Vísir - 27.07.1977, Blaðsíða 10

Vísir - 27.07.1977, Blaðsíða 10
10 Miðvikudagur 27. júli 1977. visir VÍSIR C!tn<*fandi: Kcykjaprrnt hf Kramkvæindastjóri: Davift (iuftmundsson KiUtjórar: l»orsteinn l’álsson ábm. i Olafur Kaj>narsson. Kitstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson Kréttastjóri erlondra frétta: Guftmundur G. Pétursson. [ • l'msjón meö llelgarblafti: Arni Þórarinsson. Blaftamenn: Anders Hansen, Anna Heiftur Oddsdóttir,! Edda Andrésdottir, Kinar K. Guftfinnsson, Elias Snæland Jónsson, Finnbogi Hermannsson, Guftjóm • Arngrimssom Hallgrimur H. Helgason. Kjartan L. Pálsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sveinn ’ Guftjónsson. Sæmundur Guftvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal. Gylfi Kristjónsson. Ctlitsteiknun: Jón Oskar Hafsteinsson. Magnús Olafsson l.jósmyndir: Einar Gunnar Einarsson, Jens Alexandersson, ( Loftur Asgeirsson. Síilustjóri: Páll Stefánsson Auglvsingastjóri: Dorsteinn Fr Sigurftsson. Dreifingurst jóri: Sigurftur K Pétursson Auglvsingar: Siftumúla H. Simar H22I.O, HMill. Áskriftargjald kr. CIOO á mánufti innanlands. Afgreiftsla: Stakkholti 2-4 slmi Htifill Verft i busasiilu kr. 70 eintakift. Kitsljórn : Siftumúla II. Simi Hfifill. 7 línur. Prentun : Blaftaprent lif. „Sósíalísk endurnýjun" I miðju sumarleyfi þingmanna hefur þaö verið annar helsti höfuðverkur daglegra talsmanna stjórn- málaf lokkanna að staðsetja Alþýðubandalagið í fylkingu evrópskra kommúnista- og sósíalistaflokka. Deilurnar um þetta efni eru athyglisverðar fyrir ýmsar sakir# þó að þær beri keim af hefðbundinni þrætubókarlist. Innan Alþýðubandalagsins sjálfs hafa komið fram margvísleg sjónarmið í þessu sambandi. Sumir helstu hugmyndafræðingar flokksins hafa haldið því fram, að f lokkurinn hér hafi í raun og veru verið brautryðj- andi hins svonefnda evrópukommúnisma. Aðrir vilja halda því fram, að Alþýðubandalagið standi ekki nær evrópukommúnismanum en stalinismanum. Bollaleggingar um þetta efni geta verið fróðlegar og jafnvel skemmtilegar, en þær snerta ekki kjarna málsins. Það verður heldur ekki talið höfuðatriði þessa máls, hvort eða að hve miklu leyti Alþýðu- bandalagiðer háð húsbóndavaldinu í Kreml, þó að það hafi að sjálfsögðu þýðingu i þjóðernislegu tilliti. Meginmáli skiptir að menn átti sig á því, hvernig þessar nýju hugmyndir, sem skotið hafa upp kolli, falla að lýðræðishugmyndum vesturlandabúa. Einn af hugmyndafræðingum Alþýðubandalagsins hefur réttilega ítrekað í blaðagrein, að evrópukommúnism- inn er fyrst og fremst kenning um sósíalíska endur- nýjun i Vestur-Evrópu. Þetta merkir það eitt, að gam- alt vín hefur verið sett á nýja belgi. Alþýða manna á vesturlöndum hefur hafnað sósíal- ismanum fyrir þá sök, að hann brýtur í bága við rikjandi lýðræðishugmyndir. Hin sósíalíska endur- nýjun er í því fólgin að breyta hugmyndafræðilegri framsetningu í þá veru, að hún falli ekki með öllu utan garðs með þeim þjóðum, sem vilja standa vörð um einstaklingsfrelsi og lýðræði. I stað byltingar á nú að fara lýðræðislega leið að sósíalismanum. Kommúnistaflokkarnir bjóðast til að taka á sig stjórnmálalega ábyrgð með borgaralegum flokkum. Þeir setja sig ekki upp á móti aðild að Atlantshafsbandalaginu eða Efnahagsbandalaginu. Þeir falla frá hefðbundnum kenningum um þjóð- nýtingu atvinnutækjanna, en setja þess í stað fram hugmyndir um svonefnda félagslega stjórn atvinnu- lífsins. Með félagslegri stjórn er ekki átt við annað en póli- tísk yfirráð. Ef þjóðnýtingin verður ekki framkvæmd formlega mun hún eiga sér stað með pólitískum skömmtunarstjórum. Um leiðer hið frjálsa markaðs- kerfi tekið úr sambandi. Félagsleg stjórn atvinnu- lífsins er ekkert annað en skömmtunarstjórastjórn. Sósíalisk stjórn af þessu tagi byggist á því, að skömmtunarstjórarnir þurfa að taka ákvarðanir um það, hverjar skuli vera þarfir einstaklinganna. Reynslan sýnir, að það verður ekki gert nema með valdboði. Stjórnarfarslegt lýðræði fær ekki staðist, þar sem efnalegt sjálfstæði borgaranna er þannig brotið á bak aftur. Sannleikurinn er því sá, að einu gildir, hvort kommúnista- eða sósíalistaf lokkar eru háðir Moskvu- valdinu, standa á eigin fótum í sínu heimalandi eða teljast vera grein af evrópukommúnismanum. Sósíal- ískir stjórnarhættir, hvort heldur þeir eru fram- kvæmdir með formlegri þjóðnýtingu eða pólitískum skömmtunarstjórum, eru einfaldlega ekki lýðræðis- legir. Hin sósíalíska endurnýjun, sem felst í evrópu- kommúnismanum breytir ekki eðli hugmynda- fræðinnar. Hér er eftir sem áður hreyfing á ferðinni, sem mun leiða til mjög verulegrar takmörkunar á lýðræði og efnalegu sjálfstæði borgaranna. „Ekkert varið í fyrirtœkið nema þar séu einhverjir erfiðleikar til að glíma við" — segir Jón Sigurðsson, róðuneytisstjóri, nýróðinn aðalframkvœmdastjóri Jórnblendifélagsins „Ástæðan þess að ég ákvað að hætta störfum hér sem ráðuneytisstjóri er einfaldlega sú, að mér fannst kominn timi til að breyta til”, sagði Jón Sigurðsson, ráðu- neytisstjóri Fjármála- ráðuneytisins i samtali við blaðamenn Visis fyrir helgi. Jón hefur sem kunnugt er veriö Nómsskró fyrir nýja nómsgrein lögð fram: Umhugsun í stað utan- bókarnóms Nýstárleg námsskrá mun berast kennurum grunnskólans á þessu hausti. Það er náms- skrá i samfélagsfræði, nýrri námsgrein, sem lengi hefur verið i undirbúningi. Hafa þar margir lagt hönd á plóginn og tilrauna- kennsla hefur farið fram i greininni bæði sunnan lands og norðan i litlum skólum og stórum. Það sem einkum er nýstárlegt i þessari námsskrá er að þar er gerð nákvæm grein fyrir þeim sjónarmiðum sem hún byggist á. Undirbúningi og tilrauna- kennslu er ekki enn lokið og er þvi kennurum og skólum I sjálfsvald sett hvort þeir kenna samfélagsfræði eða hinar hefð- bundnu greinar, sem henni er ætlað að leysa af hólmi, s.s. átt- hagafræði, sögu, félagsfræði og Nemendur eiga aö kynna sér efniö og draga siöan slnar eigin ályktanir. landafræði. Að þekkja umhverfi sitt. Megintilgangur náms i sam- félagsfræði er (íamkvæmt námsskránni að stuðla að því að nemendur öðlist þekkingu á um- hverfi sínu og þeirri veröld sem þeir lifa I og sögu hennar. Einn- ig að þeir verði færir um að afla sér upplýsinga um samfélag- ið, vega þær og meta og draga skynsamlegar ályktanir einir og i samvinnu við aðra. Loks er samfélagsfræðinni ætlað að búa nemendur undir að takast á við þau vandamál sem biða þeirra i lifinu, svo þeir geti i samvinnu við aðra tekið ábyrgar ákvarðanir sem varða þá sem einstaklinga og samfé- lagið i heild. Umhugsun — ekki utanbókarnám. Námsefni i samfélagsfræði er ætlað til umhugsunar en ekki til „utanbókarnáms”. Nemendur eiga að athuga það og ihuga og draga sinar eigin ályktanir. Með þvi öðlast þeir betri skilning á verkefninu. Þá efnið að vera áhugavekj- andi og forvitnilegt og auðvelt að tengja það reynslu nemenda. Þar sem ætlunin sé að vekja umhugsun og vekja spurningar er i námsskránni ekki talið æskilegt að i námsefninu séu settar fram tilgátur, alhæfingar eða mat. Nemendur eigi sjálfir að geta dregið sinar eigin ályktanir eftir að hafa kynnt sér efnið. Þannig er talið æskilegt aö nemendur leiti sjálfir skýringa á hegðun fólks, samskiptum þess, við- horfum og tilfinningum. Frá fjölskyldunni til samskipta rikja heims. Á fyrsta námsári fjallar sam- félagsfræðin um f jölskylduna og skólann, en smátt og smátt er sjóndeildarhringur nemenda vikkaður. Þeir kynna sér samfélög i köldu landi (eskimó- ar) og heitu (í Tansaniu)). Kanna samskipti fólks, ólika siði, venjur og reglur. Áhrif landshátta I Evrópu á líf manna eru könnuð. Mörg önnur atriði eru tekin fyrir gegnum grunnskólann, en I 9. bekk lýkur náminu með þvi að fjallað er um þróun nútimaþjóð- félaga og heiminn sem eina samskiptaheild. —SJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.