Vísir - 27.07.1977, Blaðsíða 24

Vísir - 27.07.1977, Blaðsíða 24
VÍSIR gffiift maxí AVELING BARFORD ÞI#KMiriNNUVÉLAR ÖLL ÖKUTAKI SMÁOG STÓR _ P. STEFÁNSSON HR HVERFISGÖTU103 SÍMI 26911 fíg), Þurffa kaupmenn að selja kœlíborðin? Verð á rafmagni til kæliborða i matvöru- verslunum hækkaði allt að 50% um siðastliðin áramót. Voru þá teknir úr sambandi svonefnd- ir hemilmælar, og kaupmönnum gert að greiða fullt verð fyrir það rafmagn er þeir nota til kæliborðanna. Síðar i dag verður haldinn fundur kaupmanna og Aðal- steins Guðjohnsen, rafmagns- stjóra i Reykjavik, um þessi mál, og vonast kaupmenn til að fá einhverja leiðréttingu sinna mála. Gunnar Snorrason, kaupmað- ur, sagði i viðtali við Vísi i morgun, aö óskapleg reiði væri meðal kaupmanna vegna þessa máls. Sagði hann, aö ef ekki fengist nein leiðrétting á þessu, væri ljóst, að kaupmenn myndu selja kæliborð sin, taka þau úr sambandi eða stórminnka notk- un þeirra. Það þýddi svo að sjálfsögöu minni þjónustu viö neytendur. Sagði Gunnar, að á- kaflega litil álagning væri á vörum sem geymdar væru i kæliboröum, enda væru það mestmegnis landbúnaðarvörur. Gunnar kvað kaupmenn lita svo á, að þeir væru að greiöa niður raforkuverð fyrir aðrar starfsgreinar, nánar til tekið vissar greinar iönaðar, en verslunin væri alls ekki þannig i stakk búin, að hún gæti það. Benti hann á, að vélar kæliborö- anna þyrftu aö vera i gangi all- an sólarhringinn, alla vikuna, en verslanirnar væru aöeins opnar i fimm daga á viku, milli klukkan niu og sex. Sagði Gunnar, að kaupmenn vonuðust fastlega eftir skilningi yfirvalda á málinu, og nú, sex mánuðum eftir að hækkunin hefði komið til framkvæmda, væri unnt aö meta hvaða áhrif hún hefði raunverulega haft, og taka ákvarðanir i samræmi viö það. Eftir að umsagnir viðkom- andi aðila hefðu siðan borist, væri það borgarráðs að taka endanlega ákvöeðun i málinu. —AH Þær vörur sem geymdar eru I kæliboröum eru meö lágri álágn- ingu og finnst kaupmönnum ekki borga sig að reka borðin fyrir þær. íslenskur perlusteinn ekki samkeppnisfœr „Jú, það er rétt að áætlaður kostnaður mið- að við fob-verð er ekki samkeppnisfær við það sem gerist i Grikklandi á perlusteininum”, sagði Svavar Pálsson forstjóri Sementsverk- smiðju rikisins. Hann er formaður ráðgjafar-' nefndar sem skipuð var til að skila áliti um hag- kvæmni perlusteins- vinnslu hér á landi til stjórnar verksmiðjunn- ar og iðnaðarráðu- neytisins. Svavar er nýkominn heim frá Grikklandi þar sem hann dvaldi til að kynna sér þessi mál. Hann vildi þó ekki tjá sig að öðru leyti um niðurstöður nefndarinnar en sagði að áliti hennar yrði skilað i næstu viku og fengju fjölmiðlar þá að kynna sér niðurstöður nefndarinnar. Landsvirkjun: Fó ekki að hœkka nœstu þrjó mónuði Afgreiðslu á hækk- unarbeiðni Landsvirkj- unar var frestað á rikisstjórnarfundi i gær. Þriggja manna gjaldskrárnefndin hafði áður hafnað hækkunarbeiðninni. Þar sem gert er ráð fyrir þvi i kjarasamningum aö hækkanir megi aðeins taka gildi siðustulO daga áður en endurskoðun visi- tölunnar fer fram, fær Lands- virkjun ekki hækkun næstu þrjá mánuði. Endurskoðuð visitala kemur út nú um mánaðamótin og næsti útreikningur hennar fer fram um mánaðamótin október — nóvember. Listaverk í Austur- strœti Borgarráð samþykkti á fundi sinum i gær, að komið yrði upp listaverki eftir Gerði Helgadóttur i Austur- stræti gegnt Hressingar- skálanum. Listaverk þetta er skúlptúr frá árunum li)50-B0, er Gerð- ur dvaldi i Paris. Litla myndin er af lista- verkinu, og hér sést hvar þvi verður kornið fyrir i Austur- stræti. —H.L. Fleiri dufl við ströndina Starfsmenn Landhelgisgæsl- unnar sprengdu i gær tundurdufl, sem fundist hafði við Krossnes á Austfjöröum. Er það að öllum likindum enskt að uppruna. „Það voru vegagerðarmenn þarna á staðnum sem ráku augun i duflið, er árfarveginum á staðn- um var breytt.”, sagði Þröstur Sigtryggsson hjá Landhelgis- gæslunni við Visi i morgun. ,,í gær komu svo varðskipsmenn á Tý á vettvang. Það var ekki hægt að komast að lokunni á duflinu og gera þaö óvirkt á þann hátt og þvi var brugðið á það ráð að hlaða á það sprengiefni og sprengja þaö siðan.” „Svona dufl hefur ekki fundist hér i langan tima,” sagði Þröstur. ,,En það rak óhemju magn af þessu að landi á sinum tima og það er ómögulegt að segja hvort fleiri slik leynast i sandinum hér og þar. Þessi gömlu tundurdufl geta vissulega verið hættuleg. En ég er ansi hræddur um að erfitt gæti orðið að hafa upp á þeim, jafnvel fyrir Breta sjálfa, þótt þeir hefðu fullkomnustu tæki til þess. Það hefur nú ekki gengið of vel að finna gullið hér, og þó vita menn hvar það er að finna. Hvað þá að auðvelt sé að þræða alla sanda á landinu í leit að svona Smáhlutum.”,sagði Þröstur að lokum. —HHH Hámark þrjóskunnar? Þrjóska og fýla hljóp i tvo bil- stjóra sem lentu i smávægilegum árekstri i gærdag. Hvorugur vildi viðurkenna aö hann ætti aö hóa i lögregluna, og sátu þvi báðir sem fastast i rúman hálftima, þar til lögreglan fór fram hjá af tilvilj- Areksturinn varð skammt frá mótum Suðurlandsbrautar og Vegmúla. Annar bilstjórinn karl- maður, þurfti að bakka vegna fyrirstöðu á veginum fyrir fram- an hann. Hann lenti þá a bil sem stúlka var isama mund aö bakka út úr bílastæði. Karlmaðurinn krafðist þess aö stúlkan sækti lögregluna, en hún sagði að hann hefði bakkaö á sig og þvi ætti hann að sækja lögregl- una. Hvorugt lét sig. Þau settust inn i bíla sina með skeifur á vörum, og biðu eftir þvi að hitt hreyföi sig. -ÓH Leitin enn árangursiaus Leitin að manninum sem saknað er við Purkey á Breiðafirði hefur enn engan árangur borið. Hann heitir Steingrimur Guðjónsson, 70 ára, úr Reykjavik. Leitinni er haldið áfram. —GA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.