mál milli grænlendinga og dana. Grænlendingar byggja á samþykkt Sameinuðu þjóðanna um að hverri þjóð sé i sjálfsvald sett hvernig hún ráðstafi sinum auðlindum. Grænlendingar lita á sig sem sérstaka þjóð og vilja viðurkenningu sem slikir. Þeir telja þvi dani ekki hafa nokkunr rétt til að semja um fiskveiði- réttindi Grænlands.” Fóru illa með island „Og jafnvel þótt danir telji sig eiga réttinn, getum við ekki ver- ið þekktir fyrir að viðurkenna hann. Arið 1901 sömdu danir við englendinga um að opna is- lensku landhelgina upp að 3 mil- „Þannig stefndu þeir I hættu lifshagsmunum fátækasta og aumasta hluta Danaveldis. Það yrði okkur til stórskammar ef við viðurkenndum nú rétt þeirra til að fara eins með Grænland.’ „Efnahagsbandalagið hefur ekkert að bjóða okkur og við höfum enga ástæðu til að gefa þeim nokkuð. Arið 1976 veiða út- lendingar 160 þúsund lestir af bolfiski á Islandsmiðum. Hefðu engir útlendingar verið hefðum við getað skipt þessu til helminga. Helminginn hefðum við getað sett i friðun en hinn helminginn hefðu okkar skip getað veitt. Það hefði þýtt þús- und tonna viðbótarafla á hvern togara, sem aftur hefði þýtt 55 milljón króna verðmætisaukn- ingu fyrir hvert skip. Það er mismunurinn á þvi að reka út- gerðina með alvarlegu tapi eða með góðum hgnaði.” Danir eiga réttinn „Frá lagalegu sjónarmiði hafa danir rétt til að semja um fiskveiðar við Grænland,” sagði dr. Gunnar G. Schram, prófess- or við lagadeild Háskólans, þeg- ar Visir bar þetta undir hann. „Grænland er ekki nema amt i Danmörku og vald heima- stjórnarinner er hliðstætt valdi sveitarstjórnar. Danir fara þvi með utanrikis- og landhelgis- mál. Hitterrétt hjá Pétri að það felst nokkur söguleg hliðstæða i yfirráðum þeirra yfir græn- lensku landhelginni og landhelgi Islands á sinum tima.” — ÖT Eimskip: Óvissa um verkefni ryðvarnarstöðvar Ryðvarnarstöð sú sem Eim- skip er að byggja við Borgartún hefur verið nokkuð til umræðu að undanförnu vegna frétta um fýrirhuguð kaup bílainnflytj- enda i bilferju. Eimskip leggur i mikinn kostnað með byggingu ryövarnastöðvarinnar, en ef félagið missir af bilaflutningum til landsins er óvist að hún komi að unphaflegum notum. Ætlunin var að þarna yrðu ryðvarðir þeir bilar sem Eim- skip flytur hingað til lands, en félagið hefur lengi annast nær allan bílaflutning tii landsins. Ef að þvi verður að aðrir aðil- ar en Eimskip taki að sér bíla- flutninginn hlýtur sú spurning að vakna hvort þeir byggi þá aðra ryðvarnarstöð og hvaða verkefni verði fyrir stöð Eim- skips. Aðilar málsins verjast allra frétta enn sem komið er, en ekki er óliklegt að einhverjar við- ræður fari nú fram bak við tjöldin. —-SG Einhugur hjá kröfum Mikil eining rikti á fundi full- trúaráðs Alþýðuflokksfélag- anna i Reykjavik I gærkvöldi. Fulltrúaráð sem kosið var um siðustu helgi kom saman og kaus sér stjórn. Var slikur ein- hugur að stjórnin var einróma kosin. Björgvin Guðmundsson var kosinn formaður, Tryggvi Þór- kallsson rafvirki, varaformað- ur. Þá voru nokkrir sjálfskjörn- ir, samkvæmt skipulagsreglum. Það voru Þórunn Valdimars- dóttir formaður verkakvenna- félagsins Framsóknar, Skjöldur Þorgrimsson fiskmatsmaður, Bjarni Guðmundsson frá Félagi ungra jafnaðarmanna Sigurður E. Guðmundsson formaður Al- þýðuflokksfélagsins og Kristin Guðmundsdóttir formaður Kvenfélags Alþýðuflokksins. í varastjórn voru kjörin: Elias Kristinsson mælingamað- ur, Marias Sveinsson banka- maður, Helga Guðmundsdóttir verkakona og Jón Ágústsson. —EKG Húsnœðismálastjórnarlán: Nauðungaruppboð auglýst á 300 íbúðum í Reykjavík Nauðungaruppboð var aug- lýst I Lögbirtingablaðinu i gær á 300 ibúðum I Reykjavik vegna vangoldinna húsnæðismála- stjórnarlána. Visir fékk þær upplýsingar hjá Veðdeild Landsbanka is- lands að hér væri um að ræða lán sem féllu i gjalddaga i mai sl. Þessi fjöldi væri ekki meiri að tiltölu en venjulega. Yfirleitt væru ibúðirnar auglýstar til nauðungaruppboðs vegna um 4% lánanna. Hins vegar kæmi ekki til uppboðs nema á einum til tveim ibúðum á ári. önnur lán væru greidd áður en til þess kæmi. — SJ Rally-braut við Sand- fell að verða tilbúin Þar verður háð keppni á bílum sem rúnir hafa verið öllum ,skrautfjöðrum' Nú er þess ekki langt að biða að tekin verði i notkun „Rally- Cross braut” á vegum hinnar nýstofnuðu bifreiðaiþróttadeild- ar Félags islenskra bifreiðaeig- enda. Unnið hefur verið að gerð þessarar brautar að undan- förnu, og er nú aðeins eftir að grafa niöur til hálfs nokkur hundruð hjólbarða, sem verða meðfram brautinni. Braut þessi er við Sandfell — rétt við Þrengslaveg — og er hringum um 900 metra langur. Er brautin 10 metra breið en 15 metra breið I beygjum. Er þetta malarbraut, og öll i dæídum og hólum til að gera hana erfiðari yfirferðar. Þarna er fyrirhugað að hafa i framtiðinni „Rally-Cross keppni”, sem er mjög vinsæl bilaiþrótt erlendis. Er „Rally Cross” keppni.semmá flokka á milli venjulegs Rallys á þjóð- vegum og toríæruakstucs. Ekið er á venjulegum bilum, sem allir aukahlutir, sem stuðarar, ljós, krómlistar og annað hafa verið teknir af. I staðinn eru bilarnir sérstaklega styrktir, og i þá sett m.a. velti- grind til að verja ökumanninn, og sérstök gerö af öryggisbelt- um. Brautin er þannig úr garði gerð að svo til vonlaust er að ná miklum hraða á ökutækið, enda er leikurinn ekki til þess gerður. Mjög strangt verður tekið á öllum reglum. Má meðal annars benda á, að enginn fær að fara inn á brautina til keppni fyrr en hann hefur „löglega” útbúinn bil, og hefur áunnið sér rétt til aðkeppa. Ekki er endanlega ákveðið hvenær fyrsta keppnin fer fram, en þess verður sjálfsagt ekki langt að biða, þar sem brautin er að verða tilbúin og sömuleiðis nokkrir bilar, sem notaðir verða. — klp —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.