Tíminn - 21.07.1968, Blaðsíða 8
8
TIMINM
Fráfall Jónasar
Jónas Jónsson frá Hriflu lézt
á föstudagskvöld, 83 ára að
aldri. Þessi einstæði baráttu-
maður og eldhugi hélt góðri
heilsu, andiegu þreki og starfs-
kröftum fram á síðustu daga,
og síðustu greinar hans bera
með reisn aðalsmerki þeirrar
ritsnilidar, sem hann átti um-
fram aðra menn. Vafalaust mun
sagan telja Jónas frá Hriflu einn
mesta áhrifamann í þjóðmál-
um og menningarm'álum á fyrri
hluta þessarar aldar. Áíhrifasvið
hans var með ólíkindum. Hann
var leiðtogi ungmennafélaganna
á ungum aldri, lagði meginlín-
ur að stjórnmálabaráttunni, er
hún færðist á innlendan vett-
vang, var aðalstofnandi Tímans
og Framsóknarflokksins og for-
Ingi um langt skeið, hugsjóna-
málsvari samvinmumanna lang-
an aldur, afkastamesti rithöf-
undur bjóðarinnar um stjórn-
mál, sögu, bókmenntir og listir.
Með honum er fallinn einn
stórbrotnasti og litríkasti per-
sónuleiki þessarar aldar hér á
landi.
Ein fórnin enn
íslendingar eru því vanastir
að verða að færa mestar fórnir
í mannslífum fyrir sjósókn
sína. Önnur önn flugið, gerist
nú nær eins hörð í fórnarkröf-
um. Þjóðin hefur þegar orðið
að sjá á bak allmörgum umgum
flugmónnum og farþegum
þeirra. Enn hefur eitt slíkt slys
bætzt við og fjögur myndarleg
ungmenni farizt. Slíkir atburðir
eru þjóðinni allri harmsefni og
leiða hugann að pví, hvort ekki
sé unnt að koma við meiri slysa
vörnum í lofti. Hér skal ekki
rætt um ráð, sem komið gæti í
veg fyrir, að slíkar harmsögur
endurtaki sig, en hugur margra
hlýtur að hvarfla að því, hvort
ekki sé þörf á sterkara eftirlit
og skýrari reglum og ákvæð-
um um flug lítilla flugvéla með
nær engum öryggistækjum
milli landshluta. Fórnir þessar
eru nú orðnar svo rniklar og
tíðar, að ekki verður hjá því
komizt að skoða málið niður í
kjölinn og freista viðnáms.
Sár mannshandar-
innar
Hér i blaðinu birtist fyrir
nokkrum dögum mjög athyglis-
verð grein eftir ungan lækni,
' Auðólf G-unnarsson, nýkominn
frá alllangri dvöl erlendis.
Hann ræðir dagskrármálefni
með glöggskyggni gestsins en
sárindum heimamannsins.
Greinin hefur kjörorð dags-
ins að heiti: „Hremt land —
fagurt iand.“ Hann hefur mál
sitt á þessa leið-
„Ég var að koma heim frá
útlöndum fyrir nokkrum dög-
um. Það var norðangjóstur á
Suðurnesjum og skól mold af
rofabörðum, vegköntum, opn-
um húsgrunnum og óhirtum
lóðum.
Er fóstrjörðin kom þannig
rjúkandi á móti mér eftir
nokkra/fjarveru frá henni, varð
mér ljósara en nokkru sinni
fyrr, þótt ég hafi unnið við skóg
rækt í mörg sumur, hversu mik-
Ið liggur við að græða jafnóð-
um þau sár. sem umrót manns-
handarinnar veldur“.
Þeir, sem hafa þessa mynd
fyrir augum ár og síð, verða ef
til vill sljóir fyrir henni og
finnst hún eðlileg. Þeim,
sem verið hefur að heiman um
sinn, bregður hins vegar í brún
svo að um munar, og ummæli
unga læknisins eru þörf áminn
ing um mál, sem of oft hefur
verið rætt fyrir daufum eyrum.
Sannleikurinn er sá, að hér á
okkar veðurbarða landi er það
brýnni nauðsyn en annars stað-
ar að græða tafarlaust þau sár,
sem mannshöndin veldur, því
að annars hleypur í þau ígerð,
sem enginn „landlæknir“ ræð-
ur við. Meðan við beittum að-
eins skóflu og haka voru sár
mannshandarinnar á landinu
skeinur einar borið saman við
svöðusárin eftir ýtur og gröf-
ur, sem nú eru landinu skað-
ræðisgripir í höndum manna.
Öll grein unga læknisins í fram
haldi af þessu eru tímabær á-
minning — áminning um rusi-
ið og sóðaskapinn og brýning
um gróðurverndina. Hann bend
ir á, að vönduð og ný íbúðar-
húsahverfi líti út sem óhrjáleg-
ustu fátækrahverfi stórborga
að ytri ásýnd og minnir loks á
uppeldisgildi þess, að börn og
ungliogar umgangist gróður,
dýr og ragurt umhverfi og bend
ir á skyldu höfuðborgarinnar í
þeim efnum.
eitt
Sá sem leið á inn eftir hlíð-
Monn
málefni
inni, þar sem Hallormsstaða.
skógur breiðir úr sér og dáist
að gróðurmættinum, þar sem
mannshöndin hefur i nokkra
áratugi iagt fram lið sitt til
verndar og hjálpar gróðri,
kemst ekki hjá þvi að líta til
hlíðarinnar handan Lagarins.
Sú hlíð er fögur með regluleg-
um klettabeltum og grænum
hjöllum á milli. En við honurn
blasa í þurrkinum leirrauðar
undir vegasáranna, sem manns-
höndin hefur látið eftir sig.
Öðrum megin hafa gróðri verið
lagðar 'íknarhendur, en hinum
megin nafa öfugar klær verið
að verki. Víða má sjá, að vega-
sárin hafa stækkað af upp-
blæstri á þeim árum, sem liðin
eru síðan vegurinn var lagður,
en lítið fer fyrir græðslunni.
Þessi mynd blasir þarna óvenju
lega vel við, en hún er síður en
svo nokkurt einsdæmi heldur er
þetta hin venjulega mynd hinna
nýlegri vega. Síðustu tvo ára-
tugina hafa verið unnin svo ó-
trúleg hervirki með stórvirkum
vélum, að furðulegt gáleysi
má kalla. Vegagerðarmönnum
ver'ður þó ekki um þetta kennt
nema að litlu leyti, heldur
þeirri forsjá, sem stefnuna átti
að marka. Og þessi sár eru víð-
ar en við vegina. Hér og hvar
blasa við malarnómurnar eins
og holdsveikikýli á ásjónu lands
ins. Reykvíkingar hugsa til
Rauðhólanna, par sem allt er
sundurtætt og ekki einu sinni
reynt að jafna svæðið.
Að sjálfsögðu átti það að
vera óaðskiljanlegur hluti vega
gerðar frá upphafi að græða
öll sár, par sem hreyft var við
grónu ;andi, en þar sem það
var vanrækt áratugum saman,
blasir riú við ótrúlega mikið og
erfitt verk. Nokkur stefnubreyt
ing hefur orðið o'g það viður-
kennt í orði, að vegasárin eigi
að græða, en framkvæmdir eru
enn hálfkák. Menn gera vegina
■sem fyrr, skilja vegasárin eftir
og ætlast til að þau verði
grædd síðar. Einhverjar tilraun-
ir hafa verið gerðar til þess að
dreifa fræi með vegum, en ár-
angurinn harla lítill sjáanlegur
enn og alla skipulega vinnu við
þetta vantar enn. En nú dugir
ekki að sofa lengur á þessu
máli. Alþingi á að taka hér í
tauma og gera sér fullljóst,
hvernig mólið stendur.
Guttormslundur
Fljótsdalshérað var fagurt í
mikilU sólarbirtu í vikunni sem
leið. Bændur voru að byrja slátt
inn þar sem skást var sprottið,
en kalskellur voru þó víða á
túnum. Úthagi var óeðlilega
grár, enda hafa ískuldarnir sorf
ið þar fast að Eg'ilsstaðakauo-
tún vex jafnt og þétt og er orð-
ið myndarlegasti byggðakjarni
með margvíslega þjónustu fyr-
ir byggðirnar í kring. Þar er
risið eitt myndarlegasta félags-
heimili landsins og er jafnframt
gestamiðstöð. Inni'á Hallorms-
stað er nýr og fullbúinn barna-
skóli, sem kostað hefur 25 millj.
kr. menntamiðstöð þriggja
hreppa. Þar njóta gestir einn-
ig góðrar vistar. enda koma
margir í Hallormsstaðaskóg, og
í húsmæðraskólanum er gest-
um unninn hinn bezti beini.
Fljótsdalshérað býr nú orðið ó-
venjulega vel í pessum efnum,
og með greiðum samgöngum í
lofti og á landi verður Fljóts-
dalshérað yndisland ferða-
manna, erlendra sem innlendra.
Inni í Hallormsstaðarskógi
þeirri vin skógræktarinnar,
sem mest fyrirheit gefur,
byggja menn á stórvirki. Þar
er Gottormslundur tákn bjart-
sýninnar í íslenzkri skógrækt.
Hann á 30 ára afmæli á þessu
ári. Maðurinn, sem plantaði
þarna síberískum lerkisprotum í
trú á íslenzkan skóg fyrir þrem-
ur áratugum hefur ef tU vUl
lagt meira guU í lófa framtíð-
ar landsins en okkur grunar
enn. Trén í lúndinum eru nú
yfir tíu metrar á hæð, og ár-
legur v'iðarvöxtur þar er 5—6
teningsmetrar á hektara eða
allt að fimm sinnum meiri en
í gróðurmiklum íslenzkum
birkiskógi á sama landi. Úr þess
um lerkilundi er þegar búið að
taka eina fimm þúsund girð-
ingarstaura við grisjun, og hef
ur lundurinn þegar borgað sig
með því. Eftir önnur þrjátiu ár
verða oarna stórviðir
Mikill lerkiskógur
Þegar litið er yfir Hallorms-
staðaskóg innan Hallormsstaðar
úr hlíðinni norðan Lagar, sést
að mikill hluti hans er með
Ijósgrænni lit en venjulega er
á íslenzkum birkiskógi. Mörk-
in og umhverfi hennar er að j
verða að lerkiskógi. Lerkilund-!
SUNNUDAGUR 21. júlí 1968.
irnir þar eru á öllum aldri upp
undir tvítugt, og grenHundir
á sama aldri. í Hallormsstaða-
skógi hefur nú verið plantað í
150 hektara, og þar eru nú um
400 tegundir og kvæmi á skrá,
fjölbreyttasta safn trjátegunda
af norðurhveli jarðar á einum
stað.
Skógarbúskapur
Skógrækt á íslandi hefur til
þessa átt meira skylt við trú-
boð en búskap, en nú telja þeir
skógarmenn, að þáttaskil eigi
að verða. Vöxtur lenkisins á
Austurlandi eftir þrjátáu ára
reynslu af Guttormslundi tek-
ur af tvímæli um það, að okkur
ber að hefja skógarbúskap,
segja þeir. Sigurður skógar-
vörður á Hallormsstað, Baldur
Þorsteinsson og Einar G. E.
Sæmundsson, hafa gert allítar-
lega áætlun á vegum skógrækt-
arinnar um skógrækt sem bú-
grein samhliða sauðfjárrækt í
Fljótsdal. Þessi áætlun hefur
verið lögð fyrir ráðherra og
kynnt bændum í Fljótsdal. Hug
myndin er samt upp runnin í
Skógræktarfélagi Austurlands
og flutt sem tillaga á aðalfundi
Skógræktarfélags fslands. í á-
ætluninni er gert ráð fyrir, að
teknir verði til skógræktar sam-
tals 500 hektarar lands í Fljót^-
dalshreppi á næstu 25 árum.
Land þetta verði girt í áföng-
um eftir því sem plöntun mið-
ar fram á næsfu tíu árum, en
gróðursetningu ljúki á 25 ár-
um. Verði settar 5 þús. plöntur
á hektara, og mundi uppeldis-
stöðin í Hallormsstaðaskógi
geta séð fyrir því að mestu. Ár-
legur kostnaður yrði um 1,5
miilj.
Mlálið hefur þegar verið rætt
við bændur þá, sem búa á
þessu svæði, og hafa 15 þeirra
þegar ákveðið þátttöku, ef af
framkvæmdum verður og heit-
ið landi allt að 700 hekturuim,
en árlega yrði plantað í 60 hekt
ara.
Hér er um verulegan stofn-
kostnað að ræða, og verður
þetta ekki gert nama með rik-
isframlagi, en það á samkvæmt
áætluninni að greiðast síðar af
afurðum. Fyrstu verulegar tekj
ur af ekóginum fást eftir 15—
20 ár, en fara síðan vaxandi,
en skógarspildurnar síðan
höggnar til fulnytja eftir 60—
70 ár.
Timburiðnaður
Þessi áætlun er að sjálfsögðu
frumdrög ein með mörgum
vafaatriðum. En annað hvort er
að leggja í nokkra tvísýnu í
skógræktinni eða gefast upp.
Bjartsýni um þessi gæði lands-
ins sýnir mynd af betra og
fegurra landi og nýtri, mikil-
vægri atvinnugrein Stefna í
hagnýtri skógrækt hlýtur að
vera sú, að velja hið ákjósan-
legasta samfellt svæði, sem völ
er á til ræktunar nytjaskógar í
nokkuð stórum stíl Öll rök og
reynsla benda á hlíðar Fljóts-
dalsins, þar sem gróðurmold
birkisins er enn í jarðveginum.
Við gætum hugsað okkur, að
eftir hálfa öld væru þarna víð-
áttumiklir lerkiskógar, og um
þær mundir risi þarna veruleg-
ur timburiðnaður af ýmsu tagi,
og vrði bað bæði mikil at/iimi
stoð bvggðanna rg ■•i-i.;. K-'i