Vísir - 25.05.1977, Page 3

Vísir - 25.05.1977, Page 3
3 VISIR MiOvikudagur 25. mai 1977. Þessikátihópur sölubarna varö einna fyrstur til aö sækja VIsi i hina nýju afgreiðslu blaðsins viö Hlemmtorg I gær. Flutningur afgreiðsl- unnar af Hverfisgötu ihúsakynnin viö Stakkholt 2-4 var til þess ætl- aður aö spara sölubörnunum sporin, færa hana nær umferðaræöum borgarinnar og með þvi auðvelda börnunum ferðina I hin ýmsu borgarhverfi. Mynd: EGE. Meðalupplag bóka er aðeins um 1200 eintök — bókaþing vill ýmsar róðstafanir til eflingar bókaútgáfu Upplag bóka hefur farið si- minnkandi hér á landi siðustu áratugina, og hefur meðalupplag þannig fallið úr 2000 eintökum i 1200 eintök, en meðalsala á fyrsta ári er komin niður i 800 eintök. Einna uggvænlegast er ástandið varðandi frumsamdar Islenskar barna- og unglingabækur, þær eru á hröðu undanhaldi. betta kom fram i setningaræðu örlygs Hálfdánarsonar á Bóka- þingi Félags islenskra bókaútgef- enda. Á þinginu var samþykkt áskor- un á stjórnvöld að hlutast til um eftirfarandi aðgerðir til eflingar islenskri bókaútgáfu: 1. Að felldur verði niður sölu- skattur af bókum. 2. Að bókaútgáfunni sé ætlaður einhver staður í bankakerfinu og viðurkennt sé í reynd, að hún sé iðnaður, sem veitir stórum hópi manna atvinnu. 3. Að komiðverðiá fót stofnlána- sjóði, sem veittgætilán til allra viðameiri verka. 4. Að bókaútgefendum verði greitt fyrir not bóka þeirra i bókasöfnum og söfnin skylduð til að kaupa ákveðinn fjölda eintaka af hverri bók eftir íslenskan höfund. 5. Að veitt verði á fjárlögum nægilegt fé til þess að gera könnun á stöðu íslenskrar bókaútgáfu. Aður en bókaþingið hófst var haldinn aðalfundur félagsins, en formaður þess er örlygur Hálf- dánarson. Aðrir i stjórn eru Arn- björn Kristinsson, Böðvar Pétursson, Valdimar Jóhanns- son, Hjörtur bórðarson, Brynjólf- ur Bjarnason og Ragnar Gunn- arsson. Framkvæmdastjóri er Gisli Ólafsson, en félagið hefur opnað skrifstofu og félagsheimili að Laufásvegi 12 i Reykjavik. —ESJ. STRÍÐSSKAÐINN Á BALDRI YFIR 40 MILUÓNIR KRÓNA t gær afhenti Pétur Sigurösson forst. Landhelgisgæslunnar Jóni Jónssyni forst. Hafrannsóknarstofn- unarinnar Baldur og hefur þá bætst eitt rannsóknarskip viö Islenska flotann. Meö þeim á myndinni er bórður Asgeirsson skrifstofustj. I Sjávarútvegsráöuneytinu. Ljósm. Einar Gunnar. Viögerðarkostnaður á skut- togaranum Baldri eftir átökin i þorskastriðinu verður aö likind- um nálægt 45 milljónum króna. Fullnaöarviögerö er nú lokiö á skipinu og I morgun afhenti Landhelgisgæslan skipið til Hafrannsóknarstofnunarinnar, sem var búin aö kaupa skipiö skömmu áöur en þorskastríöið hófst. Samkvæmt upplýsingum Tómasar P. óskarssonar fjár- málastjóra Rikisskips er bók- færöur kostnaður vegna viö- gerða á Baldri nú 38,6 milljónir króna, en ekki eru öll kurl kom- in til grafar. Viðgerð er nýlokið og allir reikningar þvi ekki komnir fram, en Tómas bjóst viö að heildarkostnaðurinn yröi 40-45 milljónir. Má benda á, aö kostnaöur við viögerðir á Ver nam liðlega 40milljónum króna. Skipin eru tryggö fyrir þess- um tjónum og veröa þvi trygg- ingafélögin a6 greiöa reikning- ana áður en yfir likur. — SG Ertu búinn að senda getraunaseðilinn? I-IVISRIER O MAOURINN ■ l-IVIrR IER MÁOUMNN? Myndin er af: Sendandi: Heimili: Sveitarfélag sýsla Simi: Hún fer þannig fram, að viku- lega, á þriðjudögum, vörður birt mynd i getrauninni, þar sem andlit ákveðins einstaklings er hulið. Með myndinni er texti, sem á að gefa lesendum hug- mynd um, hver maöurinn er. Lesendur hafa siðan eina viku til að útfylla meðfylgjandi seðil og koma honum til Visis. Við birtum hér fyrsta seðilinn aftur til að minna iesendur Visis á að senda okkur lausn sina sem fyrst. Seðlarnir verða aö berast ritstjórn Visis, Siðumúla 14, i siðasta lagi þriðjudaginn 31. mai. Verðlaun eru vöruúttekt i Vörumarkaðinum fyrir 15.000 krónur. begar getrauninni er lokið eftir 10 vikur verður svo dregið úr öllum bréfum, sem boristhafa, um aukavinninginn, sem er Electrolux ryksuga að verðmæti 55.900 krónur. 15.000 krónur. Getraunin, sem hóf göngu sina f Vísi i gær. Myndagetraun Vfsis — „Hver er maðurinn?” hóf göngu sina I blaöinu i gær. Samningarnir í sjálfheldu Framkvæmdastjórn Vinnuveit- endasambands tslands kom sam- an til fundar i dag og var þar rætt um stöðuna i samningamálunum. Samþykkt var að mótmæla sem ósönnum fullyrðingum Alþýðu- sambands tslands um að fulltrúar V.S.t. hafi neitað að ræða við samninganefnd A.S.t. siðustu daga og með þeim hætti tafiö samningaviðræður. Vinnuveit- endasamband Islands hefur ekki neitað neinum viðræðum. Hins vegar hafa samningaumleitanir tafist vegna þess hversu seinlega gengur að fá öll sérsambönd og félög innan Alþýðusambands lslands til þess að fallast á sam- ræmda afgreiðslu sérkrafna. Siðustu daga hefur sáttanefnd fyrst og fremst unnið að sam- eiginlegri lausn á sérkröfum. Meðan það ekki hefur tekist eru samningarnir i sjálfheldu, þar sem ekki þykir fært að ljúka gerö rammasamnings um almenn atriði kjaramálanna, nema áöur sé lokið samningum um sérkröf- ur. Ella kynni sú launastefna, sem mótuð væri i rammasamn- ingi að reynast nafniö tómt, eins og Vinnuveitendasambandið hef- ur áður bent á. AUÐVELDARA GETUR ÞAÐ EKKI VERIÐ,,, Murray mótorsláttuvélin slær auðveldlega allar grasflatir og hin framúrskarandi hönnun gerir stjórnun auðvelda, jafnvel á erfiðustu stöðum. 'unnai S4i zeh&öon h.f. Glerárgötu 20 Akureyri EINNIG HJÁ UMBOÐSMÖNNUM UM LAND ALLT

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.