Vísir - 21.03.1977, Side 8
8
Mohawk SOLUÐ
Super Motrac sumardekk
AMERÍSK . . i.
MIVICniDlx ■ ■ !•
JEPPADEKK I UfVQll
MITTO umboðið hl.S.15485
'5?5fHeildvefslun
GUMBARÐINN
Brautarholti 10 s.17984
HJOLBARÐAVIÐGERÐIN MULA
V/Suöurlandsbraut s.32960
HJOLBARÐAVIÐGERÐ
VESTURB/EJAR
'/Nesveg s. 23120
Til leigu
auglýsingastofa til ieigu4ef um semst,um
óákveðinn tima. Uppl. sendist blaðinu
merkt ,,9618”.
Mánudagur 21. mars
23
„Hér hafa hvað flestir
listrœna köllun"
— segir Baltasar, en hann opnaði um helgina sýningu ó verkum sinum
Þó tókum viö eftir einni
mynd, sem er landafræðilegs
eðlis. Sýnir hún Island og eru á
landinu útal hestar.
,,Þetta á að sýna Island sem
um það land, þar sem hvaö
flestir hafa listræna köllun, þótt
ekki nái allir aö fljúga. Myndin
heitir „Ljáðu mér vængi” og
sýnir þetta fólk eins og pegasus
sem vonast eftir vængjum til að
fljúga með. Enginn þeirra hefur
vængi vegna þess að það er ekki
mitt að útbýta þeim”, sagði
Baltasar.
______________________—SJ
Spilaði ó píanó tveggja
ára og samdi lög sjö ára
— Magnús Blöndal í 3 þekktum erlendum bókum sem eru að koma út
Magnús Blöndal Jóhannsson
tónskáld er einn af þúsund
merkustu mönnum heims á
ýmsum sviöum sem getið er I
bókinni The International Reg-
ister Of Profiles sem út kemur á
þessu ári. Upplýsingar um
Magnús Blöndal er einnig aö
finna I tveimur öðrum þekktum
bókum sem út koma á þessu ári,
bókunum The International
Who’s Who Of Intellectuals og
Men of Achievement. Fyrr-
nefnda bókin kemur I fyrsta
sinn út á þessu ári, og er þar að
finna uppiýsingar um þúsund
menn i heiminum, sem merkir
þykja á sinu sviði.
Bækur þessar eru uppsláttar-
bækur og er þær að finna á
ýmsum bókasöfnum, mennta-
stofnunum og hjá blöðum og
timaritum viðs vegar um heim.
í bókinni The Intemational
Register of Profiles er heil siða
um hvern þessara þúsund
manna, mynd og 500 orða grein.
Bókin verður sérstaklega hand-
bundin og unnin fyrir þessa þús-
und.
Fór að semja
7 ára gamall
Það þykir mikill heiður aö
komast i þessar bækur en þessir
aðilar eru valdir eftir
meðmælum frá einstaklingum,
hópum og rannsóknaraöilum
International Biographical
Centre i Cambridge sem gefur
tvær af fyrrnefndum bókum út.
Um Magnús Blöndal segir
meðal annars: „Tónlistarhæfi-
leikar hans komu mjög fljðtt I
ljós, þar sem hann byrjaðí aö
leika á pianó rúmlega tveggja
ára gamall og fór að semja 7
ára. Hann fékk inngöngu i
Tónlistarskólann i Reykjavik
tiu ára gamall, þá sá yngsti sem
tekinn hafði verið i skólann.”
Þess má einnig geta að
Magnús Blöndal hefur verið
kosinn heiöursfélagi I Inter-
continental Biographical Ass-
ociation.
Magnús Blöndal hefur samiö
tónlist fyrir sjónvarp, útvarp,
leikfit og mikið fyrir kvik-
myndir, innlendar og erlendar.
Meðal kvikmynda sem hann
hefur samið tónlist við eru
„Surtur fer sunnan” og
„Heimaey on fire”, sem báðar
eru verðlaunamyndir.
—SJ
Magnús Blöndal Jóhannsson
að Kjarvalsstöðum
„Ég leitast við að þekkja
mlna þjóð, það er skýringin,”
sagöi Baltasar Semper þegar
blaðamaður Visis undraöist hið
þjóðlega yfirbragð á sýningunni
sem Baltasar opnaði um helgina
aö Kjarvalsstöðum. Sagðist
hann telja sig allt eins til
islendinga og spánverja, enda
vcrið hér hálfa æfina.
A sýningunni eru 50 oliumál-
verk, flest þeirra svo fersk að
ollulyktinerennaf þeim. Einnig
sýnir Baltasar 40 teikningar, 12
ára gamlar af öllum bændum
Grimsness. Sagðist hann hafa
teiknað þær meöan kona hans lá
á sæng á sjúkrahúsinu á Sel-
fossi. Notaöi hann þá timann
milli heimsókna til þess að
sækja bænduma heim.
Fyrirmyndimar að myndum
Baltasar eru margs konar og
eru þær ýmist málaðar eftir
minni eða eftir lestur
þjóðsagna. Þarna er mikið af
hundum og hestum, enda eru
þeir meðal góðvina Baltasars.
Hins vegar er lltið um lands-
lagsmyndir, en listamaðurinn
kvaö vera nóg af landslags-
málumm á tslandi þótt ekki
væri veriö að bæta útlendingi I
hópinn.