Vísir - 26.11.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 26.11.1976, Blaðsíða 4
/A.A Föstudagur 26. nóvember 1976 VISIR Kynt undir Rabin Þótt ár sé til næstu kosninga í ísrael, virðist ætla að vella upp úr suðu- potti stjórnmálanna þar löngu áður, enda kraum- ar í honum jafnt og þétt, án þess að suðan detti nokkra stund niður. Gamlir flokkar eru farnir að riðlast, flokks- tengsl að nuddast sundur, nýir áhrifahópar komnir fram á sjónarsviðið og uppreisnarseggir innan hinna gamalgrónu flokka virðast á góðri leið með að bylta óstöðugri sam- steypustjórn Yitzhak Rabins, forsætisráð- herra, til þess að þvinga fram kosningar fyrr. Raddir úr öllum flokkum Menahem Begin, þjóöernis- sinni og leiötogi Likud-sam- steypunnar i stjórnarandstöö- unni, áréttaöi i siöustu viku fyrri kröfur sinar um, aö kosn- ingarnar yröu haldnar i mai næsta vor I staöinn fyrir nóvem- ber, eins og til stendur næsta vetur. Þótt þessi gamalreyndi stjórnarandstæöingur heföi áöur gert svipaöar kröfur og jafnan fyrir daufum eyrum, uröu margir þingfulltrúar til þess aö taka undir þær aö þessu sinni. Úr rööum klofningsflokka hægrimanna og vinstrimanna heyröust raddir taka undir, og jafnvel ein og ein úr óháöa frjálslynda flokknum (ILP) og þjóöræknisflokknum (NRP), sem báöir eru aöilar aö sam- steypustjórninni. Brotthlaup úr stjórnarsamstarfi Þetta nýja rót á stjórnmálun- um i Israel hlaust af ákvörðun fulltrúaráös ILP I siöustu viku, um aö hætta stuðningi viö rikis- stjórnina, sem kom eins og þruma úr heiöskiru lofti. Rétt eins og mosi gróinn viö steininn hefur frjálslyndi flokk- urinn átt aöild aö öllum rlkis- stjórnum tsraels frá þvi 1948. Þingmenn hans eru fjórir. — Af 120 þingsætum I Knesset ráöa stjórnarflokkarnir yfir 67. Ef miöstjórn ILP, sem tekur máliö upp til lokaákvörðunar i byrjun næsta mánaðar, leggur blessun sina yfir ákvöröun fulltrúaráös- ins, veröur verkamannaflokkur Rabins háöari en hingaö til þeim þremur þingmannsat- kvæöum, sem arabisku fulltrú- arnir ráöa yfir. Aö ekki sé minnst á hve hlutur þjóðræknis- flokksins mun vaxa i rikis- stjórninni, en hann ræður yfir tiu þingsætum. Ekki þyrfti þá mikiö út af aö bera i viökvæmum málum eins og palestinuvandamálinu eöa landnámsstefnu rikisstjórnar- innar á hernumdu svæðunum til þess aö sundur mundi skilja. Þaö hefur ekki bætt úr skák fyrir Rabin og verkamanna- flokkinn aö vinstri fóstbróöir þeirra, Mapam-flokkurinn, sem lengi hefur fylgt stóra bróöur aö málum, ákvaö að endurnýja ekki kosningabandalag þeirra tveggja fyrir næstu kosningar. Þaö er enn óútkljáö innan Map- am-flokksins, hvort hann segi skiliö aö fullu viö stjórnina, áöur en til kosninganna kemur. Stefnumunur Þótt flokksforkólfar Verka- mannaflokksins liggi þessum bandamönnum sinum á hálsi fyrir liöhlaup á raunastundum og kaupmang i pólitik, viöur- kenna þeir samt aö stefnumun- ur hafi verið nokkur. Moshe Kol, leiötogi ILP og feröamálaráöherra I rikis- stjórninni, lét nýlega eftir sér hafa I viötali, aö hann heföi Rabin forsætisráöherra: A honum standa nú spjótin úr öllum áttum, jafnt frá stjórnarandstööu sem eigin samherjum. öfgasinnar marséra inn á her- numdu svæöin til landnáms i trássi viö bönn stjórnarinnar. — Aögeröir þeirra kynda undir ó- ánægjunni. lengi veriö ósáttur við ákvarö- anir samsteypustjórnarinnar varðandi landnám á hernumdu svæðunum og samskipti viö verkalýösfélögin. ,,! okkar flokki finnst mönn- um Rabin hafa tekiö alltof vægt á öfgamönnunum, sem i trássi viö boð mg bönn hafa reynt landnám á vesturbakkanum og öörum hernámssvæöum. Um léiö hefur hann daufheyrst viö tilmælum okkar um meiri sam- ráö við verkalýðsfélögin til lausnar á kjaramálum,” sagöi Kol. Hann er meðal þeirra, sem vilja flýta kosningunum. Meir Talmi, leiötogi Mapam, hefur lýst þvi yfir, aö flokkur hans geröi þaö að frágangssök, að forsætisráöherra skyldi láta undir höfuö leggjast aö flytja ó- löglega landnema meö valdi burt af jörðum þeirra. „Ennfremur erum viö and- vigir þeirri efnahagsstefnu stjórnarinnar aö leggja þyngsta skattabyröi á launþega, en hundsa tillögur um aukna skatta á hagnað fyrirtækja og tekjuháa aðila,” sagöi hann. Kosningaskjálfti? Meir Zarmi, framkvæmda- stjóri Verkamannaflokksins, visaöi þessum ágreiningsatriö- um á bug, og kvaö þau aöeins tylliástæður. „Þarna er skyndi- lega fundinn stefnuágreiningur á elleftu stundu, þegar komiö er aö erfiöum og miöur þokkasæl- um ákvöröunum á kosninga- ári.” Hitt er þó staðreynd, aö æ há- værari gerast þær raddir sem gagnrýna Rabin fyrir skort á foringjahæfni og liggja honum á hálsi sérstaklega fyrir lélega stjórn efnahagsmála. Jafn- framt er aö þvi fundiö við hann, aö ekki skuli hafa verið mótuö nein ný stefna til friöar þarna i austurlöndum nær. Skopteiknarar israelsku blaö- anna gera sér óspart mat úr þvi að útmála tsrael sem stjórn- laust skip, sem veltist um i haf- róti innanlandsmála og vand- ræöa i utanrikissamskiptum. Auövitaö er mannlaust við stýr- iö. Oeining andstöðunnar Þaö hefur stundum veriö sagt i grini, aö hvar sem sjáist tveir gyðingar á tali, megi sjá tvo menn i stælum. — Hvað sem hæft er i þvi, þá er þetta besta lýsingin á stjórnmálalifi tsraels þessar vikurnar. Auk svo þessarar andstööu við rikisstjórnina, er svo hver höndin upp á móti annarri innan helstu stjórnarandstööuflokk- anna sjálfra. Þannig er óánægja innan annars stærsta flokks Likudsambandsins, Herutflokks Begins, út af fjármálum, þar sem fjöldi flokksfélaga hafa ekki fengið endurgreidd lán, sem þeir lögöu til flokki sinum. Ahrifahópar innan bæöi frjálslynda flokksins, sem er i Likudsambandinu og Herut- flokksins sjálfs, róa aö þvi öllum árum að vikja Begin úr forsæti sambandsins, sem hann hefur skipaö frá stofnun þess. En þeim viröist ekki ætla aö veröa kápan úr þvi klæðinu, eftir þvi sem séð verður á viöbrögöum Ariel Sharon, fyrrum hershöfö- ingja, sem frægur varð af fram- göngu sinni i Sinaíeyöimörkinni og við Súezskurð i Yom Kippur- striöinu. Hann hefur lýst þvi yfi- ir, aö hann segi sig úr Likud- sambandinu til aö stofna eigin stjórnmálaflokk. Sharon viröist fara I stjórn- málunum eins og i hernaöi fyrir utan flestar troðnar slóöir, og kynokar sér hvergi við aö hafa skoðanir sinar i hámæli. Hann sagöi nýlega, aö þessir fyrri fé- lagar sinir i stjórnarandstöö- unni væru jafn óhæfir til að stjórna landinu og rikisstjórnin sjálf, og mundu raunar aldrei vinna kosningar undir núver- andi forystu. Indíánar í vígahug Indiánaættbálkur einn i frumskógum Amazon hefur ráðist á eina af ut- varðarstöðvum stjórn- arinnar i skóginum eftir þvi sem frést hefur þaðan. Þeir munu gramir landnámi hvitra i veiðilendum þeirra. Surui-indiánar ruddust inn i eftirlitsstöð indiánamálastofnun- arinnar, sem erskammt frá þorpi þeirra, og skutu af rifflum sinum upp i loftið. Drápu þeir búsmala stöðvarinnar, kjúklinga og svin, en tóku að herfangi byssur og skotfæri. Fjórir starfsmenn stofnun- arinnar, umsjónarmenn stöðv- arinnar, flúðu. Það hefur verið grunnt á þvi góða með Surui-indiánunum, sem eruum 250talsins og landnemum i nokkra mánuði, eða allt frá þvi að fyrstu ólöglegu landnemarnir tóku sér bólfestu á friðuðu landi indiánanna. Eftir tafir og vangaveltur gerði stjórnin samkomulag við indián- ana um aö merkja vel landamörk þeirra. Kunnugir, sem verið hafa á ferð á þessum slóðum, segja að landamerkin hafi nú verið sett upp nær þorpi indíánanna en gert var ráð fyrir i samkomulaginu. Ofan á þetta bættist svo harm- leikur i siðustu viku, þegar einn landneminn myrti indiána og brenndi likið til aö hylma yfir verknaðinn, en indiáni sá hafði drepið son hans i deilu um ástir stúlku einnar. — f hefndarskyni hafa indíánar gert árásir á nokkur býli landnemanna siðustu vikuna. Slapp í gegn- um kúlnahríð Fimmtán ára ung- lingspiltur slapp i gegn- um kúlnahrið landa- inæravarða við Berlinarmúrinn, og komst yfir til Vestur- Berlinar með þvi að reisa stiga við múrinn og klifra yfir. Main töldu um 30 skot, sem austur-þýski vörðurinn skaut af hrfðskotabyssu sinni á eftir piltin- um án þess að hæfa. — Eftir aö pilturinn haföi komist yfir — mátti sjá, hvar vöröur var efldur á staðnum. Berlinarmúrinn var reistur 1961 til þess að stemma stigu við flótta austur-þjóðverja vestur yf- ir. Meö árunum hefur hann verið styrktur svo, að þaö var talið Uti- lokað að komast yfir hann og ekki i gegnum hann öðruvisi en aö beitaþá brögöum, eins og að dylj- ast i’ bifreið. Heimsmeist- ari í línudansi Vestur-þýskur linu- dansari, sem gengur á stultum eftir linu i 14 metra hæð, án þess að hafa öryggisnet undir, fór með sigur af hólmi i keppni linudansara á heimsmeistaramóti fjöl- leikahúsa, sem stendur yfir þessa dagana i Lon- don. Manfred Doval átti þó ekki viö neina aukvisa aö etja, þar sem voru annars vegar snillingar á borð viö frakkann, Atila, sem dansar á brennandi linu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.