Vísir - 01.04.1977, Blaðsíða 23
VÍSXR
Föstudagur X. aprll 1977
SJÓNVARP KLUKKAN 22.
SIGILDUR
VESTRI A
SKJANUM
Henry Fondðí viröist vera I
sérstöku uppáhaidi hjá sjón-
varpinu um þessar mundir. A6
undanförnu hafa þar veriö
sýndar, Drums along the Mo-
hawk, The Grapes of Wrath,
The Ox-Bow Incident og nú er
þaö My Dariing Clementine.
Sjúnvarpsáhorfendur ættu þvi
aö vera farnir aö kannast ansi
vei viö Henry Fonda og feril
hans.
Myndin i kvöld, My Darling
Clementine er ein af allra
þekktustu vestrum sem geröir
hafa verið og fyrirmynd margra
þeirra sem á eftir hafa komið.
John Ford er leikstjóri, og hann
leikstýrði reyndar þremur af
þessum myndum sem taldar
eru upp hér fyrir framan. My
Darling Clementine er framlag
Fords til goðsagnarinnar um
Wyatt Earp og bræður hans, en
einnig styðst hann viö bók
Stuart N. Lake i gerö myndar-
innar.
Wyatt Earp er á ferð meö
nautgripahjörö sina ásamt
bræðrum sinum og kemur til
bæjarins Tombstone. Þar er
yngsti bróðir hans drepinn, og
Earp tekur aö sér starf lög-
reglustjóra bæjarins til að hafa
upp á morðingjanum.
Aðalleikarar auk Fonda eru
Victor Mature, sem leikur Doc
Holliday, og Linda Darnell.
Þýðandi er Heba Júllusdóttir.
—GA
Þaöeroftmikillhasar I myndinni f kvöld.
Prúðu leikarurnir skemmta sjónvarpsóhorfendum í kvöld.
Gestur leikbrúðanna í þessum þœtti er breski
gamanleikarinn Bruce Forsyth
Föstudagur
1. april
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Viö vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Ben
Húr” eftir Lewis Wallace
Sigurbjörn Einarsson Isl.
Astráöur Sigursteindórsson
Igs (9)
15.00 Miðdegistónleikar Jean-
Pierre Rampal og Victorie
Svlhllkova leika Sónötu fyr-
ir flautu og sembal eftir
Frantisek Benda. Kamraer-
sveit Telemann-félagsins I
Hamborg leikur „Concert
royal” nr. 3 i A-dúr eftir
Francois Couperin. Jost
Michaels og Kammersveit-
in I Munchen leika
Klarlnettukonsert I G-dúr
eftir Johann Melchior
Molter, Hans Stadlmair stj.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
• (16.15 Veöurfregnir).
16.20 Popphorn Vignir Sveins-
son kynnir.
17.30 Útvarpssaga bamanna:
„Systurnar I Sunnuhliö”.
eftir Jóhönnu Guömunds-
dóttur. Ingunn Jensdóttir
leikkona les (9).
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 ÞingsjáUmsjón: Nanna
Úlfsdóttir.
20.00 Tónleikar Sinfónlu-
hljómsveitar islands I Há-
skólablói kvöldið áður, —
fyrri hluti. Hljómsveitar-
stjóri: Karsten Andersen.
Einsöngvari: Sheila Arm-
strong frá Bretlandi. a.
Sinfónla nr. 25 I g-moll (K
183) eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. b.
„Scheherazade”, tónverk
fyrir mezzósópran og
hljómsveit eftir Maruice
Ravel. — Jón Múli Amason
kynnir tónleikana.
20.45 Myndiistarþáttur I um-
sjá Hrafnhildar Schram.
21.15 Kórsöngur Kór Mennta-
skólans við Hamrahllð
syngur islensk og erlend
lög. Söngstjóri: Þorgerður
Ingólfsdóttir.
21.30 Útvarpssagan: „Jómfrú
Þórdis” eftir Jón Björnsson.
Herdls Þorvaldsdóttir leik-
kona les (3).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Lestur
Passiusálma (46)
22.25 Ljóðaþáttur Umsjónar-
maður: Njörður P. Njarð-
vlk.
ÚTVARP KLUKKAN 20.
Tónleíkar sinfóníunnar
í útvarpinu í lcvöld
Sinfónlutónleikarnir sem voru
I gærkvöldi verður útvarpaö I
kvöld klukkan 20.00. Stjórnandi
hljómsveitarinnar var Karsten
Andersen en einsöngvari Sheila
Armstrong frá Bretlandi.
Hún syngur nú ööru sinni með
sinfóniuhljómsveitinni en hún
var einsöngvari á tónleikum I
nóvember 1974 undir stjórn
Vladimirs Ashkenazy. Hún hef-
ur sungið bæði I óperuhlutverk-
um og á tónleikum beggja
vegna Atlantshafsins og hlotiö
afbragðsdóma. Kemur hún
fram aö staðaldri meö öllum
helstu hljómsveitum i London
og syngur auk þess föst hlutverk
við Glyndenbourne-óperuna,
skosku óperuna og Covent
Garden. Hún hefur ennfremur
margsinnis komið fram i breska
sjónvarpinu.
—GA
SJÓNVARP KLUKKAN 21.
Dagvistunarmál
í Kastljósi
Kastljós er helgað einu mál-
efni aö þessu sinni, dagvist-
unarmálum. Sigrún Stefáns-
dóttir er umsjónarmaöur I kvöld
og sagöi I samtali viö Visi aö
reynt yröi aö lita á máliö frá
sem flestum hliöum.
„Ég hef fengiö þau Andra
Isaksson.Rannveigu Jónsdóttur
Bjarnfriði Leósdóttur, Gur.n-
laug Finnsson og Loga
Kristjánsson til að koma i
sjónvarpssal og ræða um þessi
mál, og einnig hefur verið tekið
upp þó nokkuð af efni út I bæ”,
sagöi Sigrún.
Kastljós hefst klukkan niu, á
eftir Prúðuleikurunum. <ja
22.45 Afangar Tónlistarþáttur
I umsjá Asmundar Jónsson-
ar og Guöna Rúnars Agn-
arssonar.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
1. april
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Prúöu leikararnir (L)
Gestur leikbrúðanna I þess-
um þætti er breski gaman-
leikarinn Bruce Forsyth.
Þýöandi Þrándur Thorodd-
sen.
21.00 Kastljós Þáttur um inn-
lend málefni. Umsjónar-
maöur Sigrún Stefánsdóttir.
22.00 Elsku Clementine (My
Darling Clementine)
Bandariskur „vestri” frá
árinu 1946, byggður á sann-
sögulegum atburðum og
sögu eftir Stuart N. Lake.
Leikstjóri John Ford. Aöal-
hlutverk Henry Fonda,
LindaDarnellog VictorMa-
ture. Wyatt Earp er á ferð
meö nautgripahjörð sina
ásamt bræðrum sinum og
kemur til bæjarins Tomb-
stone. Þar er yngsti bróðir
hans drepinn, og Earp tekur
að sér starf lögreglustjóra
bæjarins til að hafa upp á
morðingjanum. Þýðandi
Heba Júllusdóttir.
23.35 Dagskrarlok