Tíminn - 20.07.1968, Qupperneq 2
2
TIMINN
LAUGARDAGUR 20. júlí 1968.
Bæjarfðgeti í
Neskaupstað
Að tillögu dómsmálaráðiherra,
hefur forseti íslands hinn 4. þ.m.
veitt Sigurði Egilssyni, héraðs-
dómslögmanni, bæjarfógetaem-
bættið í Neskaupstað frá 15. ág.
n.k. að telja.
M hefur forseti íslands hinn
Framhald a bls. 14
Moskva herðir taugastríð
Bresnév óskar eftir fundi
NTB-Prag og Moskvu, föstudag.
ir Moskvublaðið Pravda sagði frá
því í dag, að fundizt hefðu ame-
rískar vopnabirgðir í Tékkósló-
vakíu, skammt frá landamærum
Vestur-Þýzkalands, og væru vopn
in ætluð uppreisnaröflum í land-
inu. Blaðið hefur þessar upplýs-
ingar eftir blaðamönnum í Prag.
f annarri grein sagði Pravda,
að sovézk yfirvöld hefðu nú und
ir höndum leynilega ráðagerð
Bandaríkjamanna um hugmynda-
fræðiiegan áróðursrekstur í aust
an-tjalds löndum, einkum Austur
Hluti af tolðröSinni hjá Fosskraft £ gær, þegar auglýst var eftir hand löngurum,
(Tímamynd GH)
Tugir manna sækja nú um
hvert starf sem losnar
KJ—Reykjavík, föstudag.
Atvinnuleysi hefur mikið gert
vart við sig í sumar, og kemur
það einkum fram í því að ungling
ar, sem stunda skólanám hafa ekki
fengið vinnu eða þá lélegri vinnu
en á undanförnum árum. Þegar
auglýst er eftir vinnu, koma tugir
umsækjenda, eins og t. d. í dag
hjá Fosskraft. Verkamannafélagið
Dagsbrún í Reykjavík, hefur sent
frá sér ályktun, þar sem bent er
á, hve alvarlegt þetta atvinnuleysi
er fyrir þjóðarheildina.
í dag var auglýst eftir nokkr
um handlöngurum til starfa hjá
Fosskraft í Búrfelli. Á þeim tíma
sem væntanlegir umsækjendur
áttu að mæta, voru samankomnir
við ráðningarskrifstofu Fosskraft
50—60 menn, en aðeins fáir voru
ráðnir. Lýsir þetta betur en
margt annað ástandinu í atvinnu
málum. í þessum hóp voru bæði
skólapiltar og verkamenn.
Ályktunin, sem Dagsbrún gerði
um atvinnumálin fer í heild hér
á eftir:
„Fundur í trúnaðarráði Verka
mannafélagsins Dagsbrúnar, hald
SÍLD ÚR NORÐURHAFI
LANDAÐ í REYKJAVÍK
OÓ — Reykjavík, föstudag
Sfldarflutningaiskipið Sildin
kom síðdegis í dag til Reykja
víkúr með fullfermi, 3100 lest-
ir. Var þetta fyrsta ferð skips-
ins mcð sfldarfarm á þessari
vertíð. Fyrsta síldarflutninga
skipið sem losaði í ár, er Haf-
örninn, sem landaði á Siglu-
firði. Er Haförninn nú aftur á
leið á miðin suður af Svalbarða
og kemur þangað síðdegis á
morgun.
Guðni Jónsson, skipstjóri á
Síldinni, sagði Tímanum í dag,
að túrinn hafi tekið þrettán
daga. Á miðin er fimm daga
sigling frá Reykjavik. Síldin
beið einn dag á miðunum eftir
þvi að Haförninn fengi ful'l
fermi og tvo dagia tók að ferma
skipið. Þennan farm tók flutn-
ingaskipið úr um 20 sildveiði-
skipum. Voru veiðiskipin þá
dreifð um 20 fermíbia svæði, en
misjafnt er, hve fíotinn dreif-
ist við síldveiðarnar í Norður
hafi. Veður var ágætt á miðun-
um þegar síldintví var umskipað
og gekk vfci að ferma Sildina.
Guðni sagði, að mikil síld
virtist vera á Jjessum slóðum,
en hún'væri stygg og erfitt að
ná henni. Hefur síldin verið á
hreyfingu í suðurátt undanfar-
ið. Á þessum slóðum er fjöldi
rússneskra síldveiðiskipa og
mörg móðurskip, sem síldin er
söltuð um borð í. Einnig er
þarna talsvert af norskum skip
um, veiðiskipum og móðurskip
um. I
Flutningaskipið Síldin er í
Framhald á bls' 15
inn 18. júlí 1968, ályktar eftirfar
andi:
Um nokkurn tíma hefur verúleg
ur samdráttur verið í íslenzku at-
vinnulífi og fjárhagskreppa. Af
þessum sökum varð hér tilfinnan
legt atvinnuleysi á s. 1. vetri, í
fyrsta sinn um fjölda ára, og nú
í miðjum júlímánuði, er fjöldi
skólafólks, sem enga sumarvinnu
hefur fengið, og nokkuð ber einnig
á atvinnuleysi meðal almenns
verkafólks. Slíkt ástand hefur ver
ið óþekkt á þessum árstíma hér
um slóðir í áratugi. Fundurinn tel
ur alvarlega hættu á, að ungling
ar frá efnaminni heimilum verði
að hætta námi, ef þeir fá ekki
atvinnu yfir sjumarmánuðina, en
þá blasir við su geigvænlega þró
un þessara mála, að framhalds
menntun verði forréttindi efna
meiri stétta þjóðfélagsins.
Eins og nú horfir í atvinnu- og
efnahagsmálum, er ekld annað
sýnna en að alvarlegt atvinnuleysi
Framhaid á bis 15
Verið að landa úr Síldinni
Reykjavíkurhöfn í gærkvöldi.
(Tímamynd Gunnar)
Þýzkalandi og Tékkóslóvakíu. I
ráðagerð þessari fælist einnig á-
form um innrás í Tékköslóvakíu.
★ Á fundi miðstjómar tékkneska
kommúnistaflokksins í dag ríkti
algjör samstaða um stjórnarstefnu
hinna nýju leiðtoga. Fundurinn
stóð í rúma fjóra tíma og allir
hinir 27 ræðumenn lýstu yfir
stuðningi sínum við Dubcek, en
fyrir fundinn þótti víst að nokkr
ar óánægjuraddir myndu heyrast.
★ Stjórn sovézka kommúnista-
flokksins sendi forsætisnefnd
tékkneska flokksins bréf í dag,
að þar sem lagt er til að flokks-
Ieiðtogamir, þeir Leonid Bresnev
og Alexander Dubcek, komi sam-
an til viðræðna í Moskvu, Kiev
eða smábænum Lvov„ sem er á
landamærum ríkjanna, ekki
seinna en 22.—23. júlí Sagt er
í Moskvu, að tilmæli þessi eigi
sér ekki fordæmi í sögu komm-
únistaríkjanna. í bréfinu kemur
fram, að Sovétleiðtogamir vilji
ekki halda fundinn á tékknesku
umráðasvæði. Ekki hefur enn
borizt svar frá tékkneskum ráða-
mönnum.
★ Af hálfu^ ameríska utanríkis-
ráðuneytisins var fullyrðingum
Pravda um ameríska íhlutun í
Tékkóslóvakíu lýst sem „uppspuna
frá róturn". Einnig lýsti talsmað-
ur NATO í Brussel því yfir, að
það væri hrein fjarsæða að NATO
hefði veitt neðanjarðarhreyfingu
í Tékkóslóvakíu aðstoð, eins og
Pravda fullyrðir í dag.
FULLYRÐINGAR PRAVDA
Málgagn sovézka kommúnista-
flokksins, Moskvublaðið Pravda,
fullyrti í dag, að tékkneska örygg
isþjónustan hefði fundið miklar
vopnabirgðir í Tékkóslóvakíu,
mitt á milli bæjanna Heb og
Karlovy Vary ekki langt frá landa
mœrum Vestur-Þýzkalands. Vopn-
in eru amerísk að gerð, og hefur
að sögn Pravda, verið smyglað
inn í landið frá Vestur-Þýzka-
landi, ætluð upperisnaröflunum
í Tékkóslóvakíu. Pravda hefur
þetta eftir heimildum sovézkra
blaðamanna í Prag, en þeir byggja
fregnir þessar af frásögnum sjón
arvotta í héraðinu,' þar sem vopn-
in eiga að hafa fundizt.
Pravda hefur það eftir tékk-
neskum örygglsþjónustumanni, að
vopnin séu hentuig fyrir smœrri
uppreisnarhópa.
f annarri grein sagði Pravda
frá því, að sovézk yfirvöld hefðu
undir höndum leynilega ameríska
ráðagerð, þar sem gert er ráð
fyrir auknum amerískum áhrifum
og stuðningi við uppreisnaröfl í
austan-tjaldslöndunum, einkum
Tékkóslóvakíu og Austur-Þýzka-
landi. í ráðagerð þessari er geng
ið út frá þvi vísu, að meirihluti
tékknesku þjóðarinnar muni vera
mótsnúinn árás af hálfu Vestur-
veldanna, en viss hluti íbúamna
myndi láta hana afskiptalausa og
jafnvel hafa samúð með Vestur-
veldunum. Einnig kemur fram í
ráðagerðinni að njósnarar CIA
reyni nú að komast að raun um,
hvað uppreismaröflin í Tékkó-
slóvakíu hafi komdð sér vel fyrir
í öryggisþjónustu, gagnnjósna-
deild hersins og öðrum slíkum
stofnunum í Tékkóslóvakíu.
Þessar tvær athyglisverðu full-
yrðingar Pravda munu eiga að
renna stoðum undir þá staðhæf-
ingu sovézkra leiðtoga, að heims
Framnaio a bls. 14.