Tíminn - 07.09.1968, Side 9
LAUGARDAGUR 7. september 1968.
TIMINN
Hann kom inn í verzlun sem
verzlaði með dýr og benti á
stóran og fallegan hund.
— Uvað kostair þessi?
— 5500 kr.
— Hann benti á minni hund
sem ekki var eins vel útlitandi
— Em þessi?
— 1500 kr.
Svo var þarna einnig lítill og
rœfilslegur hundur.
— En þá þessi þarna?
— 500 kr.
Jajja sagði maðurinn ....
og hvað kostar það þá ef ég
kaupi engan hund’?
Hann varð mjög órólegur þeg
ar lögregluiþjónn stöðvaði
hann út á miðijum þjóðvegi, en
•létti stórlega þegar lögregiu-
.þjónninn sagði:
— Ég stöðva yður áðeins til
þess að hrósa yður fyrir hvað
þér akið rétt og varlega.
— Já, sagði maðurinn það
er alveg rétt. Ég er alltaf mjög
varkár við akstur, þegar ég
hef fengið mér einum of mik
ið í staupinu.
Dofctor: Kom meðalið sem ég
lét yður fá fyrir eiginmann
yðar að nokfcra gagni?
Eonan: — Já við grófum
hann 1 gasr.
SLRMMUK
OG FOSS
Þau eru mörg spilin, sem
tapazt vegna þess, að sagn-
'hafi gefur sér ekki tíma til að
telja slagi sína, eða tekur til
greina slæma legu. Líturn á
þetta dæmi.
4 82
¥ Á2
4 D74
4 HG8742
4 953 4 G1074
V DG876 ¥ 10543
♦ K1082 4 6
4 5 4 Á1093
4 ÁKD6
¥ K9
4 ÁG953
4
Vestur spilaði út 'hjarta sexi
gegn þremur gröndum Suðurs
og á svipstundu tapaði Suður
spilimu. Hann vann á kóng
heima og spilaði laufa D. Aust
ur tók á ás, og spilaði hjarta
Þegar Vestur sýndi svo eyðu í
laufi var ekki hægt að vinna
spilið.
En þó er létt að vinma spilið
og sagohafi á að tryggja sig
gegn 4-1 legunni í laufi. Eftir
að hafa unnið útspilið er rétt
að leggja niður tígul ás og
spila litlum tfgli. Vestur má
ekki taka á kónginn, því ann
ars fær Suður einfaldlega níu
slagi. Og þegar Austur á eitt
spil í tígli, snýr Suður sér að
því að fá tvo slagi á lauf.
Ef Austur hefði átt K 10 8 2
í tigli vinnst epilið með þvi að
svína tígli, því þannig fást 4
slagir á tígulinn.
□
7
u
n
— Hún fylgdi mér heim, Eimma. M!á ég ekfci halda henni.
Krossgáta
Nr. 110
Lóðrétt:
2 Lítill. 3 Nes. 4 Hár. 5 Út-
limir. 7 Ákafur. 9 Dýr. 11
Bókstatur. 15 Kassi. 16 Sfif.
18 RJöð.
Lárétt:
1 Nýall. 6 Sal. 8 Lóa. 10 Léð
12 Að. 13 La. 14 Kam. 16
Bil. 17 Jóa. 19 Háski.
Lóðrétt:
2 Ýsa. 3 AA. 4 LLL. 5
Slaka. 7 Aðall. 9 Óða. 11
Éli. 15 Mjá. 16 Bak. 18 Ós.
Lárétt:
1 Mjólkurmatur. 6 Tal. 8. Þung-
búin. 10 Læri. 12 Bókstafur. 13
Stafrófsröð. 14 Máttur. 16 Konu.
17 Kennd. 19 1968.
12
5. kafi.
Þota kemur til sögunnar.
Anna var komin frá morgun-
mjöltunum og Kristín var að gefa
minnstu kálfunum mjólkina sína.
— Ferðu ekki að vera búin, svo
við getum látið beljurnar út?
spurði Jón óþolinmóður. — Þú
dekrar svo við kálfana að maður
getur aldrei lokið fjósverkunum
af!
— Það er svo gaman um þetta
leyti þegar maður hefur mikið af
ungviði undir höndum, svaraði
Kristín, — kálfum og grísum og
kjúklingum.
— Og kettlingum, bætti Agnes
við.
— Já, það er gaman að þeim
líka sagði Kristín og brosti.
— En það þyrfti helzt að vera
eitthvert gagn að þeim.
— Svona eins og kálfinum þín
um, áttu við?
— Einmitt! Eigi maður skepnu
þarf hún að vera nytsöm.
Kristín leit til Jóns sem lá með
olbogan fram á grindina hjá
Karólusi og horfði á bolakálfinn
með drembilæti eigandans.
— En mig minnir þú segðir að
við ættum ekki að selja hana
Krónu, af því hún væri svo góð?
— Eins og hún sé það ekki?
Hún er það bezta, sem við eig-
um til.
— Og svo átt þú hana líka.
— Ég á fjórar skepnur, skal ég
segja ykkur. mælti Agnes. —
Gullu og Lúllu og Pésa og Trítlu.
Það er helmingi fleira en þú átt,
því þú átt ekki nema Krónu og
Karólus.
— Ekki nú sem stendur, svar-
aði Jón.
— Með hverju hefur þú hugs-
að þér að auka bústofninn? spurði (
ristín.
— Þú færð að vita það þegar
þar að kemur.
— Ó, segðu það, Jón, hrópaði
Agnes. — Hvíslaðu því að mér,
hvað það er!
— Þú ert ómögulegur ungling-
ur! Svona, úf með þig, nú koma
kýrnar.
— Hvar er Jón? spurði Anna
þegar systurnar komu einar inn.
— Úti í fjósi, svaraði Kristín,
— hann kemur bráðum.
—Hann hringdi nýlega til
Andrésar, og mér heyrðist eins
og þeir væru að bollaleggja eitt
hvað, hélt Anna áfram, hún var að
bera fram matinn.
— Ja, ekki veit ég um það,
sagði Jóhann, — en þetta kem-
ur bráðum í ljós hjá honum.
Jón kom inn og settist að snæð
ingi. Þegar hann hafði matazt
hvarf hann aftur á brott.
Allt í einu heyrðist fótatak
Agnesar og klaufaspark Lúllu
frammi í ganginum.
— Kemur hún nú aftur drasl-
andi með Lúllu! andvarpaði
Anna. Það fer að ganga full langt
þegar maður verður líka að hafa
geiturnar inni í bæ!
— Hvar er Jón? spurði Agnes
þegar hún var komin inn úr dyr-
unum.
— En á Hrafnsnesi, nema hvað
svaraði Anna.
— Hann er að koma þarna!
hrópaði Agnes áköf.
— Svona fljótt! sagði Ana. —
Það var prýðilegt!
— Afi er með honum! Komdu
Lúlla, við skulum fara á móti
þeim!
Kiðlingurinn þaut út á hæla
henni. — Hæ, afi! kallaði hún á
hlaupunum til þeirra Óla Péturs
og Jóns.
— Krakkar segja ekki „hæ“ við
gamalt fólk, sagði Óli Pétur í á-
vítunartóni.
Agnes var fljót að leiðrétta sig.
— Góðan dag, sagði hún. — Jón,
hefurðu nokkuð . . . Hún þagnaði
í miðri • setningu er hún sá lítið
höfuð gægjast út úr einhverri
grárri ullarflík undir handlegg
Jóns. í því voru augu og nef eins
og þrír svartir dílar.
— Ó, hvolpur! Átt þú hann?
— Já, ég sagðist ætla að fjölga
skepnunum.
Agnes lagði hvolpinn undir
vangann í gleði sinni, og hann
svaraði þegar í stað með því að
sleikja hana í framan.
— Ekki skil ég hvað þú ætlar
með hund að gera, sagði Óli Pét-
ur í aðfinnsluróm. — Þið sem
eigið einn hund fyrir, eins og það
nægi ekki? Hvað varðstu að
borga fyrir hann? Undir tuttugu
NORRÆNA HÖSIÐ
POHJOLAN TAIO
NORDENS HUS
Hand- og
ListÍðnaðarsýningin
er opin alla virka daga frá kl. 17—22.
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 14—22.
Athugið! Aðeins stuttur tími eftir!
Ný norræn dagblöð liggja frammi í kaffistofunni.
og fimm krónum fær enginn mað-
ur hvolp, sem nokkuð er varið f.
Jón hló háðslega. — Tuttugu
og fimm krónur fyrir fyrsta
flokks elghund, með ættartölu og
ÚTVARPIÐ
Laugardagur 7. september
7.00 Morgunútvarp 12.00 Há-
degisútvarp 13.00 Óskalög sjúkl
inga Kristín Sveinbjörnsdóttir
kynnir 15.00
Fréttir. 15.15 H8S1IÍ1Ú
Laugardags
syrpa í urnsjiá ^ Hallgríms
Snorrasonar. 17.15 Á nótum
æskunnar Dóra Ingvadóttir og
Pétur Steingrímsson kynna
nýjustu dægurlögin. 17.45
Lestrarstund fyrir litlu börnin
18.00 Söngvar í léttum tón. 18.
20 Tilkynningar 18.45 Veður-
fregnir 19.00 Fréttir 19.30 Dag
legt líf Árni Gunnarss. frétta
maður sér um báttinn 20.00
Gamlir slaghörpumeistararHall
dór Haraldsson kynnir. 20.55
Leikrit: „Phipps“ eftir Stanley
Houghton. Leikstj. og þýðandi:
Gísli Alfreðsson. 21.20 Ensk
sönglög: John ShirleylQuirk
syngur. 21.40 ,,Bláar nætur“
smásaga eftir Mögnu Lúðyíks
dóttur 22.00 Fréttir og veður
fregnir. 22.15 Danslög 23.55
Fréttir í stuttu máli. Dagskrár
lok.
Sunnudagur 8. september
8.30 Létt morgunlög eftir
Dvbrák. 8.55 Fréttir. 9.10 Morg
untónleikár. 11.00 Messa í Dóm
kirkjunni.
Séra Sverre
Smaadahl
framkvæmdastjóri hjá Samein
uðu biblíufélögunum prédikar
á norska tungu. Biskup fslands
herra Sigurbjörn Einarsson,
þjónar fyrir altari. Organleik-
ari: Ragnar Björnsson. 12,15
Hádegisútvarp. 13.30 Miðdegis
tónleikar. 15.05 Endurtekið
efni: Sitthvað um málefni
heyrnleysingja. Þáttur Horn-
eygla frá 7. f. m. í umsjá Bald
urssonar og Þórðar Gunnlaugs
sonar 15.35 Sunnudagslögin 16.
55 Veðurfregnir 17.00 Barna-
tími: Ólafur Guðmundsson stj.
18.00 Stundarkorn með Smet
ana. 18.20 Tilkynningar 18.45
Veðurfregnir. 19.00 Fréttir 19.
30 Þrjár rómönsur fyrir fiðlu
og píanó op. 94 eftir Schumann
19.40 Við sanda Guðrún Guð
jónsdóttir flytur ljóð úr bók
eftir Halldóru B. Björnsson.
19.50 Sönglög eftir Gabriel
Fauré: Bernard Kruysen syng
ur lagaflokkinn „Frá Feneyj
um“ op. 58 og lagaflokkinn
„Sjónhring í móðu“ op. 118,
Noel Lee leikur á píanó. 20.10
Hamborg Vilhjálmur Þ. Gisla
son fyrrv. útvarpsstj. flytur
erindi. 20.35 Einleikur á lútu
og gítar: Julian Bream leikur
á tónlistarhátfð í Sohwetzingen
í sumar. 20.55 „James Bond og
eðalsteinn furstans af Mara-
punta" Guðný Ella Sigurðar-
dóttir kennari les fynri hluta
þýðingar sinnar á smásögu eft
ir Agötu Ohristie 21.20 Lög úr
söngleikjum. 21.45 Nýtt líf
Böðvar Guðmundsson og Sverr
ir Hólmarsson standa að þætt
inum 22.00 Fréttiir og veður
fregnir 22.15 Danslög 23.25
Fréttir í stuttu máli. Dagskrár
lok.