Vísir - 10.02.1977, Qupperneq 24
vfsra
Fimmtudagur 10. febrúar 1977
HARÐUR
3JA BÍLA
ÁREKSTUR
Mjög haröur árekstur varö I
Elliöavogi i gærdag. Þar lentu
saman þrir bilar og varö mik-
iötjón á bilunum. Enginn mun
þó hafa slast alvarlega i
árekstrinum.
Seinni partinn i gær varö svo
slys þegar bill og létt bifhjól
lentu saman á mótum Háa-
leitisbrautar og Lágmúla.
Okumaður bifhjólsins
slasaöist eitthvað. Alls urðu 11
árekstrar i Reykjavik i gær.
—EA
Meiri rœkjuveiði við Arnarfjörð en dœmi eru um:
Fó allt að tvö tonn
af rœkju í einu kasti
— unnið allan sólarhringinn í rœkjuverksmiðjunni ó Bíldudal
Rækjuveiöi viö Arnarfjörö er
nú meiri en rækjusjómenn
muna eftir, og er unniö aö
rækjuvinnsiu á Bildudal ailan
sólarhringinn. Bátarnir hafa
jafnvel fengiö allt aö tvö tonn i
einu kasti, en i fyrra þótti hálft
tonn góöur dágsafii.
Þessi mikla aflahrota hefur
nú staðið nokkurn tima og er
rækjuverksmiöjan full, þótt
unnið sé dag og nótt á niu tima
vöktum.
Sex bátar frá Bildudal hafa
leyfi til þessara veiða, og mega
þeir taka fimm tonn á viku.
Rækjan er stór og góð og veiðist
á grynningum, sem liggja syðst
i Arnarfirði.
A Bildudal er eina rækjuverk-
smiðjan á Vestfjörðum sunna-
verðum. Þess vegna hafa tveir
bátar, sem hafa leyfi til rækju-
veiða á Patreksfirði og Tálkna-
firði lagt upp á Bildudal, og
komu þeir siðast fyrir þremur
dögum með 4 tonn. Nú hefur
verksmiðjan orðið að hætta
móttöku á rækju frá þeim bát-
um á meðan aflahrotan i Arnar-
firðinum stendur.
Esjan kom i fyrradag og tók
1300 kassa af frystri rækju.
Verða að fresta
árlegu sólarkaffi.
Bilddælingar sjá yfirleitt ekki
til sólar frá þvi i október og
fram i byrjun febrúar, en þá
halda þeir svonefnt sólarkaffi i
félagsheimilinu. Þessi árlega
hátið Bildælinga átti að vera á
sunnudaginn, en hefur nú verið
frestað vegna mikillar vinnu við
rækjuna.
Reyndar virðast önnur afla-
brögð vera i fullu samræmi við
rækjuveiðina. Þannig eru gerðir
út tveir bátar á linu frá Bildu-
dal, og er afli þeirra mjög
góður. t fyrradag kom annar
með 15 tonn en hinn með 13.
Á Bildudal skortir þvi ekkert
þessa dagana nema vinnuafliö.
—ESJ/HF Bildudal.
Fimm piltar ó vélsleðum í
Sandbúðir og Nýjabœ:
Voru aðeins 2
stundir ó leið-
inni í Sandbúðir
Fimm piltar frá Akureyri fóru
I fyrradag á vélsleöum upp á
hálendið og heimsóttu fólk I
Sandbúöum og Nýjabæ. Ferðin
gekk sérstaklega vel. Þannig
tók þaö þá aðeins tvær klukku-
stundir aö komast i Sandbúöir.
Það voru þeir Þröstur Sig-
urðsson, Skúli Agústsson, Wil-
helm Agústsson, Kristján Grant
og Herbert Ólafsson, sem lögðu
upp i þessa ferð kl. rúmlega 10 á
þriðjudagsmorgun á fimm vél-
sleðum. Færö var sérlega góð
og veðurbliða mikil, og gekk þvi
ferðin upp á hálendið einstak-
lega vel. Haldið var inn Garöár-
dal og Almenning og þaðan inn á
hálendiö. Komu þeir i Sandbúð-
ir um tólfleytið, en þetta mun
vera 80-100 kilómetra leið.
Þeir héldu einnig inn i Nýjabæ
og heimsóttu ibúana þar.
Þeir færðu fólkinu blöö og
annað, sem þeir höfðu veriö
beðnir fyrir, og tóku með sér til
Akureyrar bréf frá hálendisbú-
unum.
Piltarnir lögðu af stað til
Akureyrar um hálf sjöleytið, og
voru komnir þangað rúmlega
niu um kvöldið eftir ánægjulega
ferð.
—ESJ.
Loðna á stóru svœði
við Vestfirði
Rannsóknarskipiö Bjarni
Sæmundsson hefur oröið var viö
loðnu á stóru svæöi út af Vest-
fjöröum. Loönan er dreifö og þvi
ekki veiöanieg. Ekki hefur
reynst kleift að leita vel vegna
þess hve veöur hefur veriö
óhagkvæmt.
Allt er nú fullt i verksmiðjum
á Austurlandi. Tveggja
sólarhringa biö er viðast hvar
og sigla þviýmsir með aflann til
Vestmannaeyja og Siglufjarðar.
1 gær veiddust alls 7.830 tonn.
Þaö sem af er þessum sólar-
hring höfðu veiðst um 800 tonn,
er Visir ræddi við Loðnunefnd i
morgun. —EKG.
Þær virtust ekki kunna neitt illa viö vætuna þessar Reykjavfkurdömur sem Ijósmyndarinn okkar,
hann Jens hitti niöri i bæ i gær. Þar rigndi i fyrsta skipti sföan 8. janúar eða i rúman mánuö. Mörgum
sunnlendingum hefur þvi efiaust liðiö eins og þeir væru aö hitta gamlan kunningja eftir langan
aöskilnaö, þegar þeir komu út i rigninguna i gær.
Aö sögn Knúts Knútssonar á veöurstofunni i morgun má búast viö aö iitiar breytingar verði á
veörinu i dag, smávæta á Suöur- og Suð-Austurlandi, en þurrt fyrir noröan. Frostlaust veröur áfram
i Reykjavik, en kaldara á Norðurlandi —GA
„Kemur sér illa að fá
ekki bensín á bílinn"
—
— segir Davíð Sch.
Thorsteinsson,
formaður FÍI
L_______J
,,Ég er hræddur um aö þetta
nýja útlánaþak komi verst viö
iönaöinn af öllum atvinnugrein-
um þjóöarinnar”, sagöi Davlö
Sch. Thorsteinsson formaður
Félags islenskra iönrekenda i
samtali viö Vfsi f morgun.
Seölabankinn og viðskipta-
bankarnir hafa komið sér sam-
an um að útlán innlánsstofnana
aukist ekki meira en um 19% á
þessu ári. Fyrstu fjóra mánuði
ársins er útlánaaukningin, aö
frádregnum endurseldum af-
urða- og birgöalánum til at-
vinnuveganna, bundin við 6%.
Þar sem innlánsstofnanir
hafa þegar veitt viðskiptamönn-
um sínum aukna fyrirgreiðslu,
leiðir útlánaþakið til þess aö lit-
iö fé veröur til ráðstöfunar til
aukinna útlána til aprflloka.
„Það kemur sér ákaflega illa
fyrir iönaðinn, þegar hann fær
ekki bensin á bflinn ef svo má
segja”, sagði Davið „Iðnaður-
inn er eini atvinnuvegurinn sem
ekki hefur neitt afuröalánakerfi
eöa viðbótarlánakerfi, sem
haldast gangandi hvað sem
nokkru þaki viðkemur.
Ég er ekki i nokkrum vafa um
aö útlánaþakiö veröur brotið, en
það verður þá fremur fyrir aðra
atvinnuvegi en iðnaðinn”. —SJ