Tíminn - 05.07.1968, Side 10
10
TIMINN
FÖSTUDAGUR 5. júlí 1968.
Berlingske Tidende
um forsetakosningar
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
„Berlingske Tidende“ ræðir í
forystugrein í gær, miðvikudag,
um forsctakjörið á íslandi undir
fyrirsögninni „Islands ny Presi-
dent,“ og er grein sú skrifuð af
góðri þekkingu á staðreyndum.
Þykir rétt að birta hér kafla úr
forystugreininni.
í upphafi segir: — „Lengi var
vitað, að ambassador íslands í
Danmörku, prófessor dr. jur.
Gunnar Thoroddsen, myndi verðá
í framboði í forsetakosningunum,
en það kom nokkuð á óvart, þeg-
ar yfirmaður Þjóðminjasafnsins í
Reykjavík, Kristján Eldjárn dr.
phil, tilkynnti um framboð sitt
fyrir nokkrum mánuðum. Þar
með áttust við tveir jafnir fram-
bjóðendur, en sigurlíkur Gunnars
Thoroddsens voru taldar meiri,
og einkum var talið, að hann
myndi fá verulegan meirihluta at-
kvæða í höfuðborginni, Reykja-
vík, þar sem hann, áður en hann
varð ambassador, hafði um árabil
verið borgarstjóri.
Það fór á annan veg. Að vísu
fékk Gunnar Thoroddsen mest
fylgi í Reykjavík, en einnig þar
sigraði Kristján Eldjárn. í land-
inu í heild skiptust atkvæði þfmn-
ig, að Kristján Eldjárn fékk %
en andstæðingur hans
Er blaðið hefur þannig rakið
úrslitin, er reynt að finna skýr
ingu á sigri Kristjáns. Bent er á
að Gunnar hafi verið stjórnmála-
maður, en vart hefði það átt að
vera honum til skaða, né heldur
hitt, að hann er tengdur núver
andi forseta — nema þá, að ís-
lendingar hafi óttast ættarveldi
eins og í gömlum konungsdæm-
um.
Blaðið telur að vinsældir Kristj-
áns í sjónvarpi geti átt nokkurn
þátt í sigri hans, en margt bendi
þó til þess, að þýðingarmeira
væri það álit margra, að maður,
sem haldið hefur sig utan við
deilur stjórnmálaflokka, gæti frek
ar hafið sig yfir flokka og flokks
deilur.
En þýðingarmest telur blaðið
þó sennilegt að hafi verið, „að
í kosningabaráttunni virtist mörg
um íslendingum í bæjum og sveit
um, að Kristján Eldjárn væri fram
bjóðandi almennings og þar með
mótvægi gegn yfirráðum áhrifa-
mikilla ætta og rótgróinna vald-
hafa.“
í lokin segir blaðið, að engin
ástæða sé til þess að ætla annað
en Kristján Eldjárn muni rækja
skyldur sínar með fullu tilliti til
óska Alþingis og kjósenda.
SKÓGARHÓLAR
Framhald af bls. 3.
1958 var gert mjög hentugt og
ákjósanlegt mótssvæði fyrir hesta
menn í Skógarhólum í Þingvalla-
sveit. Landsmót var aftur haldið
f Skógarhólum 1962, en síðan hef-
ur svæðið lítið verið notað. Nokk-
ur hestamannafélög á Suður- og
Suðvesturl. tóku sig því saman
og hafa á undapförnum árúm
haldið árlega „hestamanna-
fagnaði" í Skógarhólum og hafa
þessi mót þótt velheppnuð og ver
ið ákaflega fjölmenn.
Hestamannafélög þau sem ann
ast Skógarhólamótið eru nú
orðin sjö og eru það félögin
Fákur í Reykjavík, Gustur í Kópa
vogi, Hörður í Kjósarsýslu, Logi
í Biskupstungum, Ljúfur í Hvera-
gerði og Sörli í Hafnarfirði.
Dagskrá mótsins er í stuttu máli
þessi: Á laugardag kl. 8 e.h. verð-
ur keppt í undanrásum í 350
metra skeiði, 300 m. stökki og
800 rm hlaupi. Á sunnudag kl. 2
e.h. seíur Albert Jóhannsson, vara
formaður Landssambands besta-
manna, mótið formlega. Þvínæst
fara öll hestamannafélögin sjö í
hópreiðar um svæðið, og að lík-
indum verður hún geysifjölmenn.
Þá fer fram helgistund og ann-
ast hana sér Bjarni Sigurðsson á
Mosfelli. Næst fer fram góðhesta-
fyrr verða aðalkeppinautarnir
800 m. Þytur Sveins K. Sveinsson-
Mesta nýmælið á mótinu er
vafalítið það, að börnum verður
leyft að skreppa endurgjalds-
laust á bak stilltum og vel vönd-
um gæðingum, sem hafðir verða í
sérstakri girðingu. Er ekki að efa,
að þetta mun mælast vel fyrir
ekki sízt hjá höfuðborgarbörnum,
sem koma munu á mótið með foi'-
eldrum sínum, og fá við þetta að
komast í ofurlitla snertingu við
skepnur og hina fornu íslenzku
reiðmennskuíþrótt.
Á mótssvæðinu verða báða dag-
ana seldar alhliða veitingar, svo
sem heitar súpur, pylsur, gos-
drykkir, smurt * brauð og annað
þess háttar.
HNATTSIGLING
Framhald ai bls 3
móti Rose með viðhöfn á hafn
arbakkanum.
Aler Rose getur eftir þessa
frækilegu hnattsiglingu vænzt
þess að veröa heiðraður á ýms
an hátt og hljóta að launum
æðstu heiðursmerki brezku
krúnunnar.
sýning og taka þátt í henni 35
hestar, fimm frá hverju fé-
laganna.
Laust fyrir kl. 2 á sunnudag
hefst keppni í skeiði og síðan
verðui- keppt í brokki, stökki og
800 metra hlaupi, en naglaboð-
hlaupið er síðast á dagskrá.
Verðlaun eru sérlega glæsileg
á mótinu. 1. verðlaun í 350 m.
skeiði eru 10 þús. kr. 2. 6 þús.
og 3. 3 þús. Auk þess fær hlut-
skarpasti hesturinn einnig silfur-
pcning að launum, sem á er letr-
að „Skógarhólamót 1968.“ 15 hest-
ar eru skráðir til keppninnar.
Á Skógarhólamótinu verður
keppt í brokki og hefur það að-
eins tvisvar verið gert áður á
Þingvöllum. Vegalcngdin, sem
keppt verður í er milli 12 og 13
hundr. metrar. 12 hestar hafa verið
skráðir til leiks og verða þeir
ræstir allir í einu. Verðlaun í
brokkkeppninni er gullpeningur.
Til keppni í stökki eru skráðir
25 hestar og er mesti hestafjöldi
í þeirri keppnisgrein. 1. vérðl. eru
6 þús. kr. 2. verðl. kr. 3 þús. og
3. kr. 1500. Auk þess verður veitt
ur gullpeningur.
í 800 m .hlaupinu eru verðlaun
10 þús. 6 þús. og 3 þús., og þar
er einnig veittur gullpening-
ur með áletruninni: „1. í 800 m.
hlaupi. Skógarhólamót 1968.“ Sem i
ÞAKKARÁVÖRP
Alúðar þakkir færi ég hérmeð öllum þeim sem
glöddu mig á 75 ára afmæli mínu þann 14. júní síðast-
liðinn með blómum, heillaóskum eða a annan hátt.
Egill Jóhannsson, skipstjóri,
Akureyri.
Björn Jóhannsson
fyrrverandl skólastjóri VopnafirSi,
sem lézf 28. júní, verSur jarSsunginn frá VopnafjarSarkirkju mánu-
daglnn 8. júlí k<- 2 e. h.
Synlr hlns látna.
TUGAVEIKIBROÐIR
Framhald af bls. 1.
Jóliann Þorkelsson héraðslækn-
ir saigði í viðtaiii við Timann í
kvöld, að að undanförnu hefði
verið í meira lagi um umgangs-
Pest á Akureyri og nágnemni, og
hefði sú pest lýst sér þannig að
fóik væri með beinwer'ki, háls-
bólgu og hita, og í sumum tiilfell-
um niðurgang. Væri búið að sendá
12 sýnisiborn frá þessu fólk-i tií
rannsóknar að Keklum, og væri
niðúrstöðu rannsóknarinin'ar að
vænta á morgun. Þessi umgam,gs-
pest hefur lýst sér með sama
hælti og veikin hjá fólkint, sem
staðfest hefur verið að hafi féng-
ið taugaveiikibróður. Jóhann sagði
að vel yrði fylgzt mieð nýjum til-
fellum, en alltaf tæki þrjá daga
að rannsaka og rækta sýnishom
sem tekin væru, og fá staðfest-
ingu á því, hvort um taugaveiki-
bróður væri að ræða, eða ekki.
Ágást Þorleifsson dýra'lxekinir á
Akureyri, s-agði í viðtali við Tím
ann í dag, að ástandið á Rúts-
stöðum væri mjög slæmt. Fólkið
þar þyrfti að mjólka kýrnar sem
eftir lifð-u O'g hella niður mjólk-
inni, auk þess sem hafa yrði grip
ina inni, oig nú væri mikill hit!
fyrir norðan. Mætti segja að
þetta væri algjör martröð fyrir
fóLkið á bænum, auk þess sem
hætta væri á enn meiri sýkingu.
Ágiúst sagði að hestur hefði drep-
izt á Akureyri á dogunum; heíði
taugaveikibróður-sýkili ræktazt úr
honum. Ilestur þessi át hænsna-
fóður, en hann gekk í giroiugu
við hæ-nsinahús á Akureyri. Ekki
er víst að dauðaorsö'k hestsins
hafi verið taugaveikibróðir, en
allavega þá fannst sýkillinn í inn
yiflum hans.
HÁMARKSHRAÐI
Framhald af bls. 12.
ráöuneytið ákveðið, að frá 5. þ.m.
verði hámarkshraði á Reykjanes-
braut frá vegamótum við Krísu-
víkurveg að vegamótum við Hafna
veg (flugvállarveg) hækkaður úr
60 km. á klst. í 70 km. á klst.
fyrir öll ökutæki. önnur en bif-
reiðar, sem draga tengi- eða festi-
vagna.
Að öðru leyti gilda áfram ó-
breytt ákvæði um hámarkshraða,
sem sett voru vegna gildistöku
hægri umferðar 26. maí s.l.“
Blaðið vill minna á, að há-
markshraði á ‘ðrum vegum breyt-
ist ekki, þar er nú 60 km. há-
markshraði, nema á nokkrum
vegaköflum í nánd þéttbýlisstaða,
þar er fimmtíu kílómetra há-
markshraði. Er sérstök ástæða til
að minna ökumenn á þessi hraða
takmörk nú þegar búast má við
að sumarferðir fari að hefjast fyr-
ir alvöru. Munið því að hraða-
mælisnálin má ekki fara upp fyr-
ir 60, nema á Keflavíkurvegin-
um.
HLYINDI
Framhald af bls. 1.
Mikill fjöldi Evrópubúa leita
nú til stranda og baðstaða und-
an þessum þja'kandi hita og er
þar víð’a þröngt á þingi þessa
dagana.
Varla sást skýhnoðri yfir land
inu í dag og fékk sólin nú loks
ins að njóta sín almennilega
enda stóð ekki á áran.grinum.
Á þrem stöðum á landinu miæld
nst 19 gráður í dag, á Þing
völlum. Kirkj'Uibæj'arklaustri og
Sauðárkróki. Mjög víða var 15
—18 stiga hiti inn tiil landsins
og hvergi fór hitinn niður fyrir
tíu stig. Minnstur hiti var í
Grímsey og á Dalatanga eða 10
stig. Á hálendisslóðum var
einnig mjög heitt í dag, þann
ig mældist á HveravöHum 15
stig, í JökuLheimum 18 stig og
á Grímsstöðum á FjÖÍiLum 17
stig. í heild má segja að þegar
tekið er til landsins alLs sé
þetta heitasli d'agur á árinu til
þessa.
Að sögn veðurstofunnar mun
góðviðrið og sólskinið haldast á
morgun og hitastig er áætlað
svipað. Óhætt er að ráð-
leggja þcim, sem haft hafa í
hyggju að bregð'a sér í ferða
lag um helgina, að leggja ó-
trauðir upip í ferðina, þar eð
veðurstoíumenn sj'á enga
ástæðu til annars en bjartsýni
og sjá ekkert illviðri í nánd,
svo búast má við góðu helgar
veðri um land allt.
ÍTALSKA STJÓRNIN
Framhalcl af bls 3
var fram á að þingnefnd yrði
iátin rannsaka starfsemi leyni-
þjónustunnar, þar sem upp
komst um mikið kynferðis-
hneyksli innan hennar. Sam-
bandsstjórnin hundsaði tillög-
ur stjórnarandstöðunnar og
hélt því fram, að slík rann-
sókn myndi leiða í Ijós hern-
aðarleg leyndarmál.
Minnihlutastjórn Kristilegra
demókrata undir forystu Leo-
nes tók við stjórnartaumunum
25. júní s.l. og gert var ráð
fyrir að hún yrði a.m.k. föst
í sessi fram á haustið.
Hneykslið kom í Ijós við
mannaskipti í yfirstjórn Cara-
binieri deiLdar ítölsku Rikis
lögreglunnar (Leyniþjónust-
unnar) og, við dauða Renzo
Roceo ofursta, sem fannst skot
inn til bana í íbúð sinni í
Róm í síðustu viku. Læknar
hafa lýst því. yfir að hér hafi
verið um sjálfsmorð að ræða,
en ríkisrannsóknari hefur samt
sem áður krafðizt réttarrann-
sóknar málinu
Viðbúið er nú að jafnaðar-
menn og repúblikanar leggi
nú fast að ríkisstjórninni að
láta fara fram rannsókn á
starfsemi leyniþjónustunnar
og draga úr pólitísku valdi
hennar, og láti stjórnin ekki
að vilja þeirra, munu þeir lík-
lega samþykkja vantrauststil-
lögu á stjórnina. Á morgun
mun Leone forsætisráðherra
gera í fyrsta skipti grein fyrir
stjórnarstefnu hinnar nýju rík-
isstjórnar, svo búast má við
að dragi til tíðinda að því
loknu.
Mönnum gremst það mjög í
Ítalíu að nú fyrir stuttu tók
maður við næst æðsta embætti
innan leyniþjónustunnar, Gio-
vanni Celi að nafni, en hann
er einn þeirra embættismanna,
sem ásakaður hefur verið fyr-
ir að vilja breyta leyniþjón-
ustunni í pólitíska „áhrifa-
grúppu.“
Samkvæmt opinberri rann-
sóknarskýrslu hefur leyniþjón-
ustan á undanförnum tíu árum
fylgzt nákvæmlega með einka-
lífi og kynferðislífi þúsunda
ítalskra stjórnmálamanna, iðju
höllda, listamanna og meira að
segja biskupa og þykir miörg-
um of langt gengið í þessarri
viðleitni.
En nú beinist áhugi manna
að morðinu á Roccas ofursta.
Hann stjórnaði þeirri deild
leyniþjónustunnar, sem sér um
efnahags- og iðnaðarmál, en
honum var sagt upp í fyrra
vegna Jineykslismálsins. Hinn
óháði róttæki þingmaður And-
erlini krafðist í gær á þingi
að látin yrði fara fram opin-
ber rannsókn á morði ofurst-
ans og skýring yrði gefin á
því, hvort sá orðrómur að full-
trúar leyniþjónustunnar hefðu
verið á morðstaðnum áður en
lögreglan kom þangað, hefði
við einhver rök að styðjast eða
ekki.
DRENGUR DRUKKNAR
Framhald af bls. 1.
ur, Halldór Jónsson, kastaðl
sér þegar í hylinn og kafaði
/ eftir drengnum, sem lá á botn-
inum. Náði hann drenignum
strax upp og björguirartilrauTi
ir voru strax hafnar. Bráðlega
kom sjúkrabíll á vettvang og
var lífgU'nartiIra'Unum haldið
á'fram á leiðinni á Slysavarð-
stofuna, en ekki tókst að koma
drengnum til mieðvitundar.
Hyluriinn, sem drengurinn
féll í, er tæpir tveir metrar á
dýpt. Nokkuð hár klettur slút
ir yfir hylinn og datt barnið
of'an af honum. f hylnum er
svolítið straumikast, en ekki
þuniguir strauimur.
HUSBRUNI
Framhald af bls. 1.
aðstoðaði hana við að komast út.
Urðu þær að faira gegnum brenn-
andi forstofuna og nóðu að kom-
ast niður uppganginn á síðustu
S'tundu. Mátti ekki á tæpara
standa og brenndist gamla konan
nokkuð á höndum og í andliti og
liggur nú á sjúkrahúsi. Hjördís
brenndist einnig á höfði.
Risíbúðin er klædd imnan timbri
og trétexi og breidd'ist eldurinn
mjög fljótlega út, enda voru flest
k’ gluggar opnir. Allt innan þilja
fuðraði upp áður en slökkviliðinu
tókst að hefta útbreiðslu eldsins.
FERÐAMENN
\ ' \
Smurt brauð — Samlokur — Öl, gosdrykkir — Kaffi —
Sælgæti o. fl. að FERSTIKLU allan sólarhringinn.
9 tBESai