Tíminn - 21.07.1968, Qupperneq 3
ýmsum löndum og ekkert til
sparað. því að hún hefur sagt,
að hún vildi ?greiða hvaða upp-
hæð sem væri til að eignast
barn. En árangurinn hefur ekki
verið að sama skapi.
Þegar þetta er skrifað virðist
sem Sophia fái nú loks ósk
sína uppfyllta. Allt hefur hing-
að til gengið vel, og við getum
skýrt frá því, að þegar að fæð-
ingu kemur, verður Loren ekki
stödd á Ítalíu, því að þar í landi
eru þau Sophia og kvikmynda-
leikstjórinn frægi, Carlo Ponti,
ekki talin löglega gift.
Þeim gengur illa að læra.
Morð Kennedyanna, King og
fleiri breyta engu. Byssubófinn
úr fjölmörgum kúrekamyndum
hefur enn mikil áhrif á amerísk
an almenning. Stúlkan hér á
myndinni er táknræn. Hún heit-
ir Annie Oakley, og tekur þátt
í byssukeppni á Langasandi í
Kaliforníu, þar sem keppt er
um, hver er fljótastur að ná
byssunni úr sl'íðrinu og skjóta.
Verðlaun — 100 doliarar.
Mikill harmleikur átti sér
stað í Sanford í Maine-fylki í
Bandaríkjunum á miðvikudag.
Lögreglan ætlaði að nálgast
Richard Goodwin á heimili hans
þar sem hún áleit hann flæktan
í mál, sem í fyrstu var talið að
um voðaskot væri að ræða. En
Goodwin greip þá eiginkonu
sína sem gísl. og stefndi byssu
að höfði hennar eins og myndin
sýnir. Hann féllst síðar á að
ræða við sjónvarpsmenn og þá
skeði óhappið. Þegar Goodwin
var að fara niður tröppurnar í
skjóli konunnar hrasaði hann, og
skot hljóp úr byssunni í höfuð
frú Goodwin, sem lézt nær sam
stundis. Lögreglunni tókst að ná
manninum eftir að hafa skotið í
fætur hans.
SUMNUDAGUR 21. júlí 1968.
TIMINN
Nancy Sinatra hefur nýlega
sungið lag inn á plötu og það
nefnist „Happy“. Eins og flest
önnur lög, sem Nancy hefur
sungið inn á plötur, er það eft-
ir Lee Hazlewood, og er talið
að þetta lag eigi eftir að ná
álíka miklum vinsældum og sú
plata, hennar sem vinsælust hef
ur orðið, „These boots are made
for walking“ — eða þetta eru
gönguskór.
★
farkosturinn. Á hinni stærri er
Force að útskýra tækin fyrir
sonum sínum og á hinni minni
er þyrlan á lofti. Og fjölskyld-
an segist vera virkilegur „air-
force“.
*
Alla ævi hefur Charles Force
haft löngun til að fljúga og
sem strákur reyndi hann ýmsa
hluti, sem hann var þó ekki
ánægður með, þar sem hann
gat ekki haft vissa ákvörðunar-
staði. En nú hefur hann leyst
allan vanda og smíðað sér gíró-
þyrlu. Hun virðist ekki við
fyrstu sýn til mikilla afreka
líkleg, en hann hefur þó fengið
skírteini upp á að hún sé flug-
hæf og þyrlan getur verið tvær
klukkustundir á lofti og komizt
allt að 70 mílna vegalengd. Og
á myndunum hér á síðunni sést
„Barnastjarnan" Hayley Mills
er orðin fullorðin. Hún hefur
sýnt það í verki með því að
giftast Roy Boulting, sem er 32
árum eldri. Hayley er 22ja ára,
en eiginmaður hennar 54. Bæði
segja þau, að þetta sé hin
„stóra“ ást. Brúðkaup þeirra
dróst nokkuð, þar sem Boulting
átti í nokkru stímabraki við að
fá skilnað frá þriðju eiginkonu
sinni. Biðtímann notaði Hayley
Mills til að fara í fjögurra mán
aða hnattreisu til að reyna að
gleyma. Þegar hún kom hpim
aftur, komst hún að raun um,
að það þýddi ekkert og flutti
þegar í stað heim til Roy. For-
eldrar hennar tala ekki við hana
þar sem þeir álíta, að hinn 54
ára kvikmyndaframleiðandi sé
ekki hinn ákjósanlegasti eigin-
maður fyrir dóttur þeirra.
Kvikmyndastjarnan Anita Ek-
berg — einnig kölluð ísbjargið
frá Malmö — er þessa dagana
stödd á Spáni, þar sem hún leik
ur í kvikmynd sem verið er að
filma þar. Hún leikur aðalkven-
hlutverkið í hinni spönsk-ítölsku
kvikmynd Malenka. Þetta er
spennandi mynd, og Anita kemst
í mikinn háska, en á síðustu
stundu er henni - bjargað
af „hetjunni", sem leikin er
af John Hamijton.
Enn einu sinni vonar Sophia
Loren að hún fái sína stærstu,
ósk uppfyllta — að eignast
barn. Hún hefur f jörum sinnum
misst fóstur — en hefur ekki
látið það á sig fá og er nú þung-
uð í fimmta sinn. Hún /hefur
dregið sig í hlé frá kvikmynda-
verunum, skemmtilífi og fleiru.
Hún ætlar sér að eignast þetta
barn.
Sophia hefur í fyrri tilfellum
leitað til margra sérfræðinga í
*