Tíminn - 20.07.1968, Qupperneq 9

Tíminn - 20.07.1968, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 20. júlí 1968. TIMINN tmmm r Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURtNN Framkvæmdastiórl: Kristján Benedtktsson Ritstjórar: Þórarlnn Þórarinsson (áb) Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar- Tómas Karlsson Aug- lýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Ritstj.skrifstofur t Eddu- húsinu, simar 18300—18305 Skrifstofur: Bankastraeti 7 Af- greiðslusími: 12323 Auglýsingasími- 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300 Askriftargjald kr 120.00 á mán innanlands — t lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjna EDDA h. f. 99 Hláleg“ ríkisstjóm Aðalmálgögn ríkisstjórnarinnar, Alþýðublaðið og Morgunblaðið, minnast tíu ára afmælis núverandi stjórn- arsamstarfs í forystugreinum í gær, en þó hvort með sínum hætti. Þegar Mbl. hugsar um þetta samstarf, verður ritstjórunum orðið „hlálegt“ nærtækust lýsing á þvi heimilishaldi eins og nú stendur, og gefa því leiðara sínum það nafn. Er þar lýst síðustu táknum á stjórnarhimninum og andar heldur köldu til samstarfs- flokksins .Afmælisskapið er ekki sem bezt. Þetta, sem Mbl. finnst fram úr hófi „hlálegt“ á þessu afmæli, er för Gylfa viðskiptamálaráðherra austur til Moskvu að semja þar um jafnkeypisviðskipti við Rússa. Telur Mbl. för þessa hina verstu sneypu og fullkomin fjörráð við „viðreisnina“, en aðall hennar var sem kunnugt er það, sem Mbl. kallar fullkomið viðskiptafrelsi. Og nú þegar „viðreisnin“ og viðskiptafrelsi hennar hefur blómstrað í landinu í áratug, finnst Mbl. það „að vonum hlálegt, að viðskiptamálaráðherra okkar og ráðu- neytisstjóri í viðskiptamálaráðuneytinu skyldu telja sig knúða til þess að óska eftir því við stjórnarvöld Rússa, að þeir hyrfu frá fyrirætlunum sínum um frjáls við- skipti milli íslands og Rússlands og héldu áfram við- skiptum sínum á vöruskiptagrundvelli“, eins og Mbl. orð- ar það í leiðara sínum í gær. Er nú ekki von, að Mbl. sé sárreitt og hneykslað? Af frásögn þessari er helzt að skilja, að Gylfi viðskiptamálráðherra hafi flogið til Rússa á laun og varazt að segja Bjarna frá ferð eða erindi og í raun og veru rekið rýting 1 bak „viðreisnarinnar“ með þessu athæfi. Og Mbl. segir ennfremur: „Nú hafa Rússar því miður mjög sterka samningsaðstöðu vegna þess veik- leika okkar að neita frjálsum viðskiptum“. Þannig hefur Gylfi hreinlega ofurselt Rússum sjálfa „viðreisnina“ á bak við Bjarna. Það má heita karlmennska af Mbl. að hafa ekki sterkari orð en „hlálegt“ um slík vátíðindi. En hvernig má slíkt bera til, að litli flokkurinn í ríkisstjórninni er alit 1 einu orðin svona sjálfstýrður? Er Bjarni húsbóndi gersamlega búinn að missa ráðin? Alþýðublaðið er hins vegar í meira afmælisskapi í gær, er það metur og vegur tíu ára íhaldsferil sinn. Það einblínir bara á „góðu málin“ sín og lokar augunum fyrir hinu. Stjórnarsamstarfið hefur verið harla gott í þess augum og miklu betra heimilislíf en í vinstri stjórninni, segir það. „Mörg mikilvæg stefnumál Alþýðuflokksins hafa náð fram að ganga á þeim nær tíu árum, sem samstarf flokk anna hefur staðið. Ber hæst stórfellda eflingu almanna- trygginganna . . . Einnig má nefna mikið átak í húsnæðis- málum, þar á meðal endurbætur á verkamannabústaða- kerfinu, stórfellda uppbyggingu afvinnuveganna og miklar endurbætur í menntamálum“. Alþýðublaðið er heldur óheppið í þessari upptaln- ingu sinni. Staðreyndirnar sem hver maður hefur fyrir augum, eru þær, að almannatryggingarnar hafa stórlega dregizt aftur úr nágrannalöndum á síðustu tíu árum, eins og Björgvin Guðmundsson lýsti glögglegast fjTÍr kosningarnar 1 vor. Húsnæðismálin eru í mesta ólestri sem sögur fara af hér á landi, og byggingakostnaðurinn aldrei vaxið eins hrikalega. Atvinnufyrirtæki hafa strá- fallið svo að annað eins afhroð er ekki til í íslandssög- unni, og atvinnuástandið og afkoma atvinnuveganna nú bágara en nokkru sinni síðan í heimskreppunni. í mennta- málum er ástandið nú þannig, að þar er allt að springa. Þetta eru nú afmælislummur Alþýðublaðsins. Þá er betra að taka undir með Mbl. og segja „hlálegt“. DAVID S. BRODER: KOMA VERÐORIVEG FYRÍR AÐ WALLACE RAOIVALIFORSETANS Hann hyggur á samninga um að láta kjörmenn sína kjósa þann fram bjóðandann, sem fáanlegur er að ganga til móts við stefnu hans GRAY Orfield prófessor hef ur stungið upp á því, að stóru flokkarnir gangi frá samkomu lagi fyrir kosningar til tfygg- ingar því, að kjósendurnir í landinu kjósi næsta forseta Bandaríkjanna í raun og sann leika, en val hans fari ekki eft ir dutlungum George Wallace. Þessi tillaga Orfields á fylli- lega skilið að hún sé tekin til alvarlegrar athugunar. Orfield er aðstoðar-prófess- or í stjórnfræði við háskólann í Virgina. Þær ályktanir hans, sem höfundur þessarar grein- ar er sammála, eru á þessa leið: EKKI verður framhjá þeim möguleika gengið, að verði kosningabaráttan hörð og jöfn getur auðveldlega svo farið, að Wallace hljóti það marga kjör menn, að hann fái því áork- að, að hvorki frambjóðandi Demokrata né Republikana hljóti fylgi hinna tilskyldu 270 kjörmanna. Gætnir stjórn- málamenn í báðum flokkum hafa látið í ljós við mig það álit, að eins og sakir standa séu allt eins miklar likur til, að atkvæði kjörmanna skiptist of jafnt til þess að unnt verði að velja forsetaefni. „SAMNINGARNIR“, sem Wallace segist muni reyna að ná ef svona fari, eru í eðli sínu óviðunandi. (Atkvæði kjörmanna hans yrðu greidd þeim frambjóðanda, sem lengst gengi til móts við stefnu hans í kynþáttamálum og mótun lögregluríkis). Ef að þessu ráði yrði horfið hlyti það að verka sem olía á eld kynþáttaóeirða og borgara- lega uppþota í landinu og sá forseti, sem að völdum settist í Hvíta húsinu fyrir tilstilli slíkra samninga, ætti mjög erf- itt um vik sem leiðtogi, hvort heldur væri 1 innanlands mál- um eða á alþjóða vettvangi. TÍMINN er orðinn of naum ur til þess að takast megi að gera megi lagalegar ráðstafan ir, sem að haldi geta komið. (Æskilegum umbótum á kjör- mannakerfinu eða afnámi þess er ekki unnt að koma í gegn um þingið og fá staðfestingu löggjafarsamkoma fvlkjanna fyrir kosningar í haust). Sjálf- viljugt samkomulag stóru flokkanna er »því eina lausnin ef koma á í veg fyrir að á- form Wallace heppnist. ORFIELD prófessor hefur lagt bað meira að mörkum en aðrir ' þessu efni, að hann hef ur ekki látið sér nægja að núa hendur sínar, heldur lagt fram skynsamlegar tillögur um framkvæmanlega lausn. Kjarn inn í tillögum hans er í því fólginn. „að Dáðir stóru flokk- arnir komi sér fyrirfram sam- an um. að reynist hÍD venju- lega leið ekki hrökkva til að fá kjörinn frambjóðanda skuli þeir sjá til þess, að sá fram- George WaMace bjóðandi, sem hefur mest al- mennt fylgi að baki sér, hljóti nægilegan stuðning í fulltrúa- deild þingsins“ Skilji ég Orfield prófessor rétt kæmi því aðeins til kasta þessa samkomulags að enginn frambjóðandi hlyti meirihluta kjörmanna og fulltrúadeild þingsins gæti heldur ekki skor ið úr um val þeirra vegna þess, að jöfn skipting þar kæmi í veg fyrir, að annar hvor flokkurinn hlyti fylgi 26 fylkisfulltrúa, sem þarf til lög mæts kjörs. ÉG lít dálítið öðru vísi á en Orfield prófessor. Eg held, að eigi samkomulagið að koma að fullum notum. verði það að vera á þann veg, að hljóti enginn frambjóðandi meiri- hluta kjörmanna kjósi full- trúadeild þingsins undan- bi-agðalaust þann frambjóð- anda, sem mest almennt fylgi hefur á bak við sig, hver svo' sem skipting flokkanna er í deildinni. Þessi aðferð full- nægði öllum eðlilegum og rétt mætum lýðræðiskröfum og gæfi öruggasta tryggingu fyrir þv£, að hvorugur flokkurinn freistaðist til bess að semja við Wallace. Að mínu viti væri auðveld- ast að koma slíku samkomu- lagi á með þvi að byrja á að biðja frambióðendur stóru flokkanna við forsetakosning- arnar að heita því, að leggja að flokksbræðrum sínum í full trúadeild þingsins að ljá béim frambióðanda atkvæði sitt. sem almennt fylgi hefði á bak við sig, ef nægilegt fylgi kjör- manna reyndist ekki fáanlegt. Síðan ætti að fara fram á við báða flokkana, að þeir vinni sama heit á flokksþing- inu eða í álvktun, sem sam- þykkt sé þar Heit flokkanna hvors um sig á að hafa í sér fólgna þá tryggingu, að fram- bjóðandi hans semji ekki við Wallace um fylgi kjörmanna, og fylgismenn flokksins í full- trúadeild þingsins láti flokks- fylgið lönd og leið, ef til þeirra kasta kemur, og kjósi þann frambjóðanda, sem flest- ir kjósendur hafa fylgt sér um. Að lokum mætti biðja fram- bjóðendur til fulltrúadeildar í hverju kjördæmi að heita því, að þeir skuli láta flokksholl- ustu sína lúta í lægra haldi fyr- ir hinu almenna fylgi fram- bjóðenda, ef málið komi til kasta fulltrúadeildarinnar. EF svo færi að hlutaðeig- endur viku sér undan að vinna slíkt heit, — hvort heldur væru frambjóðendur við forseta- kosningarnar, flokksþingin eða frambjóðendur till full- trúadeildar, — ætti það að verða og yrði tvímælalaust að mínu áliti að baráttumáli í kosningunum. En ég tel litla hættu á, að neitað yrði að vinna þessi heit. í fyrsta iagi rændi þetta ekki Wallace beim rétti, að bjóða sig fram sem forseta- efni, en kæmi hins vegar í veg fyrir. að honum yrði að þeirri von sinni. að nota minnihluta fylgi sitt til bess jS ráða úr- Framhaio á bis 15.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.