Tíminn - 07.09.1968, Page 6
TÍMINN
LAUGARDAGUR 7. septenniber Mffl.
í FJÓRTÁN mánuði hefur
heimurinn nú horft upp á borg-
arastyrjöldina í Nígeríu —
styinjöld, sem sífellt hefur orðiS
hryllilegri eftir því sem fleiri
og fleiri saklausir borgarar
falla fyrir byssukúlum eða af
hungri. Jatfnframt því, sem
ýmsir telja að 6—9000 ó-
breyttir borgarar í Biafra láti
lítið daglega vegma hungurs og
ivannæringar, stendur nú yfir
lokasókn hers samlbandsstjórn
ar Nígeríu í Lagos gegn borg
um þeim, sem enn eni á valdi
Biaframanna.
Þótt svo virðist, sem sam-
bandsstjórnin muni a.m.k.
hafa Aba, sem undanfairið hef
ur verið höfuðborg þess, sem
eftir er af Biafra, í sínum
höndum þegar fundur Einingar
bandalags Afriku hefst í mæstu
viku, er ljóst að það breytir
litlu um þá staðreynd þessa
strfðs, að það á eiftir að standa
f langan tíma í viðbót. Upp-
baflega átti Biafra að vera kné
sett eftir 2—3 vikna hernaðar
átök, og að setja einhver tíma
takmörk nú um það, hvenœr
hörmungunum lýkur, er von-
laust.
Saga deflunncir hefur svo
oft verið rakin í þessum þátt-
um, að óþarfi er að endurtaka
hana enn einu sinni. Aftur á
móti þykir rétt að skýra að-
eins frá gangi styrjaldarinnar
sjálfrar, og þeim 'tilraunum til'
hjálpar, sem ýmis alþjóðasam
tök — og þá einkum Rauði
krossinn — hafa gert undan-
farið, oig kunna fyrst nú að
bera einhvern, en þó takmark
aðan, árangur.
VTÐBÆÐUR um lausn deil-
umiar hófust að nýju í Addis
AJbeba, höfuðborg Eþíópíu, 5.
ágúst síðastliðinn, eða fyrir
rúmum mánuði, undir eftirliti
Einingarbandalags Afrfku • og
þá einkum formanns Nígerdu
nefndar þeirra samtaka, Haile
Selassie, keisara Eþíópiu. Er
skemmst frá þvi að segja, að
hvorki hefur gengið né rekið
í þeirn viðræðum. Deiluaðilar
hafa þar Skipzt á ásökunum,
eo á engan hátt nálgazt sam-
komulag.
Er ljóst, að Einingarbandalag
Aflrfku hefur brugðizt vonum
margra, sem héldu að samtök
in gætu komið á, eða aðstoðað
við að koma á samkomulagi i
Nígeriu. f næstu viku verður
haldinn árlegur fundúr banda
lagsins og verður Nígeriumálið
væntanlega þar efst á baugi.
Ekki er þó hægt að búast við
jákvæðum árangri þar miðað
við reynsluna undanfarið.
FYRR f SUMAR var um
nokkurn tíma liti'ð um bar-
daga milli herliðs sambands
stjórnarinnar í Lagos og
Biaframanna. Munu viðræður
, þær, sem haldnar voru í Add-
is Abeba, væntanlega hafa átt
sinn þátt í þvi
En fyrir um hálfum mánuði
síðan þótti sýnt, að sambands
stjórn’U vœri að hefja nýja
sókn, sem einkum beindist
gegn bremur borgum Bíafra,
Aba, 'sem hefur verið böfuð-
borg Biafra frá falli Enugu,
Owerri og Umuahia.
Er vitað, að undanfarna daga
* \
STYRJÖLDIN í
NÍGERÍU
Tekizt hefur að flytja nokkurt magn af matvælum og lyfjum flugleiðis til Biafra. Mynd þessi sýnir affermingu flugvélar á flugvetff
þar; er veriS a5 afferma skreið.
hefur megináherzlan verið
lögð á sóknina gegn Aba, og
hafa þar verið geysilega harð
ir og mannskæðir bardagar.
Hvort sambandsstjórnin hef
ur náð Aba á sitt vald er
ekki vitað með vissu. Varlegt
er a'ð trúa fullyrðingum Lagos
stjórnarinnar í þessu samíbandi,
því að hún hefur fullýrt mörg-
um sinnum að bor.gin væri á
þeirxa valdi, þótt fréttaritarar
í Aba fullyrtu hið gagnstæða.
Aftur á móti mun fólk hafa
flúið Aba undanfarna daga
1 stórum stál og haft með sér
allt, sem það gat. Bendir
þannig margt til þess, að sé
borgin ekki fallin í hendur her
liðs sambandsstjórnarinnar, þá
muni hún a.m.k. gera það
næstu daga.
UM SÓENINA á öðrum víg
stöðvum er lítið sem ekkert
vitað, en telja verður að hún
gangi mun hœgar en sóknin
gegn Aba.
Má búast við, að það taki
sambandsherinn alllangan
tíma að ná borgunum Owerri
og Umuahia á sitt vald. Þegar
það gerizt, hafa Biaframenn
misst allar borgir sínar og
standa verr að vígi en á'ður
að veita mótspyrnu.
Aftur á móti er það sam
dóma áiit þeirra, er vel til
þekkja, að styrjöldinni I Níger
fu muni ekki ljúka þótt þess
ar borgir falli í hendur sam
bandsstjórnarinnar. Þá mun
að vísu erfitt fyrir liaframc ,n
að veita mótspyrnu, vegna lít
ils samlbands við umheiminn,
einkum hvað vopnasendingar
áhrœrir. En hugur Biafra
manna til sambandshersins er
slíkur, að engin von er 'um
uppgjöf eða friðsamlega sam
búð.
Hið virta brezka tímarit
,,The Economist“ hefur það
eftir þeim evrópsku diplómöt
um, sem bezt til þekkja um
ástandið í Biafra, að meðal
fbúanna þar ríki nú sama hug
arfar og meðal Gyðinganna í
Varsjá, er þeir gerðu hina
hetjulegu jen vonlausu uppreis11
sína gegn Þjó'ðverjum.
Fólk, sem hefur hlotið þann
ig hugrekki — hugrekki ör
vœntingarinnar — verður
aldrei bugað nema með vopn
um. Því er þáð, að margir óttast
að eftir sé enn öhugnanlegra
bló'ðbað, en 'þegar hefur átt
sér stað, jafnvel raunverulegt
þjóðarmorð.
Á MEÐAN bardagarnir geysa
og hrægammarnir gæða sér á
líkunum og ýldan af rotnuðum
lfkömum fyllir loftið á margra
mílna svæði umhverfis víg
völlinn, reyna alþjóðlegar hjálp,
arstofnanir að koma matvœlum
og lyfjum til óbreyttra borgara
sem hrynja ni&fr úr hungri og
vannæringu. Þessar stofnanir
hafa orðið að horfa upp á þess
ar hörmungar nú um langan
tíma, á meðan matvælabirgðirn
ar hlaðast upp á eyjunni Fern
ando Poo skammt frá.
Nú í vikunni virtist þó að
eins rofa til í þessu efni, þeg
ar samkomulag náðist milli
Rauða krossins og sambands
stjórnarinnar í Lagos um flutn
inga á matvælum og lyfjum
flugleiðis til flugvallar í Biafra.
Áttu þessir flutningar að hefj
ast á fimmtudaginn var, í
fyrradag, og standa fyrst um
sinn í 10 daga.
STJÓRNEN í Bialfra hefur
mótmælt því, að umrœddur
flugvöllur verði nota'ður til
þessara flutninga, þar sem
hann sé sá eini, sem Biafra
menn geti notað nokkurn veg
inn öruggir til vopnaflutninga.
Aftur á móti mun Ráuði kross
inn væntanlega fljúga með
matvæli til þessa flugvallar
þrátt fyrir andstöðu Biafra
stjórnarinnar, þótt svo hafi að
vísu ekki orðið á fimmtudag
eða föstudag.
Flugvöllurinn, sem hér um
ræðir, er á Uli Ihiala svæðinu
skamrnt frá borginni Owerri,
sem Biaframenn hafa á valdi
sínu eins og áður sagði. Sam
komulagið við Lagosstjórnina
felur í sér að Rauði krossinn
megi fljúga til þessa flugvallar
óhindnað að degi til, en flug
vélarnar verði þó að sto-ppa á
leið sinni frá Fernando Poo
í Lagos, svo að sambandsstjórn
in geti gengið úr skugga um
að vopn séu ekki innanborðs.
Mun Rauði krossinn nota
fimm flugvélar að minnsta
kosti til þessara flutninga, og
mun það au'ðvitað koma Biafra
mönnum, sem nú líða hungur
að nokkru gagni.
FLESTIR eru þó sammála
um, að til þess að hafa ein
hverja von um, að bjarga þeim
8 milljónum íbóa, sem nú
eru á þvj litla svæði sem eftir
er af >iafra, þurfi að flytja
mikið magn matvaúa og lyfijta
landleiðina. Um það helfur aft
ur á móti ekkert samkomulag
ná'ðst o.g mun vœntanlega ekki
nást á meðan bardagiar standa
yfir.
Stjórnin í Biafra hafði áður
boðið Rauða Krossinum að
fljúga með matvæli til flug
vallarins við Obilagu, sem
einnig er í hýndum Biafra
manna, og hafði Rauði Kross
inn tilkynnt að það myndi hann
gera. En sambandsstjómin í
Lagos mótmælti þessu harð
,lega, og hótaði að skjóta flug
vélarnar niður. Voru rök henn
ar sú, að Obilagu væri í sókn
arlínu sambandshersins. Þrátt
fyrir þetta, herma fréttir —
óstaðfestar — að Rauði Rross
inn hafi flogið með vistir til
Obilagu-flugvallarins s. 1. mið
vikudag og fimmtudag.
Virðist alla vega ljóst, að
einhvert aukið magn matvæla
og lyfja mun þessa dagana
koma til Biafra og þá vœntan
lega ná til einhvers hl-uta fbú
anna. Hversu víða er hægt að
dreifa þeim matvælum vegna
bardaganna og samigönguerfið
leika, er auðvita'ð erfitt að
segja til um, en raunverulega
víðtækri hjálparstarfsemi er
uðvitað mjög erfitt ef ekki
mögulegt að skipuleggja vi'ð
núverandi aðstæður.
SUMIR SEGJA að styrjaldar
ástand og blóðþað muni halda
áfram í Nigeríu í langan tíma
enniþá, og jafnvel, áð enginn
friður komist á nema með út-
rýmingu íbóanna í Biafra. Og
Framhald á bls. 11.
i