Vísir - 26.11.1976, Síða 9
Bragi Ásgeirsson, Erlingur Páll Ingvarsson og Þór Ellas Pálsson
vinna aö uppsetningu sýningarinnar. Ljósm. JA
Úrval þýskrar
grafík-listar
Sýningin „Þýsk grafík á vor-
um dögum” verður opnuð að
Kjarvalsstöðum á laugardag-
inn. Hér eru á feröinni 100 verk
39 bestu grafiklistamanna þjóð-
verja. Sýningin er haldin á veg-
um Instituts fur Auslands-
beziehungen i Stuttgart og er
hingað komin fyrir miliigöngu
féiagsins Germaniu.
Fyrirkomulag sýningarinnar
og val mynda annaðist Thomas
Grochowiak prófessor, forstjóri
Stadtische Kunsthalle og
Recklinghausen og ritar hann
formála að sýningarskrá. Þar
segir hann m.a.:
„Eitt og hiö sama gildir um
alla þessa listamenn, án tillits
til tjáningaraðferða þeirra eða
tækni, sem hver þeirra hefir
valiö sér — en þar vekur at-
hygli, hve sjaldan notaður er
tréskurður — að verk þeirra
sem hér hafa veriö valin sýna
svo ekki verður um villst að
ekkert er þeim eins viðsfjarri og
þröngsýni og að sjóndeildar-
hringnum er haldið opnum til
samblöndunar og til útvikkunar
i allar áttir”.
Margar myndir Guðmundar eru frá gosinu.
Ljósmyndir í Akoges
Guðmundur Sigfússon, sýnir
sextiu og sex Ijósmyndir á sýn-
ingu sem hann opnaði i Akoges I
Vestmannaeyjum á miðviku-
dag. Flestar myndirnar eru frá
gosinu '73, þrjár eru frá 1972, en
aðrar eru nýrri. Þær eru bæöi I
lit og svart/hvitar.
Sýning Guðmundar er opin
daglega frá 20-22 en á laugardag
og sunnudag frá kl. 14-22.
Sunnudagurer jafnframt siðasti
sýningardagurinn.
—tJT
Cloudie, heitir þessi mynd Guðmundar og er af þýskrl stúlki sem
vann sem sjálfboöaliöi I Vestmannaeyjum f gosinu.
NÝJAR NORRÆNAR BÆKUR
KYNNTAR í NORRÆNA HÚSINU
Norræna húsið og norrænu
sendikennararnir við Háskóla
islands efna til kynningar á
athy glisverðum bókum á
norræna bókamarkaðinum á
þessu hausti. Hefst kynningin á
laugardaginn með þvi að kynnt-
ar verða bækur frá Finnlandi og
Sviþjóð I Norræna húsinu kl. 16.
Kynningin verður i umsjá
sænska sendikennarans Ingrid
Westin og finnska sendikennar-
ans Ros-Mari Rosenberg.
Siðari kynningin, þegar á
dagskrá verða danskar og
norskar bækur, verður laugar-
daginn 4. desember kl. 16. Um
hana munu danski sendikennar-
inn Peter Rasmussen og norski
sendikennarinn Ingeborg
Donali sjá.
Kynningar af þessu tagi eru
árlegur viðburður i Norræna
húsinu og hefur norrænum rit-
höfundum jafnan verið boöið til
þeirra. Að þessu sinni verður
danski rithöfundurin Svend
Aage Madsen gestur bókakynn-
ingarinnar. A dönsku kynning-
unni mun hann m.a. lesa upp úr
nýjustu bók sinni, tveggja binda
verki sem heitir Tugt og utugt i
Mellemtiden. Fyrsta ritsmið
hans birtist i timaritinu
Vindrosen árið 1962. Siöan hefur
hann skrifað smásögur, skáld-
sögur, leikrit, reyfara og barna-
bók. Honum voru veitt stóru
verðlaun dönsku akademíunnar
árið 1972.
RAÐ-STÓLAR
Nú geta allir eignast raðstóla - Komið og skoðið hina
handhægu og ódýru sænsku Zoom raðstóla
VERÐ AÐEINS KR. 14.600
Sendum hvert á land sem er - Sérstaklega handhægar
pakkningar og því lítill flutningskosnaður
Opið til kl. 7 á föstudag og til kl. 12.00 laugardag
Húsgagnaverslun Reykjavíkur hf.
Brautarholti 2 - Sími 1-19-40