Tíminn - 14.08.1968, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 14. ágúst 1968.
TÍMINN
9
Ufgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján BenedUotsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarins6.on (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi rltstjórnar: Tómas Karlsson. Aug-
iýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Ritstj.skrifstofur i Eddu-
húsinu, simar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7. Af-
greiðslusími: 12323. Auglýsingasími: 19523, Aðrar skrifstofur,
sími 18300. Áskriftargjald kr. 120.00 á mán innanlands — í
iausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f.
r
ERLENT YFIRLIT
Bretar og Rússar eiga mikinn
þátt í himngiHio í Biafra
Bændur og samvinnan
Engum, sem kemur á landbúnaðarsýninguna, getur
dulizt hinn mikli þáttur, sem samvinnuhreyfingin á í
framförum landbúnaðarins. í sýningarskránni minnist
Þorsteinn Sigurðsson, formaður Búnaðarfélags íslands,
þessa þáttar þeirra á viðeigandi hátt, en hann segir þar
í grein, sem hann skrifar um þróun landbúnaðarins:
„Það væri söguleg fölsun, ef lokið væri þessari stuttu
og ófullkomnu frásögn af þróun landbúnaðarins á þess-
ari öld, og samvinnufélaganna væri að engu getið. Bænd
urnir höfðu forustuna um stofnun þeirra. Þá bjó yfir
90% þjóðarinnar í sveitunum. Þetta fólk fylkti sér undir
merki samvinnunnar.
Bændurnir hafa skilið það til fullnustu, að án þeirra
eigin verzlunarsamtaka hefðu þeir ekki komið í fram-
kvæm/i helmingnum af því stórvirki í landbúnaðarmál-
um, sem þeir hafa innt af höndum á 3—4 áratugum.
Á þessu stutta tímabili hafa þsir byggt upp sveit-
irnar, bæði yfir fólk og fénað, 7—8 faldað ræktunina,
stórfjölgað búfénaðinum ög kynbætt hann svo rösklega,
að afurðageta kúnna hefur nærri tvöfaldazt og fast að
helmingi meiri kjötþungi eftir hverja á nú, en var um
s.l. aldamót. Þeir hafa byggt mjólkursamlög um all land,
sum þau fullkomnustu, sem þekkjast, sláturhús, einn-
ig um allt land og frystihús. Við ræktunina eru notaðar
fullkomnustu og stórvirkustu vélar á félagslegum grund-
velli. Þess er skammt að bíða, að hver einasti bóndi
eigi tvær dráttarvélar. Og allar aðrar nauðsynlegar bú-
vélar, sem hver bóndi þarf að eiga, fyrirfinnast hjá flest-
um bændum. Og svo er komið, sem betur fer, að búnað-
ur íslenzkra sveitaheimila innanhúss, stendur ekki mikið
að baki því, sem gerist hjá öðrum menningarþjóðum og
mörg heimili jafnfætis.
Það skal fullkomlega viðurkennt, hve mikinn hlut
lánasfcofnanir landbúnaðarins eiga í allri þessari upp-
byggingu. En það hefði á engan hátt hrokkið til, ef
hin mikla og ómetanlega fyrirgreiðsla samvinnufélag-
anna hefði ekki verið fyrir hendi“.
Þessi reynsla ætti að vera bændum mikil hvatning til
að standa vel um þennan félagsskap þeirra, sem nú er
þrengt að á margan hátt.
Hvers á iðnaðurinn
að gjalda?
Morgunblaðið skýrði nýlega frá því, að ríkisstjórnin
hefði sett gjaldeyrishöft til verndar íslenzkum flugfé-
lögum og skipafélögum. Enginn íslenzkur aðili má nú
leigja erlenda flugvél eða erlent skip til farþegaflutn-
inga, nema með leyfi gjaldeyrisyfirvaldanna. Þessi höft
eru sett á vegna þess, að flugvélögin og skipafélögin
eiga nú í vök að verjast.
Það skal síður en svo gagnrýnt hér, að ríkistjómin
hefur gripið til umræddra gjaldeyrishafta. En það eru
fleiri íslenzkir aðilar en flugfélögin og skipafélögin, sem
þarfnast slíkrar verndar vegna erlendrar samkeppni.
Þetta gildir um mikinn hluta iðnaðarins. Margar iðn-
gremar eru að dragasí saman eða leggjast niður af þess-
ari ástæðu. Því óttast menn ekki að ástæðulausu, að hér
verði atvinnuleysi í haust og vetur.
Hvers vegna er iðnaðurinn látinn sitja hér við annað
borð en flugfélögin og skipafélögin? Hvers á hann að
gjalda?
Rússneskar flugvélar og brezk vopn hafa tryggt yfirburði Nígeríu.
Úr flóttamannabúð í Biafra.
FYRIR NOKKRUM DÖGUM
hófst í Addis Abeba, höfuðborg
Ethiopiu, sérstök ráðstefna und
ir forustu Haile Selassie keis-
ara, þar sem mættir eru full-
trúar frá ríkisstjórnunum í
Nigeríu og Biafra. Tilgangur
ráðstefnunnar er að reyna að
koma á friði eða a. m. k. varan-
legu vopnahlé í styrjöldinni,
sem nú geisar milli Nigeríu og
Biafra.
Mjög litlar líkur benda til
þess. að samkomulag náist að
sinni. Stjórn Nigeríu heimtar
svo að segja skilyrðislausa upp
gjöf Biaframanna. Stjórn Bi-
afra vill hins vegar ekki semja
nema sjálfstæði Biafra verði
viðurkennt. Líklegt þykir þó,
að Haile Selassie reyni að koma
í veg fyrir, að ráðstefnan leys-
ist upp, heldur haldist hún
fram í september eða þangað
til ráðstefna Bandalags Afríku
rikja kemur faman í Alsír. Þar
mun verða gerð ný tilraun til að
koma á sáttum
Svo á að heita, að nú sé
vopnahlé í styrjöldinni. Báðir
aðilar höfðu lofað að draga
úr vopnaviðsKiptum meðan ráð-
stefnan í Addis Abeba stæði
yfir. En stjorn Nigeríu, sem
hefur sterkari hernaðarlega að-
stöðu, hefur lýst yfir því, að
hún sætti sig ekki við langan
drátt. Þess vegna er óttast, að
hún hefji nýja sókn þá og
þegar.
EN ÞÓTT iitil vopnaviðskipti
hafi átt sér stað í Biafra að
undanförnu, vaxa hörmungarn-
ar þar með hverjum degi. Her
Nigeríu hefux náð óllum helztu
hafnarborgum og flugvöllum í
Biafra á vald sitt. Fólkið hefur
flúið þau héruð. sem her Niger
íu hefur náð á vald sitt, og eru
nú milljónir flóttamanna í þeim
landshluta, sem enn er á valdi
Biafrastjórnar. Þar ríkir nú
hungursneyð, því að helztu að-
flutningsleiðirnar hafa lok-
azt. í sumum flóttamannabúð-
unum deyja nú daglega hundr-
uð og þúsundir manna úr
hungri, ekki sízt ungbörn. Lýs-
ingar blaðamanna, sem hafa
heimsótt bessar flóttamannabúð
ir, eru þær hörmulegustu, sem
lengi hafa sézt Rauði krossinn
og fleiri líkriurstofnanir, hafa
reynt að skipuleggja hjálp og
flutt talsvert af meðulum og
nauðsynlegustu maivælum loft
leiðis til Biafra. Nigeríustjórn
gerir sitt ítrasta til að hindra
þessa flutninga og Tiafa þeir
nú að mestu lagst niður, þar
sem Nigeríuher hefur orðið
aðstöðu til að skjóta flugvélarn
ar niður.
FYRIR > EVRÓPUMENN er
þetta ástand ekki sízt óhugn-
anlégt vegna pess. að það eru
tvær ríkisst.jórnir i Evrópu,
er eiga mikinn þátt í því, hvern
ig komið er.
Þegar styrjöldin hófst fyrir
rúmu ári, bentu sterkar líkur
til. að hún myndi verða hálf-
gert þóf milli herjanna, hvor-
ugur herinn var nægilega vopn-
um búinn til að yfirbuga hinn.
Þetta þóf hefði getað leitt til
samkomulags um síðir. Það
réði hins vegar úrslitum. að
rússneska stjórnin hóf að
selja Nigeríustjórn herflugvél-
ar og brezka stjórnin leyfði ó-
takmarkaða vopnasölu til henn-
ar. Þetta helur gert Nigerlu-
stjórn möguiegt að afla sér
þeirra vopna, sem hefur tryggt
her hennar yfirburði I styrj-
öldinni.
í Bretlandi sætir nú vopna-
salan til Nigeríu sívaxandi
gagnrýni og hefur hún hvað
eftir annað verið gagnrýnd f
brezka þingmu Ríkisstjórnin
hefur samt ekki enn breytt af-
stöðu sinni. Af hálfu Biafra-
manna er trezku stjórninni
einna mest Lennt um bað á-
stand, sem nú ríkir í landi henn
ar.
ÞAÐ RÆÐUR vafalaust miklu
um afstöðu Breta, að þeir eiga
miklar eignir í Nigeríu og ótt
ast um þær ef beir stöðva
vopnasöluna bangað Þá hafa
þeir og vafalaust reiknað dæm
ið rangt, iíkt og Bandaríkin í
Vietnam. Peu- hafa reiknað með
því að Biaframenn myndu fljót
lega gefast upp eftir að þeim
yrðu Ijósir yfirburðir Nigeríu-
manna. Reyndin er hins vegar
sú, að Biaframenn hafa harðnað
við hverja raun og virðast nú
ákveðnari í bví að berjast fyrir
sjálfstæði sínu en uokkru sinni
fyrr. Tapi þeir styrjöldinni,
munu beir grípa til skæruhern
aðar, sem gæti staðið áx*um sam
an.
Ef til vili telja Bretar sig
svo eitthvað skuldbundna vegna
þess, að þeir eiga sögulegan
þátt í þeirr' ógæfu, sem hér
hefir orðið. Þeir reyndu að sam
eina í Nígeríu marga ólíka og
óvinveitta þjóðflokka undir eina
yfirstjórn. Þetta hefur reynzt
skammsým. íbo-þjóðflokkurinn,
sem byggir Biafra, sætti vax-
andi -ágangi af hálfu Hausa-
manna, sem búa í Norður-Nig-
eríu og eru rr.iklu fjölmennari.
Fyrir Ibo-menn var því að lok
um ekki um annað að velja en
reyna að stotna eigið ríki eða
eiga nær algera útrýmingu yfir
höfði sér. Þess vegna var Biafra
ríki stofnað a síðastl. ári. í
fyrstu sætti það mikilli tor-
tryggni í Afríku, því að flest
ríkin þar hafa fleiri þjóðfl. inn
an vébanda sinna, en engan jafn-
stóran og iþróaðan og Ibo-menn.
Málstaður Ibo-manna hefur líka
öðlast aukin>, skilning eftir
því, sem hann nefur skýrzt
betur. Fjögux Afríkuríki hafa
nú viðurkennt Biafra, en það
eru Tanzania. Zambia, Gabon
og Fílabeinsströndin Þá hefur
franska st.iórnin nýlega birt
yfirlýsiugu, sem rfligast viður
kenningu á Biafra. Sést hér enn,
að de Gaulle er sá vestræni
stjórnmálamaðurinn er skilur
bezt málefni Afríku Ef Bretar
og Rússar hetðu sýnt sama
skilning myndi stórfelld hung
ursneyð ekki hr.iá einn tremsta
og menntaðasta þjóðflokk Afr-
íku. ÞÞ.
i