Tíminn - 08.10.1968, Page 1

Tíminn - 08.10.1968, Page 1
Lögreglumenn bera ungmeiim ut ur anddyri Laugav. 18, en þau höfðu safnazt þar saman til að mótmæla veizluhaldi austur-þý/.ku sendisveitarinnar. Settust mótmælendur í tröppurnar og meinuðu gestum að- gang að lyftunni og komst enginn inn í lnisið fyrr en lögreglan hafði borið setumenn út. — (Sjá mynd á bls. 3. — Tímamyndir:—Gunnar). Snúið við vilji Tékka E5KH-Reykjaivík, mánudag. Upp úr kl. 8 í kvöld safnað ist hópur ungs fólks fyrir utan aðalinngang Hótel Sögu en á hótelinu var þá í þann mund að hefjast veizla, sem boðið var till af austur-þýzku sendi nefndinni á íslandi. í hópnum mátti sjá flesta þá sem þátt tóku í mótmælaaðgerðunum á Laugaveginum fyrr í dag. Mótmælendurnir röðuðu sér í tvær raðir sitt hvorum megin inngangsins og er veizlugestir tóku að tínast til fangnaðarins var þeim hverjum og einum af- hent lítið blað, þar sem á Framhald á bls. 14 Hörð átök á Laugavegi Rúmlega 1000 fórust í flóðum NTB-New Dehli, mánud. Óttast er að rúmlega þúsund manns hafi farizt í fjögurra daga samfelldum rigningum, flóðum og skriðuföllum í Norður Bengal. Indverski flugher- inn hefur komið á fót loft brú til héraðanna sem verst hafa orðið úti og berast nú þangað matvæli og lyf, auk þess sem flugherinn reyn ir að flytja nauðstadda til öruggari svæða eftir megni Af blaðafregnum má ráða að 560 manns hafi látið lifið í héraðinu Darjeeling, sem heims þekkt er fyrir teframieiðslu sína og í Jalpaiguri, en bæði þessi svæði eru undir flóð- vatni úr ánni Testa. Til fjögur hundruð fjöl- skyldna sem bjuggu við ár bakkana hetfur ekkert spurzt o.g er talið að áin hafi hrifið heim ili þessa fólfcs með sér. 18 þús. ferkflómera svæði er liggur að Nepal, Sifckim, Bhut Framhald á bls. 14 SLAGSMAL INORDIIR- ÍRLANDI! Stuðningsmenn Tékka og Slóvaka mótmæltu „hernámskokkteili" Austur - Þjóðverja OÓ-Reykjavík, mánudag. Það var harðsótt fyrir boðs- gesti að komast í veizlusali aust- ur-þýzku sendisveitarinnar í dag, að Laugavegi 18, til að fagna þjóðliátíðardegi Þýzka alþýðulýð- veldisins. Rúmlega 100 ungméuni eátn í stigaiuMUiaiigi hússins off i lyftunni og harðneituðu prúðbún-1 um veizlugestiim um aðgang að ■ efri hæðum. Komust gestir ekki til gleðinnai fvrr en fj<i’*... regliilið liafði rutt anddyri hú ,s- ins og dugði |i.i tn'pa-a til »i.., i eklti á milli sjá hvort haiðuiitnu , g.ll n Lti hi-luJ. viA I ryðja gestum inn í byggiuguna eða ungmennum út úr henni. Svo fór að iögreglumenn handtóku 10 •nlta og óku þeim í fangageymslu g varð þá inngangan auðveldari. í tilefni þjóðhátíðardagsins efndi verzhinarfulltrúi Þýzka al- J-l Ú AiaaI-£j i-ígi»3-e tí l GÍÍW , í húsakynnum sendisveitarinnar að Laugavegi 18. Átti drykkjan að hefjast kl. 17. Rétt fyrir þann tíma komu á annað hundrað ung- menni sér fyrir í anddyri húissins settust í tröppurnar ag í lyftuna > og héldu lyftudyruinum opnum, ■ 1ilnamtl4.U) & V4- -9 ' NTB-Londonderry, mánudag. Um heigina kom tii mikiila 6- eirða í Londonderry, næststærstu borg Norður-frlands og særðust a.m.k. 90 manns í þeim. Óeirðirn- ar í Londonderry eiga rætur sín- ar að rekja til aldalangrar bar- áttu milli kaþólska minnihlutans í Norður-frlandi og meirihuta mótmælenda, sem situr í ríkis- stjórn og valdaembættum. Hrotta skapur lögreglunnar í óeirðum þessum hefur vakið mikla reiði almennings, jafnt á írlandi sem í Bretlandi. Harold Wilson hefur beðið James Ca'.laghan um að gefa skýrslu um ástandið. Einnig hef- Framhald á bls. 14 300 TONN AFSKREID SELD? KJ-Reykjavík, mánudag. Tilboð mun nú hafa bor- izt. um kaup á 300 tonnum af skreið héðan, og er þetta nú til athugunar hjá viðk. ráðuneyti. Það er íslenzkur aðili sem starfar erlendis, sem mun hafa markað fyrir þessi þrjú hundr uð tonn af skreið, og hefur hann gert einkaaðila hér tilhoð um kaupin, en ekki Skreiðarsam laginu. Ekki er vitað hvaða verð þessi aðili býður fyrir skreið ina, en viðkomandi ráðuneyti mun væntanlega afgreiða út- flutningsumsóknina á næstu dögum, og verður þá væntan lega hægt að skýra nánar frá kauptilboði þessu, en hér er um allmikið magn að ræða á íslenzkan mælikvarða. Ekki er vitað hvert þessi íslenzki aðili, sem aðsetur hef ur érlendis ætlað að selja skreiðina. NORÐMAÐUR FÉKK HÁTT VERÐ FYRIR SALTFISK NTB-Álasundi, mánudag. Skuttogarinn Breivik jr. er kominn til Álasunds, eft ir að hafa selt 250 tonn af saltfiski í Esbjerg, og verð ur saltfiskurinn fluttur það an á ítalíumarkað. — Það kom okkur skemmti lega á óvart hvað við fengum gott verð fyrir saltfiskinn, sagði Mikal Breivik skipstjóri togar ans við blaðið Sunnmörsposten. verðið er langtum hærra en það sem fékkst í Noregi í sum ar, og langtum hærra en sjó mennirnir höfðu búist við. Þetta var líkat mjög góður saitfi.sk ur. Gerizt áskrifendur .3 Tímanum. Hringið í síma 12323 mm Auglýsing i Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. 216. tbl. — ÞriSjudagur 8. okt. 1968. — 52. árg.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.