Tíminn - 20.07.1968, Qupperneq 6
f
6
ÚTBOD
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar óskar eftir
tilboðum í frágang lóða við 23 einbýlishús í
Breiðholtshverfi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu F.B., Lág-
múla 9, frá bl. 9,00 miðvikudaginn 24. þ.m. gegn
1000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað mánudaginn
29. júlí kl. 10,00.
Framkvæmdanefnd byggingaáætlunar.
ÚTBOD
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar óskar eftir
tilboðum í málningu utanhúss á steinflötum sex
fjölbýlishúsa í Breiðholti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu F.B., Lág-
múla 9, frá kl. 9,00 miðvikudaginn 24. þ.m. gegn
1000 kr. skilatryggingu. f
Tilboð verða opnuð á sama stáð þriðjudaginn
6. ágúst M. 10,00 f.h.
Framkvæmdanefnd byggingaáætlunar.
Sölusambands ísl. fiskframleiðenda, verður hald-
inn í Sigtúni, fimmtudaginn 8. ágúst 1968,
kl. 10 f.h.
DAGSKRÁ:
1. Formaður stjórnar setur fundinn.
2. Kosning fundarstjóra, ritara og kjörbréfa-
néfndar.
3. Skýrsla stjórnarinnar fyrir árið 1967.
4. Reikningar Sölusambandsins fyrir árið 1967.
5. Önnur mál.
6. Kosning stjórnar og endurskoðenda.
Kðpavogsbúar!
Sumardvalarheimilið í Lækjarbotntim verður til
sýnis fyrir almenning næstkomandi sunnudag
21. júlí frá kl. 3—10. Bílferð verður frá félags-
heimilinu kl. 3. Kaffiveitingar. Ágóðinn rennur
til sumardvalarheimilisins.
Verzlunarhúsnæði
80 ferm. til leigu að Ármúla 7.
S M Y R I L L, Ármúla 7. Sími 12260.
TÍMINN
LAUGARDAGUR 20. jálí 196*.
Landsmót lúðrasveita
á Siglufirði
Dagana 20.—30. júní s.l. var 6.
landsmót SÍL haldið á Siglufirði,
og sóttu mótið 11 lúðrasveitir.
Flestar lúðrasveitirnar komu til
Siglufjarðar á föstudagskvöld.
Á laugardagsmorgun var hald-
in samæfing allra sveitanna í
stóru mjölskemmu S.R. og hefur
samæfing aldrei verið haldin áð-
ur í svo stóru húsi.
Kl. 14 setti formaður SÍL, Stíg-
ur Herlufsen, landsmótið ,við
barnaskólann en strax á eftir tók
kynnir mótsins Júlíus Júlíusson
við stjórn í stað Jóns Múla Árna-
sonar, sem af óviðráðanlegum á-
stæðum gat ekki komið eins og
ráðgert hafði verið. Lúðrasveit
Siglufjarðar lék þá eitt lag: í
þriðja veldi, eftir stjórnandann,
Geirharð Schmidt Valtýsson.
Þá hófst leikur lúðrasveitanna
og léku þær í þessari röð: Lúðra-
sveit Akureyrar, stjórnandi Jan
Kisa. Lúðrasveit Vestmannaeyja,
stjórnandi Martin Hunger. Lúðra-
sveit verkalýðsins, Reykjavík,
stjórnandi Ólafur Kristjánsson.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar, stjórn
andi Hans Ploder Franzson. Lúðra
sveitin Svanur, Reykjavík, stjórn
andi Jón Sigurðsson. Lúðrasveit
Sandgerðis og Lúðrasveit Kefla-
víkur, sem léku saman, stjórn-
andi Lárus Sveinsson. Lúðrasveit
Húsavíkur, stjórnandi Reynir
Jónasson. Lúðrasveit Selfoss,
stjórnandi Ásgeir Sigurðsson.
Lúðrasveit Neskaupstaðar, stjórn
andi Haraldur Guðmundsson, og
að lokum léku allar lúðrasveiþrn
ar saman nokkur lög undir stjjórn
Geirh. Schm. Valtýssonar, Jan
Kisa, Jóns Sigurðssonar og Karls
O. Runólfsonar.
Alls munu um 200 menn hafa
skipað þessa Lúðrasveit íslands
1968.
Um kvöldið voru allir lúðra-
sveitarmenn og fylgdarlið þeirra
í boði Lúðrasveitar Siglufjarðar á
músikskemmtun, sem lúðra-
sveitin hélt í Nýja bíói.
Þessi skemmtun vakti mikla
hrifningu, enda gafst þarna á að
hlýða ágæt sýnishorn af því, sem
siglfirzkt músíkáhugafólk er að
fást við, og auk þess var sviðs-
búnaður sérstæður og skemmtileg
lúðrasveitinni léku á trompetana
þeir Geirh. Schmidt Valtýsson,
Hlynur Óskarsson og Sigurður
Hlöðversson.
Þá höfðu þeir Júlíus Júlíusson,
Jónas Tryggvason og Baldvin Júl-
íusson miklum hlutverkum að
gegna í þessari skemmtun og
leystu þau af hendi með sóma og
prýði.
Hugmyndir að efni og sviðs-
mynd áttu þeir Hafliði Guðmunds-
son og Geirharður Valtýsson, og
sá Hafliði einnig um málningu
sviðstjaldsins.
Skemmtun þessi heppnaðist
mjög vel og réði þar mestu um
ágæt samstarfsgleði alls hins
mikla fjölda, sem að skemmtiatr-
iðum stóð og biður Lúðrasveit
Siglufjarðar fyrir kærar þakkir til
þeirra allra.
Aðalfundur Sambands ísl. lúðra
sveita var haldinn á sunnudag. f
sambandsstjórn voru kosnir: for
maður Reynir Guðnason, Reykja-
vík, ritari Jónas Magnússon Sel-
fossi og gjaldkeri Ragnar Eðvalds
son, Reykjavík.
Bæjarstjórn Siglufjarðar bauð
þátttakendum til kaffidrykkju að
Hótel Höfn eftir hádegi. Þar
ávarpaði Stefán Friðbjarnarson,
bæjarstjóri gestina og síðan fluttu
margir ávörp og hamingjuóskir til
Siglufjarðarbæjar og þakkir, og
einnig var Lúðrasveit Siglufjarð-
ar þökkuð skipulagning mótsins
og henni færðar skilnaðargjafir.
Að síðustu mælti Stígur Herluf
sen nokkur ávarpsorð og sagði 6.
landsmóti Sambands íslenzkra
lúðrasveita slitið.
Veðrið var svo gott sem helzt
varð á kosið föstudag og laugar-
dag, og réði það mestu um hversu
yfirbragð mótsins allt varð á-
nægjulegt, en á sunnudag var
veðri brugðið til austanáttar, kom
inn allhvass vindur og fór að rigna
upp úr hádeginu.
Almannarómur er að þetta hafi
verið mjög skemmtilegt og vel-
heppnað mót, lúðrasveitirnar
fluttu mörg og fjölbreytileg verk-
efni af vandvirkni og góðum leik.
Formaður Lúðrasveitar Siglu-
fjarðar er Hlynur Óskar'sson, tón-
listarkennari og í mótsstjórn auk
hans voru Einar M. Albertsson og
Kristján Sigtryggsson, en fram-
kvæmdastjóri mótsstjórnar var
Baldvin Júlíuson, rafvirki.
/
Frímerkimeð
Daníel Boone
ur.
Auk Lúðrasveitar Siglufjarðar
komu þarna fram: Karlakórinn
Vísir undir stjórn Geirh. Schmidtj
Valtýssonar, kvennakór undir
stjórn frú Silke Óskarsson, bland-
aður kvartett, sem frægur er orð-
inn fyrir ágætan söng með Visi
og nú síðast af eigin plötu, sem
nýlega er komin á markaðinn, —
hljómsveitin Gautar, sem _ lands-
þekkt er orðin, frú Silke Óskars-
son, söngkona, sem naut undir-
leiks hljómsveitar og Jóns Heimis
Sigurbjörnssonar, flautuleikg.ra,
og söngtríó — þrjár ungar . ög
efnilegar siglfirzkar stúlkur,
Anna Margrét Skarphéðinsdóttir,
Elín Gestsdóttir og Guðný
Helga Bjarnadóttir
í trompetþríleikslagi með
26. september næstkomandi
verður gefið út nýtt frímerki í
Bandaríkjunum helgað minningu
| Bandaríkjamannsins Daniels
Boone, hins nafnkunna landnema
og veiðimanns. f þessu tilefni
verða hátíðahöld þann dag í
Frankfort, Kentucky, en þar er
þessi frægi landnemi grafinn.
Verðgildi merkisins er 6 cent og
tilheyrir það seríunni American
Folklore Series.
Louis Macouillard frá San
Francisco teiknaði frímerkið,
sem verðúi- í tyeim gulum litum
méð rauðu'og, svortu. Á frímerk-
i’nu sjást náuðsýnlegustu áhöld
Daniels Boone, — riffill, púður-
horn og hnífur. Ennfremur indí-
ánaöxi, en hún minnir á það, að
Daniel Boone var tekinn 1 hóp
Shawnee indíána og höfðingi
þeirra Svarti fiskur tók hann sér
í sonar stað og ættleiddi hann.
Bakgrunnurinn er hrjúfur fjalla-
vegur, og í hann er rist nafnið
„Daniel Boone“ og fæðingarár
hans „1734“. Á veggnum hangir
plakat, sem á stendur „United
States / 6c / Postage“. Verð-
gildið er táknað með svörtum lit,
að öðru leyti er frímerkið í rauð-
um og gulum litum, og litbrigð-
um sem fara út í Ijósbrúnt.
Daniel Boone varð frægur í Ev-
rópu, er kennári einn í Kentucky
skrifaði ævisögu hans, sem kom
út í París, London og Frankfort,
Kentucky. Byron lávarður orti
einnig um hann ljóð og fleiri
rithöfundum varð hann söguefni.
Boone fæddist í Pennsylvaniu
og ólst upp í kvekaratrú. Sextán
ára gamall flutti hann með fjöl-
skyldu sinni til Norður-Carolina
og settist að við ána Yadkin.
Hann átti í erjum við Indíána og
varð mörgum þeirra að bana.
Boone fór mjög víða um fáfarnar
slóðir þar vestra, og varð þjóð-
kunnur veiðimaður. Árið 1769 var
hann foringi hóps landnema, sem
settust að í Kentucky, fyrst hvítra
manna. í þeirra hópi voru einnig
kona hans og dóttir. Boone féll
tvívegis í hendur Indíánum en
slapp heill á húfi í bæði skiptin.
Indíánar drápu son hans og bróð-
ur, og dóttir hans féll einnig í
þeirra hendur en var bjargað.
Hann barðist vi orrustunni við
Blue Licks, nálægt Lexington, þeg
ar Indíánar og frönskumælandi
Kanadamenn voru sigraðir að
fullu árið 1782.
Eftir að friður komst á gerðist
Daniel Boone landmælingamaður
yfirvald í Fayette héraði og var
fulltrúi byggðarlags síns á lög-
gjafarbinginu í Richmond Hann
var dugmikill leiðtogi Kentucky
en auðgaðist lítt sjáifur. Boone
dó nálægt St. Charles í Missouri
1820 og var þá þegar orðinn þjóð
kunn hetja.