Vísir - 27.07.1977, Blaðsíða 23

Vísir - 27.07.1977, Blaðsíða 23
Bréfritari telur að fólk aetti að bindast samtökum sem auðvelda mönnum að byggja sumarbústað, ; { Stórauka þarf framboð ó sumarbústaðalandi Fyrir skömmu birtist i Þjóð- viljanum leiðari þar sem ráðist var á sumarbústaði i einkaeign. Merkilegastur er leiðari Þjóðvilj- ans fyrir þá sök að hann leiðir glöggt i ljtís hversu miklir útlend- ingaralþýðubandalagsmenneru i islensku þjóðfélagi. Margir leita sér unaðar i faðmi islenskrar náttúru með þvi aö koma sér upp sumarbústað, þar sem þeir dveljast öllum stundum þegar færi gefst, aðallega við ýmiss konar störf, svo sem garð- rækt, skdgrækt, viðhald húss girðingar eða lóðar. Main taka ástfóstri við staðinn, setja sitt persónulega mark á hann. Trén sem ræktuð eru verða vinir þeirra og menn gæla við þá hugsun að eftirað þeirsjálfir eru farnir héð- an úr heimi, haldi þessi tré áfram að dafna og klæða landið. Þannig er sumarbústaðardvölin stöðug uppbygging og ræktun manns og náttúru. Maður verður sjálfstæð- ur og finnur sjálfan sig. Sumar- búðir verkalýösfélaganna eru allt annars eðlis, sambland af ame- riskri mótelhugmynd og austur- lenskri múgúthlutunarstefnu, og á lítið eða ekkert skylt við sumar- bústaði. Leysir vissa þörf, en kemur ekki i stað sumarbústaða. Að ætla slfkt eru hreinar öfgar. Það má skilja á leiðara Þjóð- viljans að allt sumarbústaðaland á fslandi sé nú uppgengið og það sem eftir sé sé aðeins til aö braska með það. Sannleikurinn er sá að sumar- bústaðaland er nær ótakmarkað á Islandi og þarf að gera ráðstafan- ir til að stórauka framboð þess. En i vegi stendur múghugsunar- háttur alþýðubandalagsmanna og sérgæðingshugsunarháttur bænda með Framsókn í broddi. fylkingar. Það er engu líkara en að I þeim púnkti þar sem framsókn og kommar geta orðið sammála megi fólk ekki lengur vera mennskt, heldur aðeins félags- eign litillar kliku, sem nennir enn að mæta félagsfundum i stein runnum félagsformum verka- lýðs- og samvinnumanna. Brask með sumarbústaði er sáralitið. Þeir sem þá eiga selja þá helst ekki meðan þeir sjálfir lifa. Hins vegar er meiri hætta á pólitlsku braski með úthlutun sumarbúða þar sem félagsstjórn- ir trana sér fram eins og alls stað- ar og nota skortinn til þess að tryggja sig i sessi. Lofsverð er hins vegar aðferö Hins isl. prentarafélags, sem notað hefur afl félagsins til þess aö hjálpa félagsmönnum aö eignast eigin sumarbústaðiog þar með afsalað sér pólitisku úthlutunarvaldi. Annars má efast um visdóm þeirrar stefnu að deila mönnum niður i sumarbústaðahverfi eftir stéttum og fyrirtækjum. Stórauka þarf framboð á sumarbústaðalandi. Menn þurfa að bindast samtök- um, sem auðvelda mönnum að eignast sumarbústað. Auka þarf möguleika fólks til samgangs i sumarbústaðalönd- um án tillits til þess I hvaða stéttarfélagi þeir eru eða hjá hvaða fyrirtæki þeir starfa. Náttúruunnandi ■ I ■ ■ ■ I Vandervell vélalegur Ford 4-6-8 strokka benzín og díesel vélar Opel Austin Mini Peugout Bedford Pontiac B.M.W. Rambler Buick Range Rover Chevrolet Renault 4-6-8 strokka Saab Chrysler Scania Vabis Citroen Scout Datsun benzín Simca og díesel Sunbeam Dodge — Plymouth Tékkneskar Flat Lada — Moskvitch Landrover benzín og diesel Mazda Mercedes Benz benzín og díesel bifreiðar Toyota Vauxhall Volga Volkswagen Volvo benzín og díesel I Þ JÓNSSON&CO Skeifan 17 s. 84515 — 84516 VÍSIR Vettvangur vióskíptanna Léttur iðnaður Prjónaverksmiðja i Kópavogi óskar eftir starfsfólki bæði i vakta- og dagvinnu um næstumánaðamót.Umsóknuir með helstu uppíýsingum svo sem aldur og fyrri störf sendist Visi merkt ..Léttur iðnaður” strax. ffienningar/tofnun Bandarikjonno Dr. Richard S. Wiliiams, jarðfræðingur við „EROS áætlun” hjá U.S. Geology Survey. Fyrirlestur með litskuggamyndum „En- vironmental Studies of Iceland with Land- sat Imagery”, fimmtudaginn 28. júli n.k. kl. 21.00. Menningarstofnun Bandarikjanna, Nes- haga 16. Simi 81565, 82715 og 44697. AUGLÝSING Fyrir nokkru siðan vorum við Kristmann Guðmundsson sam- an á spitala. Lágum við i her bergjum hlið við hlið og urðum málkunnugir. Ég hafði með mér á sjúkrahúsið nokkrar gamlar úrklippur úr dagblöðum, sem sumar hverjar eru mér mjög kærar, og nauðsynlegar við þá vinnu sem ég er að fást við um þessar mundir. Einn daginn kemur Krist- mann i herbergi mitt og sér úr- klippurnar og biður um að fá þær lánaðar. Það leyfi er auð- fengið, og segi ég honum að verði ég ekki við þegar hann hafi lokið við að lesa þær, þá geti hann sett þær inná vaktina hjá hjúkrunarkonunum. Daginn eftir þá fer Kristmann af sjúkrahúsinu, án þess að ég viti af þvi. Þegar ég fer til hjúkrunarkvennanna og hyggst ná i úrklippurnar segjast þær ekki hafa fengið þær, og vita ekki hvað ég er að tala um. Þá fer ég til Kristmanns og spyr hann um úrklippurnar, en hann telur sig hafa látið þær inná vaktina áður en hann fór af spitalanum. Mig langar nú til að biðja Kristmann að leita betur hjá sér ogi athuga hvort þetta hefur ekki farið einhversstaðar upp- fyrir hjá honum, og hafa siöan samband við mig. Guðmundur Björgúlfsson GLEYMIÐ EKKI AGFA COLOR LITFILMUNNI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.