Tíminn - 30.10.1968, Qupperneq 1
/
UERK
RD
umnn
Byggjum
geðdeildir.
Menntum
starfsfólk.
wm
235. tbl. — Miðvikudagur 30. okt. 1968. — 52. árg.
Gerizt áskrifendur ð
Tímanum.
Hringið í síma 12323
Gjaldeyrisráð-
stafanir vegna
gengisótta manna
IGÞ—FB—Reykjavík, þriðjud.
Um tvö leytið í dag
hættu bankar, sem verzla
með erlendan gjaldeyri að
afgreiða kröfur og jafn-
framt var hætt að sam-
þykkja víxla til erlendra
vörukaupa. Hins vegar var
haldið áfram að taka
greiðslur upp í erlenda
víxia, sem voru á gjald-
daga, en ekki sem falla
síðar. Töluverð ásókn hef-
ur verið í að greiða erlendu
víxlana fram í tímann að
undanförnu, vegna jsess
gengisótta, sem fer eins og
eldur í sinu um viðskipta-
lífið.
Þeasar ráðstafanir, sem gerð
ar voru í dag í gjaldeyrisfoönk
unum voru undanfari ákvörð-
unar um, að allar gjaldeyris-
beiðnir fari í athugun hjá gjald
eyrisdeild bankanna, áður en
afgreiðsla fer fram. Nær sú
meðferð til allra greiðslna,
einnig þeirrar vöru sem er á
frílista.
Þessi breytta tilhöguo á eink
um að miða að því, að bank
arnir láti ekki gjaldeyri í té
fyrir ógjaldföllnum kröfum.
Tíminn reyndi að afla upp-
lýsinga um þessi mál í dag,
en fékk alls staðar óljóis svör.
Starfsmenn í gjaldeyrisbönkun
um sögðu að eiginlega væri
ekkert að frétta. Það hefði
bara verið að stoppa fyrir vöru
innflutninginn, en þetta hlyti
allt að skýrast í dag. Dagur-
inn leið hins vegar svo, að
ekki skýrðist málíð', *ög ekki
barst blaðinu nein fréttatil-
kynning um þessar breytingar.
Tíminn hefur áreiðanlegar
heimildir fyrir því, að í athug
un sé hvað haegt sé að yfir-
færa á þessum tímuni. Hins
vegar hefur ekki verið tekin
nein ákvörðun um að stöðva
gjaldeyrissölu.
Mikið hefur borið á tilhneig
ingu til að borga skuldir, sem
stofnað hefur verið til áður en
nauðsyn krafði. Sú athugun,
sem nú fer fram, beinist að
því að menn séu ekki að yfir-
færa gjaldeyri fyrirfram —
eða löngu áður en þeir eru
skyldugir til þess.
Ýmsir menn í viðskiptalíf-
inu hafa verið að búast við
gengisfellingu, eða einhverju
ámóta. Þessi gengisótti manna
hefur leitt til þess, að þeir
hafa viljað komast úr sem
Pramhalrl a ms lö
Þama er maður a'ð reyna að bjarga því sem bjargað verður af kartöfl-
um undan snjónum, en erfitt er að koma vélum við undir slíkum
kringumstæðum. (Tímamynd SP)
FYRSTU MÓT-
MÆLI LISTA-
MANNA í PRAG
I NTB-Prag, þriðjudag.
Samband tckkneskra tón-
verkahöfunda ásakaði í opnu
bréfi sem birtist í Prag-dagblað
inu Slovobodne Slovo í dag,
Alexander Dubcek, flokksleið-
! toga fyrir að liafa látið undan
þvingunum Sovétmanna og
kröfðust um leið tryggingar
fyrir frelsi í lista- menningar-
og menntalífi þjóðarinnar.
Þessi mótmæli gegn stjórn-
málaþróuninni í Tékkóslóvakíu
! siðustu vikurnar eru þau fyrstu
er koma frá sambandi mennta-
1 manna síðan Moskvu-sáttmál-
i rnn var undirritaður, en hann
] fól í sér ritskoðun á fjölmiðlun
i artækjunum og skerti pólitískt
i sjálfstæði í Tékkóslóvakíu á
1 ýmsan hátt.
í bréfinu, sem undirritað er
af tónsmiðunutp, eru nöfn
flokksleiðtogana ekki nefnd á
nafn en augljóst er við hverja
er átt. Tónsmiðirnir segjast
óttast þróunina í Tékkósióvak-
iu, sérstaklega að hin styrka
samstaða, sem verið hefur að
baki flokksstjórninni, muni
smátt og smátt rofna.
Tónlistarmennirnir ásaka Du
bcek og samstarfsmenn hans
fyrir að hafa horfið frá ýmsum
þeim stefnumiðum. sem gert
var ráð fyrir í frjálsræðisáæti-
uninni, sem samþykkt var fyrir
hernámið'
Framhald á bls 14
KARTÖFLUR FYRIR HUNDRUÐ
ÞÚSUNDA LÍGGJA UNDIR SNJÓ
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Kartöflur fyrir hundruð
þúsunda eru enn í jörð undir
snjó á Svalbarðsströnd og
Höfðavík, og hafa bændur
orðið fyrir stórfelldu afurða-
tjóni af þessum sökum. Þeg-
ar áhiaupið gerði í október
er áætlað, að enn hafi verið
í jörðu kartöflur á þessum
slóðum að verðmæti 1,5—2
milljónir króna.
Skúli Jónasson, kaupféiags-
j stjóri Kaupfélags Svalbarðseyrar |
á Svalbarðseyri sagði Tímanum í
dag, að ljóst væri nú, að bændur
! yrðu fyrir miklu afurðatjóni
J vegna kartafla, sem ekki hefðu
! náðst upp úr jörðinni vegna snjóa.
j Væri óhætt að segja að afurða-
! tjónið næmi hundruðum þúsunda
króna hjá bændum á Svalbarðs-
strönd og Höfðahverfi. Skúli sagði
að tjónið væri enn tilfinnanlegra
vegna þess að nú í ár voru horfur
á góðri kartöfluuppskeru, eftir
tvö slæm kartöfluár. Urn mánaða
mótin sept.—okt. var góð tíð, og
kartöflugrös stóðu enn, svo menn
drógu það heldur að taka upp.
Síðan kom áhlaupið, með snjó
og frosti, og lögðust þá kartötflu
akrarnir undir snjó. Síðan hafa
menn verið að reyna að nó upp
kartöflum undan snjónum, en þær
eru enmþá algjörlega óskemmdar,
og hefur frostið ekki náð niður
á þær. Snjórinn og kartöflugrös
in verja kartöflurnar fyrir frost-
Framhald á bls. 14
BETRI KAMBAR
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Fyrir nokkru síðan var byrjað
að lagfæra Suðurlandsveg í
Myndin var tekin efst í Könibum, og sýna endurbæturnar sem gerðar liafa vcrið ofarlega, með því að
ryðja í burt klöppunum sem stóðu fram í vegiun. (Tímamynd I.I)
Kömbuin og var vegurinn af þeim! ur. en endurbótum er þó ekki
sökum lokaður um tíma, en nú Iokið.
er umferð leyfð uin veginn aft
Vegurinn hefur verið breikkað
ur efst í Kömbum og gerð vatns
rás við veginn. Fyrir neðan beina
kaflann í miðjum Kömbum hafa
tvær beygjur verið teknar af
veginum, og er nú unnið að því
að ganga frá veginum þar. Þá
hafa verið gerðar smávægilegar
lagfæringar hér og hvar í Kömb
unum og fyrir ofan þá. í gær var
búið að bera ofan í veginn, og
var hann illfær fyrir litla bila af
þeim sökum. Ofaníburðurinn hafði
vaðizt upp * ,en hann er leirkennd
ur, og mun þarna hafa átt að
reyna nýjan ofaniburð.
Veruleg bót verður að þessum
vegaframkvaómdum þegar lokið
verður við þær, og var sannar
lega tími til kominn að eitthvað
yrði gert til að endurbæta Suður
landsveg á þessum kafla.