Vísir - 27.07.1977, Page 5
vism
/ 1
Miðvikudagur 27. júli 1977.
Andy Young vissi hvað hann söng:
Kynþáttamisrétti er
Assýrisk fjölskylda: Litarmunurinn er lltill, en nógur samt.
vandamál í Svíþjóð
Fyrir tveimur mán-
uðum móðgaði Andrew
Young, sendiherra
Bandarikjanna hjá
Sameinuðu þjóðunun ,
Svia óskaplega þegar
hann sagði að þeir
væru kynþáttahatarar.
Young sagði að þótt
Svíar væru ákaflega
frjálslyndir á yfirborð-
inu, væru þeir undir
niðri ekkert betri en
hvitir kynþáttahatarar
i Suðurrikjum Banda-
rikjanna.
Sviar urðu öskuvondir og
Young varð að draga i land. En
fréttir sem hafa verið að berast
frá Sviþjóð að undanförnu,
benda til þess að Young hafi
haft töluvert til sins máls.
Einn þeirra sem hefur miklar
áhyggjur af þvi sem er að ger-
ast i Sviþjóð er forstöðumaður
sænsku innflytjendaskrifstof-
unnar, sem segir að framkoma
margra Svia sé ógeðsleg.
Undanfarnar vikur og
mánuði hefur hvað eftir annað
komið til átaka milli ungra Svia
og assyriskra flöttamanna sem
eru um sexþúsund talsins i land-
inu.
Aðeins dekkri á hörund
Assyriumenn draga nefn af
hinu forna keisaradæmi, en þeir
eiga sér ekkert heimaland og
eru dreifðir viðsvegar um Mið-
austurlönd, og Austur-Evrópu.
Assyriumenn eru af hvitum
kynstofni, þótt þeir séu nokkuð
dekkri á hörund en Sviar. En
þessi litlu litbrigði nægja til of-
sókna á hendur þeim.
Það eru reyndar fyrst og
fremst „Raggararnir” sem
áreita þessa innflytjendur.
Raggarar eru heldur leiður lýð-
ur, „afkomendur” leiðurklæddu
mótorhjólagæjanna sem þeystu
um Bandarikin fyrir áratug eða
svo.
En forstöðumaður innflytj-
endaskrifstofunnar, Kjell
Oberg, sér ekki mikla huggun i
þvi, vegna þess hvernig aörir
Sviar bregðast við. Raggarar
hafa alltaf verið til leiðinda og
farið um með barsmiðum og
spellvirkjum.
En hingað til hefur almenn-
ingur verið ákaflega mikið á
móti þeim. Það hafa oft orðið
mikil læti i Sviþjóð þegar
Raggarar hafa eyðilagt
skemmtistaði eða skemmti-
garða og blöðin hafa verið upp-
full af kröfum um að þeir verði
beittir hörku og ibúarnir
verndáðir gegn þeim.
Enginn mótmælir
En það hefur ekki borið á
neinum svona mótmælum
vegna árása þessara dela á inn-
flytjendurna. Oberg segir:
„Núna, þegar Raggararnir
ráðast á þessa minnihlutahópa,
segir enginn neitt. 1 stað þess
að reiðast og fordæma þá, segir
fólk að það skilji þá og tekur
jafnvel afstöðu með þeim”.
Það eru ekki bara Assyrfu-
menn sem verða fyrir aðkasti. 1
Sviþjóð er litill hópur sigauna,
og einnig þeir hafa orðið fyrir
barsmiðum og eigna-
skemmdum. Sömu sögu er að
segja um svertingja sem búa i
landinu.
Margir þeirra komu sem
flóttamenn frá Bandarikjunum,
til að losna við að ganga i herinn
og og vera sendir til Vietnam. í
þeim tima var i gangi nánast
heilög krossferð gegn Banda-
rikjunum, i Sviþjóð, og svert-
ingjunum var vel tekið. En nú er
„brúðkaupsferðinni” lokið og
sambúðin gengur illa.
Lögreglan hefur til dæmis
haft afskipti af fjórum veitinga-
stööum i Gautaborg, þar sem
mannréttindalög Sviþjóðar voru
brotin með þvi að lituöu fólki
var neitaö um inngöngu.
Kjell Oberg hefur lika
áhyggjur af framtiðinni.
„Þegar börn þessara innflytj-
enda vaxa úr grasi, munu þau
ekki sætta sig við þau ómerki-
legu og illa launuðu störf sem
foreldrar þeirra verða nú að
sætta sig við. Þau munu ekki
þola að vera beitt kynþáttamis-
rétti. Þau munu slá sér saman i
hópa og berjast. Og þá getum
við búist við óeirðum og bar-
dögum eins og við sjáum i svo
mörgum öðrum löndum”.
Af hverju?
En hvernig stendur á þvi að
kynþáttahatrið brýst fram með
svona miklum ofsa núna? Þaö
er sjálfsagt engin einhlit skýr-
ing á þvi. Hluti af vandamálinu
er þó versnandi efnahagur Svi-
þjóðar.
Fólk finnur fyrir þvi að góð-
ærið er ekki eins mikið og áður,
og þá reynir i rauninni fyrst á
raunverulegt frjálslyndi og
bróðurþel. Sviar virðast ekki
ætla að standast það próf betur
en aðrir.
Sænskir raggarar.
NÓTT
VILLI-
DÝRANNA
Húsgagnaverslanir voru
„hreinsaðar”.
Rafmagnið fór lika af sjúkrahúsum og læknarnir færðu sig út og
unnu við bflljós.
„Fólk breyttist i villidýr, þetta
var nótt villidýranna”, sagði ör-
þreyttur lögreglumaður þegar
birti af degi eftir svarta ógnar-
nótt i rafmagnslausri New York
borg.
Tugþúsundum saman þyrptust
menn út á göturnar til að ræna,
rupla og slást. Heilar verslunár-
götur voru lagðar i rúst og yfir
þúsund eldar voru kveiktir. Þeg-
ar slökkviliðsmenn komu á vett-
vang var stundum fyrir óður
skrill sem grýtti i þá öllu hand-
hægu.
Átta þúsund lögreglumenn
gerðu það sem þeir gátu, en þeir
gátu ekki verið allsstaðar i einu.
Þeir höfðu ekki tima eða getu til
að handtaka alla, svo þeir tóku til
þess bragðs að reka ræningjalýð-
inn út úr verslunum og skipa
þeim heim. En þá var bara ráðist
inn i verslunina við hliðina.
Lögreglan haföi skipanirum að
beita ekki hörku nema i itrustu
neyð, enda var furðulega litið um
alvarlg átök..En nóttin svarta
gleymist seint.
Trylltur múgur ræðst inn I birgðaskemmu til að ná sér i föt.
Lögreglan 1 átökum við harðskeyttan innbrotsþjóf.