Tíminn - 29.09.1968, Blaðsíða 1

Tíminn - 29.09.1968, Blaðsíða 1
OÓ-Reykjavík, laugardag. ENN FJÖLGAR DRUKKNUM BIF- REIÐARSTJÓRUM ................ ' i Auglýsing í THnanum ? kemur daglega fy?®r augu ! \ 80—100 þúsund lesenda. Gerizt áskrifendur ,ð Tinaanum. Hringið í síma 12323 209. tbl. — Sunnudagur 29. sept. 1968. — 52. Sjö góðglaðir ökumenn voru handteknir í Reykjavík 1 nótt- Sá fyrsti var tekinn rétt fyrir kl .22 og sá síð asti kl. rúmlega 4. En þetta er sá tími sólarhringsins sem flestir drukknir ökumenn eru teknir. Síðustu vikurnar hefur ölv- un við akstur aukizt mjög og má nefna að um síðustu helgi voru teknir álíka margir drukknir ökumenn og nú. Læt ur nærri að 15 til 18 bflstjór- ar missi réttindi sín um lengri og skemmri tíma í hverri viku. Er næsta furðulegt hve bíl- stjórar eru kærulausir þegar áfengi er annars vegar og skirrast ekki við að setjast und ir stýri bOa sinna meira og minna drukknir. Oft lenda þessir menn í árekstrum og valda slysum á sjálfum sér og öðrum. Að þeirri hættu frá- dreginni eiga þeir sér þess alltaf von að lögreglan stöðvi þá og færi til blóðrannsóknar. Mennirnir virðast halda að ekki sjái á ökulagi þeirra að þeir hafa neytt áfengis, enda dómgreindin oftast farin veg allrar veraldar þegar þeir eru búnir að hella nógu miklu á- fengismagni í sig og þykjast þessi ökumenn færir í flestan sjó. En glöggir lögreglumenn sjá fljótlega hvar drukknir öku- menn eru á ferðinni. Ökulag þeirra er nefnilega ekki ósvip- Framhald á bls. 14. Sauðfé komið af fjalli f haust. (Tímamynd—KárW. STÉTT ARS AMBANDiD RÆÐIR VERD LAGSGRUNDVÖ LLINN Á ÞRIDJUDAG EJ-Reykjavík, laugardag. Eins og frá hefur verið skýrt Vilja ekki loftnetsskóg FB-Reykjavík, laugardag. Nú fer að styttast í því, að Ak- ureyringar geti byrjað að horfa á sjónvarpið. í því sambandi birt ist nýlega auglýsing í Degi frá bæjarstjóranum, þar sem hann vekur athygli á því, að samkvæmt byggingarsamþykkt skuli vera ein útvarps- og sjónvarpsstöng á húsi er sé sameiginleg fyrir allar íbúð- ir þess. Eiimig hefur Bæjarráð Ak- ureyrar samþykkt, að beina þeim tilmælum til eigcnda eldri húsa í bænum, að þeir komi sér saman um uppsetningu og notkun sjón- varpsloftneta, svo ekki þurfi að setja fleiri en eitt loftnet á hvert hús. Blaðið hringdi í Bjarna Einars- son bæjarstjóra og spurði hann nánar um þessi tilmæli bæjarráðs ins. Hann sagði, að í byggingar- samþykkt þeirra, sem gildir fyrir flesta bæi í landinu sé bannað að setja nema eitt loftnet á hús. Hins vegar sé ekki fullvíst, hvort hægt sé að kalla sjónvarpsloftnet útlits breytingu, og þá hvort reglurnar gilda um gömlu húsin líka. Því hafi bæjarráð samþykkt í sumar að skora á eigendur eldri húsa. að setia ekki nema eitt loftnet á þau, en eins og þeir vita, sem séð hafa loftnetaskóginn á sum um húsum í Reykjavík, er ekki prýði að honum, svo ekki sé meira sagt. Akureyringar eru nú að byrja að setja upp sjónvarpsloftnet sín, og sagðist bæjarstjórinn hvergi hafa séð nema eitt loftnet á húsi ennþá. Sagðist hann halda, að bæjarbúar ættu eftir að sýna mik- inn skilning í þessu máli, enda þótt vandamál gætu risið, þar sem menn sambýlishúsum ættu að sameinast um betta. en kannski aðeins einn af þremur vildi í upp- hafi fá sjónvarp. M réði meiri,- hlutinn, og viðkomandi aðili setti upp eigið net, á sinn kostnað. Síðar gætu hinir komið á eftir. en á þetta hefur enn ekki reynt. í blaðinu, úrskurðaði yfir- nefnd um verðlagningu land- búnaðarafurða nýjan verð- lagsgrundvöll á fimmtudag- inn var. Ekki er aftur á móti búizt við að upplýsingar um hinn nýja grundvöll liggi fyr- ir fyrr en eftir helgina. Blaðið hafði í dag samband við Gunnar Guðbjartsson, formann Stéttarsambands bænda. og sagði thann, að þótt yfirnefndin hefði ákveðið grundvöllinn í tölum, þá hefði hún ekki enn gengið frá greinargerð uin úrskurð sinn. Væri sú greinar.gerð fyrst vœnt- anleg á mánudaginn. Stjórn Stéittarsambands bænda mun síðan koma saman til fundar ó þriðjudagsmorguninn tii að ræða hinn nýja verðlagsgrundivöll land búnaðarafurða, og taka afstöðu til hans. Verður því ekki hægt að skýra Framhald á bls. 14. 4 FENGU 400 ÞUS. KJ-Reykjavík, laugardag. Síðdegis í dag fór fram fyrsta úthlutun úr Rithöfundasjóði íslands. Úthlutað var 400 þús- nd krónum til fjögurra rithöfunda, Guðbergs Bergssonar, Guðmundar Daníelssonar, Jó- hannesar úr Kötlum og Svövu Jakobsdóttur. SjóðStjórn skipa Stefán Júlíusson, Björn Th. Björnsson og Knútur Hallsson. Um ein milljón er nú i sjóðnum, en samkvæmt heimildum er úthlut að fjörutíu hundraðshlutum til fyr.rgreindra höfunda, en sextíu hundraðshlutar verða lagðir fyrir, þangað til úthlutað verður í fyrsta Guðbergur Bergsson sinn 1071, samkvæmt eintaka- fjölda höfunda í söfnum landsins. Leitað var samþykkis fyrir þess ari tilihögun í rithöfundafélögun um með einfaldri greiðslu at- kvæða á fundum. Tveir menn í stjórn sjóðsins voru tilnefndir af Guðmundur Daníelsson stjórn Rithöfundasambandsins, þeir Stefán Júlíiusson og Björn Th., en þeir átitu báðir sæti í stjórn Rifhöfundasambandsins, þeg ar sú tiinefning fór fram. í ávarpi formanns sjóðstjórnar Stefán Júlíusson, sem flutt var við afhendinguna í dag. kemur 'fram að sjóðsstjórnin hefur ákveð ið að kalla úthlutunina \iðurkenn ingu, þótt um fé rithöfundanna sjálfra sé að ræða. Að öðru leyti segir í ávarpi formanns: Tveir þessara höfunda hafa ritað bækur um áratuga skeið, hinir tveir hafa vakið sérstaka athygli með bók- um sínum á allra síðuistu árum. Þá segir að af hálfu sjóðsstjórn ar fylgi engin frekari skilgrein- ;ng eða greinargerð. Svava Jakobsdóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.