Tíminn - 21.07.1968, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR 21. júlí 1968.
TIMINN
5
Gunnar Þórðarson
um Bandaríkjaförina
}
i
„Allt að vinna - engu að tapa”
Gunnar Jökull:
í síðasta þætti af „Með á
nótunirm" var , viðtal við: Jó-
hann Johannsson, Óðmönnum
og Jónas Jónason og Arnar
Sigurbjörnsson úr Flowers.
Piltarnir deildu hart á Hljóma
fyrir að vera valdir að því
að þessar tvær hljómsveitir
lBvenfi úr skemmtanalífinu. Ef
þessi fyrirhugaða Bandaríkja-
for stenzt í hvívetna, þá er hér
am merkan atburð að ræða,
og það er ekkert vafamál, að
Hljómar standa mjög vel
að vígi, sérstaklega með til-
komu Shadie Ovens og Gunn-
ars Jökuls.
Þessir sexmenningar eru tví
mælalaust sýnishorn af því
bezta sem við höfum fram að
færa á þessum vettvangi, og
ef þeim tekst ekki að gera
garðinn frægan, þá er hæpið
að nokkurri annarri „pop“-
hljómsveit takist það.
f þættinum í dag er viðtal
við hið nýja fólk í Hljómum,
þá er ítarlegt viðtal við Gunn-
ar Þórðarson, þar sem hann
skýrir frá hinni margumtöl-
uðu Bandaríkjaför, og svarar
þeirri gagnrýni, sem fram kom
í síðasta „þætti. Þá sný ég mér
fyrst að „nýliðunum", Shadie
og Gunnari.
— Hvernig varð ykkur við
þegar þið fenguð tilboð um
að verða þátttakendur í Banda
ríkjaför Hljóma, sem fastir
starfsmenn hljómsveitarinnar.
SHADIE: Mér leizt strax vel
á þessa utanför, enda er ég
bandarískur ríkisborgari, og
þekki vel til allra aðstæðna í
skemmtanalífinu á þeim slóð-
um er við komum til með að
skemmta. Ég átti heima rétt
fyrir utan St. Louis, og þar
sem við verðum er á milli St.
Louis og Chicago. Þó að það
sé gaman að syngja fyrir unga
fólkið hér á landi, þá hefur
mig alltaf langað út aftur, og
þess vegna vildi ég með engu
móti sleppa þessu tilboði, enda
hæpið að ég hefði kost á öðru
slíku í náinni framtíð.
GUNNAR: Allt frá því að
þetta var til umræðu fyrst, hef
ég haft mikla trú á þessari
utanför, og þegar við vorum
búnir að ræða þetta fram og til
baka, og ljóst var að ekki var
um neitt gylliboð að ræða, sem
síðar myndi gufa upp, eins og
sumir virðast álíta þá ákvað
ég að taka tilboðinu. Þarna
komu til persónulegir hags-
munir og einstakt tækifæri til
að reyna sig í erlendu sviðs-
ljósi.
— Flowers og Óðmenn hafa
látið hafa eftir sér að þeir
muni hætta ef þið yfirgefið þá.
SHADIE: Þessir fimm mán-
uðir, sem ég hef sungið með
Óðmónnum hafa verið mér ó-
gleymanlegir, þess vegna þyk-
ir mér það ákaflega leitt ef
þetta verður til þess að Óð-
menn hætti fyrir fullt og allt.
Persónulega tel ég Óðmenn
það góða að ég tel enga ástæðu
fyrir bá að hætta.
GUNNAR: Þegar ég ákvað
að taka þessu tilboði gerði ég
mér hreinskilnislega ekki
grein fyrir að þetta yrðu af-
leiðingarnar. Ég hafði gert
mér vonir um að báðar hljóm
sveitirnar myndu halda áfram,
og ég er sannfærður um að
þeim tækist það, ef baráttu-
viljinn væri fyrir hendi. Þenn-
an stutta tíma, sem ég hef
verið með Flowers hefur sam-
starfið verið mjög gott. Auð-
vitað skyggir það á utanför-
ina fyrir mig ef Flowers leys-
ast upp. Ég tel rétt að geta
þess, að ef svo ótrúlega myndi
fara, að engir samningar yrðu
undirritaðir, þá tel ég fullvíst
að engar breytingar verði á nú-
verandi skipan Flowers og Óð-
manna.
— Segjum sem svo, að að-
eins þið tvö fengjuð áfram-
haldandi atvinutilboð í Banda
ríkjunum?
SHADIE: Ef samningnum
við Hljóma yrði ekki fram-
lengt, þá myndi ég sennilega
taka þann kostinn að vera eft-
ir, en því aðeins að þetta at-
Gunnar Þórðarson:
— Það kom margt annað furðu
legt fram í þessu viðtali við
Flowers og Óðmenn, en faest
af því á sér nokkra stoð í veru
leikanum.
vinnutilboð væri fullkomlega
. öruggt.
GUNNAR: Það er erfitt að
svara svona spurningu um ó-
orðna hluti. Það hlítur að velta
mikið á samkomulaginu hjá
okkur sex, hvaða afstöðu eg
myndi taka.
Þá sný ég máli mínu að for-
svarsmanni Hljóma, Gunnari
Þórðarsyni.
— Hver er aðdragandinn að
þessari utanför?
—r- Við fengum þetta tilboð
frá tveim bandaríkjamönnum,
sem gegnt hafa herþjónustu
hér í Keflavík. Annar þeirra
hefur séð um rekstur á ýmsum
klúbbum þar suður frá, hann
hefur reynslu af slíkum rekstri
erlendis frá og gjörþekkir
þennan „bransa“ þetta eru
Shadie Ovens:
— Persónulega tel ég Óðmenn
það góða að ég tel enga ástæðu
fyrir þá að hætta.
áreiðanlegir og fjársterkir að-
ilar. Þeir gera sér fullkomlega
grein fyrir því að þeir þurfa
að vinna okkur upp frá byrj-
un, allt skipulagið byggist á
því. Þetta er þriggja mánaða
samningur, á þeim tíma erum
við með fast kaup, sem er held
ur meira en hér heima. All-
ar flugferðir verða borgaðar
fyrir okkur svo og uppihald,
áhættan er öll þeirra megin,
við höfum aftur á móti allt
að vinna og engu að tapa.
Ef okkur vegnar vel á þess-
um þrem mánuðum þá verð-
ur samningnum framlengt til
sex mánaða, að öðrum kosti
segjum við skilið við Banda-
ríkin og höldum heim. Þessi
reynslutími sker úr um hvort
það sem Hljómar hafa fram að
færa falli almennt í smekk
þeirra í Illinois í U.S.A.
— Jónas í Flowers heldur
því fram, að þessi utanför
verði aldrei farin.
— Já, hann vitnar þar í til-
boð, sem Toxie fengu er hann
var með þeim. Ég tel fráleitt
að líkja þessu tvennu saman,
það líður varla sá dansleikur
að við fáum ekki svona hand-
laus tilboð. Toxic máttu sjálf-
um sér um kenna, hvernig
þeirra „utanför“ endaði: Það
kom margt annað furðulegt
fram í þessu viðtalj við Flow-
ers og Óðmenn en fæst af því
á sér nokkra stoð í veruleik-
anum, og auðsýnilega þyrlað
upp með það í huga að gera
tilboð Hljóma sem tortryggi-
legast. Piltarnir fúllyrða að
Hljómar séu að missa vinsæld-
ir. Við höfum ekki orðið var-
ir við það hjá fólkinu, sem
sækir dansleiki okkar, en það
er einmitt þaðan, sem okkur
ætti fyrst að berast vitneskja
— Þegar ég ákveð að taka þessu
tilboði gerði ég mér hreinskiln
ingslega ekki grein fyrir að þetta
yrðu afleiðingarnar.
(Tímamyndir Gunnar)
t'l: f J’ ’ * ‘ ?
sú, en ekki frá Óðmönnum og
Flowers.
Upphaflega var þetta tilboð
miðað við okkur fjóra, en við
treystum okkur einfaldlega
ekki til að taka því án þess
að fjölga í hljómsveitinni, það
bitnar á Óðmönnum og Flow-
ers, en að með þessu séum
við að ganga milli bols og höf-
uðs á hljómsveitunum eins og
þeir orðuðu það, er alger stað-
leysa. Þeir ættu að hugsa sig
vel um áður en þeir grípa til
þess uppgjafarúrræðis að
leysa hljómsveitirnar upp, því
á meðan Hljómar dveljast í
Bandaríkjunum geta Óðmenn
og Flowers verið einráðir og
skipt markaðnum bróðurlega á
milli sín.
Það er hollt að minnast á
það í þessu sambandi að til-
koma Flowers fyrir 9 mánuð-
um síðan kostaði dauða
þriggja hljómsveita: Toxic,
Dáta og Mods. Allt voru þetta
mjög vinsælar hljómsveitir.
Dátar voru í miklum uppgangi,
fjögurra laga plata með þeim
naut mikilla vinsælda, þar var
„Gvendur á eyrinni“ titillagið
og 12 laga plata var í bígerð
hjá þeim. Allt þetta hrundi er
Karl Sighvatsson yfirgaf þá til
að gerast einn af stofnendum
Flowers.
— Hvað verður fyrsta verk
efni Hljóma, þegar til Banda-
ríkjanna kemur?
— Það verður að leika inn
á tveggja laga hljómplötu, sem
síðan verður dreift um öll
Bandaríkin, en sérstaklega
verður lagt kapp á að auglýsa
hana í Illinois fylki, þar sem
við verðum að skemmta í ýms-
um næturklúbbum. Þannig að
ef platan nær einhverjum vin-
Framhald á bls. 15.
Hér eru nýliðarnir og hliómsveitarstjórinn í þungum þönkum. (Tímamynd Gunnar)