Vísir - 25.05.1977, Blaðsíða 10

Vísir - 25.05.1977, Blaðsíða 10
10 Mi&vikudagur 25. mai 1977. VISIR VfSIR Ctgefandi .Kfykjuprent hf Framkvæmdustjóri:DavIO GuOmundsson Kitstjórar :t>orsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Kitsljórnarfulltrúi: Bragi GuOmundsson. Fréttastjóri crlendra frétta: Guömundur Pétursson Um- sjón meö helgarblaOi: Arni Þórarinsson. Blaöamcnn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guöfinnsson, Ellas Snæland Jónsson, Finnbogi Hermannsson, Guöjón Arngrlmsson, Kjartan L. Pálsson, óli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guövinsson Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Akureyrarritstjórn: Anders Hansen. C'tlitsteiknun: Jón óskar Hafsteinsson og Magnús Ólafsson. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Sölustjóri: Páll Stefánsson. Auglýsingastjóri: t>orsteinn Fr. Sigurösson. Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson. Auglýsingar: Sföumúla 8. Slmar 822M, 84411. Askriftargjald kr. 1344 á mánuöl innanlandt. Afgrciöala: Hvcrfisgötu 44. Slmi 84411. Vcrö I UusasWu kr. 74 eintakiö. RiUtjórn: SiOumála 14. Slmi 84411, 7 llnur. Prcntun: BUOaprcnt kf. Arðsemi og lífskjör Láta mun nærri að þrjár krónur af hverjum f jórum, sem opinberir aðilar hafa fengið að láni upp á siökastið, hafi farið til orkuframkvæmda af ýmsu tagi. Eins og sakir standa eru framkvæmdir á sviði orkumála einn veigamesti þátturinn í fjárfestingu þjóðarbúsins. Arðsemi þessarar f járfestingar skiptir því miklu máli fyrir afkomu fólksins í landinu. Verkalýðshreyfingin hefur að undanförnu haldið því fram, að borgararnir fengju ekki i launaumslög- unum sama hlut af þjóðartekjunum og þekkist með öðrum þjóðum, er nærri okkur standa. A það er að líta i þessu sambandi, að við höfum varið stærri hluta af þjóðartekjunum til fjárfestingar en flest þróuð riki. En hlutfallslega hefur þessi mikla fjárfesting ekki skilað arði að sama skapi og hjá öðrum þjóðum. Ástæðan fyrir þessu er m.a. sú, að sósialísk sjónar- mið, þar sem arðsemiskröfum er hafnað, hafa ráðið of miklu um skipan orkuframkvæmda. Núverandi borgaraleg ríkisstjórn hefur t.a.m. fylgt fram í öllum meginatriðum alveg sömu stefnu i þessum efnum og vinstri stjórnin, sem á undan sat. Kjarni málsins er sá, aðarðsemisjónarmið hafa ekki verið þungamiðjan aðbaki þeim ákvörðunum, sem teknar hafa verið, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Ráðist var í að reisa gufuafIsvirkjun við Kröflu í einni skyndingu fyrir átta til tíu milljarða króna. Þessi mikla f járfesting stendur nú orkulaus í annan endann og markaðslaus í hinn eins og Jónas Elíasson prófessor lýsir aðstæðum í þessu efni í grein hér í blaðinu fyrir tveimur dögum. Ljóst er, að brýnt raforkuvandamál norðlendinga mátti leysa á mun ódýrari og skjótvirkari hátt með lagningu byggðalinunnar frá Geithálsi. Þetta hefur nú verið ákveðið að gera eftir að Ijóst er orðið að Kröflu- virkjun kemst ekki i gagnið í bráð. En ef þetta hefði verið gert í upphafi, hefði mátt tímasetja Kröflu- framkvæmdirnar í samræmi við orkumarkaðinn. Jónas Eliasson prófessor segir í grein sinni hér í blaðinu, að röng timasetning Kröfluvirkjunar um f jögur ár þýði gifurleg aukaútgjöld i f jármagnskostn- aði. Kjarni málsíns er vitaskuld sá, að við hefðum getað náð sama árangri með minni tilkostnaði. I grein sinni varpar Jónas Elíasson fram nokkrum spurningum um aðhald í orkumálum. Hann spyr t.d., hvort það sé nægjanlegt aðhald að leggja fram laga- frumvarp um Blönduvirkjun, sem hvorki er f járhags- lega né tæknilega undirbúin. Og hann varpar þeirri spurningu fram, hvort það sé aðhaldssemi að lofa austfirðingum virkjun heima í héraði meðan rannsókn á hinu mikla orkuforðabúri Austurlands er á skrifborðsstigi? Gagnrýnum spurningum af þessu þessu tagi er unnt aðhalda lengi áfram. Prófessorinn spyr t.d. réttilega, hvort það sé aðhald í opinberum framkvæmdum að gefa loforð um virkjanir vítt og breitt um landið, eftir að búið er að gefa út leyfi fyrir virkjun við Hraun- eyjarfoss. Og hann spyr, hvort það sé aðhaldsemi að halda áfram sömu stefnunni í rafhitunarmálum, þeg- ar vitað er að sú orkusala er rekin með fimmföldum halla. Þegar á þessar aðstæður er litið kemur glöggt í I jós, að i opinberum framkvæmdum hefur ekki verið hug- að sem skyldi að arðseminni. Þetta á einkum við í orkumálum. Og vegna mikilla umsvifa á þeim vett- vangi koma óskynsamlegar ákvarðanir áþreifanlega niður á þjóðarbúskapnum í heild. Hvort tveggja er, að fjárfesting er hér mjög mikil og hún hefur ekki skilað nægjanlega miklum arði. Þess verður þvi að kref jast af opinberum aðilum, að þeir leggi rikari áherslu á arðsemin en áður. Það skiptir miklu máli fyrir afkomu þjóðarbúsins og al- menn lífskjör fólksins í landinu. „Fréttamennirnir kvörtuðu undan því að finna engar beina grindur í Konsó" „Núna förum við til að starfa hjá öðrum þjóð- flokki sem aldrei hefur verið unnið fyrir áður og má segja að hann sé gleymdur umheiminum. Landið hefur verið mjög i fréttum siðan bylting var gerð þar fyr- ir tveimur árum og Haile Selassie keisara steypt af stóli. Blöð hafa og það með eiginkonu og fimm börn skuli snúa aftur til landsins af frjálsum vilja? Skiiii Svavarsson sagöi blátt áfram, aö þörfin væri brýn I — Rœtt við Skúla Svavarsson kristni- boða sem starfar í Eþíópfu Það er búið að reka amerisku trúboðana úr landi, en við sem erum frá Norðurlöndum höf- um verið látnir i friði”, sagði Skúli Svavarsson kristniboði, sem hélt i morgun á ný til Eþiópiu þar sem hann hefur starfað mörg undanfar- in ár. fullyrt að hinir nýju valdhafar hafi látið myrða mikinn fjölda fólks og þar riki ógnar- stjórn. Þeir sem þori að hafa uppi minnstu mót- mæli séu umsvifalaust handteknir og oftar en ekki látnir gjalda við lifi sinu. Hvernig má það vera að nokkur maður landinu fyrir fræöslu og hjúkrun innfæddra. í héraöinu þar sem Konsó þjóöflokkurinn býr hefur kristniboöiö héöan veriö starf- rækt i 23 ár. „Nú eru innfæddir aö taka viö stjórninni þar. Þetta tekur allt mjög langan tima, þvi fyrst þarf aö kenna fólki aö lesa og skrifa áöur en hægt er aö veita þvi frek- ari menntun. Viö höfum veriö þarna meö eina sjúkrahúsiö og eina skólann á svæöi sem telur um 90 þúsund Ibúa,” sagöi Skúli, Réttindi kennara Fyrir rúmri viku var i Morgun- blaöinu óvenjugóö grein um skólamál. Gunnar Markússon skólastjóri i Þorlákshöfn skrifaöi af skynsemi og þunga um eitt mesta mein islensks skólakerfis: vegna kennaraskorts eru ráönir til kennslu menn sem ekki hafa þá lágmarksmenntun sem tilskil- in er aö lögum, eöa jafnvel menn sem eru i raun óhæfir til kennslu vegna persónulegra ágalla. A seinustu árum hafa veriö geröar ýmsar breytingar á skóla- kerfinu. Sumar þessara breyt- inga kalla menn helst stórfelldar og vilja meö þvi lofa þær. Engar þessara breytinga hafa þó snert þetta vandamál eöa tekiö tillit til þess, þvert á móti stefna ýmsar breytinganna til þess aö vandi vaxi. Sem dæmi má nefna aö fyrir- hugaöar breytingar á framhalds- skólum hljóta aö valda verulega aukinni eftirspurn eftir kennur- um, en alls engar ráöstafanir hafa veriö geröar til aö auka framboö hæfra kennara. Séra Guö- mundur Sveinsson, skólastjóri Fjölbrautarskólans i Breiöholti, sagöi reyndar i útvarpserindi um daginn aö svona ætti þetta aö vera, þessir skipulaghættir væru nú mest i tisku úti i heimi. Hvar skyldi þetta vera tlska? Þaö gæti veriö hughreysting aö heimsækja slikan staö og sjá þá aö Halldór Laxness haföi þrátt fyrir allt rangt fyrir sér þegar hann lét einhvern segja aö islend- ingar væru enn ómerkilegri þjóö en danir ef þaö væri hægt. Skúlun og kennsluhæfi- leikar Nú er þaö aö sjálfsögöu ljóst aö menntun manns eöa öllu heldur skólun ræöur ekki úrslitum um Dr. Halldór Guðjónsson dósent skrifar um réttindi kennara og segir að leggja œtti óherslu ó hvort tveggja, að lœrðir og reynslulitlir starfsmenn öðlist reynslu og reyndir en lítt lœrðir starfsmenn afli sér menntunar þaö hvort hann er hæfur kennari. Þess eru mörg dæmi aö litt skóla- gengnir menn séu frábærir kenn- arar, og jafnframt eru þess mörg dæmi aö lang-skólagengnir menn reynist liöónýtir kennarar. Til góörar kennslu þarf, auk kunnáttu i fræöunum eöa listinni, myndugleik einhvers konar, næmi á þarfir nemenda og þann færleik eöa handbragö sem ekki veröur kennt eöa öölast má af reynslu. Kennari sem hefur myndugleik, næmi og gott hand- bragö en litla kunnáttu, er vafa- laust miklu betur til starfs sins fallinn en annar sem kann reiöinnar býsn en skortir þessa þrjá hæfileika. t þessu er kennsla i engu frá- brugöin öörum störfum: Þaö sem aö lokum ræöur úrslitum um hvort menn rækja störf sin vel er aldrei þaö aö þeir hafi bréf upp á hitt og þetta, heldur einmitt og aö sjálfsögðu þaö að þeir rækja störfin vel. Þessum óumdeilanlegu staö- reyndum tefla menn oft fram til aö réttlæta þann siö aö ráöa rétt- indalausa menn til kennslustarfa. En þetta eru heldur haldlitil rök. Aö visu nægja þau til aö benda á aö þær menntunarkröfur sem geröar eru til kennara i lögum og reglugeröum geta aldrei veriö annaö en þær lágmarkskröfur sem auðveldast er aö ganga eftir — umfram þessar kröfur veröur aö láta starfsreynslu skera úr um hæfi. Jafnframt má af þessu sjá aö skynsamlegt er aö framfylgja þessum lágmarkskröfum af nokkurri mildi — svo aö unnt sé aö laöa þá menn til kennslu sem hafa til hennar náttúrugáfu en lit- il próf. Starfsbætur Þaö liggur I augum uppi aö skólakerfiö ætti aö gera hvort tveggja i senn aö stuöla að þvi aö lærðir en reynslulitlir starfsmenn þess öölist reynslu, og aö reyndir en litt lærðir starfsmenn afli sér menntunar. A hvorugt viröist lögö nokkur veruleg áhersla og trúlegt er aö af þessum sökum séu stórir hópar kennara annað hvort vansælir I starfi eöa búi við ósæmandi öryggisleysi sem þeir geta ekki bætt úr sjálfir. Þaö er mannskemmandi aö geta ekki rækt starf sem maöur hefur lært til en ræöur ekki viö af einhverj- um tiltölulega auöleibréttum sök- um. Hitt er siölaust af yfirvöldum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.