Vísir - 12.04.1977, Qupperneq 1
Siddegisblad fyrir
fjöisHyiduna ijcs^
alla i
Þriðjudagur 12. april 1977. 93. tbl. — 67. árg.
y
Á annað þúsund bíða
flugs innanlands
Hátt á annað þúsund manns
biðu þess I morgun að komast
flugleiðis til og frá Reykjavik.
Veöur hefur valdið nokkrum
töfum f innanlandsfluginu
siðasta sólarhringinn og far-
þegafjöidi er nú óvenjumikill
vegna páskanna.
Þrjár vélar frá Flugfélaginu
og ein frá Vængjum uröu veður-
tepptar fyrir norðan I gær. A
Sauðárkróki voru tvær Flugfé-
lagsvélar og ein frá Vængjum
og á Akureyri, ein frá Flugfé-
laginu.
Vélarnar á Sauöárkróki kom-
ust til Reykjavlkur i nótt, en
Akureyri var enn ófær I morg-
un. Þar biðu um fimm hundruö
manns eftir aö komast til
Reykjavikur.
A Isafirði biöu 500-600 manns I
morgun, en þar var veður ágætt
og Flugfélagið búið að áætla
þangað fimm ferðir i striklotu
og fleiri seinna i dag ef veöur
helst.
Flugfélagið og Vængir gerðu
þvi ráð fyrir aö „hreinsa til” á
Vestfjörðum i dag, en hinsvegar
er óvist um Noröurland, vegna
veðurs. Auk farþega á Akureyri
biður svo nokkur fjöldi eftir að
Vængir komist til Siglufjarðar.
Fyrir utan aukaferðirnar til
Vestfjaröa og Norðurlands,
þegar þar opnast, ætti innan-
landsflug að ganga samkvæmt
áætlun I dag.
—ÓT.
Þeir voru að venju á öllum aldri, farþegarnir sem biðu eftir að komast flugleiðis á áfangastað i morgun. Visismynd Jens.
k..............................................................
Larsen
sigraði
í Genf
Guðmundur Sigurjónsson
varð i niunda sæti á alþjóða-
skákmótinu i Genf sem lauk i
gær, en Friðrik Óiafsson hafn-
aði I 12. sæti.
Bent Larsen sigraði með 8,5
vinningum, en Ulf Andersson
varð I ööru sæti meö 8 vinn-
inga. Hann og Guðmundur
gerðu jafntefli i siðustu um-
ferð. 1 þriðja sæti varö Dzind-
zinchasvili frá Israel meö 7,5
vinninga og Sosonko fjórði
með sömu tölu. Pachman og
Torre hlutu 7 vinninga, Liber-
zon, Ivkov og Guömundur 6,5,
Timman og Byrne 6, Friörik
5,5, Hug 5og Westerinen varð I
neðsta sæti meö 3,5 vinninga.
—SG
Suðri:
SÍÐASTA SKILYRÐI
BANKANS UPPFYLLT
„Skipið fer i slipp i þessari
viku og ef alit er i lagi, þá er það
laust,” sagði Magnús Armann
hjá Skipamiölun Gunnars
Guðjónssonari samtali við Visi i
morgun, en skipamiðlunin fer
með umboð útgeröar flutninga-
skipsins Suðra, sem verið hefur
kyrrsett i Rotterdam i Hollandi
um 6 vikna skeið vegna gjald-
fallinna skulda við banka 1 Eng-
landi.
Skoðun skipsins er siðasta
atriðið sem bankinn setti að
skilyrði fyrir þvi að lán að
upphæð um 170 milljónir króna
væri ekki gjaldfellt vegna 30
milljón króna afborgunar sem
ekki kom á tilsettum tima.
Allar tryggingar sem bankinn
bað um hafa nú verið settar og
ef skipiö reynist vera i lagi
stenst það samkomulag sem
gert var við bankann um
greiðslur lánsins. Sé skipiö hins
vegar ekki i lagi er ófyrirséð
hverjar lyktir mál þetta fær.
— SJ
NÝTT HASSMÁL KOMIÐ UPP
Tveir menn sitja i
gæsluvarðhaldi vegna
meintrar aðildar að nýju
fíkniefnamáli sem komið
hefur upp. Rannsókn er
enn á frumstigi, en með
tilliti til reynslu af öðrum
fikniefnamálum eiga ef-
laust margir eftir að
koma við sögu.
Enn sem komið er snýst
rannsókn þessa máls um
innf lutning og dreifingu á
hassi eingöngu.
— SG
bbbhhui
Óttinn
og
kúgunin
Alvöru-
skatta-
lœkkanir
eru róðið
Hvað á að
segja
kaupendum
vöru?
Sjá bls. 17
Ýmis
vandamál
steðja
nú að
prentara-
félaginu
Sjá bls. 10