Tíminn - 21.07.1968, Síða 15
SUNNUDAGUR 21. júlí 1968.
TIMINN
15
HÖTEL
1 m. herb. kr. 300.-
2 m. herb. kr. 400.-
Veitingasalurinn op-
inn alia daga frá
7.00 — 23.30
H6TELGAROUB‘HRINGBRAUfSÍMn5918
KIRKJUÞÁTTURINN
Framhald au bls. 6.
brunnið í eiturlogum atom-
sprengja, ekki eyðzt að fullu.
Hann rís upp með hverju
strái, sem glitrar daggarperl-
um grænt við þá braut, sem
dauðadæmdar frelsishetjur
gengu til aftökustaðar, af því
að hjörtu mannanna elska'
þrátt fyrir allt fegurðina heit-
ar en líf augnabliksins.
Árelíus Níelsson.
TILRAUNASTARF ....
Framlhald af bls. 14.
þess að endurskoða lög og skipu-
lagsmál sambandsins.
Þá var samþykkt lagafrumvarp
um stofnun norræns kennarasam-
bands. Á fundi forystumanna
kennarasamtakanna á Norðurlönd
um, sem haldin var í Stokkhólmi
í jan. s.l. var samþykkt frumvarp
að lögum fyrir Norræna kennara-
sambandið. Aðalmarkmið sam-
bandsins er að efla samvinnu
kennarasambanda á Norðurlönd-
unum.
Stjórn Norræna kennarasam-
bandsins heldur fund árlega,
fyrsti fundurinn verður haldinn í
Kaupmannahöfn í haust.
RÚSSNESK KVIKMYND
Framhald af bls. 9.
slagorðasmiða, þveröfugt við
verkamennina, sem lytu járn-
aga og hefðu fullan skilning á
lokamarkinu undir leiðsögn
maxista.
Af þessum ástæðum er tal-
ið nauðsynlegt að draga stúd-
entana í dilka flokksins. Sov-
ézkir hugsjónafræðingar snú-
ast til hatrammrar baráttu gegn
þeim skilningi Herberts Mar-
cuse prófessors, að byltingar-
frumkvæðið sé runnið úr hönd
um verkalýðsstéttarinnar, sem
nú sé farin að berjast fyrir
óbreyttu ástandi, og horfið til
ákveðins kjarna menntamanna
HU GM YNDUNUM um að
„gera marxismann ókommún-
istískann“ er vísað gersamlega
á bug. Að baki þeirri frávís-
un liggur óttinn við þá hugs-
anlegu hættu, sem flokkskerf-
inu kann að stafa af stúdent-
unum og menntamönnunum,
sem æsa verkamennina til að
kæra sig kollótta um vinnuna
og flokkinn sem stofnun. Þetta
á einnig við í Rússlandi, þar
sem ólgan gerir einkum vart
við sig meðal menntamann-
anna, en verkamannastéttin,
varðveitir rósemi sína og reglu
svo að eftirtektarvert er.
Sagt var í Pravda, að litlu
hefði munað að gengið væri
svo langt í vanrækslu bylting-
aragans og kröfunni um „lang-
varandi óeirðir“ að jafnazt
gæti á við framferði Peking-
manna, en því væri einns bezt
lýst með orðtakinu: „Skjótið á
flokksdeildirnar."
KVIKMYNDIN „6. júlí“ seg-
ir þann beizka sannleika, að
aðferðamunur meðal kommún
ista vekur oft og einatt inn-
byrðis hatur, sem er heitara
en andúðin á kapítalistum, auk
þess sem hún brýnir fyrir okk
ur nauðsyn þess að halda
tengslunum milli ríkja og hafa
hemil á freistingunni til út-
flutnings / byltingarinnar, og
ýtir undir grun um öfgahneigð
meðal menntamannanna.
Vinstrisinnuðu sósíalistísku
byltingarmönnunum heppnað-
ist ekki að bera sigur úr být-
um í rökræðunum. Þá reyndu
þeir að • fá Þjóðverja til þess
að taka upp fyrri fjandskap
og myrtu þýzka sendiherrann
í því skyni. Þeir gerðu allt
hvað þeir gátu til þess að
hrifsa völdin úr höndum þeirra
sem þeir sökuðu um að hafa
svikið byltinguna, og hikuðu
ekki einu sinni við áð gera
vopnaða uppreisn og hefja
skothríð á Kreml. Tilsvarandi
árás á nútíma öfgamennina í
Peking verður ekki studd sömu
rökum.
MYNDIN „6. júlí“ ýtir und-
ir þann grun, sem vart verð-
ur, að til bandalags komi milli
valdhafanna í Peking og Bonn.
Sagt er, að í kínversku dreifi-
bréfi til evrópskra stuðnings-
manna Pekingstjórnarinnar,
hafi verið haldið fram, að
sönnum „marx-leninistum“
bæri ekki að sniðganga íhalds-
stjórnir, „ef þær eru óvinir ó-
vina vorra.“ Haldið var fram í
Litpraturnaja Gazeta, að órök-
rétt væri að halda, að banda-
lag milli jafn gerólíkra ríkis-
stjórn og stjórnanna í Pek-
ing og Bonn væri ómögulegt.
Sögulegri efnishyggju er
haldið að Rússum þegar í
barnaskóla, og þegar þeir svo
athuga það, sem sagan kenn-
ir þeim, taka þeir að hugleiða,
hvort hinar fræðilegu deilur
nú á tímum geti leitt til
vopnaviðskipta að nýju. Þeim
er að minnsta kosti vel ljóst,
að af óvinunum til vinstri staf
ar jafn mikil ógn og óvinun-
unum til hægri, engu síður nú
en fyrstu mánuðina, sem sovét
stjórn fór með völd.
MENN OG MÁLEFNI
Framhald af 8. síðu.
bót trjáviðar handa þjóðinni
allri. Guttormslundur sýnir, að
slíkt er engin fjarstæða. Korn-
rækt gæti einnig dafnað i skjóli
skóganna.
En um leið og menn leyfa
sér að gera sér þetta í hugar-
lund, verður að muna, að önn-
ur og enn’ stærri verkefni kalla
á um almenna græðslu og gróð
urvernd landsins. Landgræðsl-
an í öllum myndum kallar á
skipulegt starf og stórátök á
komandi árum.
MEÐ A NÓTUNUM
Framhald aí bls. 5
sældum í þessu fylki, getum
við fylgt þeim eftir sjálfir.
Alveg öfugt við það, sem áður
hefur verið, þegar plata hefur
verið gefib út með Hljómum
fyrir erlendan markað. Þar
sem við teljum ákaflega mik-
ilvægt, er að við getum fengið
bókanir frá þeim stöðum er
við komum til með að skemmta
á, sem er að sjálfsögðu óve-
fengjanleg sönnun um að við
séum á dagskrá hjá umrædd-
um skemmtistöðum. Áður en
við samþykkjum þessar bókan
ir, látum við lögfræðing yfir-
fara samninginn, að því loknu
skrifum við undir hann.
— Hvað hafið þið í hyggju
að flytja fyrir þá í Illinois?
— Kvöldið hefst á því að
Hljómar flytja sérstaka
skemmtidagskrá, sem stendur
■yfir í 45 mínútur. Síðan hefst
dansinn og lagavalið verður að
sjálfsögðu miðað við þann ald-
urslfokk, sem þarna skemmtir
sér, og við erum undir það
búnir að flytja mikið af „soul“
lögum. Þar sem við verðum
orðin sex, þá getum við ein-
beitt okkur hver að sínu verk-
efni. Shadie og Engilbert að
söngnum, og þegar Rúnar tek-
ur lagið, annast Engilbert
bassagítarinn.
— Þurfið þið ekki að breyta
lagavalinu á L.P. plötunni ykk
ar?
— Jú, það þurftum við að
gera til þess að Shadie fengi
að njóta sín, en hún mun
syngja fjögur lög á plötunni.
Þann tuttugasta eigum við að
vera mætt í stúdíóinu í Lond-
on, þar sem platan verður
hljóðrituð. Því næst höld-
um við heim og, búum okkur
undir næsta áfanga, sem er
Bandaríkin. Það verður í sept-
ember.
Ég vona, að Hljómum vegni
vel vestanhafs og verði okkur
til sóma.
Benedikt Viggósson.
Stou 11384
Orustan mikla
§tórfengleg og mjög spenn-
ándi ný amerisk stórmynd 1
litum og Cinemascope.
fsl. texti.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
Roy kemur til
hjálpar
Barnasýning kl. 3
LAUOARA8
Slmar 3207S. og 38150
Ævintýramaðurinn
Eddy Chapman
(The Triple Cross)
íslenzkur texti.
Endursýnd kL 5 og 9.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Regnbogi yfir Texas
Roy Rogers
Barnasýning kl. 3
I
MiKHa Drval Hljúmsveita I
20ARA REVIMSL.A
I
Ponic og Einar, Ernir
Astro og Helga. Bendix,
Solo, Sextett Jóns Sig.,
Tríó. Kátir félagar —
Stuðlar. Tónar og Asa
Mono Stereo. Hlióm-
sveit Hauks Mortens. —
Geislar frá Akureyri
Pétur Guðjónsson.
Umboð Hljúmsveiia |
Sími-16786.
slmi 22140
Fréttasnatinn
(Press for time)
*
Sprenghlægileg gamanmynd i
litum frá Rank. Vinsælasti gam
anleikari Breta, Norman Wis-
dom leikur aðalhlutverkið og
hann samdi einnig kvikmynda
handritið ásamt Eddie Leslie.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9
18936
Porgy og Bess
Hin heimsfræga stórmynd f lit
um og Cinema Scope með
Sidney Poitier
Endursýnd aðeins í dag
kl. 5 og 9
Dvergarnir og
frumskóga-Jim
Sýnd kl. 3
Slmi 11544
Elsku Jón
íslenzkur texti
Stórbrotin og djörf sænsk ást
arlífsmynd.
Jari Kulle
Christine Scollin
Bönnuð yngri en 16 ára
Endursýnd kL 5 og 9.
síSustu sýningar.
Afturgöngurnar
Ein af þeim allra hlægilegustu
með Abbott og Costello
Sýnd kl. 3
T ónabíó
Slm 31182
Hættuleg sendiför
(Ambuch Bay)
Hörkuspennandi ný amerísk
mynd I Utum.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5 og 9
Bönnuð börnum innan 16 ára
Ferðin til tunglsins
Barnasýning kl. 3
Lokað vegna sumarleyfa
GAMLA BIO
Sfml 11475
Hugsanalesarinn
(The Misadventures of Merlln
Jones).
Walt Disney-gamanmynd með
íslenzkum texta.
Sýnd kl. 5 og 9.
Börn Grants
skipstjóra
Barnasýning kl. 3
Síriii 50249.
Fólskuleg morð
Spennandi sakamálamynd eft-
ir Agatha Christy.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5 og 9
Prófessorinn viðutan
Sýnd kl. 3
Slm) 50184
Fórnarlamb
safnarans
Spemnandi ensk-amerisk kvik
mynd.
Terency Stamp
Samatha Eggar
íslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 9
Hreykslið í kvenna-
skólanum
bráðfyndin og skemmtiieg
þýzik gamanmynd
sýnd M. 5 og 7
Lína langsokkur
Barnasýning kl. 3
W7i
4198£
Fireball 500
íslenzkur texti.
Hörkuspennandi, ný amerísk
kappakstursmynd í litum og
Panavision.
Sýnd kl. 5,15 og 9
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Geronimo
spennandi Indíánamynd
Barnasýning kl. 3
Síðasta sinn.