Tíminn - 20.07.1968, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 20. júlí 1968.
TÍMINN
15
SÍLD
Framhald at bls, 2.
eigu Kletts h.f. Er þetta þriðja
sumarið sem skipið stund'ar
síldarflutninga af fjarlœgum
miðum til Reykjavíkur. í fyrra
flutti Síldin um 30 þúsund lest
ir síldar til Reykjavikur. Skipið
fer aftur áleiðis á sömu slóðir
á sunnudagsmorgun.
Lítil síldveiði var í d'ag. Vit-
að er um sjö skip sem fengu
afla, en á miðunum eru nú um
50 síldveiðiskip.
Um hádegi í dag var búið að
salta í 2700 tunnur um borð í
söltunarskipinu, sem Valtýr Þor
steinsson hefur á leigu. Leggur
það af stað til Raufiarhafnar
næstu daga, og heldur síðan
aftur á miðin. Þessi tilraun Val
týs hefur gengið vonum betur
til þessa og ef heldur sem horf-
ir, má búast við að fleiri síid-
arsaltendur geri út söltunarskip
næsta sumar. Síldin suður af
Svalbarða er stór og feit og
ágæt tii söltunar.
vinnurekendur hafi skyld-
um að gegna gagnvart þeim,
enda hafa þessir verkamenn
í flestum tilvikum eytt
beztu árum ævi sinnar í
þjónustu þeirra. Atvinnu-
rekendur geta því ekki
fleygt verkamönnum frá
sér eins og notuðu verkfæri,
þótt starfsorka þeirra sé eitt
hvað farin að minnka.
Þessi nýja stefna atvinnu
rekend'a gagnvart öldruðum
verkamönnum knýr á um, að
lífeyrissjóðsmál verkamanna
verði tekin föstum tökum til
úrlausnar, og því skorar
fundurinn á stjórnarvöld að
hraða sem rnest undirbún
ingi og framkvæmd laga um
lífeyrissjóð fyrir aHa lands
menn.
Jafnframt heitir fundurinn
á almennu verkalýðsfélögin
að taka þessi mál til með
ferðar, því að lífeyrissjióður
fyrir verkafólk þarf nú að
verða í fremstu röð baráttu
má'la þessara félaga."
SÆKJA UM
Pramhaia aí bls. 2.
verði hér á haustmánuðum eða!
fyrri hluta næsta vetrar, og því
skorar fundurinn á ríkisstjórn og;
aðra opinbera aðila, sem hafa á
hendi stjórn þessara mála, að gera
í tæka tíð ráðstafanir til að koma
í veg fyrir atvinnuleysi og tryggja
næga atvinnu fyrir alla. Auk sér
stakra ráðstafana til atvinnuaukn
ingar telur fundurinn nauðisynlegt,
að taka verði til gagngerðar end
urskoðunar þá meginstefnu í efna
hags- og atvinnumálum, sem hér
hefur ^verið ráðandi á undanförn
um árum, og að sú endurskoðun
verði.að hafa að markmiði atvinnu
öryggi 'óg vaxandi kaupmátt al-
mennings, því að þetta tvennt er
ein jaðalforsénda fyrir hagsæld
þjöðfélagsins.“
BJARNI FRÁ HOFTEIGI
Framhald af bls. 16
tíu og sex ára að aldri.
'Hann var í hópi fremstu
bókmenntagagnrýnenda hér
á landi frá 1950 og síðan, og
birtist bókmenntagagnrýni
hans einkum í Þjóðviljanum
, á árunum 1950—57, er hann
starfaði þar sem blaðamað
ur.
Bjarni fæddist 25. apríl
1922 á Egilsstöðum í Vopna
firði. Foreldrar hans voru
bjónin Benedikt Gíslason og
Geirþrúður Bjarnadóttir.
Bjarni varð stúdent frá MA
vorið 1944, en stundaði síð
an nám í bókmenntum við
háskólann í Uppsölum árim
1945—47. Bjarni var starfs
maður hjá Bókaútgáfu Menn
ingarsjóðs frá 1958. Eftir
Bjarna liggja þessi rit: Þjóð
in og kylfan, bæklingur,
1949. Sú kemur tíð, greina
safn 1953. Þorsteinn Erlings
sön, æyisaga, 1958 Sjálf-
stæði íslands 1962. Auk
þessa skrifaði Bjarni'nokkur
útvarpsleikrit.
Bjarni var kvæntur Öddu
Báru Sigfúsdóttur.
DAGSBRÚN
Framhald af bls. 16
félagið sjái fyrir fjárhags
legum þörfum þeirra, en
eins og nú er ástatt í þeim
efnum, vantar mikið á, að
það sé gert. Það vita allir,
að ellilífeyrir Almannatrygg
inganna er nú fjarri því að
nægja mönnum til framfær
is, en verkamenn hafa ekki
að öðru að hverfa.
Meðan þjóðfélagið ekki
sér öldruðu verkamönnum
fyrir sómasamlegum lífeyrl,
verður að líta svo á, að at-
I Þ R O T T I R
Framhald af bls. 13.
heyra á þeim en að þeir murii
senda sitt sterkasta lið til
íslands.
Margvíslegur misskilningur
kemur fram í greinunum um
fsland, t.d. er birt miynd af
Melavellinum og sagt, að sá
völlur sé leikvöllur Vals og
þar muni leikurinn fara fram.
Þá halda Portúgalar, að á ís-
landi búi um eitt hundrað þús.
manns og að flest eldfjöllin
á íslandi séu virk og óttast,
að þeir hitti á gjósandi eld-
fjöll hér.
Portúgölsku leikmennirnir
létu þess getið í viðalinp, að
þeir hlökkuðu til að leika í
sólskini að kvöldi til, en slíkt
hafa þeir ekki gert áður. (Hér
má skjóta inn í, að tæplega
fer leikurinn fram í miðri viku,
ef leikið verður í september,
en Valsmenn hafa þegar skrif
að til Benfica og farið fram
á,. að leiknum verði flýtt).
Að lokum má geta þess, að
í blaðinu „A Bola“ eru rakin
úrslit í leikjum Vals í Evrópu
bikarkeppninni til þessa —
gegn Standard Liege, Jeunesse
De Esch og Vasas — og birt
eru nöfn Valsleikmannanna,
sem léku með liðinu 1965—66.
A VfDAVANGI
Framhald af bls. 5
heyra álit íslenzkra togaraút-
gerðarmanna á þessum breyting
um, sem nú eiga sér stað í Bret
landi, og hvor^ þeir teldu að
þar hefði verið gefið gott for-
dæmi sem okkur væri hollt að
fylgjast með og fara eftir.
í HÉIMSFRÉTTUM
Framhald af 8. síðu.
ekki þröngvað á Saigon-stjórn
ina. Afstaða Thieu og fylgi-
sveina hans er enn sém fyrr,
að þ j óðf relsishreyf ingin sé
nokkuð, sem Hanoi-stjórnin
hafi búið til, og njóti einskis
fylgis meðal alþýðunnar í S-
Víetnam. Eigi hreyfingin því
enga aðild að fá að viðræðum
um frið í Vietnam, né stjórnar-
myndun að friðarsamningi
loknum. Þessi afstaða Saigon
stjórnarinnar mun reynast
Bandaríkjastjórn erfið, þegar
raunverulegir samningar hefj-
ast.
Á FERÐ SINNI um Suður-
Víetnam lagði Clifford hvað
eftir annað áherzlu á, að hlut-
verk hers Saigon-stjórnar ætti
að auka, en hlutverk banda-
rísks herliðs að minnka. Þetta
hefur ýtt undir ótta ráða-
manna í Saigon um, að Banda-
ríkjamenn semji frið í Víet-
nam á grundvelli einhvers kon
ar stjórnaraðildar þjóðfrelsis-
fylkingarinnar. Herma fréttir,
að sums staðar í Saigon sé ótt-
inn við þetta svo ríkur, að
auðugir Víetnamar séu farnir
að flytjast til annarra landa
með stríðsgróða sinn.
Lítillar breytingar er að
vænta í Víetnammálinu á
fundinum í Honolulu. Er raun
ar við því að búast að helztu
viðburðirnir í Víetnammálinu
á næstunni verði á vígvellin-
um, þótt allir raunsæir menn
viðurkenni nú að þar verði sig-
ur aldrei unninn.
Elías Jónsson.
WALLACE ....
Framhaid aí bls. 9.
slitum kosninganna. Það gerði
því baráttumönnum beggja
flokka kleift að halda fram
með réttu, að sérhvert atkvæði
sem á Wallace félli í kosning-
unum, væri glatað atkvæði.
í öðru lagi yrði þetta repu-
blikönum í suðurfylkjunum —
en þar er baráitta þeixra fyrir
kosn. til fulltrúadeildarinnar
hvað áköfust — öflug hvatn-
ing til þess að tryggja sínum
frambjóðanda sem allra flest
atkvæði, jafnvel í þeim fylkj-
um, þar sem Wallace virðist
nú nálega viss um að ná meiri-
hluta.
í þriðja lagi fengi þetta
demókrötum í hendur öfluga
röksemd til þess að beita við
óánægða flokksmenn, eða þá,
sem líklegastir eru til að verða
óánægðir með val frambjóð-
andans, hvort sem McCarthy
eða Humphrey verður fyrir val
inu. Minni likur eru þá til, að
þeir, sem undir verða á flokks-
þinginu, taki þann kost
að vitja heima á kosningadag-
inn ef þeir vita fyrirfram, að
hvert einasta atkvæði geti ráð-
ið úrslitum að þessu sinni.
MEST er þó um það vert,
að slíkt samkomulag færði kjós
endum í landinu heim sann-
inn um, að stjórnmálaflokkarn
ir séu þess um komnir að láta
hagsmuni þjóðari'nnar sitja í
fyrirrúmi með því að ganga
fyrirfram frá samkomulagi,
sem tryggi, að forsetinn sé
kjörinn í almennum kosning-
um og komi í veg fyrir, að
æðsta embætti í landinu sé
selt George Wallace að veði.
Verði ekki að þessu ráði
horfið geta afleiðingarnar orð
ið hinar hörmulegustu. Þá gæti
sagan frá 1876 sem bezt endur-
tekið sig, hætta væri á lang-
varandi óreiðu og óvissu í
stjórnmálunum, kviksögurnar
gengju fjöllunum hærra mán-
uð eftir mánuð, ýmis konar
samsæri yrðu gerð og hvers
konar óhreinleg hrossakaup
I Mikkd Úrval Hljíimsveita I
120 Ara revnslaI
Ponic og Einar, Ernir,
Astro og Helga. Bendix,
Solo, Sextett Jóns Sig.,
Tríó. Kátir félagar —
Stuðlar. Tónar og Asa.
Mono Stereo. Hljóm-
sveit Hauks Mortens, —
Geislar frá Akureyri.
Pétur GuSjónsson.
færu fram. Þetta yrði opin-
bert hneyksli sem auðveldlega
gæti rutt um þeim stoðum al-
menns trausts, sem hið borg-
aralega þjóðfélag okkar á að
hvíla á, en eru þegar farnar
að láta á sjá.
laugaras
Simar 32076 og 38150
Ævintýramaðurinn
Eddy Chapman
(The Triple Cross)
tslenzkur textl.
Endursýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
slmi 22140
Fréttasnatinn
(Press for time)
Sprenghlægileg gamanmynd f
iitum frá Rank. Vinsælasti gam
anleikari Breta, Norman Wis-
dom leikur aðalhlutverkið og
hann samdi einnig kvikmynda
handritið ásamt Eddie Leslie.
fslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9
18936
Porgy og Bess
Hin heimsfræga stórmynd i Ut
um og Cinema Scope með
Sidney Poitier
Endursýnd aðeins í dag
kl. 5 og 9
Slnri' 11544
Elsku Jón
íslenzkur texti
Stórbrotin og djörf sænsk ást
arlífsmynd.
Jar) Kulle
Christine Scollin
Bönnuð yngri en 16 ára
Endursýnd kL 5 og 9.
síðustu sýningar.
T ónabíó
Slm 31182
Hættuleg sendiför
(Ambucb Bay)
Hörkuspennandi ný amerjsk
mynd I Utum.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5 og 9
Bönnuð börnum innan 16 ára
MMFNmwm
Lokað \7egna sumarleyfa
Síml 114 75
Hugsanalesarinn
(The Misadventures of Merlin
Jones).
MPM
Walt Disney-gamanmynd með
íslenzkum texta.
Sýnd kl. 5 og 9.
Sími 50249.
Fólskuleg morð
Spennandi sakamálamynd eft-
ir Agatha Christy.
íslenzkur téxti.
Sýnd kl. 5 og 9
Sinu L1384
Orustan mikla
Stórfengleg og mjög spenn-
andi ný amerísk stórmynd i
litum. og Cinemascope.
ísl. texti.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
^ÆJARBíP
Slmi 40184
Fórnarlamb
safnarans
Spennandi ensk-amerísk kvik
mynd.
Terency Stamp
Samatha Eggar
íslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 9
Hreykslið í kvenna-
skólanum
bráðfyndin og skemmtileg
þýzk gamanmynd
sýnd kl. 5 og 7
41985
Firebalí 500
íslenzkur texti.
Hörkuspennandl, ný
kappakstursmynd i litum
Panavision,
Sýnd kl. 5,15 og 9
Bönnuð börnum innan 12